Morgunblaðið - 12.01.1938, Blaðsíða 3
Miðvikudagnr 12. jan. 1938.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Svar Haralds
við ofríki og
frekju Hjeðins:
Rauðu flokkarnir hafa lagt
Revkjavík í einelti
Hjeðinn rekinn úr
Fiskimálanefnd!
Fiskimálanefnd hefir nú að nýju verið
fullskipuð, og vekur það alveg sjer-
staka athygli, að ríkisstjómin (at-
vinnumálaráðherra) hefir ekki fengist til að skipa
Hjeðinn Valdimarsson aftur í nefndina.
Nefndin esr þannig skipuð:
Fjelag ísl. botnvörpuskipaeig-
enda hefir tilnefnt Þorleif Jóns-
son, Hafnarfirði, og til vara Kjart
an Thors.
Fiskifjelag Islands hefir tilnefnt
Kristján Bergsson og til rara öeir
Sigurðsson.
Landsbankinn hefir tilnefnt
Júlíus Guðmnndsson og til vara
Jón Maríasson.
Utvegsbankinn hefir tilnefnt
Helga Guðmundsson og til vara
Guðmund Ólafs.
Samband ísl. samvinnufjelaga
hefir tilnefnt Pálma Loftsson og
til vara Runólf Sigurðsson.
Alþýðusambandið hefir tilnefnt
Jón Axel Pjetursson og til vara
Sigurjón Á. Ólafsson.
Loks hefir ríkisstjórnin (at-
vinnumálaráðherra) tilnefnt Bmil
Jónsson og til vara Jónas Guð-
mundsson.
Nefndin kýs sjer sjálf formann
og var sú breyting gerð á síðasta
þingi, en áður skipaði atvinnu-
málaráðherra formann.
Hjeðinn Valdimarsson hefir,
sem kunnugt er, verið formaður
Fiskimálanefndar frá byrjun og
þar ráðið öllu. Br það fyrir löngu
landskunnugt hvérnig hann hefir
farið með það fje, sem Fiskimála-
nefnd fekk í sínar hendur, og þá
er alþjóð einnig kunn hin mörgu
og stórfeldu hneyksli, er urðu í
sambandi við fisksölur nefndar-
innar, til Póllands, Ameríku o. s.
frv.
Þegar síðasta þing kom saman
var þessi stofnun, Fiskimálanefnd-
in, í raun og veru ekkert annað
en eitt stórt gjaldþrota fyrirtæki,
sem hvergi naut hinnar minstu
tiltrúar. Þá gat Hjeðinn kúgað
Framsóknarflokkinn til þess að
endurlífga nefndina, með því að
verja til hennar 400 þús. kr. í
viðbót við það, sem hún áður fekk.
Mikill hluti þessa fjár skyldi
ganga til styrktar kaupum á
tveimur nýtísku . togurum, sem
Tímamenn segja að reka skuli með
samvinnusniði, sbr. Haukaness- og
Gullfoss útgerðin, sem sjómenn
kannast við.
Ekki fór Hjeðinn dult með það
á Alþingi, að enn yrði það hann,
sem öll ráð fengi í Fiskimála-
nefnd. Hann gekk út frá því sem
gefnu, að hann og enginn annar
yrði þar allsráðandi áfram.
En nú skýrir Alþýðublaðið frá
því í gær, að Hjeðinn hafi fengið
„frí“ frá störfum í Fiskimála-
nefnd, og er annríki hans borið
við. Kunnugir vita þó, að „ann-
ríkið“ er ekkert annað en það,
að Hjeðinn er kominn yfir til
kommúnista, sem er í óþðkk Har-
alds Guðmundssonar, atvinnu-
málaráðherra.
Brottrekstur Hjeðins £r Fiski-
málanefnd er ekkert annað en
svar Haralds Guðmundssonar við
ofríki Hjeðins síðustu dagana í
viðureigninni við Jón Baldvinsson
og aðra hægfara sósíalista.
Ekki er minsti vafi á, að það
er happ fyrir Fiskimálanefnd og
útveginn yfirleitt, að Hjeðinn
hefir nú verið leystur frá störf-
um í nefndinni.
Útför Jes Zimsen
Utför Jes Zimsen kaupmanns
í gær var mjög fjölmenn.
Kom þar í Ijós á ýmsan hátt hve
miklum vinsældum hann átti að
fagna, og hve starf hans hafði
verið margþætt í bæjarfjelaginu.
