Alþýðublaðið - 10.06.1958, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 10.06.1958, Blaðsíða 6
,6 Alþýðublaðiið Þriðjudaginn 10. júní 1958. 08 óskasf í nokkrar fólksbifreiðir, ec verða til sýnis að Skúlatúni 4. þriðjudaginn 10. þ. m. kl. 1—3 síð'd. Ti’boðin verða opnuð í skrifstofu vorri kl. 5 sama dag. Nauðsynlegt er að taka fram símánúmer í tilboði. Sölunefnd varnarliðseigna. SUNNUDAGUK. ----- — Hótíðlegt var í dag á sjómannadaginn, enda veð- ur með afbrigðum gott. Skyn- samlegt var í upphafi af sjó- mannadagsráði að velja fyrsta sunnudag í júní til hátíða- halda til heiðurs sjómanna- stéttinni, en ekki einhvern á- kveðinn mánaðardag. Nóg er um frídagana samt. Annars er ósköp hætt við, að siómenn geti sjaldan verið margir við hátíðahöld í landi, hvaða dag- ur sem valinn yrði, enda varla von, þar sem störf þeirra eru á hafi úti. Sjómannadagurinn er þó orðinn fastur hátíðisdag ur, og í krafti hans hafa sjó- mannasamtökin lyft Grettis- taki, þar sem er bygging Hrafnistu. Geysilegur fjöldi manna var við hátíðahöldin í Hafnarfirði í kvöld. Gizkuðu sumir á tugi þúsunda, enda voru stanzaðir bílar um allan bæ með marg- víslegustu einkennisstöfum, bæði einkabílar og hópferða vagnar. Ég átti tal við út- lending um eittleytið, þegar dansinn á Strandgötunni stóð sem hæst. Hann var nýkom- inn til landsins. Hann sagði: „Þessu hefði ég aldrei trúað, fccftt imcf'f hefði verifö sagt áður en ég fór að heiman. að fólk dansaðí á götum úti á ís- landi!“ MÁNUDAGUR. -------Engum, sem kem- ur að Efra-Sogi, getur bland azt hugur um, að mikið er að gerast hér á landi. Fram- kværoir ýru j;tcirkostíega.r‘. Um síðustu helgi skoðaði ég sementsverksmið.juna á Akra nesi, og í dag kom ég að Efra-Sogi, meðan vinna var í fullum gangi. Þessar stór- framkvæmdip vitna um stór- hug og dugnað þjóðarinnar, og manni finnst það ekki nema von, þegar maður virð- ir þessi umbrot fvrir sér, að nokkurs fjárskorís verði vart. Smáþjóð, sem brýzt í svona miklu, hlýtur að finna fyrir því. Vel hefur miðað verki. síð- an ég fór hér um í fyrrasum- ar, og eru jarðgöngin orðin býsna tilkomumikil. Þarna er unnið með stórvirkum vélum, og hlýtur að þurfa góða stjórn og nákvæma útreikninga til að allt standist. Vitað er, að þótt Efra-Sogsvirkjunin verði búin í tæka tíð, þa”f tenn meira rafmagn. Þegar þessari stórvirkjun lýkur, þarf því að hefjast handa á nýjan leik. Flestir sérfræðingar munu vera sammála um, að annað hvort Þjórsá eða Hvítá komi til greina. Hagkvæmast og ó- dýrast mun að virkja sjálfan konung fossanna, Gullfoss. Hvað segja menn um það? ÞRTÐJUDAGUR. — — — Útvarpsumræð- urnar frá alþingi voru ekki sérlega bragðmiklar að þessu sinni. Ekki er fyrir það að synja, að oft er gaman að heyra stjórnmálamenn leggja mál fyrir alþjóð. ef þeir vanda si.g og reyna á snillitökin. En í þetta sinn var lítið um anda og kraft, þótí sums staðar- örl- aði á nokkurri kynngi. Kannske er maður orðinn of kunnugur þeim stjórnmála- mönnum, sem leiða saman hesta sína árlega og stundum oftar frammi