Morgunblaðið - 13.10.1938, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 13. okt. 1938.
1 ÚR DAGLEGA I
LlFINU
S 8
aooDoaaQDDQD □□□oaoaoDoao
Fyrir nokkrum árum, áður en Mjólk-
ursamsalan kom til sögunnar í Reykja-
TÍk var að því unnið ötullega að fá al-
menning til þess að nota sem mest af
mjólk til daglegrar fæðu. Annaðist
Mjólkurfjelagið um það, að út komu
fræðandi auglýsingar um hollustu
mjólkurneyslu, og ýmsar uppörfanir
og leiðbeiningar í þessu efni. Þessi
•Uglýsingastarfsemi hefir áreiðanlega
borgað sig, á þann hátt, að mjólkur-
neyslan hefir aukist vegna þessa til
hagsbóta fyrir mjólkurframleiðendur.
Bæði bændur, sem selja mjólk og
bæjarbúa, sem kaupa mjólk, furðar á
því, að þessi viðleitni skuli hafa fallið
niður. Því heldur Mjólkursamsalan
henni ekki áfram? Finst forstöðumönn-
um Samsölunnar ekki að mjólkin sem
þeir selja sje nægilega góð til þess að
með henni sje mælt til daglegrar
neyslu 1
★
Umkvartanir hafa heyrst um það,
ainkum nú í haust, að altof mörgu
fólki sje hrúgað saman í dansleikja-
húsin, stundum, þar sem dansleikir eru
haldnir um helgar. Fólk standi þar í
kös, og geti ekki ekist úr sporunum,
Loftið þrungið af svitalykt, tóbaks-
reyk og ryki, sem berst inn í húsin af
götunni. Er það stundum svo mikið, að
hægt er að krota með fingurgómum
fangamörk manna í rykið á öxlum
þeirra, sem eru í dökkum fötum.
Það má geta nærri hvílík óhollusta
af því stafar, að haldast við í slíku
ólofti næturlangt að kalla.
★
; Mjög er það talið vafasamt, hvort
allir þeir, sem við bílaakstur fást hjer
í bæ, hafi ennþá tamið sjer að taka
fult tillit til gangbrauta þeirra, sem
markaðar eru yfir þverar umferðagöti
ur, en innan takmarka þeirra óiga
fótgangandi menn að vera óhultir fyrir
bílum, og er það bílstjóranna að hafa
gát á því, að menn geti öruggir farið
yfir götumar, þar sem þeim er þannig
„markaður bás“.
En ef bílstjórar taka ekki fult tillit
til þessa „friðlands' fótgangandi
manna, þá koma gangstígar þessir ekki
*ð því haldi, sem ætlað var.
★
Hjer um daginn var kunningi minn
einn stáddur á Lækjartorgi. Hann var
að bíða þar eftir strætisvagni. Varð
hann þá þess var, að kona ein öldruð
kom í loftköstum yfir akbrautina aust
*n við Útvegsbankahomið. Þótti hon-
um fas hennar furðulegt, en sá ekki
hvernig í þessu lá, fyr en konan var á
leið sinni komin að akbrautinni aust-
ast á torginú, sem liggur meðfram
Stjórnarráðsblettinum. Þar er gang-
•tígurinn, sem víðar, afmarkaður með
■tóram málmhnoðum, sem era á nögl-
«m, er reknir em niður í götuna.
Þama fór konan aftur í loftköstum
yfir akbrautina. Hún hjelt að málm-
hnoðin væm stiklar, og stökk á milli
þeirra.
★
Jeg er að velta því fyrir mjer, hve
fímleikamenn megi vera háir, til þess
aS þeir geti stokkið upp á nef sjer.
Þjálfari K. R. 120 ár
Nú tmi þessar mundir á vin-
sælasti knattspyrnuþjálfari
landsins, Guðmundur Ólafsson, 20
ára afmæli sem knattspyrnuþjálf-
ari.
Þegar Guðmundur fyrir 20 ár-
Um byrjaði að kenna okkur K. R.-
ingum var okkur injög mikil þörf
á að fá góðan þjálfara, því um
mörg ár hafði gengið ákaflega erf-
iðlega með sigrana hjá 1. og 2.
floltki. Hjá 1. flokki gekk það
þannig til ipn þessar mundir að
það var að&ins spursmálið áður en
leikur höfst' með hve inörguin
mörkum flokkurinn mundi tapa.
Venjulegu endalokin voru þetta
frá 7 og upp í 10 marka tap. Þetta
þótti okfepr yngri mönnunum í
fjelaginu ajveg sárgrætilegt að
horfa upp á ár eft.ir ár.
En svo kemur Guðmundur til
sögunnar og fór þá bráðlega að
breytast til batnaðar hjá okkur.
