Morgunblaðið - 13.10.1938, Síða 7
Fimtudagur 13. okt. 1938.
MORGUNBLAÐÍÐ
7
Minningarorð um Krisíinu Sigurðardóttur
trá Geirmundarbæ á Akranesi
> * ' • f'.: ' Í i J
Pað er kunnara en frá þurfi j
að segja, að vjer sækjumst
eftir að skoða fagra staði. Yjer
ffiunnm þá lengi, og förum þang-
að svo oft sem við verður komið.
Þetta örfar útþrá vora, eykur víð-
sýnið, fegurðarsmekk vorn, og
göfgar oss. Þegar vjer einu sinni
höfum skoðað fagra staði, fljúg-
um við þangað oft í huganum.
Skoðum vandlega hvert fjall og
foss, hverja blómskrýdda brekku,
og jafnvel þannig berst þaðan tii
vor angandi unaðsilmur. Þannig
heillar fegurðin oss, svo að vjer
njótum lengi.
Þessu líkt er því farið, sjer-
.staklega ef vjer snemma á lífs-
leið vorri eignumst góðvin, sem
vjer njótum lengi, og engan
skugga ber á. Það er mikill og
markviss ávinningur að kynnast
góðum vini. Göfugri mannssál.
Það er sjaldgæft að finna svo
heilsteyptar, göfugar sálir, að
þær stöðugt vinni og vaxi við
náin kynni við vandalaust fólk.
Þó er þetta til. Og hún, sem jeg
mæli hjer eftir, var ein af þeim.
Hún var elskuleg sál í þess
orðs víðustu merkingu, sem vjer
menn leggjum í það orð. Jeg hefi
enga manneskju þekt svo jafn-
geðja sem hana. Síkát og spaug-
söm. Svo táhrein og soralaus í
prði og athöfn, að fágætt mun
vera. Falslaust og fagurt hjarta,
sem með gleði sinni og góðleik
vermdi hvem mann, sem hún
mætti. Þetta var henni engin upp-
gerð, enda ekki fokið út í veður
og vind þegár búið var að snúa
við henni bakinu. Það var svo
samgróið insta eðli hexmar, að
það var hluti af henni sjálfri. Og
þessvegna entist það henni með-
an hjartað bærðist. Og vegna þess
þótti öllum vænt um hana, sem
nokkur kynni höfðu af henni. Slík-
ar konur lifa ekki til einskis.
Þær eru hóglátar og hljedrægar,
en hljóta með hinum óvenjulegu
yfirburðum sínum að móta að
meira eða minna leyti þá, aem
oru þeim samvistum, eða hafa af
þeim náin kynni.
Af því, sem hjer hefir verið
sagt um geðslag Kristínar sál.,
dettur ef til vill mörgum í hug,
að þessi manneskja hafi ávalt
setið sólarmegin í lífinu, og þess
vegna sje þetta ekki fullgildur
mælikvarði. Lífið Ijek ekki altaf
við hana á þann hátt, sem vjer
mælum. Það mætir margt á langri
æfi. Sumu af því umþokar enginn
mánnlegur máttur, en um annað
þýðir ekki við menn að sakast,
þó hægt sje um að kenna. Kristín
þoldi miklar líkamlegar raunir.
Hún var meira en 16 síðustu ár
-æfinnar örkumla manneskja. Um
noklcurt skeið algerlega rúmföst.
En lengi fylgdi hún fötum, þó
hún kæmist ekki óstudd um þvert
herbergi. Hendur hennar voru svo
bæklaðar, að hún gat ekki tekið
í hendi manns, og ekkert unnið
sjer til afþreyingar. Þetta virðist
vera fullgild prófun um viðhorf
til lífsins vandamála. Þeim sem
lítt eða ekki þektu til, er það því
ráðgáta, hvernig svo næm og fín-
gerð kona gat þolað þessar löngu
þrautir án þess að. bugast og
breyta lífsviðhorfi vegna þeirra.
