Morgunblaðið - 22.01.1938, Síða 7
Xiaugardagur 22. jan. 1938.
MORGUNBLAíJlÐ
7
Veglegur skóli íyrir
sjómannast ettina
Minningarorð um
frú Þóru Þórarinsdóttur
Dagbok.
□ 59381257 = 2.
FRAJMH. AF FIMTU SÍÐU.
veglegum opinberum bygging-
um og í hjarta bæjarins. Þaðan
er örstutt til Sundhallarinnar,
þar er hægt um vik fyrir nem-
endur að iðka hina hollu og sjó-
mönnum nauðsynlegu sund-
íþrótt. Þar má gera ráð fyrir að
heita vatnið komi von bráðar,
svo að skólinn gæti orðið þeirra
þæginda aðnjótandi fljótt. Ekki
þyrfti heldur að byggja eins
stórt þarna, eins og ef skólinn
stæði utanbæjar, því að ekki
þyrfti að gera ráð fyrir heima-
vist eða kennarabústöðum.
öllum þessum kostum og
mörgum fleiri neitar enginn, en
sumir telja það ókost mikinn á
staðnum að hann stendur ekki
við sjó og gera það að höfuð-
skilyrði að sá staður, sem skól-
anum verði valinn sje næst sjó
eða með góðu útsýni yfir sjó-
inn.
Er þá næst Valhúshæð á Sel-
tjarnarnesi. Hjer er tvímæla-
Jaust sá staður, sem uppfyllir
þau skilyrði að skólinn standi
við sjó. Staðurinn er einn af
þeim fegurstu í nágrenni
Reykjavíkur, og lega hans sjer-
lega ákjósanleg fyrir sjómanna-
skóla. Þar er víðsýni í allar
áttir og fjallahringurinn í
fjarska, þar stæði skólinn einn
sjer, eins og klettur úr hafinu,
þar yrði byggingarstíll hans
ekki háður öðrum byggingum,
heldur gæti hann sótt svip sinn
til náttúrunnar, hafsins og fjall-
anna og orðið glæsilegt lista-
verk.
Ekki er úr vegi, að benda á
hvílík áhrif það mundi
hafa á sjómenn og gesti sem
til Reykjavíkur koma sjóleið-
ina, að sjá þarna á þessari hæð
og við Gróttuvita — aðal-inn-
siglingavita höfuðstaðarins —
fyrst allra bygginga borgarinn-
ar, veglegan sjómannaskóla
gnæfandi við himinn, sem tákn
menningar og vaxandi þróttar
hinnar íslensku þjóðar. Þar er
hafið á þrjá vegu, í dag sljett
sem spegill á morgun úfið og
ilt, — orustuvöllur sjómann-
anna.
Ekki má þó ganga fram hjá:
kostnaðarhliðinni þegar talað
er um byggingu skólans á þess-
um stað- Kostnaður allur við
byggingu skólans verður eflaust
meiri ef hann verður reistur
þarna, heldur en ef hann stæði
innanbæjar. Erfiðleikar munu
verða með vatnsleiðslu, frá-
rensli, raftaugar og sennilega
kæmi heita vatnið síðast þang-
að. Ennfremur má gera ráð
fyrir að þarna þyrfti að vera
heimavist og mætti þá einnig
búast við að byggja þyrfti kenn-
arabústaöi í nánd við skólann.
Jeg hefi nú í stórum dráttum
lýst þessum stöðum. Er það nú
ykkar að velja, íslenskir sjó-
menn! Verið framsýnir í val-
inu. Þ. Á.
B.v. Hannes ráðherra kom frá
Englandi í gær. Skipið fer ekki
aftur á veiðar fyrst um sinn.
Frú Þóra Þórarinsdóttir, sem
er borin til grafar í dag, and
aðist eftir langvinnan sjúkleika
þ. 16. þ. m. að heimili sonar henn-
ar, Arna Pjeturssonar læknis.