Öllum flokkmu í fjelaginu fór
stórkostlega fram frá ári til árs,
þannig að t. d. árið 1926 hafði
Guðmundur náð þeim árangri að
K. R. vann öll knáftsþýrnumótín
það árið. Hvernig gat staðið á því
að um svo miklar framfarir gat
verið að ræða hjá flokkunum? Jú,
þeirri spurningu er auðsvarað.
Hæfni 'Guðmundar sem knatt-
spyrnukennara var alveg sjerstök.
Ilann hafði svo gott vit og lag á
að benda okkur á hvernig við
ættum að leika og á hvaða hátt
við skyldum. æfa okkur til að ná
sem bestum árangri. Framkoma
hans við okkur strákana og skiln-
ingur var á þá lund, að okkur
þótti öllum bókstaflega vænt um
hann, og það sem hann sagði okk-
ur að gera, því var hlýtt alveg
skilyrðislaust.
Þannig geklc þetta til í þau 10
ár sem jeg hafði þá ánægju að
njóta tilsagnar Guðmundar Ólafs-
sonar. En fyrir utan það að kenna
okkur knattspymu þá var það líka
annað sem Guðmundur kendi okk-
ur, og það var orðheldni og á-
byggilegheit í hvívetna. Þetta
lærðum yið einungis af jiví að
njóta tilsagnar Guðmundar, tala
við hann ogð verða þess varir í
gegnum, fjölda ára að hann lofaði
aldrei neinu án þess að standa við
j f, .... :
Mín skoðun er sú, að allir knatt-
spyrnumemThjer í bæ eiga meira
að þakka Guðmundi Ólafssyni sem
knattspyrnukáínara heldur en
nokkrum Öðrum núlifandi manni
hjer, því eftir því sem Guðmund
ur gerði okkúr- K. R.-inganá sterk-
ari í knæfetfipyrnunni eftir því
lögðu keppinautar okkar meira að
sjer og stæltust að sama skapi,
og urðú þannig óbeinlínis fyrir
áhrifum Guðníúndar.
Guðmundur Ólafsson,
í tilefni af þessu 20 ára afmæli
Guðmundar er ákveðið að halda
honum samsæti í Oddfellowhúsinu
n.k. sunnudag kl. 6 e. h., og er
jeg ékki í neinum vafa úm að
margir. bæði eldrí og yngri nem-
jenaur Guðmundar í K- R. munu
fjölmpnna í samsæti þessu ásamt
ýmsum Öðrum knattspyrnumönn-
um ulan l'jelagsins sem hafa notið
tilsagnar haus. P. S.
Ekki hægt að buga
Itala Þjóöverja
FRAMH. AF AHIÍARI SÍ©Ö
London í gær. FÚ.
í þýskum og ítölskum blöðum kém-
ur fram sú skóðun, að það sem spilli
fyrir samkomulagáhorfum um tak-
mÖrkun. vígbúaaðarpsje styrjalákrurid-
irróður að undirlagi GyðiUga, en
fremsta í flokki þessara styrjaldar-
undirróðursmanna telja blöðin menn
eins og Winston ChurchiII, Duff-Coop-
cv og Antliony Eden.
„Ðeutsche1 Allgemeine Zeitung“ tél-
ur, að áhrifa slíkra manna, er það
segir að vilji Stríð, gæti of mikið.
Itölsku blöðin taka í sama streng
og ]ýsa sig fylgjandi stefnu Hitlers.
Eitt höfuðmálgagn; stjórnarinnar, telur
að hægt sje að ná samkomulagi um af-
vopnun, ef unnið sje að því í sama
aftda og 1 Miinchen, er samkomulagið
ftáðist miili fjórveidanna um Tjekkó-
slóyakíu. Þannig var hægt að koma því
til; leiðai' að sgftfiur friður ríkti í álf-
unni. ni/ ; ;
Biaði'ð segir, að öllum mætti vera
Ijóst, nð lilgangslaust s.je að ætla, fið
hægt sje að kúga ítali og Þjóðverja,
125 miljónir manna, sem fiukist um 1
miljón árlega, en samvinna, þeirra hafi
fildrei verið traustari en nú.
Signor Gayda tekur mjiig í sama
streng í blaði sínu.
yrmrW’nb/tj! ..
íþróttaæfing’ar (E. . R. ! rí dag
verðar æfingar seifi hj.er segir: Kl.
5.20 drengir innan 14 ára, kl. 7.10
2. fi. karla, kl. 8.10 1. fl. kvenna,
kl. 9.10 frjálsar íþróttir fyrir 17
ára og eldri.
— Úr dagbók —
lögreglunnar
Klukkan um 5 í gær var hringt
til lögregiunnar og kært
yfir því, að maður hefði verið
rændur peningum í húsi einu á
Frakkastíg. Fóru tveir lögreglu-
þjónar á staðinn ásamt manni úr
rannsóknarlögreglunni, en er þang
að kom reýndist maðurinn, sem
hjélt að hann hefði verið rændur,
svo drukkinn, að hann gat engá
skynsamlega skýringu gefið á
kæru sinni.
