Morgunblaðið - 09.10.1937, Síða 2

Morgunblaðið - 09.10.1937, Síða 2
2 Laugardagur 9. okt. 19->7. MORGUNBLAÐIÐ ---------‘Tj-- Ófriðarhættan eykst vegna Spánarmálanna. Italir auka enn stuðning sinn við Franco. Frakkar krefjast tafariaust heimsendingu erlendra sjálfboðaliða. FRÁ FRJETTARITARA VORUM. KAUPMANNAHÖFN í GfÆR. & Ofriðarhættan í Evrópu eykst með degi hverjum út af Spánarmálunum. Bret- ar og Frakkar eru sífelt að krefja 1- tali um svar þeirra viðvíkjandi brottsendingu er- lendra sjálfboðaliða á Spáni. Hingað til hafa I- talir ekki gefið nein ákveðin svör, en nú er þó svo komið, að ítalska stjórnin hefir lofað að gefa á- kveðið svar á morgun. Málgagn Mussolini „Popolo cTItalia“ skýrir frá því í dag, að búast megi við því, að ítalir neiti algerlega að taka þátt í nokkurri ráðstefnu um Spánarmálin, nema Þjóðverjum sje boðin þátt- taka. Þá segir blaðið að Italir muni gera kröfu til þess, að heimsending erlendra sjálfboðaliða frá Spáni verði rætt í hlutleysisnefndinni, en ekki á fundi, þar sem nokkrar þjóðir sjeu aðilar. Breska stjórnin hefir opinberlega skýrt frá bv>, að henni sje kuunugt um, að Italir haldi áfram að veita Franco lið í stórwm stíl. Hafi ítalir nýlega sent Franco margar sprengjuflugvjelar og mikið af öðrum hergögnum (í frjett frá London (FÚ) segir, að breska stjórnin hafi lýst því yfir, að 15 þúsund ítalskir hermenn hafi verið settir á land í Cadiz. Italska stjórnin mótmælir þessari fregn.) Orðrómur gengur um það, að Mussolini hafi látið hervæða 125 þúsund manns og sent þá til Suður-Ítalíu og Líbyu. Her- menn þessir eigi að vera til taks ef Bretar skyldu eitthvað gera sig líklega til hernaðaraðgerða. Orðrómur þessi hefir ekki hlotið neina staðfestingu og er talið heldur ósennilegt, að hann hafi við rök að styðjast. Frakkar taka hann samt alvarlega að einhverju leyti, sem m. a. sýnir sig í því, að Deibos utanríkis- málaráðherra Frakka hef- ir krafist þess, að erlendir sjálfboðaiiðar á Spáni yrðu tafarlaust sendir heim því að Frakkar gætu ekki lengur þolað að ítal- ir drægju það mál svo á langinn, sem raun væri orðin á. ÁRÁS Á ÍTALSKT SKIP. Nákvæmar fregnir hafa ekki borist ennþá um árás sem ílug- vjel á að hafa gert á írálskt skip, undan austurströnd Spán- ar. Það er álitið, að flugvjelin hafi tilheyrt spönsku stjórn- inni. Breska flotamálaráðuneytinu hafa ekki borist neinar áreið- anlegar fregnir um árás, er skip uppreisnarmanna á Spáni er sagt að hafa gert á 2 bresk skip undan norðurströnd Spán- ar. Eigendur annars skipsins segja, að það hafi ekki verið innan spánskrar landhelgi. ÞÝSKAR FLUGVJELAR SKOTNAR NIÐUR Á Norður-Spáni hafa flug- vjelar uppreisnarmanna haft sig talsvert í frammi undan- farna sólarhringa. Loftárás hef- ir verið gerð á Gijon, og valdið nokkru manntjóni. Stjórnin seg- ir, að tvær flugvjelar hafi verið skotnar niður og hafi báðar verið þýskar, og flugmennirnir Þjóðverjar. Áhöfn annarar flugvjelar- nar fórst, en 4 Þjóðverjar sem í hinni voru, voru teknir fastir. Einn komst undan. LOFTÁRÁS I loftárás, sem gerð hefir verið á Majorca, lenti sprengja í grend við bústað breska ræðis mannsins í Palma, og nokkrar sprengjur fjellu í 300 metra fjarlægð frá breska herskipinu „Delhi“. Kípverikir hermenn. Hermenn úr 29. herfylki Kínverja. Myndin er tekin skömmu eftir að þessi herdeild varð að yfirgefa Peking. RefsiaOgerðir geta ekki breytt fyrirætiunum vorum — segfa Japanir. FRÁ FRJETTARITARA VORUM. KAUPMANNAHÖFN í GÆR. Japanir segjast vera bæði forviða og grarn- ir út af því, að Cordeli Hull, utanríkis- málaráðherra