Morgunblaðið - 09.08.1938, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 09.08.1938, Blaðsíða 7
ÞriÖjudagur 9. ágúst 1938 7 M ® R G U N B U A ÐIÐ Minningarorð um Þuríði Sigurðardóttur F. 1*. maí 1875. D. 20. júlí 1938. Otal minningar koma mjer í hug, er- jeg hugsa um Þu- ríði sál. Sigurðardóttur, forstöðu- konu barnaheimilisins Vorblómið. Það fyrsta sem jeg man eftir kenni er um 4(3 ,ára gamalt. Þá rar einhver að striða henni í kát- ura æskumannahóp með því „hvað lengi hún væri búin að vera í tugt- kúsinu!“ Jeg varð forviða, því að jeg var þá ókunnugur sveita- drengur, sem ekkert vissi um að fangavörðurinn átti stóran barna- hóp og bjó í hegningarhúsinu. Síðar átti það fyrir mjer að liggja að kynnast mörgum þeim systkinum vel og lengi. Þuríður var elst ellefu alsyst- kina, „fyrsta barnið, sem fæddist í IIegningarhúsinu“, er mjer tjáð. Atta komust þau upp og urðu vin- sæl og dugleg, en 6 þeirra eru oss horfin nú. Sigurður J ónsson fangavörður andaðist sjötugur árið 1909, og Ma rie kona hans 74 ára árið 1920. Tveim árum á undan henni dóu þeir bræður Jón og Þorvaldur. Þorvaldur dó ungur, en var alveg úvenjulega ágætt mannsefni, að minni hyggju, og fórnfús vinur allra raunabarna, sem liann náði til. Frú María, kona Vigfúsar Guð- brandssonar klæðskera, dó 1926. Frú Kristín, kona Helga verslun- arstjóra Helgasonar, dó 1931, Har- aldar, forstjóri Elliheimilisins, dó 1934, og loks Þuríður 20. f. m. Þau Ágúst prentsmiðjueigandi ■og frú Amalía, kona Sigurðar Þor- steinssonar verslunarmanns, eru nú ein eftir af stóra systkinahópnum. Þuríður heitin starfaði að mörgu um dagana, og lá aldrei á liði sínu. Að verslun vann hún, saumastofu hafði hún um hríð, hún kendi börnum handavinnu, var ötul starfskona í Góðtemplarafjelaginu og fleiri fjelögum hjer í bæ, og þótti liðtæk við upplestur og söng á skemtifundum þeirra. En starfið, sem halda mun nafni hennar lengi á lofti, lióf hún ekki fyr en um fimtugt. Bftir margra ára umhugsun og nokkurn undirbúning erlendis, rjeðst hún í árið 1928, að stofna barnaheimili fyrir munaðarlaus börn, fyrsta heimilið í þeirri röð hjerlendis. Hún nefndi það „Vor- blómið“ í þeirri von ög trú, að fleiri myndu á eftir koma. I Danmörku hafði hiin kynst slíkum hælum Og sjeð hvað þau veita örugt skjól mörgum munað- arleysingja, sem annars mundi hrekjast manna á milli. „Blessað barnið er búið að missa jhana mömmu sína“, sagði jeg um 3ja ára stúlku við gamla konu á Elliheimilinu einu sinni. — Hún svaraði: „Hún á nú góða að samt, og þarf ekki að fara á hrakning; jeg varð líka snemina móðurlaus, en átti þá engaú að og var á ð heimilum fyrstu 12 æfiárin“. — ,MáU’óinþr,,i liennar var.' eins og .stuna úr hýldýpi beiskra mihninga. Svipaðar stunur hafði Þuríður heyrt, og vildi forða svo mörgum Þuríður Sigurðardóttir. börnum, sem hún gæti, frá því að hrekjast manna á milli. Því gaf hún aleigu sína til að útbiia „Vorblómið“ sitt, sem tók til starfa 1928 á Skólavörðustíg 22 hjer í bæ. Bæjarstjórn veitti henni hús- næði að Grund árið 1930, er gamla fólkið fluttist þaðan í nýja húsið við Hringbraut. Þar