Húskveðjuna á heiinili hans í
Hafnarstræti 18 og ræðuna í kirkj-
unni flutti síra Bjarni Jónsson.
Stjórn Yerslunarráðsins bar
kistuna í kirkju, en út úr kirkju
báru Oddfellowar. Síðan bar
stjórn Utgerðarmannafjelagsins
kistuna út í líkvagninn er stóð í
Kirkjustræti.
Fyrir líkfylgdinni gengu menn
úr Verslunarmannafjelagi Reykja-
víkur og önnur fylking Oddfell-
owa. En nemendur úr Verslunar-
skólanum stóðu fylktu liði við
kirkjudyr er líkfylgdin kom þang-
að.
Inn í kirkjugarðinn báru kist-
una fyrst menn úr Verslunar-
mannafjelagi Reykjavíkur, þá
stjórnarnefndarmenn Sjóvátrygg-
ingarfjelagsins, og síðast að gröf-
inni starfsmenn við Verslun Jes
Zimsens.
LÍÐAN DROTNINGAR.
Kalundborg í gær. FU.
íðustu fregnir af líðan Alex-
andrínu drotningar eru á þá
leið að í nótt hafi henni liðið
sæmilega vel, en sje þó talsvert
þreytt eftir uppskurðinn.
Sjómannakveðjur. Lagðir af
stað áleiðis til Englands. Vellíð-
an allra. Skipshöfnin á Snorra
goða. — Lagðir af stað áleiðis
til Englands. Kærar kveðjur. Vel-
líðan. Slupverjar á Júpíter. (FB.).
C-listinn er listi Sjálfstæðis-
manna í Reykjavík.
Minnist þessa Reykvík-
ingar nú við bæjar-
stjórnarkosningarnar!
Reykvíkingar ættu vel að fylgjast með
skrifum stjórnarblaðanna nú fram að
bæjarstjórnarkosningunum og bera
þau saman við aðgerðir stjómarliða á Alþingi í
garð Reykjavíkurbæjar og íbúa hans.
„Dýrtíðin vex stöðugt í Reykjavík. Útsvörin hækka með
hverju ári. Aðalatvinnuvegur bæjarbúa, sjávarútvegur-
inn er rekinn með tapi ár frá ári. Atvinnuleysið fer ört
vaxandi“.
Þetta er aðaluppistaðan 1
skrifum stjórnarblaðanna nú,
og er ekki ófróðlegt að bera
þessi skrif saman við það sem
talað er á Alþingi, þegar verið
er þar að leggja byrðarnar á
Reykvíkinga.
„Dýrtíðin vex stöðugt í
Reykjavík“, segja stjórnarblöð-
in. Hverjir eiga sökina á því?
Skyldu það ekki vera stjórnar-
flokkarnir, sem á hverju þingi
leggja á nýja skatta og tolla
og hækka þá, sem fyrir eru?
Þegar stjórnarflokkarnir
lögðu á viðskiftagjaldið —
öðru nafni „klauflaxinn" — á
þinginu 1935, lýstu þeir hvað
eftir annað yfir því, að þessi
nýi verðtollur ætti aðeins að
ná til eins árs. En tollurinn
var óðara framlengdur á þing-
inu 1986. Á síðasta þingi var
þessi þungbæri tollur ekki að-
eins framlengdur, heldur var
hann stórlega hækkaður, meira
en þrefaldaður á sumum vör-
um. Og nú var engin vara und-
anskilin. Toliurinn nær til allra
vara. Er nú að undra, þótt dýr-
tíðin vaxi, þegar hátollum er
hrúgað á brýnustu nauðsynjar
fólksins?
¥
„Útsvörin hækka með hverju
ári í Reykjavík", segja stjórn-
arblöðin.
Hvað veldur því að útsvörin
hafa hækkað?
Stjórnarflokkarnir hafa í lög
gjafarstarfi sínu lagt aðalá-
hersluna á, að þyngja byrðar
Reykjavíkurbæjar. Nýju fram-
færslulögin eru gleggst dæmi
þessa, þar sem meginþunga fá-
tækrabyrðarinr.ar var velt yfir
á Reykjavíkurbæ. Og þegar svo
á síðasta þingi að sett eru lög,
sem miða að því að koma á
jöfnuði í fátækrabyrðinni, er
þannig um hnútána búið, að
Reykjavík fær ekki eyri af því
fje, sem varið er í þessu skyni!
