Morgunblaðið - 13.10.1938, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 13. okt. 1938.
Dómsmálafrjettir
Sýslunefnd Eyja-
fjarðarsýslu
sýknuð
Mál sjúkratiússins
„Gudmanns Minúe“
Hæstirjettur kvað í gær
upp dóm í málinu:
Sýslunefnd Ey.iafjarðarsýslu
gegn sjúkrahúsinu „Gud-
manns Minde“.
Málavextir eru samkvæmt for-
sendum dóms undirrjettar:
Munið að kaupa á kvöldboíðið:
Sfólax
Krækling
Kryddsíldarflök í vínsósu
Bismarksild
frá
Niðursuðuverksmiðju S. L F.
pvr
1 REÚEYES comwww*
<fs> C°RN 1 allbran
1 flakes Bsæassa 1 1 UEADYTO CA.T .TfáfífchT*.
Helldsölublrgðir:
H. Benediktsson & Co,
Sýslunefnd Eyjafjarðarsýslu
hafði á fundi sínum 1930 lofað
a. m. k. 1000 kr. styrk til sjúkra-
hússins „Gudmanns Minde“ á Ak-
ureyri á því ári, en síðar neitað
að greiða styrkinn og var því
málið höfðað. Bygði sýslunefndin
neitun sína á því, að aldrei hafi
legið fyrir gilt loforð nm styrk-
veitinguna, með því að ályktun
nefndarinnar hafi aldrei verið til-
kynt stjórn sjúkrahussins, en fyr
hefði ekki getað stofnast kröfu-
rjettarsamband, bygt á ioforði um
styrkinn. Einnig helt sýslunefnd-
in því fram, að enda þótt um hafi
verið að ræða bindandi loforð í
fyrstu, þá hafi síðar orðið þær
breytingar á stjórn og rekstri
sjúkrahússins, sem ekki hafi verið
gert ráð fyrir þegar sýslunefnd
gerði ályktunina um styrkinn.
Hafi því um brostnar forsendur
verið að ræða, sem lieimilaði sýslu-
nefnd að breyta sinni fyrri á-
kvörðnn.
Þar sem oddviti sýslunefndar
var í máli þessu málsvari f. h.
sýslunefndar var Böðvar Bjarkan
skipaður setudómari í málinu og
dæmdi hann það í undirrjetti.
Hann leit svo á, að þar sem
sjúkrahúsið hafi verið rekið sem
sjálfstæð stofnun, en notið styrks
frá Akureyrarhæ og Eyjafjarðar-
sýslu, þá hafi sjúkrahúsið getað
öðlast kröfurjett á hendur sýslu-
nefnd samkvæmt ályktun hennar
orð væri að ræða. Ályktun sýslu-
nefndar hafi og verið gerð í sam-
bandi við skriflegt erindi frá
stjórn sjúkrahússins. Og þar sem
ályktunin hafi verið gerð á opn-
nm fundi sje sýslunefndin bundin
við hana, eins og um tilkynt lof-
orð væri að ræða. Ályktun sýslu-
nefndar hljóðaði um 2t)00 kr. styrk
til sjúkrahússins, en í málinu var
aðeins krafist 1000 kr. og ekki
getið undir rekstri málsins, hvers
vegna ekki var krafist allrar upp-
hæðarinnar.
Hinn skipaði setudómari leit
heldur ekki svo á, að npplýst
hefði verið í málinu að þær breyt-
ingar hefðu orðið á stjórn eða
rekstri sjúkrahússins á árinu 1930,
að sýslunefnd af þeirri ástæðu
gæti skorast undan að greiða
styrkinn.
Hæstirjettur var annarar skoð-
unar um þetta. Hann var að vísu
sammála setudómaranum um það,
FEAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
Framh. «f 3. giðn
Okurálagningin
hjá KRON
það nú hverju mannsbarni Ijóst
að höftin eru notuð fyrst og
fremst til þess að koma allri
kaupmannaverslun fyrir kattar-
nef.
Þegar blað fjármálaráðherr-
ans hóf að þessu sinni rógsher-
ferðina á hendur vefnaðarvöru-
kaupmönnum hjer í Reykjavík
var staðhæft' að kaupmenn
legðu svo mikið á vefnaðarvör-
una, að rjetta svarið við okr-
inu væri, að svifta þá öllum
innflutningi á þessari vöru. Svo
kemur blað kommúnista með
framhaldið, að KRON eigi að
taka við innflutningnum.
★
Blað fjármálaráðherrans hef-
ir undanfarið verið að birta
.,skýrslur“ um ,,okurálagningu“
vefnaðarvörukaupmanna, og á
grundvelli þessara skýrslna á að
rjettlæta það, að svifta kaup-
menn innflutningi vörunnar og
fá hana í hendur KRON.
En til þess að almenningur
fáist til að fallast á slíka ein-
okun á nauðsynjavöru, sem hjer
er í aðsigi, dugir vitanlega ekki
það eitt að rægja kaupmenn-
ina. Hitt þarf að fylgja með,
að sannað sje að KRON selji
ódýrara.
