Morgunblaðið - 14.04.1938, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 14.04.1938, Qupperneq 2
MOlGUNBLA^ltí yixntudagw 14. aprfl Ifltt. 14 vnilur til hafs -ðönsku lanöamærin: Endurskoðun þeirra rædd í danska þinginu tjþpreisnarmenn segjast hafa tekið bæ einn í grend við Tortosa og aðeins 14 mílur frá ströndinni: Þá segjast u nokkrar hæðir. Einnig segjast þeir vera á góðri leið með þeir hafa sótt fratti sunnan við Morella og hafa tekið þar að ná valdi yfir samgönguleiðinni milli Barcelona og Frakk- lands. (Skv. FÚ) lVtypdiií: Franco (í miðju) og hershöfðingjar hans á víg jistöð.yunum í.Katalóníu. f (">%• 'iuim Um hváð og Italir hafa samið >'.«1 , . , , . ,a Kalundbprfr í gær. FU Breska stjórnin hjelt. ráð- jherrafund í dag til þess að ra^ð^ um sáttmálann milli ítal- íu ,og Bretlands og verður þetta seinasti fundur stjórnar- innar áður en gengið verður að því að undirrita sáttmálann. Einn þáttur samning- anna f jallar um undir- róður ítala gegn Bretum, meðal Múhameðstrúarmanna. Ítalía skuldbindur sig til þess að láta slíkan áróður og aðra starfsemi sem Bretland teldi sjer fjandsamlega niður falla með‘ öllu. Annar kaflinn fjallar um Su- ez-skurðinn og skal ítölum heimil umferð um hann bæði í friði og ófriði með sömu rjett- indum eins og Bretar sjálfir liafa. Þriðji kaflinn fjallar utn Miðjarðarhafsmálin og er talið að hann muni verða raunveru- leg viðurkenning á jafnrjetti Bretlands og Ítalíu til siglinga um Miðjarðarhafið. Fjórði kaflinn fjallar um Spánarmálin og er talið að hann muni aðalléga vera á þá leið að Italía lýsi yfir því, að hún seilist ekki til landa eða yfirráða á Spáni. Daladier fær takmarkað einræðisvald Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. Fj áT m á 1 a n e f n d franska þingsins samþykti í einu hljóði í dag að' styðja það, að Daladier fái heimild til þess áð gefa út tilskipanir til bráða birgða án þess að hafa áður leitað samþykkis þingsins.Dala- dier ætlar að nota þessa heim- ild til þess að efla landvarn- irnar. Það er búist við að gerðar- dómur falli í dag, sem leysi verkfallsdeilurnar við her- gagnaverksmiðjurnar. Horfur betri. London í gær. FÚ. I ræðu sinni í gær, sagði Daladier að verkfall málmiðn- aðarmanna yrði að álítast eitt hið mesta tjón sem unt væri að vinna landvarnamálum rík- isins og mun stjórnin leggja mikið kapp á að leiða þá deilu þegar í stað til lykta. .... Ilið bætta ástand í Frakklandi síðan stjórn Daladiers tók við völdum, olii hækkuii á verðbrjef- um á kauphöllunum í París og London í dag. Viðskifti vofu betri en þau hafa ,verið í marga daga undanfarið. Frú Lára Ágústsdóttir miðill á 40 ára afmæli á morgun, 15. apríl. Steincke. Skotið úr hundabyssu é Steincke Uppþot í danska þinginu Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. Suður-jóskur nazisti skaut tveim hættulausum skot um úr hundabyssu á Steinc- ke, dómsmálaráðhrera Dana, á meðan að þingfundur stóð yfir í danska þinginu í dag. Steincké var að halda ræðu. „Tilræðis“maðurinn Var staddur í áheyrendastúku í þinginu. Um leið og skotin riðu af, rigndi flugmiðum niður úr áheyrendastúkunni og yfir þingsalinn. í flug- miðunum var stjórnin ákærð fyrir hverskonar spillingu. Uppþot í þinginu. Khöfn í gær. Fl'. Mónnum varð ákafíega hverft við í þinginu og varð n.m stúnd eins og öllum fjellust hendur. Sá sem sj^aut og nokkrir meiin, sem með honum voru, voru þegar teknir fastir. Tilr^eðismaðurinn heitir Erik Westergaard og er 28 ára að aldri. Hahn er yfirlýstur nazisti og hef ir starfað um hríð að útbreiðslu- starfsemi fyrir flokk þeirra. Hann var þegar tekinn til yfir- heyrslu og gaf þær upplýsingar, að hann. hafi. gert þetta, fyrir, á- eggjan ónafngreindra flokks- manna sinna, en annars líti hann á þetta verk sem part af