Morgunblaðið - 04.01.1938, Blaðsíða 7
f
Þriðjudagur 4. janúar 1938.
MORGUNBLAÐIÐ
Vjelbáturinn
„Þorsteinn"
strandar.
Vjelbáturinn „Þorsteinn",
einn hinna svo nefndu
bæjarbáta, strandaði á sunnu-
dagsmorguninn fram undan
Búðum á Snæfellsnesi. Mann-
björg varð og báturinn var heill
er siðast frjettist að vestan.
„Þorsteinn" fór hjeðan á
gamlársdag og ætlaði vestur á
Snæfellsnes til að sækja vikur-
farm að Arnarstapa.
Báturinn strandaði klukkan
7 um morguninn. Var veður þá
gott, en dimt yfir og vissu skip-
verjar ekki fyr til en báturinn
tók niðri. Auðvelt var fyrir
skipshöfnina að komast í land,
því sandfjara var þar, sem bát-
urinn strandaði.
Ekki þykir ólíklegt að hægt
verði að ná bátnum út, en í
gær var svo mikið brim vestra
að ástæðulaust þótti að senda
björgunarskip vestur á meðan
veður batnar ekki.
Breytt stjórn
Búnaðarbankans
Asíðasta þingi voru sem
kunnugt er samþykt lög
um að breyta stjórn Búnaðar-
bankans þannig, að hafa þar
einn aðalbankastjóra og eftir-
litsmann við hlið hans. En
Hilmar Stefánsson hefir verið
aðal-bankastjóri og þeir með-
stjórnendur hans Pjetur Magn-
usson og Bjarni Ásgeirsson.
Lög þessi eru að vísu ekki
staðfest, en þeim Pjetri og
Bjarna hefir verið sagt upp um
áramótin, enda eðlilegast að
breytingar á stjórn bankans fari
fram um áramót.
Ekki hefir blaðið frjett hvaða
embætti Bjama Ásgeirssyni er
setlað í staðinn, eða hver eigi
að vera eftirlitsmaðurinn.
Framboðslisti
Framsóknarflokksms
Dagbók.
□ Edda 5938166 — H.\ & V.\
St.\ Pyrl. R.\ M.\ Listi í □ og
hjá S. ■. M.:. til miðvikudags-
kvölds.
I. O.O. F. 1 =119141 ‘/2 = XX.
Tímadagblaðið birti á Gaml-
ársdag framboðslista
Framsóknarflokksins til bæj-
arstjórnarkosninganna.
Jónas Jónsson er efsti mað-
ur á listanum og Sigurður Jón-
asson forstjóri næstur honum,
en Hermann ^lónasson forsæt-
isráðherra rekur lestina í 30.
sæti.
Meirihluti þeirra, sem á list-
anum eru, eru úr málaliði
Framsóknarflokksins hjer í bæ,
eins og fyrri. Jónas Þorbergs-
son er ekki á listanum. Hlíðdal
ekki heldur.
Mjög mun það vera orðum
aukið, að þessir 30 menn hafi
miljón í árslaun . Það mun nær
lagi, að árstekjurnar sjeu sam-
anlagt kr. 600.000.
Ráðleggingastöð f. barnshaf-
andi konur, Templ. 3, opin fyrsta
miðvikudag í hverjum mánuði kl.
3—4.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
S- eða SV-kaldi. Smáskúrir eða
slyddujel.
Veðrið í gær (mánud. kl. 17) :
SV-læg átt um alt land. Bjart-
viðri á A-landi með 7—10 stiga
hita. Annarsstaðar skúrir eða
slyddujel og hiti 2—6 stig. Yfir
Grænlandshafi er nærri kyrstæð
lægð, sem fer minkandi, en yfir
Atlantshafi og Bretlandseyjum
er há loftþrýsting.
Næturlæknir er í nótt Jón G.
Nikulásson, Freyjugötu 42. Sími
3003.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki og Laugavegs Apóteki.
Hjónaefni. Á aðfangadag opin-
beruðu trúlofun sína ungfrú Guð-
ríður Guðmundsdóttir, Laugaveg
5 og Karl O. Bang verslm.
Hjónaefni. Á gamlársdag ,opin-
beruðu trúlofun sína ungfrú
Kristrún Jónsdóttir, Ljósvalla-
götu 14 og' Ásbjörn Jónsson frá
Deildará, Suðurgötu 18.