Frú Þóra var fædd 25. desember
1866 á Stóra-Hrauni í Árnessýslu.
Foreldrar hennar voru hin góð-
kunnu sæmdarhjón Þórarinn jarð-
yrkjumaður Árnason og kona hans
Ingunn Magnúsdóttir. Var Þórar-
inn systursonur síra Tómasar sál.
Sæmundssonar, en frá Ingunn
var af hinni kunnu Bolholtsætt.
Frú Þóra var yngst af 8 systkin-
um og fæddist hún nokkrum mán
uðum síðar en faðir hennar ljest.
Ættingjar þeirra hjóna tóku þá
fjögur af börnunum til fósturs,
en hin fjögur voru kyr hjá móð-
ur sinni; bjó hún 3 ár þar eystra
eftir lát manns síns, en hún sá,
að svo búið mátti eigi standa, • f
börn hennar ætti að geta fengið
það uppeldi, er hún þráði að
veita þeim. Fyrir því tók frú Ing-
unn það ráð, að flytja með börn
sín til Reykjavíkur og varð henni
sú ráðstöfun að góðu. Með for-
sjálni og dugnaði tókst henni að
koma börnum sínum áfram; til
mentunar og góðs gengis. Syst-
kini frú Þóru sem lifa eru: fvrv.
prestur sr. Bjarni, frú Þuríður
ekkja Guðmundar sál. Jakobs-
sonar, fyrv. prófastur sr. Árni frá
Stóra-IIrauni og Ágúst kaupmað-
ur í Stykkishólmi.
Frú Þóra gekk á Kvennaskól-
ann í Reykjavík og tók þaðan
fullnaðarpróf. Um tvítugsaldur
rjeðst hún til síra Árna bróður
síns að Miklaholti og stóð fyrir
búi með honum 3 ár. 1889 giftist
hún mjög myndarlegum og góð-
um manni, Pjetri, syni Þórðar óð-
alsbónda á Rauðkollsstöðum í
Snæfellsnessýslu, voru þau hjón-
in fyrst þar í tvíbýli við foreldra
hans, en tóku síðan jörðina Borg-
arholt í sömu -sýslu til ábúðar.
Bjuggu þau þar rausnarbúi nokk-
ur ár, en fluttu svo til Ólafsvík-
ur, þar sem Pjetur varð bók-
haldari við verslun þar á staðn-
um. Nokkrum árum síðar, 1914
fóru þau til Reykjavíkur og áttu
hjer heimili æ síðan.
Þeim hjónum varð 6 barna auð
ið og eru 5 á lífi: Ingibjörg,
.ekkja Brynjólfs Einarssonar sím-
'lagningarmanns, Þórður kaup-
maður, Sólveig, gift Erlendi Þor-
bergssyni verslúnarmanni, Árni
læknir og Iiigunn, gift Þorvaldi
Thoroddsen forstjóra. Þau eru öll
búsett hjer í Reykjavík. Magnús
sonur þeirra hjóna átti heima
vestur í Ameríku þegar heims-
styrjöldin skall á, gerðist hann
sjálfboðaliði í her Kanadamanna
og fjell hann í stríðinu.
Þegar forlögin fluttu frú Þórn,
Reykjavíkurbarnið langt upp í
sveit, samlagaði hún sig strax
hinu ólíka umhverfi og gerðist
hin mesta búsýslukona og leysti
svo vel af hendi húsmóður- og
móðurstörfin, að til fyrirmyndar
var. Þá gerði og glaðlyndi henn-
ar ekki síður heimilið aðlaðandi;
iiún var það, sem síra Mattliías
segir á einum stað:
„Hýr í sal og sæti
sólargeisla lík,
allra eftirlæti,
ung og kostarík“.