\ þingi í vetur reyndu gæð-
ingar Tímaliðsins að fá það lög-
fest, að Reykjavíkurbær fengi
ekki eyri af útsvari þeirra
manna, er laun taka úr ríkis-
sjóði eða hjá ríkisstofnun. Það
átti m. ö. o. að lögfesta það, að
hálauna- og málalið stjórnar-
klíkanna yrði skattfrjálst til
Reykjavíkurbæjar!
Með meirihlutaaðstöðu sinni
í niðurjöfnunarnefnd hefir
stjórnarliðið komið því þannig
fyrir ,að útsvör burgeisa og há-
launamanna stjórnarflokkanna
fara lækkandi, á sama tíma,
sem útsvör almennings fara
hækkandi, eins og dæmin frá
síðustu niðurjöfnun sönnuðu.
Þetta hefir Tímaliðinu ekki þótt
nóg, og þessvegna reyndi það
að fá lögfest algert skattfrelsi
til handa hálaunaliðinu!
Þetta skattfrelsi til handa
hálaunaliðinu fekst ekki lög-
fest á þinginu, en það verður á-
reiðanlega reynt betur síðar.
Það þarf engan að undra,
þótt útsvörin hækk; í Reykja-
vík, þar sem stjórnarflokkam-
á Alþingi beinlínis sníða lög-
gjöfina þannig, að byrðarnar
lendi sem þyngst á Reykja-
vík, en jafnframt neita bænum
um aukna tekjustofna. Og þá
'er jafnan viðkvæðið þetta:
Reykjavík er svo auðugur bær,
að hann þolir vel að bera byrð-
arnar! Stingur þetta óneitan-
lega mjög í stúf við skrif
stjórnarblaðanna nú.
*
„Aðalatvinnuvegur bæjar-
búa, sjávarútvegurinn er rek-
inn með tapi ár frá ári“, segja
stjórnarblöðin. En hvað hafa
stjórnarflokkarnir i á Alþingi
gert, til þess að stöðva þenna
taprekstur? Því er fljótsvarað,
þeir hafa ekkert gert.
Nú er það staðreynd, að af-
koma alls almennings í bænum
og ekki síst verkafólksins, er
öll undir því komin, að sjávar-
útvegurinn gangi vel. Og þar
sem verkafólkið var einmitt svo
heppið, að hafa í sæti atvinnu-
málaráðherra verklýðsforingj-
ann og alþýðuvininn sjálfan,
Harald Guðmundsson, mætti
ætla, að hann gætti þess að
þessi lífsbjörg verkafólksins
stöðvaðist ekki.
Aðferð ríkistjórnarinnar er í
stuttu máli þessi: Hún skapar
óþolandi dýrtíð, svo að sjómenn
og verkafólk, sem hafa lífs-
framfæri sitt hjá útveginum,
neyðist til að gera auknar kröf-
ur. En útvegurinn, sem kröf-
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
Greta Garbo
í jölaleyfi
Greta Garbo dvaldi í Svíþjóð
um jólin. Hún fór þangað með
sœnska skipinu Gripsholm, undir
dulnefni. En hún var uppgötvuð
og þessi mynd tekin.
Mesta útllutn-
ings verðmæti
I mðrg úr
Hagstæður
verslunarjöfnuður
\ árinu 1937, sem var
óvenju hagstætt um
verðlag á mörgum helstu
útflutningsvörum okk-
ar, varð verslunarjöín-
uðurinn hagstæður um
7.3 miljónir krónur. Ot-
flutt var samtals fyrir
kr. 58.928.600, en inn-
flutt fyrir kr. 51.626.-
200.
Það er athyglisvert
að saltfisksútflutningur
okkár varð 1.4 milj.
krónum meiri að verð-
mæti en árið 1936. Er
hjer um beina verðhækk
un að ræða, þar sem út-
flutningsmagnið var
minna (1937: 38.4 þús.
smál., 1936: rúml 39
þús. smál. verkaður og
óverkaður saltfiskur).
Saltfiskurinn er enn stærsti
einstaki liðurinn í utanríkis-
verslun okkar með kr. 15.9
milj. eða 27%.
Langstærsti plúsinn í utan-
ríkisverslun okkar 1937,
er þó síldin. Síldarafurðir,
síld, síldarolía og síldar-
mjöl voru flutt út fyrir
samtals kr. 19.9 milj. árið
1937, en fyrir rúml. 14
milj. krónur árið 1936.
FBAMH. Á BJÖUNDU SÍÐU
I