fyrir alþ.joð. Maður kann orðið viðbrögðin utan að og kemur lítið á ó- vart. En hitt er svo aftur rétt, að unga fólkið er stjórnmála- skörungunum ókunnugt, og því eru þeir nýir sumum hlustendum. Annars eru menn vfirleitt sammála um það nú. að unga kvnslóðin hafi lítinn á- huga á stjórnmálum. Það er bættur skaðinn. mun margur segja. En þótt pólitíkin sé oft hvimleið, er hún þó nauðsyn- leg í lýðfrjálsu landi, og ó- neitanlega er það ekki að öllu leyti góðs viti, ef unga kyn- slóðin er alveg frábitin að hugsa um stjórnmál. Það væri annars nógu gaman að láta fara fram rannsókn á því meðal t.d. fólks um tvítugs- aldur, hvert viðhorf þess til þessara mála. Væri þetta ekki ágætt verkefni fyrir Gallup- skoðanakönnun, sem dó í fæð- ingu hé,- um árið? MIÐVIKUDAGUR. — — -— Þessa dagana strevmir stór hópur æsku- fólks út úr skóladyrum, sem nú standa Iokaðar til hausts. Fyrir þessu skólafólki liggur að fá eitthvað að gera í sum- ar, og getur það stundum reynzt þyngri þrautin. 3em betur fer eru þó mörg verk- efni fyrii- hendi víðs vegar í þjóðfélaginu, og standa því vonir til, að flestir ungling- anna geti fengið eitthvað við að vera. Margir unglinga-- ætlast þó til of mikils í þessum sfnum, og er raunar-varla von á öðru, þar sem peningaþörf unglinga er að verða þjóðarmein. Skóla æska, sem nýtur stuðnings foreldra sinna og samfélags- ins við námið, á ekki fyrst og - fremst að spyrja um kaup. Sarnt e:- það svo, að ungling- um þykir lítíð til starfs koma nema allmikil greiðsla komi fyrir. Ekki er rétt að ásaka æskufólkið fyrir þetta sjónar- mið. Tímarnir eru svona. Auk þess eru alltaf nokkrir unglingar, sem detta í lukku- pottinn á sumrin og fá vel launuð störf, kannske of vel launuð, og þá kemu- saman- burður félaganna við þá. Um leið og skólanemend- um fjölgar, er hér um athyglis vert málefni að ræða, og verður vafalaust ekki minni ástæða til að halda um það ráðstefnu en margt annað, sem masað er um á margra daga fundum. FIMMTUDAGUR. -------Það er jafnan lær- dórnsríkt að koma á flugstöð skömmu fyrir brottfarartíma flugvéla, sem ætla út í heim, sérstaklega ef það er snemma morguns. Háttalag fólks, svip- ur og viðbrögð, er með næsta annarlegum blæ, eins og á skiptizt ömurleiki vfir að hafa nú þurft að vakna svona snemma og tvíráð tilhlökkun yfir að vera nú að fara brott. Flestir eru ekki alveg eðlilegir, jafn- vel ekki þrautreyndir ferða- langar. sumir þögulir um of, aðir masgefnir og reifir. Þegar ég stóð við hlið út- lends kunningja míns á flug- stöð Flugfélags íslands um fótaferðartíma og svaraði spurningum hans um flug og flugþjónustu, varð mér betur ljóst en áður, hver bylting hef ur orðið á þessu sviði hér á landi, síðan stríðinu lauk. Hafa menn hugsað út í, hvað hér hefu,- gerzt í þessum efn- um á 15 árum? Það er heilt ævintýri. Við, sem höfum lif- að tvenna tímana, þótt ungir séum enn, föllum í stafi við umhugsunina um þessa breyt ingu. Og svo er allt unga fólkið um og innan við tvítugt sem tekur þessu ssm sjálf- sögðum hlut, það hefur ekki alizt