Morgunblaðið - 12.01.1938, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 12. jan. 1938.
MORGUNBLAÖIÐ
7
VERSLUNAR-
JÖFNUÐURINN.
Dagbók.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
Mismunurinn er tæpar 6
milj. krónur.
Hjer fer saman óvenjulega
i-ikil síldveiði á síðastliðnu ári
«g hin mikla verðhækkun á síld
arafurðum á erlendum mark-
aði. Síldarmjöl var flutt
út fyrir kr. 5.4 milj. (25.8 þús.
smál.), síld fyrir kr. 5.8 milj.
og síldarolía fyrir kr. 8.7 milj.
(21.4 þús. smál.) Enn mun all-
mikið ófarið af síldarolíu af
landinu, sem ekki kemur
þessvegna á skýrslur fyr en
1938.
Aðrir liðir útflutningsskýrsl-
unnar eru:
Isfiskur 3.85 milj. kr.
Freðfiskur 1.5 — —
Lýsi 4.1 — —
Gærur 2.5 — —
Freðkjöt 2.2 — —
Ull 2.9 — —
Það er glögt dæmi um hið
á s. 1. ári, að ullarútfl. var ekki
að ullarútflutningurinn var ekki
nema 727.460 kg. árið 1937,
en árið 1936 voru flutt út 839,-
476 kg. fyrir aðeins kr. 1.878.-
470.
Þannig er það engu öðru en
hinu háa verðlagi á ísl. afurð-
um og ágætu síldarári að
þakka, að ekki skyldi hafa
tekist ver um utanríkisverslun
okkar en raun ber vitni.
Hið nýja ár byrjum við
með minni fiskbirgðir en
dæmi eru til um mörg undan-
farin ár. Síðustu 4 árin hafa
fiskbirgðir í landinu verið sem
hjer segir:
1937 2.732 þur tonn.
1936 9.582 — —
1935 18.598 — —
1934 17.778 — —
Hinar minkandi fiskbirgðir
eiga rót sína að rekja til dæma-
fás aflabrests tvö síðastliðin ár.
Fiskaflinn hefir verið fjögur
síðastl. ár sem bjer segir:
1937 27.959 smál.
1936 29.131 —
1935 50.002 —
1934 61.880 —
Að lokum er hjer samanburð
ur á innfl. og útflutningnum
aíðustu 4 árin:
Iinnflutt Útflutt
1937 51.626.200 58.928.600
1936 41.631.300 48.238.900
1935 42.600.050 43.880.900
1934 48.480.400 44.761.300
FYRIRSPURNIR TIL
NÝJA DAGBLAÐSINS.
Út af grein í blaðinu í gœr um
lækkað fiskverð, skora jeg á það
að svara þessum spurningum:
Telur blaðið það heilbrigt við-
skiftalíf, að Fiskimálanefnd selur
fisk langt undir framleiðsluverði T
Var ekki tilgangurinn með
Fiskimálanefnd sá, að hún aflaði
markaða fyrir fisk annars staðar
en í Reykjavík?
Er það í samræmi við skipu-
lagningu á afurðasölu, s. s. kjöti
og mjólk, að Fiskimálanefnd yfir-
fyllir fiskmarkaðinn í Reykjavík
með fiski, sem seldur er með tapi?
Hafliði Baldvinsson
fisksali.
C-listinn er listi Sjálfstæðis-
manna í Eeykjavík.
Veðurútlit í Rvík í dag: All-
hvass SA. Slydda eða rigning.
Veðrið (þriðjudagskvöld kl. 5):
Hæg S- og SA-átt um alt land
með 1—2 st. hita. Nokkur slydda
eða rigning á S- og A-landi, en
þurt veður vestan lands og norð-
an. Djúp lægð yfir Grænlandshafi
og útlit fyrir að hún þokist NA-
eftir.
Næturlæknir er í nótt Sveinn
Pjetursson, Garðastræti 34. Sími
1611.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.
ísfisksala. Gyllir seldi afla sinn
í Hull í fyrradag 1343 vættir
fyrir 700 stpd.
Lyra kom. í gærmorgun frá
Bergen.
