Morgunblaðið - 16.09.1938, Side 7
Föstudagur 16. sept. 1938.
MORGUNBLAÐiÐ
7
Dagbók.
0 Sjelgafell 59389177 - IV./V.
IJppt. Pyrirl.
L O. O. F. 1 = 1209168‘/a = 9.1 II
V
VeCnrútlit í Reykjavík í dag:
Hægviðri. Úrkomulaust að mestu.
Hæturlæknir er í nótt Berg-
•sveinn Olafsson, Hávallagötu 47.
8hni 4985.
Haéturvörður er í Ingólfs Apó-
teki og Laugavegs Apóteki.
Hlutavelta K. R. Stjórn K. R.
biður alla. þá, sem eru að safna
á hlutaveltuna, að koma með
NÁGLALAKK
Amatörar.
FRAMKÖLLUN
Kopiering — Stækkun.
yijótt og vel af hendi leyil
Notum aðeins Agfa-pappír.
Ljósmyndaverkstæðið
Laugaveg 16.
Afgreiðsla í Laugavega Apð-
teki.
Amatörar.
Framköllun
Kopiering — Stækkun.
Fljót afgreiðsla. - Góð vinna.
Aðeihs notaðar hinar þektu
AGPA-vörur.
F. A. THIELE h.f.
Austnrstræti 20.
drættina á skrifstofu K. R. í K.
R.-húsinu.
Eimskip. Gullfoss er á leið tií
Leith frá Vestm. Goðafoss kom til
Hamborgar í gær. Brúarfoss kom
til Vestm. í gærkvöldi. Dettifoss
var á Siglufirði í gær. Lagarfoss
er í Kaupmannahöfn. Selfoss var
á Önundarfirði í gær.
Bílslys varð í fyrrakvöid kl.
tæplega 12 á Laugaveginum inn-
arlega. Maður, sem var þar á
gangi, Jón Sveinsson, Bárugötu
4, varð fyrir bíl og hruflaðist mik-
ið á höfði. Var hann fluttur á
Landsspítalann, en gat farið það-
an strax og búið var að binda um
sár hans. Lögreglurannsókn á slysi
þessu var ekki svo langt komin í
gær, að hægt væri að segja um
hvernig slysið vildi til.
íslensk setningarfræði nefnist
bók, sem Ríkisútvarpið hefir gef-
dð út. ,Er þetta kenslubók ætluð
skólum og útvarpi, eftir Björn
Guðfinnsson íslenskukennara út-
varpsins.
Gagnfræðaskóli Reykvíkinga
verður settur þriðjudaginn 20. þ.
m. kl. 2 e. h. í baðstofu iðnaðar-
manna.
Skólastjóri Gagnfræðaskólans í
Reykjavík hefir beðið hlaðið að
get.a þess, að skólinn geti ekki
tekið á móti fleiri nemendum í
vetur en þegar hafa fengið lof-
orð fyrir skólavist, jafnvel þó að
einhverjir kynnu að ganga frá,
sem þegar hafa sótt um skólavist.
I I. bekk eru nú þegar komnar
150 umsóknir, en ekki er þar rúm
fyrir nema 120. í II. bekk eru um
80 umsækjendur, en ekki rúm fyr-
ir fleiri en 60. Þriðji hekkur er
einnig alveg fullskipaður.
Drengjamót Ánranns innan fje-
lags, fyrir drengi innan 16 ára,
verður haldið á Iþróttavellinum
á inorgun, laugardag 17. þ. m. fel.
5 síðd. og sunndaginn 18. sept. kl.
10 árd. Kept verður í hlaupum 80,
400, 1500 metra, hástökki, lang-
stökki, þrístökki og stangar-
stökki, kúluvarpi, kringlukasti og
spjótkasti. Ollum drengjum inn-
an fjelagsins á þessum aldri er
heimil þátttaka og eru þeir heðn-
ir að mæta hálftíma fyr en kepn-
in á að hefjast.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína Gylfi Þ. Gíslason stud. rer.
pol. og ungfrú Guðrún Vilmund-
ardóttir stúdent.
Ríkisskip. Súðin var á Akureyri
í gær. Esja fer frá Reykjavík kl.
9 í kvöld austur um la.nd t.il Siglu-
fjarðar.
Útvarpið:
19.50 Frjettir.
20.15 Erindi: Vinnuskólar, I(Lúð-
víg Guðmundsson skólastj.)j
20.40 Strokkvartett útvarpsins
leikur.
21.15 Hljómplötur:
a) Sónötur eftir Brahms.
b) Harmóníkulög.
22.00 Dagskrárlok.
Dansleikur
luiítttspyrnumanna verður að
Hótel Borg annað kvöld.
Knatf^pyrntnfjelagið Frans
Knaftspyrnufjela^ Reykjavákur,
Starfsemi Rauða
Kross íslands
V átryggingarhlutaf jelagið
NYE DANSKE AF 1864
At'sskýrsla Rauða kross ís-
lands fyrir árið 1937 er
nýkomin út. Er í skýrslunni
margskonar fróðleikur um
starfsemi þessa þarfa fje-
lagsskapar, og fer hjer á eft-
ir það helsta:
Merkjasala á Ösku-
daginn.