upp við annað. Að hugsa sér, hvað tæknin stokkar spil- in ört! FÖSTUDAGUR. -------Ég var að lesa enn einn blaðaritdóminn í dag. Kannske má ekki ætlazt til of mikils af þeim, sem skrifa bókadóma í dagblöð, en þurfa öll þeirra skrif að vera sama gutl í sama nóa? Nýlega Ias ég í menmngal'tímai'iti, aðl enginn tæki mark á blaðarit- dómum, þeir væru einskis virði. Þetta voru ummæli eins menntaðasta bókmennta- fræðings þjóðarinnar. Mér þóttu þau hörð. En hvað skal segja, þegar ritdómarar blað- anna telja það aðalverkefni sitt að leiðréita mál og stíl höfunda eins og þegar sér- vitur kennari leiðréttir rit- gerðir nemanda sinna. Það er að vísu ósköp hægt að slíta setningar út úr samhengi og stilla þeim upp sem viðundri, en uppbyggilegt er það ekki’ Nú e- það að verða viðtek- in venja að skrifa meira um höfunda en verk hans, og spá- dómar um lífshlaup hans eru alveg sérstakt krydd í graut ritdómaranna. Síðan er hon- um gefin einkunn, góð eða vond ieftir geðþótta. Ef til vill á mannfæðin sinn þátt í því, að ritdómurum tekst ekki að dæma verkið sjálft án þess að blína um of á persónu höfund- ar, en á meðan verður gagn- rýni ekki bókmenntir á ís- landi. En kannske er til of mikils mælzt, að svo verði. LAUGARDAGUR. -— — — Það er sagt. að við Islendingar tölum helzt um veðrið, þegar við hittumst á förnum vegi. Satt er það, að oft minnumst við á veður" farið, enda vart við öðru að búazt, þar sem veður á landi hér er löngum breytilegt og lítt útreiknanlegt frá degi til dags nema fyrir veðurspek- ingana. FJÁRHAGSNEFND hefur rætt og yfirfarið frumvarp þetta, fyrst ásamt fjárhags. nefnd N.d. og síðan é fundi sín um, eftir að málinu hafðj ver- ið vísað til þessarar hv. deild- ar. Nefndin gat ekkj orðið sam mála um afgreiðslu málsins. — Undirritaður hafðj sérstöðu til höfuðstefnu frv., sem nú skai nánar tilgreind: Á undanförnum tveim árum hafa fulltrúar verkalýðshreyf- ingarinnar átt þess kost að ræða fyrirætlanir hv. núverandi rík- isstjórnar í efnahagsmálum, — þegar slík frumvörp hafa verið á frumstigi. Við þær aðstæður telja- verkalýðssamtökin, að þau hafi fengið ýmsu þokað x rétta átt fyrir hag og heilllaun- þega. Við samningu bessa frum- vai'ps var þessu alít annan veg farið. Þegar þar til kjörnir full trúar síðasta þings Alþýðusam! bandsins komu saman til þess, að r,æða málið reyndist það fuil * frágengið og þess því ekki kost ur að fá þar nokkrar breyting- ar á. Við umræður hér á hv.' alþingi hefur reynslan orðið sú sama, þegar frá eru teknar ör. fáar mlnni háttar breytingar, sem nánast eru leiðréttingar. Enn fremur hefur reynzt ó- gerlegt að fá nokkur fullnægj- andi svör við því, hvernig fyr- irhugað er að mæta þeirri stór- lega auknu rekstrarfjárþörf til handvei’ks og verksmiðjuiðnað ar, sem aff samþykkt þessa frum varps leiðir. Hlð sama gildir urn aukið lánsfé til íbúðarhúsa- bvgginga, svo að nokkuð sé nefnt. Við fyrrnefnda athugun í full trúahópi verkalýðssamtakanna leyndi sér ekki, að velflestir fulltrúar fjölmennustu verka- lýðsfélaganna voru