En það var svo einkennilegt, að
þrátt Lyrir þetta er eins og gleði
hennar og góðleikur og viðhorf
liennar til lífsins örðugu vanda-
mála hafi aldrei staðið styrkari
fótum í hennar sál nje verið henni
skiljanlegri en þá, er hún var
mest þjökuð. Þarna er listin að
lifa. Hún mælti aldrei æðruorð
út af veikindum sínum, og af tali
hennar öll þessi Jöngu ár var ekki
hægt að draga, þá ályktun, að
hún væri veik. Yar hún svo
heimsk, köld og kærulaus? Nei,
hún var fíngerð og kærleiksrík
svo að af bar. Slcildi vel og tók
eftir getu ríkan þátt í kjörum
þeirra, er bágt áttu. Henni var
eitt óskiljanlegra en alt annað:
kærleikur Guðs. Þangað var því
að leita að hinum góðu eiginleik-
um hennar, og styrks hennar í
hinum miklu veikindum.
Jeg mun lengi minnast þessarar
6 ára samveru, er hún dvaldi í
„Stínú kamersi“ á Litlateig. Það
var enginn salur þetta herbergi,
á því var ekki nema einn lítill
gluggi. En a. m. k. meðan „Stína“
dvaldi þar, var það nógu stórt,
hlýtt og bjart. Rökkurstundirnar
þar, og margar aðrar, þegar jeg
sat þar með tveimur „perlum“,
verða mjer ógleymanlegar og
mikill ávinningur.
Kristín sál. var fædd í Geir-
mundarbæ á Akranesi 18. okt.
1865. Eoreldrar hennar voru Sig-
urður Erlendsson og kona hans
Guðrún Guðmuudsdóttir, sem
lengi bjuggu þar. Kristín dó þar
og dvaldi þar allan aldur sinn,
að undanteknum 6 árum, er hún
dvaldi á Litlateig, frá 1912—1918.
Alsystir Kristínar var Ingibjörg
heitin kona Jóhanns Eyjólfssonar
frá Sveinatungu. -En hálfbróðir
hennar að móðurinni var Guð-
mundur Guðmundsson frá Deild.
Kristín giftist eftirlifandi
manni sínum Erlendi Tómassyni
frá Bjargi hinn 16. maí 1891.
Voru þau bræðrabörn. Þau eign-
uðust eina dóttur barna, Guð-
rúnu, sem nú býr í Geirmundarbæ.
Hún er gift Kristni Gíslasyni frá
Ármóti, eiga þau tvö börn, Elínu
Kristínu og Gísla Teit. Gerðu þau
öll það, sem í þeirra valdi stóð, til
þess að ljetta þennan sjúkdóms
kross.
Jarðarför Kristinar fór fram á
Akranesi 8. f. m. að viðstöddum
fjölda fólk*.
Blessuð sje minning mætrar
konu.
Ól. B. Bjömsson.
í „Politiken" birti Karl Höjer
í fyrradag langa grein um mögu-
leika þess að útvega dönskum
bændum landrými til búskapar á
íslandi. Telur hann að land sje
nóg fyrir hendi og mundi báðum
þjóðuin verða hagur að slíku. PÚ.
002 ®
0 2®
fKOIliALT
Dagbók.
I.O. O.F.5= 1201013872 — V.F.*
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
Allhvass A. Úrkomulaust að
mestu.
Veðrið í gær (miðv.d. kl. 5) :
Alldjúp lægð um 500 km. suður
af Reykjátiesi á hreyfingu NA-
eftir. Vindur er sumstaðar all-
hvass A á Suður- og SV-landi, en
hæg A-ált norðan lands. Dálítil
rigning á Norðvesturlandi, en
þurt í öðrum landshlutum. Hiti
2—4 st. nyrðra en 5—7 st. syðra.
Næturlæknir er í nótt Kristín
Ólafsdóttir, Ingólfsstræti 14. Sími
2161.
Næturvörður er í Ingólfs og
Laugavegs apóteki.
Lágafellskirkja. Messað verður
n.k. sunnudag 16. okt. kl. 12.45
(altarisganga). Síra Garðar Svav-
karsson messar.
Fimtíu ára er í dag frú Kristín
Pr. Guðmundsdóttir, Hverfisgötu
62.
68 ára verður í dag Jóhanna
Guðmundsdóttir, Traðarkotssundi
3.
Hjónaefni. Nýlega haía opin-
berað trúlofun sína ungfrú Hanna
Þorsteinsdóttir, Laufási í Vestm,-
eyjum og Guðlaugur Ólafsson,
Garðsstöðum, Vestm.
Hjónaband. S.l. laugardag voru
gefin saruan í hjónaband af síra
Bjarna Jónssyni, ungfrú Sigur-
veig Þóra Kristmanns og Jón
Þórðarson verslm. Heiinili ungu
hjónanna er á Smiðjustíg 11.