Frú Þóra var afbragðsvel gef-
in kona, bókhneigð, söngelsk,
hafði fagra söngrödd, og stálminn
ug; hún hafði hið mesta. yndi af
góðum skáldskap og kunni ó-
grynni af ljóðum, sjerstaklega
eftir uppáhaldsskáld hennar, síra
Matthías.
Hún átti því láni að fagna að
böm hennar voru öll búsett hjer
í bænum og voru henni svo _ góð
og umhyggjusöm eins og börn
geta best verið foreldrum sínum,
og hjá þeim dvaldi hún á víxl
eftir að hún misti mann sinn eft-
ir 32ja ára sambúð. Nokkru eft-
ir dauða hans kendi hún sjúk-
dóms þess, er þjáði hana til síð-
ustu stundar. Með sorg í hjarta
sjá nú börnin á bak þeirra ást-
kæru móður, en bæði þau og við
vinir hennar vitum, að henni var
hvíldin góð eftir hennar langa og
dáðríka æfistarf.
Guðrún J. Briem. i
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
Stinningskaldi á SV eða S. Snjó-
eða slyddujel.
Veðrið í gær (föstud. kl. 17):
Fyrir vestan og norðan land er
djúp og víðáttumikil lægð. V- og
SV-átt er hjer á landi, sumstaðar
hvöss. Norðan til á A-landi er
bjartviðri og einnig nyrst á Vest-
fjörðum, en í öðrum landshlutum
eru snjójel. Á S- og A-landi er
sumstaðar 1—2 st. hiti, en ann-
arsstaðar dálítið frost. Líklega er
ný lægð að nálgast úr SV, svo
að búast má við, að vindur verði
S-lægari á morgun.
Næturlæknir er í nótt Halldór
Stefánsson, Ránargötu 12. Sími
2234.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki og Laugavegs Apóteki.
Messur í dómkirkjunni á morg-
un: Ki. 11 síra Friðrik Hall-
grímsson. Kl. 5 síra Bjarni Jóns-
son.
Me-ssað í fríkirkjunni á morgun
kl. 2, barnaguðsþjónusta, síra
Árni Sigurðsson. Kl. 5 síra. Árni
Sigurðsson.
Messað í Laugarnesskóla á
morgun kl. 5. Stud. theol. Ragn-
ar Benediktsson prjedikar.
Barnaguðsþjónusta í Laugar-
nesskóla á morgun kl. 10.30.
Messað í fríkirkjunni í Hafn-
Framtöl
til tekju- og eignarskatts
Samkvæmt 32. gr. laga um tekjuskatt og
eignarskatt er hjer með skorað á þá, sem
ekki hafa þegar sent framtal til tekju- og
eignarskatts að senda það sem fyrst og
ekki seinna en 31. jan. næstkomandi til
Skattstofunnar í Alþýðuhúsinu. Ella skal,
samkvæmt 34. gr. skattalaganna „áætla
tekjur og eign svo ríflega, að ekki sje hætt
við að upphæðin sje sett lægri en hún á að
vera í raun rjettri“.
Jafnframt er skorað á atvinnurekendur,
sem eigi hafa skilað skýrslum um kaup-
greiðslur, og fjelög, sem eigi hafa gefið
skýrslur um hluthafa og arðsúthlutun, að
senda þessar skýrslur þegar í stað, ella
verða aðilar látnir sæta dagsektum.
Skattstofan verður opin kl. 10—12 og 1—7
til 31. jan. og á þeim tíma veitt aðstoð við
framtöl. Eftir það verður slík aðstoð ekki
veitt.
Skattstjórinn í Reykjavík
Halldór SiMfússon
(settur).
arfirði á morgun kl. 2. Sr. Jón
Auðuns.
Póstferðir sunnudaginn 23. jan.
1938: Frá Reykjavík: Þingvellir.