andvígir framgangi þessa frumvarps í núverandi mynd og vitnuðu þar til áður samlþykktrar stefnu síð asta þings Alþýðusambandsins, sem gerð var þar í einu hljóði. Þing þetta lýsti því m. a. yfir, að gengislækkun eða aðrar hlið stæðar ráðstafanir kæmu ekki til mála sem úrlausn efnahags. málanna. Fram hjá þeirri stað- reynd verður og vart konxizt, S MIKIÐ HEFUR verið vitn > ^ að í nefndarálit . JRp'o-p ___ það, sem? ^ Eggert G. Þorsteinsson^ 1 flutti sem 2. minnihluti^ ^ fjárhagsnefndar neðri deild-^ ^ ar. Hafa ýmis atriði þess ver^ Sið slitin úr samhengi og teygð^ S á ýmsa vegu. — Alþýðublað-S S inu þykir því hlýða að birta S S álitið í heild, svo menn getiS S áttað sig á því til ful.'rar S S hlítar. ^ ,S. S að þær ráðstafanir, sem í frum- varpj þessu felast, hljóta að hafa á ýmsan hátt hliðstæð á- hrif og gengislækkun. Víxlun sú, sem frumvarpið gerir ráð fyrir á næstu 9 vísi- tölustigum og 5G- grunnkaups- hækkun, virðist hins vegar munu koma í veg fyrir almenna kjaraskerðingu næstu mánuði, en fljótlega ’þar á aftir munu merkin sjást. Persónulega tel ég þessa að- ferð um ;ögboðr.a kauplxækkun varhugaverða. En um það atr- iði .hafði miðstjórn Alþýðxxsam. bandsins sérstaklega fjallað, áð- ur en fyrrnefndur fulltrúafund- ur var kvaddur saman, og sam- þykkt þá ráðstöfun án tillits til annarra ákvæða frumvarpsins. Alvarlegast verðurþó að telja þá grundvallarstefnuibreytingu, sem frumva~o þelta felur í sér, þ ,e. að horfið er frá þeirri stöðv unarstefnu, sem verkalýðssam- tökin hnfðu faanað og lýst fvlgi sínu við allt frá vinnudenunni 1952 og siðasta Albýðusam- bandsþing laeði séx'staka á- herzlu á að farin yrði. Það er því augljóst. að þrátt fyrir nauman meirihluta í áð- urnefndum fulítrúahóp verka- lvðssamtakanna fyrir þeirri stefnu. að á móti ráðsi;öíurmm< bessa frumvarps skvl.di ekki unnið, há e">x hær ekkj í sam- ræm'i við bað. er síðlasto þing plbvðusam.tpkarsha fól þessum aðílum að semja um. •Með bví. sem ég hér hýf sagt,' ætlq ég það vera Jióst, nö éi? er andvípur frv. og legg f.'l, a.ð það verði fellt. Alþingi. 28. maí 1953. Eggert G. Þorsteinsson. En hver skyldi hafa trúað því, að við hér við Fáxaflóa ættum eftir að segja hver við annan og oft á dag: „Skyldi hann nú ekki fax*a að rigna? Vonandi gerir hann nú skúr í dag.“ Þessi þurrveðurskafli er sannarlega orðinn of lang- ur, svo til vandræða horfir með allan gróður. En enn er víðáttumikil lægð suður í hafi segja veðurf) éttir, og þó hann sé skúralegur. er alveg eins og hann geti ekki rignt. Þótt við hér suðvestanlands taut- um oft yfir bannsettri rign- ingunni, er þó sýnilegt, að hóf er á öllu bezt, þurrviðri ekki síður en regni. Exx það var eins og við rnanninn rnælt! Regnið kom síðdegis, og jörðin svalg! Ég ók umhverfis borgina, undir miðnætti, Þegar rignt hafði nokkrar stundir og hvílík breyting! Maður sá næstum grasið sprett.a, og ýkjulaust er, að maður sá jörðina grænka. Þetta var eir.s og töfraorðið sjálft. V,—6,—’58. Vöggux*.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.