Morgunblaðið - 21.07.1938, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ
7
Mmíudagur 21. júií Í938.
Dagbók.
Veðurútlit í nótt og á morgun:
V-gola. Úrkomulaust að mestu.
Veðrið í gær (miðT.d. kl. 17):
Lægðin er nú yfir N-landi og
þokast hægt til N. Vindur er
breytdegur hjer á landi og TÍSast
hægur.
Eimskip. Gullfoss kom til Kaup
jnannahafnar í gær. Goðafoss er á
leið til Hull frá Hamborg. Brúar-
foss fór vestur og norður kl. 12 á
hádegi í gær. Dettifoss er í Rvík.
Lagarfoss var á Borðeyri í gær.
Síelfoss er á Iljalteyri.
Háflóð er í dag kl. 11.10 f. li.
Næturlæknir er í nótt Berg-
»veiun Ólafsson, Hávallagötu 47,
aími 4085.
Um 500 farþegar eru á skemti-
ferðaskipinu Berlín, sem kom hing
*ð í gærmorgun. Skipið fór aftur
í gærkvöldi.
Þjett umferð. Rjett eftir að flug
aýniugunni á Sandskeiði var lok-
á sunnudaginn, var lögreglubíll
á Ieiðinni austur. Á leiðinni frá
Blliðaánum og austur á Sandskeiði
ttjætti hánn 230 bifreiðum.
Póstferðir á morgxm. Prá Rvík:
Mosfellssveitar, Kjalarn., Reykja-
«.e«s, Ölfuss og Flóapóstar. Hafn-
arfjörður. Seltjarnarnes. Þrastal.
Laugarvatn. Breiðaf jarðarpóstur.
Norðappóstur. Dalapóstur. Barða
strandarpóstur. Laxfoss til Borg-
arness. Fagranes til Akraness.
Þingv. Fljótshlíðarpóstur. Esja. til
Glasgow. Súðin austur um í hring-
ferð. Til Rvíkur: Mosflelssveitar,
Kjalarness, Reykjaness, Ölfuss og
Flóapóstar. Hafnarfj. Seltjarnarn.
Lrastal. Laugarv. Þingv. Fagranes
frá Akranesi, Laxfoss frá Borgar
nesi. Þykkvabæjarpóstur. Norðan-1
póstiir. Breiðafjarðárpóstur. Str,-
sýslnpóstur. Kirkjubæjarklaustur-
póstur.
Ferðafjelag íslands ráðgerir að
fara ýmsar skemtiferðir á næst-
unni. Helduför. Lagt á stað uæstk.
laugardag kl. 4 síðdegis og ekið
austur að Galtalæk ög gist þar.
Snemma á sunnudagsmorgunn far-
ið ríðandi upp í rjett og gengið
þaðan á Heklu-tinda. Listi liggur
frammi og sjeu farmiðar teknir
fyrir föstudagskvöld. Gönguför á
Eyjafjallajökul. Á laugardags-eft-
irmiðdag ekið austur undir Eyja-
fjöll, gist þar á bæjum eða í
tjöldum, en á sunnudagsmorgun
gengið á jökulinn. Fármiðar tekn-
ir fyrir föstudagskvöld. Gönguför
á Tröllakirkju. Farið með e.s. Lax-
foss til Borgarness kl. 2 á laug-
ardag og ekið upp í Borgárfjörð,
gist á bæjum eða í tjöldum. Á
sunnudagsmorgun ekið. upp á
Holtavörðuheiði og gengið á
Tröllakirkju, en til baka í Norð-
urárdalinn og dvalið þar nm
stund, síðan farið í Borgarnes og
með Laxfossi heim á sunnudags-
kvöldið. Farmiðar sjeu teknir fyrir
föstudagskvöld. Mývatnsför, 2.
ferð. 8 daga ferð norður að Mý-
vatni, Dettifossi og Ásbyrgi og
aðrir viðkomustaðir eins og í fyrri
ferðiáni. Lagt á stað á föstudags-
morgun 22. júlí (ekki laugardags-
morgun). Áskriftarlisti liggur
frammi til miðvikudagskvölds kl.
6, en farmiðar sjeu teknir fyrir
kl. 12 á hádegi á fimtudag á skrif-
stofu Kr. Ó. Skagfjörðs, Túngötu
5, Reykjavík.
Síðastliðinn mánudag voru þeir
Magnús Jörgensson, ökumaður frá
Reykjavík, Jón Tómasson, bóndi
í Hrútatungu, og Jón Jóhanns-
son, bóndi á Bálkastöðum í Hrúta
firði staddir á brúnni yfir Sigá.
Sáu þeir tvo stóra laxa í hyl und
ir brúnni, sem voru greinilega
merktir með stóru spjaldi. Merk-
inguna gátu þeir ekki greint, en
telja, að hægt sje að ná löxun-
um með ádrætti eða með öðrum
liætti. (FÚ)
M. Jean Haupt, frakkneski
sendikennarinn við Háskóla Is-
lands, hefir birt fjölda margar
ágætar greinar um Island í frakk
neskum blöðúm, m. a. í La Bour-
gogne Republicaine, með fjórum
myndum af Austurbæjarskólanum,
af Sundhöllinni, höfninni o. fl.