út- breiðslustarfi sínu. Lögreglan hef- ir þegar gert ráðstafanir til þess að handtaka ]>á menn. sem talið er að sjeu í vitorði ineð Wester- gaard eða hafi Arerið eggjunar- menn hans. Westergaard hefir verið úrsknrðaður í varðhald. Háskaleg starfsemi Þegar nokkur ró var komin, á í þinginu, flutti forseti ályktun- artillögu, þar sem skorað var á dómsmálaráðherrann að láta fara fram róttæka og gagngerða rann- sókn á starfsemi nazista í Dan- mörku, með það fyrir augum, að löggjafarvaldið gerði síðau ráð- stafanir til þess að koma í veg fyrir háskalega starfsemi af þeirfa völdum. Djóðverji biður um friðsamlega lausn Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. Iumræðum í danska binginu í gær- kvöldi mintist Þjóðverjinn Schtnidt lauslega á það, að æskilegt væri að landamæri Þýskalands og Danmerkur yrðu tekin til nýrrar athugunar. I því sambandi fór hann nokkrum orðum um ótta Dana við það, að Þjóð- verjar reyndu að knýja fram breytingar á landa- mærunum með valdi. Hann sagði að örlög Austurríkis rjettlættu það ekki að draga slíka ályktun. Það er engin á- stæða til að halda að Þjóðverjar reyni að leysa landamæraþrætu Dana og Þjóðverja með ofbeldi. En ýmsir hnútar eru óleystir, og þá verður að leysa, sagði Schmidt. Lausn sú, sem gerð var á landamæraþrætu Þjóðverja og Dana, eftir heimsstyrjöldina, var ekki gerð í samræmi við þær reglur, sem Norðurlönd fylgja. Það er að halda sig altof mikið að kennisetningum, þegar því er haldið fram af hálfu Dana, að landamærin sjeu á- kveðin. Þjóðverjar álíta að hægt sje að finna friðsamlega lausn á þessu máli. Munch, utanríkismálaráð- herra Dana, svaraði Schmidt og sagði, áð núverandi landamæri Þýskalands og Danmerkur væri talin rjeftlát af öllum þorra Norðurlandabúa. (únaður Breta og verka- mennirnir ir Loöttdon í gær. FÚ. Thomaé Inskip; breski landvarnaráðherrann skýrði frá því í neðri málstofu þingsins í dag, að það hefði orðið ' að samkomulagi með stjórninni og fulltrúum verka- manna og átvinnurekenda, að hinir tveir síðarnefndu aðilar skyldu semja sín á milli um aukna framleiðslu til hernaðar- þarfa. Hann sagði enn fremur að stjórnin væri að athuga mögu- leikana á því, að kaupa flug- vjelar fyrir flotann í Banda- ríkjunum og Kanada. Sjálfsmorð I Vínarborg London 12. apríi. FÚ. 1—«Trá Vínarþó'fg berst sú frjett; *• að fyrverandi hermálaráð- lierra í ráðunéýti dr. Schusniggs (Vaugoin?) hafi skotið sig til haná ,í morgun í íbúð sinni. Hann hafði vprið sakaður um að vera valdur að dauða nazist- anna, sem teknir voru af lífi fyr- ir morðið á Dolfuss, (Það hefir nú iipplýst, að Sig- ihund Ffeud var aldrei tekínn fast ur. Hann dvelur í Vín, en gerir fað fyrir að flytja til Englands.) Engin undirstaða. „Hvar er hægt áð draga laiida- mærin rjettlátlegarf‘ sþúrði dr. Múnch. Haim sagði, að éngin úfid- irstaða væri fyrir liendi. setn rjctt læti landamæraþrætu milli Dana og Þ.jóðverja. Munch bar til baka orðróm, sem gengið hefir um það, að stjórnin í Berlín hafi sfungið upp á því við stjórnina í Danmörku, að þýsk-dönsku: landamærin* yrðu tek in til nýrrar athugunar. Hann sagði, að þýska stjórnin hefði ekki spurt um vígbúnað Dana. Kirkjutúnleikar á föstudaginn langa Aföstudaginn langa verðui flutt í útvarþínu andleg tón- list eingöngu. Dagskrá kvöldsins hefst me? orgelleik úr Dómkirkjunni. Verða leikin tilbrigði um sálmalagið „Þú mikli mildi guð“ eftir Bach. Útvarpskórinn syngnr verk eft- ir Arnold Mendelssohn, Píslii drottins, og fjóra þætti úr Re- quiem í c-moll eftir Cherubini. Einnig syngur kórinn „Kom dauð- ans blær“ eftir Bach og „Nú fjöll og bygðir blunda“, í útsetningu Bachs, en kvennakór útvarpsins syngur lög eftir Lotti og „Guð er minn hirðir“ eftir Schubert.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.