Morgunblaðið - 05.06.1937, Blaðsíða 6
6
MORGITNBLAÐIÐ
Laugardagur 5. júní. 1937-
Hneykslið I Bifreiða-
einkasölunni. „
FRANKLIN’S
m mffii
Koladragnæfur,
Ýsudragnælur,
Dragnófatóg.
íxij
Olafur Oísl»fion & Co. h.f.
Sími: 1370.
V átrygging arhlutafj elagið
NYE DANSKE AF 1864
Liftryggingai'
allar tegundir. Lægst iðgjöld. Best kjör.
Aðalumboð:
V átryggingarskrif stofa
Sigíúss Sighvalssonar,
Lækjargötu 2. Sími 3171.
Sfmi 1380. LITLA BILSTOÐIN Er nokknC rtór
Opin allan sólarhringinn.
Rúðugler.
Útvegum allar tegundir af RIJÐUGLERI.
Eggert Krlst)ánsson & Co.
Sími 1400.
Heildsalarnir
K. E. A. og
S. í. S.
Herra ritstjóri!
Þann 19. maí ræðst Nýja dag-
blaðið heiftarlega ó S. í. S. og K.
E. A. Það segir: „Takmark heild-
salanna er að eyðileggja innlend-
an iðnað“. Þessujn ; orðum sínum
hlýtur það að beina fyrst og
fremst til S. í. S. og K. E. A., sem
eru nu fyrir 'atjBeiftíi pólitískra
hrakmenna og loddara stærstu
heildsalar þessa lapds, og K. E. A.
stærsti iímflýtjandi iðnaðarvara.
Það kemur úr ólíklegustu átt —
•ins og þjófur úr hleiðskíru lofti
— að Nýja dagbiaðið skuli ráðast
þannig á og fletta ofan af fyrir-
ætlunum skjólstæðinga sinna, en
það kemur máske engum á óvart,
því ref'strygðiu er jafnan ótraust.
Þessi umín«eli blaðsins geta ekki
snert’ neinn af hinum óskipulögðu
heiðvirðu heildsölum, með því að
innflutningur þeirra er orðinn það
hverfandi, að áhrifa .hans og
þeirra gætir vart, og þeir á öll-
um svæðum hafa að keppa við
þessa drísildjöfla, sem allir njóta
meira eða minna viðskiftalegra
sjerrjettinda, sem þó engan veg-
inn hafa auðveldað þeim sam-
kepnina við hina hundeltu en heið
virðu heildsala, sem á öllum sviðum
kafa yfirburði yfir þá um útveg-
»n vara, hæði hvað verð þeirra og
gæði snertir.
Um örtraðarstarfsemi þessarar
stefnu ber sagan ljósastan vott,
og til þess að fá staðfesting þess
eymdarástands, sem hún hefir
leitt yfir þjóðina, er einfaldast að
fara á þá staði, sem þessi helstefna
hefir verið hvað mest starfandi og
ráðandi. Eigin sjón og sagan er
•lýgnust. Skal í því sambandi
henda á — fyrir utan hina þjóð-
kunnu staðí éíhs og Hafnarfjörð,
Isafjörð o. fl., þaf sem skipulagn
Lrtgin hefir fest rætur og sam-
vinnufjelagsskapurinn hefir náð
hámarbi sínu — Aknreyri, sem
er á hraðri leið til hins sama ó-
fremdarástands fyrir atbeina
hinnar dauðn handar K. E. A. Þar
^em skipulagning glæpafjelaga er
tekin til fyrirmyndar í þjónustu
pólitískrar samvinnn. þar er alt
persónulegt athafnafrelsi drepið,
en fjöldinn gerður að viljalausum
þrælum í klóm lýðskrumara og
lbddara, sem nota kúgaðan fjöld-
ann sjer til persónulegra hags-
hóta. En fyrst Nýja dagblaðið fyr
ir murm þessara skjólstæðinga
sinna segir hváS' 'þeír hafi í huga
í framtíðinni, þá er það ekki mitt
að efast nm, að rjett sje með far-
ið, enda líka hjer um að ræða
þeirra eigið málgagn.
FKAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
hafa gripið í taumana, og
bannað að nota gjaldeyririnn í
þessa vitleysu.
DÝRT
VIÐHALD
Hjer er um að ræða bíla,
sem eigendurnir ytra vildu
losa sig við. Þeir kusu að losna
við þann mikla viðhaldskostnað,
sem á bílana myndi nú falla.
Það mun vera gefið upp að
þessir bílar hafi verið keyrðir
þetta frá 25—60 þús. kílómetra,
og minni mun notkunin ekki
vera. En hún getur líka verið
miklu meiri, því að enginn er
til hjer sem veit; upi notkun bíl-
anna.
En það sjá allir'heilvita menn
að viðhald slíkra bíla verður
mjög kostnaðarsamt, sjerstak-
lega þeirra, sem leigðir eru út
á stöðvunum.
Eins og fyr er frá skýrt kosta
bílarnir hjer á staðnum um 4
þúsund krónur að jafnaði.
Hjer verða menn að byrja
með því að kaupa nýtt gúmmí
á bílana, því að gúmmíið, sem
þeim fylgir endist ekkert hjer á
vegunum. Þetta hleypur kostn-
aðinum fram um 370—450 kr.
Þá er verð bílanna komið upp
í 4370—4450 kr.
En svo fullyrða kunnugir að
nýjan mótor þurfi að setja í
flesta þessara bíla þegar á
næsta ári, eða jafnvel fyr. —
Það er aukakostnaður upp á
h50 kr., og er þá gengið út frá
að gamli mótorinn sje tekinn
upp í andvirði hins nýja mó-
tors.