(FB).
| Mynd Ríkarðs Jónssonar af
Davíð á Arnbjamarlæk, sem marg
ir hafa verið að spyrja eftir, og
„Fólk á „heiðinni“, eftir Karen
Agnete Þórarinsson, eru nú
komnar á listsýninguna í Barna-
skólanum.
Þrátt fyrir að áhorfendur að
fíugsýningunni á Sandskeiði á
sunnudaginn hafi verið 5—6 þús-
und, að því er áætlað er, seldust
merki flugdagsins fyrir aðeins
1800 krónur.
Útvarpið.
Fimtudagur 21. júlí.
10.00 Væðurfregnir.
12.00 Iládegisútvarp.
15.00 Veðurfregnir.
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Lesin dagskrá næstu vikú.
19.30 Hljómplötur: Ljett lög.
19.50 Frjettir. '!'t‘
20.15 Frá Ferðafjelagi íslands.
20.25 Frá útlöndum.
20.40 Einleikur á fiðln (Þórarinn
Guðmundsson).
21.00 Útvarpshljómsveitin leikur.
21.30 Hljómplötur: Andleg tónlist.
22.00 Dagskrárlok.
-----» m ♦ — ' ■ t '
Kappreiðar
í Borgar-
firði.
Kappreiðar voru háðar á
Ferjukotsbökkum í Borgar-
firði síðastliðinn sunnudag og
stóð hestamannafjelagið ,Faxi‘
fyrir þeim.
Alls voru reyndir 20 hestar,
12 stökkhestar, 6 folar og 2
skeiðhestar. Úrslitin urðu Jþes$i:
Stökk, 300 m. hlaupvöllur. 1«
verðlaun Gráskjóna, eigán^i
Geir Þorleifsson, Álftanesi,
Mýrum, hljóp á 24.8 sek.2,
verðl. Brúnn Ingólfs Guðmunds
sonar Ferjukoti, á 25 sek.; 3.
verðl. Rauður Odds Kristjáns-
sonar, Steinum Bf., 25.2 sek.
Folahlaup. 1. verðl. Blakkur,
eig. Axel Halgrímsson, Lamba-
stöðum, Mýrum; hljóp á 20.8
sek.; 2. verðl. Nasi Jóns Sveins-
sonar Munaðarnesi, 21 sek.„ 3.
verðl. Snarfari Axel Thorsteins-
§on Álftarósi, 21.5 sek.
Skeiðhestar. Annar hljóp
upp, en hinn náði ekki áskild-
um hraða og komu því þar eng-
in verðlaun til greina.
Hláupvöllurinn var fremur
þungur og ekki vel sljettur. —
Einnig v'ar nokkur vindur á
móti.
Dómnefnd skipuðu Þorvald-
ur Jónsson bóndi í Hjanðarholti,
Pjetur Þorsteinsson bóndi Mið-
fossum og Sigurður Gísláson
lögregluþjónn í Rvík. Vallarstj.
var Ari Guðmundsson veríc-
stjóri Borgarnesi, formaour
hestamannafjel. Faxi.
Radiogrammofónn
óskast keyptur. Tilboð merlrT'
„Góður Radiogrammófónn"
leggist inn á afgr. Morgun-,
hlaðsins fvrir kl. 7'í kvöíd.
MiURBimsaaiFSTOFi
Pjatnr Maptásson
Einar B. Guðmnnd*aon
Gnðl&ngnr Þorlákison
SSímwr 3602, 3202, 2002.
Anstnretrætl 7.
Skrifstofutími kl. 10—12 og 1—5.
til Akureyrar alla daga nema mánudaga.
Afgreiðsla í Reykjavík hjá Bifreiðastöð íslands. Sími 1540.
BifreÍQa§töð Akureyrar.
Best að auglýsa i Mergunblaðinu
m&r
Systir okkar elskuleg
Þuríður Sigurðardóttir
andaðist á Landakotsspítala í dag.
Reykjavík 20. júlí 1938.
Amalía Sigurðardóttir. Ágúst Sigurðeson.
Jarðarför mannsins míns
Benedikts Þ. Gröndal
fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 22. þ. m. og hefst með
bæn á heimili hins látna, Ránargötu 24, kl. 1 e. h.
Sigurlaug G. Gröndal
Jarðarför mannsins míns og föður okkar
Halldórs Guðmundssonar,
sem andaðist 11. þ. m., fer fram föstudaginn 22. þ. m. og hefst
með bæn á heimili okkar, Suðurgötu 67, Hafnarfirði, kl. 1 i/2 e.h.
Amelía Gísladóttir og börn.
Jarðarför
Kristjáns Ágústssonar
frá Hólskoti í SJtagafirði, fer fram föstudaginn 22. þ. m. kl.
11 f. h„ frá dómkirkjunni.
Aðstandendur.
Jarðarför elsku litla drengsins okkar
Jóhanns Páls
hefst með húskveðju að heimili okkar, Bjarnarstíg 9, föstu-
daginn 22. júlí kl. 3y2 e. h.
Hildur og Stefán A, Pálsson.