★
Laust eftir klukkan 8 í gær-
kvöldi voru tveir menn á gangi
eftir Austurstræti. Alt í einu kom
bein úr sviðakjamma fljúgandi út
um glugga og lenti í haki annars
mannsins. Mennirnir kærðu þetta
beinakast til lögreglunnar. Kom í
Ijós, þegar farið var að athuga
málið, að menn, sem hafa skrif-
stofu í strætinú, voru að gáeða
sjeft á sviðum og höfðu kastað
heinunum út á götu.
★
Tveir menú voru teknir í gær
ölvaðir á almannafæri og settir
í varðhald. Annar kl. ll í gær-
morgun í Bankastræti, en hinn
síðar um daginn á Vesturgötúnni.
Á 9>. tímanuiú í gærkvöldi var
hringt á lögreglústöðina frá Skólá
vörðustíg og kvartað yfir því, að
drukkinn maður væri að ónáða
stúlkur. Fór lögreglan á vettvang,
en þá var maðurmn fárinn.
★
í gær var lögreglan heðín um
5 meðlagsúrskurði með óskilgetn-
úm börnuúú Er slíkt að víhu al-
gengt, en sjaldan koma svona
margar heiðnir nm þetta á einum
degi. ★
Reiðhjólaþjófnaðir eru stöðugir
viðburðir daglega hjer í bæ og
hin mesta plága. Oft nær lögregl-
an hinum stolnu reiðhjólum aftur
og síðast í gær var piltur tekinn |
fyrir reiðhjólaþjófnað.
„GUDMANNS MINDE“.
FRAMH. AF FJÓRÐU SÍÐU.
að sjúkrahúsið hefði öðlast fúllan
kröfurjett til styrksins um leið og
ályktun sýslunefndar var samþykt.
Hinsvegar leit Hæstirjettur svo á,
að það hefði verið veruleg for-
senda af hálfu sýslunefndar fyrir
styrkveitingnnni, að hún hefði
hlutdeild í stjórn- sjúkrahússins,
en á þessu hefði orðið breytiug á
árinu 1930 og því hæri að sýkna
sýslunefnd af kröfu sjúkrahússins,
en málskostnaður var látinn falla
niður.
Eggert Claessen hrm. flntti mál-
ið f. h. sýslunefndar Evjafjarð-
arsýslu og Pjetur Magnússon hrm.
f. h. sjúkrahússins.
MARTIN BARTELS.
FRAMH. AF FIMTU SÍÐU.
leita á náðir hans, eigi þeir úr
einhverjum vanda að ráða. Oft
koma landar hingað með tóma
vasana, og hefir Bartels þá oft
orðið að leysa vandræði þeirra,
eins og líka margra okkar, sem
hjer búum og stundum getur leg-
ið á hjálp.
Barteis er af góðu fólki kom-
inn, foreldrar hans höfðu í mörg
horn að líta, en aldrei þó fleiri.
en þáð, að altaf ieystu þau vand-
ræði þeirra, er að garði bar, eftir
hestú föngum, og eins er synin-
um faríð. Og hann er góður ís-
lendingur, í þess orðs fylsfeu merk-
ingu.
Hann er hjálparhella íslend-
inga hjer í bæ og hann er það
ekki síður þeim, sem að heiman
koma hingað. En íslendingafje-
lagið er þó óskabarn hans, og sem
illa getur án hans verið.
Höfn 23. september 1938.
Þorfinnur Kristjánsson.
Lítii húsgagnasmíða
vinnustofa óskast
til kaups,
Tilboð merkt „Húsgagna-
snSíðavinnustof a“ sendist til
afgreiðslimnar fyrir laugar-
dag.
Piltur efla stúika
á aldrinum 15—18 ára ósk-
ast til sendiferða o£ skrif-
stofuvinnu.
Eiffinhandar umsókn send-
ist í pósti fyrir 17. þ. m.
Jmerkt: „Box 807“.
„Brnirfosi“
fer í kvöld um Reyðarfjörð
til London.
Fer þaðan um Leith til
Reykjavíkur.
fer annað kvöld um Yestm.-
eyjar, til Leith ogr Stettin.
Kemur við í Gautaborg &
heimleið.
iiuAirniKSíxsiFsmi
Pjetar Magnússon.
Einar B. Gúðnmndsson.
Gnðlangnr Þorláksson.
Símar 3602, 3202, 2002.
Aústurstræti 7.
Skrifstofutími kl. 10—12 og 1—5.
EF LOFTUR GETUR ÞAÐ
EKKI----- ÞÁ HYER?