Gifting. Gefin hafa\ verið sam-
an í hjónaband í Vestmannaeyjum
Helga Jónsdóttir, Garðsstöðum ag
Eðvald Valdórsson.
Hjónaband. í Vestmannaeyjúm
hafa verið gefin saman í hjóna-
band Þórhildur Sigurðardóttir og
Kjartan Guðmundsson frá Rvík.
Hjúskapur. Gefin Piafa verið
saman í hjónaband’ í Veátmanna-
eyjum Mágnea Þórarinsdóttir úr
Reykjavík og Haraldúr Gíslason,
Skálholti, Vestm.eyjum.
Hjónaband. S.l. laugardag voru
gefin saman í hjónaband af síra
Friðrik HallgrímsSyni ungfrú
Lilja Sigurðardóttir og Eiríkur
Þorsteinsson trjesmiður. Heimili
briiðhjónanna er á Hverfisgötu
104 A.
„Bræðrakvöld'*. Plókksbræðum-
ir sjá um úndírbuning og efnis-
skrá 11 pp.tkoHi 1 i á t íðar inna r í
Hjálpræðishernum í kvöld. Majór
Ernst Gregei'sen stjórnar. Sjer-
stök strengjasveit og lúðraflokk-
ur spilar. Þar verður líka númera-
borð með góðum munum og veit-
ingar.
Sjómannasto^an er flutt á Vest-
urgötu 12. Hiin er opin daglega
rfá kl. 9 f- h. til 10 e. h.
Spegiriivn kemur út á morgun.
ÚtvarpiS:
20.15 Erindi: Meira prjónles!
(frú Laúfey Vilhjálmsdóttir).
20.35 Einleikur á fiðlu (Þórarinn
Guðmundsson).
Gullbruðkaup eiga i dag Sigurbj örg Jónsdóttir og Guðm. Jónsson
til heimilis að Urriða koti í Garðahreppi.
Lá við slysi. í gærmorgun kl.
8i/a var bíl ekið inn Laugaveg og
er hann kom á móts við húsið nr.
159 sá bílstjórinn tvær smátelp-
ur á veginum fyrir framan bíl-
inn. Hægði hann ferðina og ætl-
aði að aka framhjá telpunum, en
önnur þeirra lenti á bílnum og
fjell við á götuna. Hana sakaði
þó ekki neitt að ráði.
50 ára afmæli átti í gær frú
Helga Bachmann, Preyjugötu 15.
Samsæti fyrir Guðm. Ólafsson
er ákveðið að halda í Oddfellovr-
húsinu n.k. sunnudag kl. 6 e. h.
í tilefni af 20 ára afmæli hans sem
knattspyrnuþjálfara. Þátttökulisti
liggur frámmi hjá versl. Ilar.
Árnasonar, og eru væntanlegir
þátttakendur í samsætinu beðnir
að rita sig á listann sem fyrst.
Ríkisskip. Súðin fór frá Blöndu-
óti kl. 3y<z í gær áleiðis til Hvammg
tanga. Esja er í Reykjavík.
Hessian, 50” og 72”
Ullarballar, Kiötpokar,
Binðigarn og saumgarn
ávalt fyrirliggjandi.
tíLAFUR CÍSLASON'r) /
Sími 1370. é-XjoJ/yf
REYKJAVÍK -
Kaupirðu góðan hhit, þá mundu hvar þú f jekst hann.
Föt af fínustu
gerð og tegund
fá menn best
í ÁLAFOSS. —
FRAKKAR
TIL
VETRARINS
BESTIR.
Verslið við ALAFOSS, Þingtioltsstræti 2,
Ðvsgingarefni.
Þeir, sem vantar byggingarefni, taki nú eftir:
Sænsk furutrje 900 fet 4x3% þuml.
1400 fet 4%x4y2 þuml.
1200 fet 4y>x5 þuml.
ennfremur 3 trje 19 feta 10x10 þuml.
vil jeg selja nú strax. Athugið að vjelsaga má stærðirnar
í smærri stærðir.
Sigbfdra Irmann.
Símar 3244 og 2400.
Til Þingvalla
21.00 Frá ptlöndngi. . /í/
21.15 Uyarilsbljófðiiveiíin ,,?lerluir.
21.40 TFTi-jómrdötui’: Andl’ég i.ónlist
22.00 Dagskráríok. I ' ..........
alla mlðvikudaga og sunnudag'a
§leindór.