Merkjasala fór ’fram á Ösku-
daginn í Reykjayík, og seldist fyr-
ir kr. 936,76; merki voru einnig
seld í Sandgerði, Garði og Grinda
vík fyrir kr. 55.21.
Slysakassar.
Eins og samþykt var á árinu
1936, voru útbúnir slysakassar
með nauðsynlegum umbúðum og
lyfjum, er látnir voru í skíðaskál-
ana í Hveradölum, Jósefsdal og
Skálafelli. Var slysakassinu í skíða
skálanum í Hveradölum endur-
bættur að miklum mun eftir sum-
arið, þareð ferðafólk, er fór um
Hellisheiði, leitaði oft til gestgjaf-
ans 1 skálanum, er slys vildu til,
og umbúðir og lyf vantaði.
Skíðasleði sá, er útbúinn var til
sjúkraflutninga á Hellisheiði, ef
á þyrfti að halda, er hinn vand-
aðasti að öllu leyti, og er hanu
geymdur í skála Skíðafjelags
Reykjavíkur í Hveradölum- For-
seti Skíðafjelags Reykjavíkur, hr.
kaupm. L. H. Múller, og slökkvi-
liðsstjóri Pjetur Ingimundarson
gerðu Rauða krossinum þann
mikla, greiða að segja fyrir um
útbúnað sleðans.
Liílryggingar
allar tegundir. Lægst iðgjöld. Best kjör.
Aðalumboð:
V átryggingarskrifstofá
Sftgfúfls Sftglivatssonar,
Lækjargötu 2. Sími 3171.
Kaupi Veðdeildarbrjef og Kreppulánasjóðsbrjef
Hefi fastelgnir mell laosun
ibúðum til sðln.
Garðar Þorsteinsson, hrm.
Siml 4400 og 3442.
HIÐ ÍSLENSKA FORN RITAFJELAG:
Nýtt bindi er komið.
Borgfirðinga sögur
Fæst hjá bóksölimt.
Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar.
og B. B. A., Langavegi 34.
Umbúðapappír.
Útvegum aUar tegundir af UMBÚÐAPAPPÍR.
Fræðslustarfsemi
Rauða Krossins.
Námskeið í hjúkrun og hjálp í
viðlögum fóru fram að þessu sinni
eingöngu í Reykjavík. Þátttakend-
ur voru 82 alls, þar af 43 karl-
menn. Sjerstakt námskeið í hjálp
í viðlögum var haldið fyrir með-
limi Verkstjórafjelags símalagn-
inga- og vegagerðamanna; tóku
þátt í þyí 38 karlmenn.
Kensluna annaðist hjúkrunar-
konan, ungfrií Sigr. Baehmann.
Nám hjúkrunar-
kvenna.
Að tilhlutun landlæknis og for-
stöðukonu Landspítalans, ungfrú
Kristínar Thoroddsen, tók Rauði
Krossinn að sjer að setja á stofn
forskóla fyrir lijúkrunarnema í
Hjúkrunarkvennaskóla íslands, í
aprílmánuði 1937. Starfaði skól-
iun í tæpar 4 vikur; 12 nemar
tóku þátt í náminu. Um árangur
af þessum fyrsta forskóla er ekki
liægt að segja mikið, en óhætt er.
að fullyrða, að stofnun skólans
þótti mjög þörf, enda, hefir hjúkr-
unarkvennastjettin sjerstaklega
látið í ljósi ánægju sína yfir stofn
un hans.
Sjúkraflutningur.
Sjúkrabifreiðar R. K. í. fluttu
samtals 1399 sjúklinga á árinu,
þar af innanbæjar 1298. Þar af
voru slasaðir menn 13 og flytja
hifreiðar Rauða Krossins slasaða
menn endurgjaldslaust.
Á fundi aðalstjórnar Rauða
Kross íslands þ. 27. júní 1938 var
Gunnlaugur Einarsson læknir kos
inn formaður, í stað Dr. G. Claes-
sen, er sagði af sjer, en herkla-
yfirlæknir Sigurður Sigurðssou
varaformaður, í stað próf. G.
Thoroddsen, er líka færðist und-
Eggert Kristjánsson & Co.
Simi 1400.
Fyrirliggjandi:
Rio-kafft.
5ig. Þ. Skjalöberg.
(HEILDS ALAN).
Gullfoss ogGeysir
Næstkomandi sunnudag förum við hina velþektu skemti-
ferð að GULLFOSS og GEYSI í SÍÐASTA SINN.
Sfimft 1580. Sfeindór.
Maðurinn minn og falir okkar,
Þorsteinn Ólafsson,
andaðist á heimili sínu, Kjaranstöðum, þann 14. þ. m.
Kristín Eyjólfsdóttir og börn.
Jarðarför mannsins míns
Svavars S. Svavars,
sem andaðist 9. þ. mán., fer fram laugardaginn 17. sept. og
hefst með húskveðju að heimili okkar Njálsgötu 102 kl. 3 e. h.
Fyrir mína hönd, barna minna og tengdadóttur
Jóna B. Svavars.
an endurkosningu.