gekk starfið vel í 4 ár, en svo brann húsið og’ með því aleiga forstöðukonunnar, nema kjarkurinn og trúin — og fötin, sem hún stóð í, er hún síðust allra heimilismanna varpaði sjer út um glugga ú'r bálinu. IJpp frá því hefir „Vorblómið“ búið við erfið kjör, ljeleg húsa- kynni, vanskil sumra viðskifta- manna og vaxandi lasleika for- stöðukonunnar. En samt ljet hún ekki hugfall- ast. Börnin unnu lienni og liún þeim; og jafnan reyndi hún að innræta þeim guðsótta og góða siðu. Hún varð að reyna marga erfiðleika brautryðjandans, og stundum átti hún ekki aura fyrir skó eða fatnað handa sjálfri sjer, „en það skiftir engu ef börnin hafa nóg“, sagði hún. Þrek hennar og trúartraust sá jeg oftar en hjer verður talið, og Ijósast þá þegar erfiðast gekk. Henni var ekki Ijett að verða að hætta störfum í vor sem leið vegna heilsubrests, en hiin kvaðst þó ekki sjá eftir að hafa fórnað eigum og heilsu „fyrir börnin sín“. — Þau munu mörg blessa minningu lienn- ar; og þegar barnauppeldismál eru komin á fastari grundvöll en nú er A'or á meðal verður Þuríði Sig- urðardóttur reistur veglegur minn- isvarði. Sigurbjörn Á. Gíslason. E.8. LYRA fer hjeðan fimtndaginn 11. þ. m. kl. 7 e. h. (um Vest- mannaeyjar o.s; Þórshöfn) til Bergen. Tekið á móti flutn- ingi til hádegis á fimtudag. Pantaðir farseðlar sækist fyrir hádeg'ifá morgun, ann- árs seldir öðrum. p. Smifh á €o. Ragnheiðurísaks- dóttir, Ijósmóðir Ilve skelfir mitt hjarta helfregn sú, sem hljðinar á vörum allra nú: Hún ,,ljósa“ mín góða er látin! Hún sem jeg elskaði allra mest, var allra hugljúfi og kvenna best, ei verður að verðleikum grátin. O, alt, var svo sorglegt, jeg segi ei meir, því sorglegt er jafnan ef einhver deyr með svona sviplegum hætti. Að hafa þann voða í heimarann, það henda ei mætti neinn góðan mann, úr húsum því útrýma ætti. Ó, ljósa mín góða, hve ljóð mitt er smátt, og lítið jeg segi og altof fátt jeg upptel af ágæti þínu. Jeg binda þjer vildi úr blómum krans, já, blómum frá altari kærleikans, ef það væri á valdsviði mínu. Þú líknaðir sjúkum og læknaðir sár og Ijúflega þerðirðu margra brár, sem grjetu af margskonar meinum. Þá fátt var um lækna í fámennum reit, þú fórst oft sem hetja um strjál- bygða sveit í veðrum, sem vægðu ei neinum. Sem júnídagurinn björt á brá, svo broshýr og göfug varstu að sjá, að fá varð þinn jafningi fundinn. Þú köluð varst „ljósa“ af krökk- um þeim, sem þú komst meS í tösku á bæina heim. Þá oft var þjer erfið sú stundin. Jeg sje þig sem draumsjón, með silfurhvítt hár og sólbros á vörum. Jeg felli þó tár og óska að sjáumst við aftur. I sóllöndum æðri, þar ástvin þinn hýr, nú upprennur dagur svo fagur og hlýr. Því veldur guðs kærleika kraftur. Eva Hjálmarsdóttir frá Stakkahlíð. Hljómsveitin á þýska, herskipinu „Emden“ leikur fyrir framan Mentaskólann í kvöld kl. 6 ef veð- ur leyfir. Listasafn Einars Jónssonar er opið daglega kl. 1—3. r 4í.S ÍQ. íJ Dagbók. Veðurútlit í Rvík í dag; SV-gola. Smáskúrir. Veðrið (mánudagskvöld kl. 5): Lægðin yfir Grænlandshafi er nú orðin kyrrstæð og fer minkandi. Vindur er S- eða SV-stæður um alt