Kvenfjelagið Hringurinn gaf
eitt þúsund kr. til hjálpar fátæk-
um fyrir jólin. Var fjeð afhent
dómkirkjuprestunum til útbýt-
ingar.
Xþróttaskólinn. Kensla í skól-
anum hefst í dag aftur eftir jóla-
fríið.
Ófeigur Ófeigsson læknir hef-
ir flutt lækningastofu sína núna
um áramótin, og verður hún
framvegis á Skólavörðustíg 21A.
Karlakór Reykjavíkur heldur
árshátíð sína í Oddfellowhúsinu
n.k. laugardag kl. 8 e. h. Þeir
styrktarfjelagar, sem ætla að
sækja hátíðina, eru beðnir að
snúa sjer til Óskars Gíslasonar
hjá Eimskip fyrir 5. þ. m.
Hjónaefni. Á gamlárskvöld op-
inberuðu trúlofun sína frk. Elín
Jóhannesdóttir frá Sauðárkróki
og Marinó Ingjaldsson sjómaður,
Bakkastíg 5.
Ungbamavernd Líknar, Templ-
arasundi 3 opin þriðjud. og föstu-
d. kl. 3—4.
Kolaskip kom í fyrrinótt með
farm til Geirs H. Zoega.
Jólatrjesskemtun ætlar Vjel
stjórafjelagið að halda að Hótel
Borg hinn 12. jan.
í Siglufirði liefir Sjálfstæðis-
flokkurinn lagt fram lista sinn
til næstu bæjarstjórnarkosningar.
Tíu efstu menn listans eru: Ole
Hertervig bakarameistari. Aage
Schiöth lyfsali, Jón Gíslason
verslunarstjóri, Guðmundur Haf-
liðason hafnarvörður, Sigurður
Kristjánsson útgerðarmaður, Eg-
ill Stefánsson kaupmaður, Frið-
björn Níelsson bæjargjaldkeri,
Alfons Jónsson fátækrafulltrúi,
Ásgeir Jónsson verslunarstjóri og
Eyþór Hallsson skipstjóri.
Skíðafjelagið „Siglfirðingur"
hafði boð inni í Skíðaborg í fyrra
dag. Var þar fjöldi bæjai’manna.
Húsið er mjög mikið umbætt:
Raflýst og rafhitað, og að öllu
leyti hið vistlegasta. Formaður
fjelagsins, Sófus Árnason, rakti
sögu fjelagsins og gerði grein
fyrir hag þess: Fjelagið er
tveggja ára gamalt og fjelaga-
tal 170. (FÚ)
Jólatrjesskemtun heldur knatt-
spyrnufjelagið „Fram“ í Oddfell-
owhúsinu í kvöld kl. 5. Seinna
um kvöldið verður dansskemtun
fyrir fullorðna.
Lögreglustjóri í Keflavík. Al-
freð Gíslason hefir verið skipað-
ur lögreglustjóri í Keflavík.
Karl Guðmundsson aðstoðar-
læknir á Þingéyri hefir verið
skipaður lijeraðslæknir í Dala-
lijeraði.
Jóhann Þorkelsson læknir á
Akureyri var í gær skipaður
hjeraðslæknir í Akureyrarhjeraði.
Útsprungixm fífill fanst 2. jan-
úar sunnanundir Briemsfjósi við
Njarðargötu. Sýnir þetta best hve
óvenjulega tíðin hefir verið mild
hjer undanfarið.
íþróttaæfingar hjá Glímufjel.
Ármann hefjast aftur í kvöld í
öllum flokkum.
Glímufjel. Ármann heldur há-
tíðlegt 32 ára afmæli sitt í Iðnó
föstudaginn 7. þ. m. og hefst
það með' sameiginlegri kaffi-
drykkju kl. 9. Ennfremur verð-
ur ýmislegt til skemtunar, og er
skemtunin aðeins fyrir fjelags-
menn og gesti þeirra.
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína ungfrú Anna
Guðjónsdóttir og Guðmundur
Guðmundssón, Bergþórugötu 6B.