Mánudaginn 24. jan. 1938. Frá
Reykjavík: Mosfellssveitar-, Kjal-
arness-, Kjósar-, Reykjaness-,
Ölfuss- og Flóa-póstar (Ölfusá,
Eyrarbakki, Stokkseyri). Hafnar-
fjörður, Seltjarnarnes. Fagranes
til Akraness. — Til Reykjavíkur:
Mosfellssveitar-, Kjalarness-, Kjós-
ar-, Reykjaness-, Ölfuss- og Flóa-
póstar. Hafnarf jörður, Seltjarn-
arnes. Grímsness- og Biskups-
tungna-póstur. Fagranes frá Akra-
nesi. Brúarfoss frá ísafirði. Lyra
frá Bergen.
Eimskip. Gullfoss fer frá Kaup-
mannahöfn í dag. Goðafoss er í
Khöfn. Brúarfoss var á Patreks-
firði í gær. Dettifoss kom til ísa-
fjarðar í gær um kl. 3. Lagar-
foss er á leið til Austfjarða frá
Leith. Selfoss fór frá Hamborg
í gær.
„Til draumalandsins“, myndin,
sem Gamla Bíó sýnir þessi kvöld-
in, er með betri myndum, sem
hjer hafa sjest lengi. Aðalhlut-
verk myndarinnar leikur sænska
söngkonan Zarah Leander af
slíkri snild, að hún hlýtur að
hrífa áhorfendur. Myndin verð-
ur sýnd í síðasta sinn í kvöld.
C.-listinn er listi Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík.
Skátar! Farið verður í skíða-
ferð á morgun, sunnudag. Lagt
af stað frá Miklagarði við Lauf-
ásveg kl. 8% f- L- Farmiðar fást
í Bókhlöðunni. Verða ekki seldir
við bílana.
Árshátíð sína heldur Vörubíla-
stöðin Þróttur í kvöld í Oddfell-
owhúsinu.
Mentaskólanemendur ljeku í
gær Tímaleysingjann eftir Hol-
berg fyrir fullu húsi. Verður leik
sýningin endurtekin annað kvöld
kl.^8.
Ármenningar fara í skíðaferð
um helgina. Farið verður í kvöld
kl. 8 og í fyrramálið kl. 9. Far-
miðar eru seldir í Brynju, en þar
er fyrirspurnum ekki svarað í
síma. Ennfremur er selt á skrif-
stofu Ármanns kl. 6—9 og þar
gefnar allar upplýsingar. Kvöld-
miðar eru seldir kl. 6—7 og að-
eins fjelagsmönnum. Framvegis
verður ekkert selt við bílana að
morgni.
Ríkisskip. Súðin var á Blöndu-
ósi kl. 3 í gær.
Framtöl til tekju og eignar-
skatts eiga að vera komin til
Skattstofunnar fyrir 31. jan., ann-
ars verða tekjur og eignir áætlað
ríflega. Atvinnurekendur og fje-
lög eiga nú þegar að skila skýrsl-
um um kaupgreiðslur og arðsút-
hlutun, að viðlögðum dagsektum.
Skíðafjelag Reykjavíkur fer í
tveimur hópum upp í Skíðaskála
um helgina, ef veður og færð
leyfir. Annar hópurinn leggur á
stað frá Steindórsstöð kl. 7 í
kvöld og hinn kl. 9 í fyrramálið
frá Austurvelli. Farmiðar fást
aðeins í dag.
Iðnráð Hafnaríjarðar. Þann 29.
fyrra mánaðar var kosið í fyrsta
sinni í iðnráð Hafnarf jarðar sam-
kvæmt hinum nýju lögum, og
hlutu þess'ir menn kosningu: Þór-
oddur Sveinsson formaður, Magn-
ús Kjartansson, Daníel Berg-
mann, Jóhann Jónsson og Guðjón
Magnússon méðstjótnendur.
Útvarpið:
19.20 Hljómplötur; Endurtek; i
lög.
19.50 Frjettir.
20.15 Leikrit: „Happið“, efti:-
Pál J. Árdal (Leikstj.: I'
steinn Ö. Stephensen).