Þá er verð bílsins komið upp
í 4920—5000 kr.
En ágætir, nýir tilsvarandi
bílar, tilsvarandi tegunda, af
sömu stærð og endurbættir
myndu kosta hingað komnir um
5000 krónur.
Sjá allir af þessu hvílík regin
heimska það er, að vera að
kaupa þessa gömlu, notuðu bíla.
Þar er stórfje kastað algerlega
á glæ.
ATVINNA
BÍLSTJÓRA
EYÐILÖGÐ
En ekki nóg . með að þessi
heimskulega rá&smenska Bif-
reiðaeinkasölunnar kosti landið
stórfje, heldur bætist þar á of-
an, að sumaratvinna bílstjór-
anna verður eyðilögð að miklu
leyti.
Fólksbílastöðvarnar og þeir
bílstjórar, sem hafa leigt bíla
til fólksflutninga hafa yfirleitt
barist í bökkum, og þeim hef-
ir gengið erfiðlega að fá end-
urnýjaða sína bíla. Atvinna bíl-
stjóranna hefir verið stopul og
rýr í vetur og þeir bygðu því
alla sína von á sumaratvinn-
unni.
En þá kemur Bifreiðaeinka-
sala ríkisins til sögunnar bg
dembir alt í einu inn á markað-
• ■' i
ínn 75—90 folksbílum, ög sjá
væntanlega allir að þetta hef-
ir geysileg áhrif á atvinnu bíl-
stjóranna nú í sumar. Það er
alvég víst að sumaratvinna bíl-
stjóranna verðúr rýrð stórkost-
lega með þessari ráðsmensku
Bifreiðaeinkasölunnar.
Bifreiðaeinkasölunni hefir
því með ráðsmensku sinni tek-
ist að vinna þetta tvent:
1. að kasta stórfje á glæ fyr-
ir kaupin á þessu gamla bíla-
rusli, og
2. að eyðileggja sumarat-
vinnu bílstjóranna, með því að
demba alt í einu inn á mark-
aðinn þessari bílamergð.
Þessi ráðsmenska sýnir að
þeir menn, sem standa fyrir
Bifreiðaeihkasölu íslands eru
ekki starfi sínu vaxnir.
*
Fornbílasalar í Englandi
hljóta að fá undarlegar hug-
myndir um þetta ríkisfyrirtæki
á Islandi, sem sækist svona fast
eftir vöru sem þeir vilja ólmir
losna við. Það er sagt, að þeir
hafi gert út sendimann hingað,
til þess að bjóða fleiri gamla
bíla til sölu.
Það verður að krefjast þess
að Gjaldeyris- og innflutnings-
nefnd grípi hjer í taumana, því
að það verður að teljast full-
komið hneyksli að verja hundr-
uðum þúsunda af þeim litla
gjaldeyri, sem þjóðin hefir yfir
að ráða í slíka vitleysu, sem
þessi bílakaup einkasölunnar.
Vitanlega bar Gjaldeyris- og
innflutningsnefnd skylda til að
láta af hendi gjaldeyri til nauð-
synlegra endurnýjunar á bílum
landsmanna. En það átti að
gera með því að kaupa hæfi-
lega marga, nýja bíla, en ekki
með því að kaupa gamalt bíla-
rusl.
Til nýrra bíla þarf að jafnaði
lítið sem ekkert viðhald í tvö
ár, svo að það sjá allir hvort
ekki hefði verið hagstæðara að
leyfa gjaldeyri til slíks, í stað
þess að kasta honum út í vit-
leysu, eins og Bifreiðaeinkasal-
an hefir gert.
SKEMTISTAÐUR
SJÁLFSTÆÐISMANNA.
FRAMH. AF FJÓRÐU SÍÐU.
Gufunesi mun verða haldin
sunnudaginn 13. þ. m.
En veitingar fást nú í véit-
ingaskálanum og eflaust mun
fjöldi manns dvelja á Eiði í
frístundunum um helgina, ef
veður verður gott, einkanlega
J þó þar sem strætisvagnarnir
| hafa nú tekið upp fastar áætl-
J uriarferðir inn eftir.
Sjálfstæðisfólk er hreykið af
í sumarskemtistað sínum, enda
er full ástæða til þess.
1 Hittumst heil að Eiði!
Hátíðahöld Góðtemþlara á Akra-
nesi. Ludvig C. Mágnússon, skrif-
stófustjóri Sjúkrasamlagsins, bið-
iir þá menn, er myndir eiga frá
hátíðahölclunum á Akranesi og
ferðalagi stúknanna rneð „Fagra-
nesi“ og „Laxfossi", að sýna. sjer
myndir þessar og ef til vill lána.
- Símanúmer kosningaskrifstofu
Sjálfstæðisflokksins eru 2907 og
2339.
Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnar-
firði hefir opna kosningaskrif-
stofu í Strandgötu 39 (áður útbú
Landsbanka íslands). Skrifstofan;
er opin alla daga og þangað ættu
menn að snúa sjer viðvíkjandi Al-
þingiskosningunum. Sími 9228.
Leikfjelag Reykjavíkur sýnir
sjónleikinn Gerfimenn sunnudag-
inn 6. júní kl. 8 í allra síðastá
:! nobi
P. Stefánsson frá Þverá.
Þingvallaferðir
daglega.
BifreiHastiöt) ^teindúrs.
Sími 1580.
smn.