C-listinn er listi Sjálfstæðis-
manna í Reykjavík.
Hjúskapur. S.l. laugardag voru
gefin saman í hjónaband af síra
Bjarna Jónssyni ungfrú Lilja Sig-
urðardóttir og Ólafur Jónsson.
Heimili þeirra er á Laugaveg 161.
Ingólfur Gíslason verslunarmað-
ur á Laugaveg 40 hefir beðið
blaðið að geta þess, að það sje
ekki hann, sem er á lista þjóð-
ernissinna við bæjarstjómarkosn-
ingarnar.
Eimskip. Gullfoss er í Kaup-
mannahöfn. Goðafoss er í Kaup-
mannahöfn. Brúarfoss fór frá
Leith í gær áleiðis til Vestmanna-
eyja. Dettifoss kom til Vopna-
fjarðar kl. 2 í gær. Lagarfoss er
í Kaupmannahöfn. Selfoss fór frá
Akranesi í gærkvöldi, áleiðis til
Vestmannaeyja og útlanda.
Sjálfstæðismenn utan af landi,
sem staddir eru hjer í bænum,
munið að kjósa hjá lögmanni og
gerið það tímanlega, svo að at-
kvæðið komist, til skila í tæka tíð.
Upplýsingar viðvíkjandi kosning-
unni fást á kosningaskrifstofu
Sjálfstæðismanna í Varðarhúsinu,
sími 2398.
C-listinn er listi Sjálfstæðis-
manna í Reykjavík.
Sjálfstæðismenn, þeir sem hafa
í hyggju að fara burtu úr bæn-
um fyrir kjördag, verða að muna
að kjósa hjá lögmanni áður en
þeir fara. Kosningaskrifstofa lög-
manns er í Arnarhvoli og opin
alla virka daga kl. 10—12 árd. og
1—4 síðd. Allar upplýsingar við-
víkjandi kosningunni geta menn
fengið á kosningaskrifstofu Sjálf-
stæðismanna í Varðarhúsinu, sími
2398. Listi Sjálfstæðismanna
Reykjavík er C-listi.
Dagsposten, sem gefið er út í
Þrándheimi, birti nýlega langa
grein, með mynd, um Guðmund
Hannesson prófessor. Greinin heit-
ir „En stor islending“ og er rit
stjórnargrein. í greininni er farið
mjög lofsamlegum orðum um ís
land og íslendinga.
Gefið upplýsingar, Sjálfstæðis-
menn, um flokksmenn, er staddir
kunna að vera úti á landi, en
kosningarjett eiga í Reykjavík
svo að unt sje að fá atkvæði þeirra
tímanlega. Kosningaskrifstofa
Sjálfstæðismanna í Varðarhúsinu
(sími 2398) tekur á móti öllum
slíkum upplýsingum.
ins heldur fund í Oddfellow-hús-
inu í kvöld.
Hreppsnefndarkosning í Stykk-
ishólmi. í kjöri fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn þar eru: Kristján Bjart-
mars oddviti, Hannes Stefánsson
stýrimaður, Sig. Agústsson kaup-
maður, W. Th. Möller símstjóri,
Ólafur Jónsson frá Elliðaey, Eb-
eneser Sivertsen trjesmíðameistari
og Magnús Jónsson frá Ási.
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ:
Áheit frá H. J. 3 kr., frá Keflvík-
ing 50 kr. Með þakklæti móttek-
ið. Guðm. Gunnlaugsson.
Listi Sjálfstæðisflokksins við
hreppsnefndarkosningar í Borgar-
nesi: Friðrik Þórðarson bókari,
Ásmundur Jónsson verslunarm.,
Magnús Jónsson gjaldkeri, Gísli
Magnússon skósmiður, Daníel
Björnsson trjesmiður, Þorsteinn
Magnússon verslunarm., Sigur-
steinn Þórðarson bifreiðastjóri,
Árni Björnsson verslunarstjóri,
Arnbergur Stefánsson bifreiðastj.,
Guðjón Bachmann verkstjóri.
Til Strandarkirkju (afh. Morg-
unbl.): Ljósmóðir 12 kr. S. M.
