Morgunblaðið - 12.01.1938, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 12. jan. 1938.
Maðurinn, sem
mest er talað
um í Evrópu
Frfettaritari vor í KKiofn gerir grein fyrir því,
.... hvaða afleiðingar það liefur eff
Octavian Goga.
t>essi maður er Octavian
Goga, 56 ára forsætisráð-
berra Rúmena, foringi
kristilega þjóðræknisflokks
ins, óvinveittur Gyðing-
um og ákafur stuðnings-
maður öflugrar konungs-
stjórnar í Rúmeníu. Hann
er af sumum kallaður
Hjtler Rúmena; hefir m. a.
getið sjer orð fyrir að vera
ágætt skáld.
Ýmsir spá stjórn hans
sömu örlögum og stjórn
Hitlers var spáð í febrúar
1933, fyrstu vikurnar eft-
ir að hann tók við stjórn-
artaumum: að hún mundi
falla og hernaðareinræði
taka við.
Meðal lýðræðisþjóða í
Evrópu hefir stjórn Goga
vakið óhug. Síðustu frjett-
ir segja (skv. Lundúna-
fregn F.O. í gærkvöldi),
að sendiherra Sovjet-Rúss-
lands í Bukarest hafi far-
íð fram á það við Sovjet-
stjórnina að hún endurkalli
sig til Moskva. Hann telur
að stjómarbreyting sú, sem
átt hefir sjer stað í Rúm-
eníu, geri það þýðingar-
laust að hann sje þar leng-
ur.
JEKKERT NÝTT
Bardagarnir við Teruel virðast
hafa hjarað út síðan síð-
ustu leyfar uppreisnarhersins inn-
an borgarinnar gáfust upp.
Báðir stríðsaðilar tilkynna, að
í dag sje alt með kyrrum kjörum
á öllum vígstöðvum. (FÚ.).
SÍLDARMARKAÐIR
ÞRENGJAST.
Norski verslunarráðunautur-
inn, Johannesen, skýrir svo
frá að Sovjet-ríkin framleiði nú
orðið alla þá síld sem þau þurfi
að nota og yfir höfuð sjeu slæm-
ar horfur um aukna síldarsölu til
Evrópulandanna, nema ef vera
kynni til Eystrasaltslandanna og
Póllands. (FÚ.).
japanar segja Kínverjum
formlega stríö á henöur
Fnndur keisarale^a
stórráðsins i Tokio
i gærmorgun
Það er búist við að hið keisaralega jap-
anska stórráð, sem kom saman á fund
í gærmorgun í fjórða skifti í sögu
Japana, hafi sambykt: 1) að halda styrjöldinni í
Kína áfram, þar til mótstaða Kínverja er að fullu
brotin á bak aftur og 2) að segja Kínverjum form-
lega stríð á hendur. Það er ekki búist við að á-
kvarðanir stórráðsins verði birtar fyr en að nokkr-
um dögum liðnum.
I London hefir breska ráðuneytinu verið boð-
ið (skv. Kalundborgarfregn F.tJ.) að vera til taks
að mæta á fundi undir eins og niðurstöður Tokio-
fundarins eru kunnar.
ALVARLEGAR AFLEIÐINGAR.
Alment er álitið að það myndi geta haft mjög alvarlegar
afleiðingar, ef japanska stjórnin tekur þá ákvörðun, að segja
Kínverjum formlega stríð á hendur. Helstu afleiðingamar myndu
verða (símar frjettaritari vor);
1) Hlutleysislög Bandaríkjanna ganga í gildi gagnvart Jap-
önum og Kínverjum, þ. e. vopnaútflutningur til beggja
aðila frá Bandaríkjunum verður bannaður.
Af þessu myndi tjón Kínverja verða meir en Japana, þar eð
allmikið hefir verið flutt af hernaðarflugvjelum og öðrum her-
gögnum frá Bandaríkjunum til Kína.
2) Japanir öðlast lagalegan rjett til þess að setja hafnbann
á borgir í Suður-Kína, en með því myndu þeir geta stöðv-
að allan flutning á vopnum til Kínverja sjóleiðina.
Nú er mikið af vopnum flutt til Kína um borgirnar í Suður-
Kína, en þó einkum (að því er Japanir fullyrða) um Hong-Kong.