En hvernig er þessu háttað?
Morgunblaðið hefir síðustu
dagana látið kaupa nokkrar
þær vörutegundir í búðum
KRON, sem skýrslur Tímans
ná til. Sjeu skýrslur Tímans
m innkaupsverð, kostnaðarverð
og útreikning álagningarinnar
lagðar til grundvallar, verður
útkoman þessi:
Ljereft. Innkaupsverð skv.
uppl. Tímans kr. 0.44; útsölu-
verð KRON kr. 1,30. Álagning
samkv. reikningi Tímans 163%
Sængurveraefni. Innkaups-
verð skv. uppl. Tímans kr.
0.88; útsöluverð KRON kr.
3.00. Álagning skv. reikningi
Tímans 194%.
Georgette. Innkaupsverð skv.
uppl. Tímans kr. 0.76; útsölu-
verð KRON kr. 3,25. Álagning
skv. reikningi Tímans 288%.
Gardínuefni. Innkaupsverð
skv. uppl. Tímans kr. 2,11; út-
söluverð KRON kr. 6.50. —
Álagning skv. reikningi Tímans
197%.
Sokkar (karla). Innkaups-
verð skv. uppl. Tímans kr. 0.36
parið. Útsöluv. KRON kr. 1,25
parið. Álagning skv. reikningi
Tímans 217%.
Kvennærföt. InnkaupsverS
skv. uppl. Tímans kr. 1,38 stk.
Útsöluverð KRON kr. 5.00. —
Álagning skv. reikningi Tímans
239%.
Bollapör. Innkaupsverð skv.
upplýsingum Tímans kr. 0.22
stk. Útsöluverð KRON kr. 0.75.
Álagning skv. reikningi Tím-
ans 187%.
BoIIapör. Innkaupsverð skv.
uppl. Tímans kr. 0.33 stk. Út-
söluverð KRON kr. 1.15. —
Álagníng skv. reikningi Tím-
ans 200%.
Hvað sýna svo þessar tölur?
Þær sýna, að samkvæmt upp
lýsingum Tímans um innkaups
verð og reikningsaðferð
hans um álagningu á
vöruna, er álagning KRON á
flestum þessum vörum LANGT
YFIR það sem Tíminn taldi á-
lagninguna vera hjá kaupmönn-
um.
Ef það er rjettnefni að tala
um okur í sambandi við álagn-
>;u kaupmanna, hvað verður
þá sagt um álagningu KRON,
sem er miklu meiri, þegar fylgt
er reikningsaðferð Tímans?
★
Kaupmenn hafa ekkert við
það að athuga, að kaupfjelög
starfi við þeirra hlið, ef báð-
ir njóta jafnrjettis. Það er og
best fyrir almenning, að slík
samkepni sje um verslunina.
En hjer á landi er ekki slíku
til að dreifa, þar sem kaupfje-
lögin njóta margskonar sjer^
rjettinda, en við það hefir svo
skapast staðbundin einokun um
verslunina á ýmsum stöðum á
landinu. Þetta er öllum til ills.
En þrátt íyrir margskonar
sjerrjettindi kaupfjelaganna,
hefir reynslan sýnt að þau geta
ekki þróast í samkepni við kaup
menn. Þannig hefir þetta verið
hjer í Reykjavík. En þá er
aðferðin sú, að grípa til inn-
flutningshaftanna og nota þau
til þess að útrýma kaupmönn-
um. Að þessu er nú unnið af
kappi.
En Reykvíkingar vita hvað
í vændum er, ef framkvæmd
verður sú fyrirætlun rauðliða,
að láta KRON ráða verðlaginu
hjer í bænum. Það sýna greini-
lega tölurnar hjer að framan,
sem bygðar eru á útreikning-
um og skýrslum Tímans.
Annað aðalmálgagn ríkis-
stjórnarinnar hefir sagt, að
KRON væri stærsta útbreiðslu-
fyrirtæki kommúnista hjer í
bænum. Og nú hefir Tíminn
orðið til að upplýsa, að þetta
útbreiðslufyrirtæki kommúnista
leggur svo óheyrilega á nauð-
synjar almennings, að annað
eins er algerlega óþekt fyrir-
brigði í verslunarsögu lands-
ins.
Hvað á svo að gera við þann
mikla gróða, sem þetta fyrir-
tæki kommúnista aflar sjer með
okur-álagningunni, sem Tíminn
upplýsir að þar eigi sjer stað?
Svarið við þessari spurningu
mun koma í ljós við kosningar
á komandi árum. Það á að
láta Reykvíkinga bera uppi út-
Dreiðslustarfsemi Stalins-manna
á íslandi!
K. F. U. M. A.-D. Fyrsti fund-
ur á starfsárinu í kvöld kl. 8^/2■
Allir karlmenn 17 ára og eldri
velkomnir. Sr. Fr. Friðriksson
talar.