5 kr. G. B. 10 kr. G. K. 2 kr. F.
2 kr. G. S. og A. G. 10 kr. S. G.
og G. O. 10 kr. N. N. 4 kr. ó-
nefndur Skagfirðingur 20 kr.
Ónefnd kona á Stokkseyri 5 kr.
ónefndur (gamalt áheit) 40 kr.
Utvnrnffi:
12.00 Hádegisútvarp.
19.20 Hljómplötur: Lúðraaveitar-
lög.
19.50 Frjettir.
20.15 Bækur og naenn (Vllhj. Þ.
Gíslason).
20.30 Kvöldvaka:
a) Magnús Jónsson próf.: Dan-
mörk sjeð með íslenskum aug-
um.
b) Frú Ingunn Jónsdóttir:
Minningar.
d) Sigurður Egilsson frá Laxa-
mýri: Endurminningar frá
frostavetrinum 1917—18.
Ennfremur sönglög og harmón-
íkulög.
Skákþingið
2. umferð
Sement
seljum vjer frá skipshlið í dag og á morgun meðan
uppskipun stendur yfir.
Nánari upplýsingar á skrifstofu vorri.
J. Þorláksson & Norðmann.
Bankastræti 11.
Sími 1280.
Tíefiíbekkur
óskast keyptur. Má vera notaður.
Upplýsingar í síma 4264.
Vefnaðarvörur.
Útvegum allskonar vefnaðarvörur. Stórt
sýnishornasafn fyrirliggjandL
Eggert KrUtfánsson & €o.
Simi 1400.
» # m
Onnur umferð Skákþingsins
var tefld í fyrrakvöld og
fóru leikar þannig:
Meistaraflokkur: Áki Pjetursson
vann Gúðm. Ólafsson, Magnús G.
Jónsson vann Benedikt Jóhanns-
son. Einar Þorvaldsson og Stein-
grímur Guðmundsson biðskák.
1. flokkur: Sig. Lárusson vann
Á. B. Knudsen, Vigfús Ólafsson
vann Kristján Sylveríusson, Ingi-
mundur Guðmundsson vann Óla
Valdemarsson, Guðm. S. Guðm.
vann Jón B. Helgason.
2. flokkur A: Karl Gíslason
vann Stefán Þ Guðm., Sæm. Ól-
afsson vann Þórir Tryggvason,
Þorsteinn Gíslason og Anton Sig-
urðsson jafntefli, Guðjón B. Bald-
vinsson vann Ingim. Eyjólfsson,
Ársæll Júlíusson vann Bolla Thor-
oddsen.
2. flokkur B: E. Blomquist vann
Björn Björnsson, Einar Einarsson
vann Sig. Jóh., Daði Þork. vann
Þorl. Þorgr., Þorst. Jóh. vann Jó-
hannes Ilalldórsson, Sæm. Kristj-
ánsson, vann Inga Guðmundsson.
2. flokkur C: Óskar Lárusson
vann Ottó Guðjónsson, Egill Sig.
vann Ól. Einarsson, Guðjón Jóns-
Kvennadeild Slysavarnafjelags- son vann Aðalstein Halldórsson.
Lokað
frá kl. 12-4 fl dag wegna
jatðariarar.
HUSGOGN
Lauffaveg 11.
Hjartkær eiginmaður minn og faðir okkar,
Ari Helgason,
andaðist á Landsspítalanum laugardaginn 8. þ. m.
Kristrún Pjetursdóttir og börn.
JarCarför móður minnar,
Margrjetar A. Þórðardóttur,
fer fram frá dómkirkjunni á morgun, þ. 13. þ. m., klukkan 2.
Fyrir hönd aðstandenda.
Ámi Pálsson.
Jarðarför föður míns,
Guðmundar Jónssonar,
er ákveðin 14. janúar kl. 1 y2 eftir hádegi.
Guðjón Guðmundsson, Kaldbak, Eyrarbakka.
Jarðarför móðnr minnar og tengdamóður,
Ingveldar Sigurðardóttur,
fer fram á föstudaginn 14. jan. frá þjóðkirkjunni kl. 1.
Bjami Jónsson. Sigurbjörg Frímann.