lahd og veðurhæð víðast 3—4 vindstig. Vestan lands og sunnan er skýjað loft en úrkomulaust að mestu. Norðaustan lands er bjart- viðri og 14—20 st. hiti. Háflóð er í dag kl. 4.30 e. h. Næturlæknir er í nótt Daníel Fjeldsted, Hverfisgötu 46. Sími 3272. Næturvörður er í Reykjavíkur Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunni. Pjetur Halldórsson borgarstjóri var meðal farþéga á Lyru hingað í gær. Eimskip. Gullfoss fór frá ísa- firði kl. 6 í gær áleiðis til Siglu- fjarðar. Goðafoss er á leið til Leith frá Vestmannaeyjum. Brúarfoss fer frá Kaupmannahöfn í dag. Dettifoss kemur frá útlöndum um hádegi í dag. Lagarfoss er í Kaup- mannahöfn. Selfoss er á leið til Vestmannaeyja frá Immingham. Ljósálfar og Ylfingar, mætið við í. R.-húsið kl. 6 í kvöld. Starfsmannablað Reykjavikur, heitir nýtt blað, sem Starfsmanna- fjelag Reykjavíkurbæjar gefur út. Á blaðið að koma út 6 sinnur á ári. I ritnefnd eru Lárus Sigur- björnsson, Jóhann G. Möller og Ágúst Jósefsson. í hinu fyrsta tölublaði eru m. a. þessar greinar: Gangur launamálsins, eftir Lárus Sigurb j örnsson. Húsbyggingar mál starfsmanna Reykjavíkurbæjar, eftir Árna J. I. Árnason. Laun og barnafjöldi, eftir Jóhann G. Möll- er. Starfsmannafjelagið. Þættir um stofnun þess og starf, eftir Ágúst Jósefsson. Sumarbústaðir, eftir Lárus Sigurbjörnsson. Þá eru nokkrar tækifærisgreinar vegna starfsafmæla o. fl. Óvehjulegir hitar hafa verið á Austfjörðum úndanfarið, símar frjettaritari vor á Seyðisfirði. Venjulega logn og sólskin undan- farna viku. Hitinn hefir sjaldan farið niður fyrir 16 stig á næt- urnar og í gær var hitinn 25 stig í skugganum. Öll hey er búið að hirða eystra þar, en vandræði með breiðslu á fiski. Fisktökuskipin Edda og Bisp hafa nýlega tekið um 5000 pakka af fiski til út- flutnings á Seyðisfirði. Útvarpið: Þriðjudagur 9. ágúst. 12.00 Hádegisútvarp. 19.20 Hljómplötur; Ljett lög. 19.50 Frjettir. 20.15 Erindi: Forn ljóðrænn skáld- skapur (Jón Gíslason dr. phil.). 20.40 Symfóníu-tónleikar (plöt- ur): a) Symfónía nr. 40, g-moll, eft- ir Mozart. b) Píanó-konsert nr. 4, Grdúr, eftir Beethoven. c) Lög úr óperum. 22.00 Dagskrárlok. ftSi ^/IáV Það tilkynhist vinum og vandamönnum, að Benedikt Magnússon, frá Vallá, andaðist aðfaranótt 8. ágúst. Gunhhildur Ólafsdóttir, börn, tengdaböm og bamaböra. Kveðjuathöfn yfir líki konu minnar, ólafar Jónsdóttur, frá Skúmsstöðum, fer fram við Landakotsspítala í dag kl. IOV2 árdegis. Kransar afbeðnir. Þorvaldur Jónsson. Jarðarför systur minnar, Guðnýjar Jónsdóttur, hjúkrunarkonu frá Kristnesi, sem andaðist á Vífilsstöðum þ. 2. ágúst, fer fram miðvikudaginn þ. 10. ágúst kl. 3(4 síðdegis frá dómkirkjunni í Reykjavík. Fyrir hönd fjarverandi föður og systkina. Ragnheiður Jónsdóttir. Jarðarför Kristínar Jónsdóttur, sem andaðist að Kleppi 31. f. m., fer fram frá dómkirkjunni miðvikudaginn 10. ágúst kl. 1. Aðstandendur. Jarðarför Jóns Sturlaugssonar, Stokkseyri, fer fram laugardaginn 13. þ. m. og hefst með hús- kveðju kl. 2 á heimili hins látna. fí u f ' ; Vilborg Hannesdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.