Alþýðublaðið - 07.06.1958, Side 6

Alþýðublaðið - 07.06.1958, Side 6
6 Alþýðublaði'S Lauga.rdagur 7, jú'ní 1958 ( Bréfakassinn ) Kynnum landheígismálið. Herra ritstjóri. MIG LANGAR til að koma á framfæri smáhugmynd, sem hefur verið að brjótast í mér nú í nokkrar vikur. I sambandi við landhelgismálið er mikið rætt urn, að við verðum að kynna aðstöðu okkar og vinna máli okkar stuðning erlendis. Það er sjálísagt ágætt og nauð synlegt að tala um málið við stjórnmálamenn og diplómata, en hvers vegna er ekkert gert til að ná til íbúa hinna ýmsu landa beint? Hvers vegna má ekki útvarpa einn til tvo tíma á dag á stuttbylgjum erindum og fréttum á ensku, frönsku, [þýzku og Norðurlandamáium ! til þess að kynna málstað okk- ' ar fyrir hinum almenna borg- ara í viðkomandi lönd.um? Ég í tel engan vafa leika á því, að með slíku útva.rpi mundi nást mikill árangur. Við gstum illa ráðið við hvernig mál okkar eru flutt og túlkuð í erlendum blöðum, en við getum notað okku,. þær bylgjulengdir. sem jokkur hafa verið fengnar í ljósvakanum, til að túlka mál- stað okkar og það ber okkur að gera sem allra fyrst. Með þökk fyrir birtinguna, Yðar einlægur, A+B'. ÞAÐ vill oft koma fyrir, ef hitabrúsinn er helltur of full- ur, að tappinn lyftist og kaffið skvettist upípi í bollann. Koma má í veg fyrir þetta, með því að festa annam tappa ofan á tappa flöskunnar, þann- ig, að hann nái nákvæmlega botni bollans. Þegar svo boll- inn hefur verið skrúfaður á. heldur hann tappa brúsans föstum. Þegar kakó hefur verið lag- að, ættuð þið að reyna að láta í það ca. hálfan bolla af sterku kaffí, rétt eftir að það hefur ver ið tekið af hitanum. Mátulegt er að láta þetta magn í kakó, er lagað er úr einum lítra mjólk- ur og þið munuð komast að raun um að það gefur kakaóinu góðan keim. Það hefur of verið vandamál með sósulitarflöskuna eða mat- arlitinn, að taumar vilia leka frá stút hennar niður flöskuna og gera hana klístraða. Þetta rná koma í veg fyrir, með því að k ippa út stvkki af smjör- pappír og setja flskuna á miðju paþpírsins. Brjóta síðan upp með flqSkunni og setja teygju utan um. Þegar pappír- inn er orðinn óhreinn að innan verðu, má annað hvort skipta um pappír eða þvo af þeim gamla. Með þessu móti verður flaskan alltaf hreinleg, þegar taka á á henni. Reynið að setia tvær te- skeiðar af sjóðandi vatni í smjörkremið, og hræra þeim rösklega saman við það. Þá verður það léttara o.g auk þess ekki nærri: eins væmið á bragðið eins og það oft vill verða. Plastpokarnir litlu, sem nú er farið að selja baðmull í eru til margra hluta nytsamlegir. eftir að baðmullin hefur verið notuð. Það má nota þá undir handa- vinnu, setja í þá fatnað, ef fara á í ferðalag, s. s. vasaklúta, ilskó, nærföt eða sokka. Auk þessa má setia í þá t. d. undirföt. sem geyma á í kommóðuskúffum og svo margt fleira. Sé verið að þræða perlur upp á band og þær of smáar til að hægt sé að nota við það nál, má dýfa enda þráðarins í naglalakk og láta það storkna, við það verður endinn harður og oddlaga og þá er engin þiörf fyrir nálina. Það vill oft koma f.yrir, að peysur, sem prjónaðar eru í fleiri litum skemmast sökum þess, að einhver litarþráðanna, sem liggur innan á slitnar og peysan byrjar að rekjast upp. Þetta á sérstaklega við um barnapeysur, en börnunum hættir við, að reka firngurna í þræðina og slíta þá. Koma má í veg fyrir þetta með því að fóðra peysurnar. Séu þær t. d: fóðraðar með vindþéttu efni, er ekki aðeins hættunni á skemmdum bægt frá, heldur er líka um| leið fengin hlý flík, sem hefur stóran kost fram yfir venju- lega ófóðraða peysu, það að halda næðingnum frá.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.