Sjúklingar í Kópavogi hafa
beðið Mbl. að færa þeim Svein-
birni Þorsteinssyni og Ólafi
Beinteinssyni kærar þakkir fyrir
komuna og ágæta skemtun s.l.
fimtudag.
Farþegar með Gullfossi til út-
landa í gærkvöldi: Richard
Thors, Thor R-. Thors, Gunnar
Proppé, Ástráður Proppé, Her-
mann Jónasson forsætisráðherra,
Sigurður Jóriásson, Páll Jónsson,
Viðar Pjétursson, frú Inga Sör-
ensen, Þór Sandholt, Jóhanna
Líndal, Þorbjörg Sturladóttir,
Guðm. Hlíðdal, Þorvaldur Hlíð-
dal, Steinar Guðmundsson, Major
Neith, Þorsteinn Eiríksson, Jón
Sigurðsson, Othar Möller, Pjetur
Símonarson, Laufey Gísladóttir,
Anna Sigurðardóttir, Fríða Eyj-
ólfsdóttir, Gísli Steingrímsson og
13 straridmenn. Til Vestmanna-
eyja: Eysteinn ' Jónsson fjármála-
ráðherra o. fl.
Útvarpið:
Þriðjudagur 4. janúar.
8.30 Dönskukensla.
10.00 Veðurfregnir.
12.00 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfregnir.
18.45 Þýskukensla.
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Þingfrjettir.
19.50 Frjettir.
20.15 Erindi: „Þektu sjálfan
þig“, IV (Jóhann Sæmundsson
læknir).
20.40 Hljómplötur; Ljett lög.
20.45 Húsmæðratími: Skammdeg-
iskvöld í fámenni, II (ungfrú
Sigurborg Kristjánsdóttir).
21.05 Kantötukór Akureyrar syng-
ur- (frá Akureýri). Söngstj.:
Björgvin Guðmundsson.
21.50 Hljómplötur: Kvartett
F-dúr, eftir Dvorák.
22.15 Dagskrárlok.
Framtöl
til tekju- og eignaskatts
eiga að vera komin til skattanefndar fyrir 1. febr. Fram-
tölunum verður veitt móttaka í skattstofunni, Suðurgöt*
15, alla virka daga frá 5. janúar til 1. febrúar kl. 6—10
e. m., og geta þeir, sem þess óska, fengið þar aðstoð til að
fylla út framtöl sín.
Eftir 1. febrúar verður ekki tekið á móti framtölum
nema frá þeim, sem frest hafa samkvæmt lögum, en þein*
áætlaður skattur, sem ekki telja fram.
Hafnarfirði 4. jan. 1938
SKATTANEFNDIN.
Sími 1380.
LITLA BILSTOÐIN
Opin allan sólarhringinn.
Er nokkuð stór.
Best að auglýsa í
Morgunb1 aðinu.
Vegna farðarlarar Jóns Gunnarssonar
fyrverandl Samábyrgðarstfóra vcrðnr
skrifstofa
Samábyrgðar íslands ð Miskipum
lokuð allan daginn í dag.
Vegna farðarfarar Jóns Gunnarssonar
fyrverandi Samábyrgðarstjóra verðnr
skrifstofa
Trolle & Rothe h.f.
lokuð frá kl. 12 á hádegi í dag,
i
Maðurinn minn
JES ZIMSEN
andaðist 3. janúar.
Ragnheiður Zimsen.
Hjer með tilkynnist, að jarðarför
Friðmundar Friðlaugssonar
fer fram frá dómkirkjunni miðvikudaginn 5. þ. m. kl. 2.15.
Aðstandendur.
Jarðarför móður og tengdamóður okkar
Sigrúnar Sigurðardóttur
fer fram frá Fríkirkjunni fimtudag 6. janúar, og hefst með
bæn á Elliheimilinu „Grund“ kl. iy2 e. hád.
Jón Tómasson. Pjetnr Pjetursson.
Eydís Jónsdóttir.
Jarðarför móður minnar
Susie Briem f. Taylor,
er andaðist 29. f. m., fer fram föstudaginn 7. þ. m. frá Kristi
konungs kirkjni í Landakoti kl. 10 f. h.
Sigurður H. Briem.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda hlnttekningu við andlát
og jarðarför móður og tengdamóður okkar
Margrjetar Magnúsdóttur frá Mörk.
Börn og tengdaböm.