Bandaríkjanna, skuli hafa látið svo um mælí, að Japanir hafi hafið á- rásarstríð í Kína og brotið þar með níu-velda- samninginnn. Aftur á móti eru Japanir glaðir yfir ræðu Mussolini, þar sem hann afsakaði Japani og fram komu þeirrá í Kína. Þó er yfirgnæfandi meiri- hluti Japana sagður móðgaður vegna þess, að Mussolini kallaði Japan fascistaríki. Japanska , frjéttastofan Domei sendir út þá frjett, að gera megi ráð fyrir því, að japanska stjórnin neiti að taka þátt í níu-veldaráðstefnu. Enrífremur segir frjettastofan: Siðferðilegar eða fjárhagfslegar refsiaðgerðir geta ekki hindrað Japani í að fara síriu fram í Kína. Óeirðlr ■ Indlandi xwmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmammmmmmmmmmmmmmmm 200 breskir her- menn hafa fallið Berlín í gær. Bardagarnir á Norð-vestnr- landamærum Indlands verða æ fleiri breskum her- mönnum að bana. í uppreist- inni í Baltistan voru 2 bresk- ir liðsforingjar drepnir í gær. Samkvæmt opinberri icM- kynningu breskra yfirvalda hafa fram að þessu 200 bresk- ir hermenn fallið, en 600 særst í óeirðum á þessum slóðum. Alls hafa útgjöld Breta af þessum orsökum numið upp- hæð, sem svarar til 12 miljóm ríkismarka. Þjóðverjar gram- ir breskum íhalds- mönnum. Frá Washington er símað að andúðin gegn Japönum og fas- cistum færist mjög í aukana meðal almennings í Bandaríkj- um, en að skiftar ékoðanir sjeu um það, hvort rjett sje að koma á viðskiftalegum refsiað- gérðum gegn Jaþöhum. EDEN ÁNÆGÐUR MEÐ RÆÐU ROOSEVELTS London í gsér. FÚ. Anthony Eden, utanríkis- málaráðherra Breta, tók í dag á móti fulltrúanum við sendi- sveit Bandaríkjanna í London og ljet í ljós ánægju sína yfir ræðu Roosevelts forseta. Sagði hann, að með þeim orðum, sem forsetinn hefði val- ið til þess að lýsa yfir afstöðu Bandaríkjastjórnarinnar til styrjaldarinnar í Kína hefði hann lagt mjög mikilsverðan skerf til friðarmálanna. Enn hafa ekki verið teknar neinar ákvarðanir um það, hvar eða hvenær 9-velda ráð- stefnan verður haldin. YFIRLÝSING VÆNTANLEG FRÁ JAPÖNUM í Tokio er sagt, að utanríkis- rálaráðuneytið muni innan skamms birta yfirlýsingu út af ummælum Roosevelts forseta um stvriöldina í Kína. London í gær. FÚ. Sú yfirlýsing, sem gerð v*r í þingi íhaldsflokkshw breska í gærkvöldi, að flokk- urinn væri á móti því, að Þýsk* landi væri skilað fyrri nýlen’d- um sínum, sætir afar mikilli gagnrýni í þýskum blöðum í dag. Telja þau Breta stjórnast í þessu máli af þröngsýni, og ruglaðri siðferjðiskend. RÁÐSTEFNA UM NÝLENDUMÁL Aftur á móti taka þau mjÖg vel tillögu, sem fram kom í gær hjá stjórninni í Natal í Suður- Afríku, þar sem stungið er wpp á að ráðstefna verði haldin *m nýlendumál í Afríku og Þjó#- verjum og ftölum meðal annaríB boðið á þá ráðstefnu. Anna Borg fær mikið hrós. Stærsta leikhús-tímarit Nor# urlandanna, sem heitir ,,Forum“, birtir nýlega grom um sýningu þá, er „Folke Teak- eret“ í Kaupmannahöfn hefto* haft á leikriti Kai Munks „sít urinn“. Frú Anna Borg ljek aðal- kvenhlutverkið í Ieiknum, og farast tímaritinu þannig orð om leik hennar: „Anna Borg hefir aldrei ▼«:- ið glæsilegri, en í hlutverki sín* sem kona kanslarans og h» undur hreimfagra rödd herm- ar rann á naerkilegan hátt saman við þ^u áhrif sem að persóna henpr.r hafði og yar leikur henner o|t hrífandi. AS eips ástríðurnar ræður hún ekki við, hún er gyðja innileikans, en ekki ástríðnanna á leiksviij' voru“. Sænsk og norsk blöð hafa einnig birt mjög lofsamlegar greinar um frú Önnu Borg. — (FÚ).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.