Hong-Kong er bresk eign, og ef Japanir reyndu að setja hafn-
bann á hana, er hætt við að af því hlytist alvarlegur árekstur
milli Breta og Japana.
3) Japanir toka Yangtze-
fljótinu og neyða erlend
herskip til þess að fara
burtu af fljótinu.
Allar helstu borgimar í Mið-
Kína liggja við Yangtze-fljót:
Shanghai, Nanking, Hankow
(núverandi aðsetur Chiang Kai
Sheks) o. fl.
4) Japanir fá kærkomið til-
efni til þess að leggja
undir sig alþjóðahverfið í
Shanghai.
Þetta myndi sennilega leiða
af sjer deilur milli Japana ann-
asrvegar, og Breta, Bandaríkja
manna og Frakka hinsvegar.
Stjórnmálasam-
bandi slitið.
Franska frjettastofan „Agen-
ce Havas“ hefir frjett að í
vændum sje að stjórnmálasam-
bandinu verði slitið milli
Kínverja og Japana. Sendi-
herra Kínverja í Tokio hefir
um nokkurt skeið verið ferðbú-
inn og hefir krafist þess að fá
vegabrjef sitt.
Fjármálaráðherra Japana
sagði á ráðuneytisfundi í
gær, að Japan væri fjár-
hagslega við því búið, að
standa straum af langvar-
andi ófriði (segir í Lund-
únafregn F.Ú.).
Áður höfðu verið höfð eftir
ráðherranum ummæli sem fóru
í aðra átt.
Danska útvarpið segir (skv.
F.Ú.) að meðal annars sje í ráði
að breyta skipun tollmála í
Norður-Kína sem Japanir hafa
nú á valdi sínu, svo að það gefi
þeim mjög verulegar tekjur
og fleiri ráðstafanir hefir
stjórnin með höndum í þá átt.
120 ÞtJS. KRÓNUR.
London í gær. FÚ.
Undirnefnd hlutleysisnefndar-
arinnar kom saman á fund
í .dag í London.
Formaðurinn sagði að fimm
þúsund sterlingspund mundi þurfa
til þess að standast kostnaðinn við
störf nefndarinnar, sem á að hafa
eftirlit með framkvæmd þess að
útlendir sjálfboðaliðar sjeu fluttir
burt frá Spáni.
Grlög þúsund
manna í Norður
íshafi í húfi
FRÁ FRJETTARITARA VORUM.
KAUPMANNAHÖFN í GÆR.
Það er óttast að hræðileg örlög bíði þús-
und manna um borð í átta rússnesk-
um verslunarskipum og þrem ísbrjót-
um í Norður-íshafi, að því er „Politiken“ skýrir
frá. Skipin hrekur norður á bóginn með pólísnum
norður af Síberíu.
Þau eru komin norður fyrir 78. breiddar-
gráðu. Matarforði og kolaforði er á þrotum.
Skipin áttu í september að fara norð-austur-
leiðina, en vegna þess hve vetur gekk snemma í
garð festust þau í ísnum. ísbrjótarnir voru þá
sendir þeim til hjálpar, en þeir festust líka í ísnum.
Rússar leggja mikið kapp á að dylja það fyrir
umheiminum, hve horfur eru ískyggilegar.
Þar sem vetrarmyrkur grúfir nú yfir, er mjög
erfitt að nota flugvjelar til þess að flytja skipun-
um matarforða og hjálpa þeim á annan hátt.
Loftflotinn
tvöfaldaður
London 11. jan. F.Ú.
Loftfloti Breta hefir verið
aukinn um helming frá
því um sumarið 1933, að því er
flotamálaráðherra upplýsti í
gær.
En vorið 1935 var flugvjela-
fjöldi breska flotans 580.
PÓLVERJAR OG
ÞJ ÓÐVERJAR.
London 11. jan. F.Ú.
Ræða sú, er Beck utanríkis-
málaráðherra Póllands
flutti í Varsjá í gær, er alment
álitin benda til þess, að Pól-
verjar sjeu að nálgast Þýska-
land stjórnmálalega, en þó tók
Beck það fram í lok ræðu sinn-
ar, að Pólverjar stæðu fast við
samninga sína við Frakka.