Morgunblaðið - 13.10.1938, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 13. okt. 1938..
Isambandi við Hæstarjettardóm, Fyrstu árin eftir heimsstyrjöld-
sem skýrt er frá í blaðinu í ina bjuggu að jafnaði um 3000
dag um sjúkrahúsið á Altureyri Danir í París. Síðustu árin hefir
er fróðlegt að rifja upp tildrög Dönum farið mjög fækkandi í
þess er Fr. Gudmann gaf sjúkra- París vegna þess hve erfitt er
húsið. Um þetta segir svo í fund- fyrir útlendinga að fá dvalarleyfi
argerð bæjarstjórnar Akureýrar í Frakklandi. Nú eru um 1000
6. inaí 1872: Danir búsettir í París.
„011 bæjarstjórnin var mætt á
fundinum. Tom Mix, hinn frægi ameríski
Tilefni fundarins var þetta: kvikmyndakúreki byrjaði að leika
Að verslunarfulltrúi B. Steincke í kvikmyndum 1908. Hann er nú
bafði tilkynt bæjarstjórninni að 58 ára gamall og er álitinn vera
kaupmaður Fr. Gudmann hefði í einn af hraustustu íbúum Ilolly-
hyggju að gefa Akureyrarkaup- woodborgar og sá maður, sem þar
stað 5000 ríkisdali annaðhvort til lifir heilbrigðustu líferni
sjúkrahúss eða „fri Bolig for
trængende Borgere“, og að hann, Fyrir 50 árum voru reist 50 raf-
til annarshvers þessa augnamiðs magnsljósker á Unter den Linden
væri búinn að kaupa hús læknis í Berlín. Þetta var byrjunin á raf-
J. Finsens hjer í bænum, og að lýsingu borgarinnar. Nú eru götur
haun hvað þetta snertir, óskaði borgarinnar lýstar upp með 120,-
álits bæjarstjórnarinnar um það 000 rafljóskerum.
hvor af þessum tveim stofnunum
værri nauðsynlegri fyrir bæinn. ' Bóndi einn, sem býr í bænum
Kom þá bæjarstjórninni saman um Kamenjani, er orðinn 120 ára
að tjeðri 5000 rd. gjöf yrði varið ga.mall, en er samt enn við góða
til sjúkrahúss einkanlega, þó lieilsu.Nýlega tók gamli maður-
skyldi, að svo miklu leyti, sem inn tennur í þriðja sinn á æfinni.
rúmið í húsinu kynni að leyfa, j
méga nota það fyrir „fri Bolig1 Framleiðsla bíla fer minkandi
for trængende Borgere“, og kvað í Ameríku. Samkvæmt síðustu
vejcslunarfulltrúi B. Steincke, sem hagskýrslum voru á s.l. ári fram-
vaj mættur á fundinum, að þetta leiddar 2 miljónir bíla á móti 3.6
síðarnefnda væri ekki á móti til- milónum næsta ár á undan.
gangi gjafarans, að svo miklu -^-
leyti sem það gæti samrýmst. Til MÁLSHÁTTUK:
þess að segja um fyrirkomulag á Lötum manni eru allir dagar
stdfnun þessari voru valdir í jafnhelgir.
nefnd læknir Þórður Tómasson, .
Jón Stefánsson og Frib. Steins-;
son“.
Jáwjis£afuig
Káputau frá 10.50 mtr. Versl.
Dyngja.
Taftsilki eru komin í slifsi og
gvuntur. Mikið, nýtt úrval af
svuntuefnum og slifsum. Versl.
Dyngja.
Ullartau, belti, Georgetteklút-
ar, kápufóður, millifatastrigi,
vatt, káputölur og spennur. —
Saumastofa Ólínu og Bjargar,
Ingólfsstræti 5.
Munið ódýra wlunginn, góða,
daglega nýr. Fiskbúðin, Frakka
stíg 13. Sími 2651.
Satin í peysuföt, 4 teg. Til-
legg til peysufata. Herrasilki
í upphluta, 2 teg. Tillegg til
upphluta. Peysubrjóst. Skott-
húfur. Skúfsilki. Versl. Dyngja.
Kaupum flöskur, flestar teg.
Soyuglös, whiskypela, meðala-
glös, dropaglös og bóndósir. —
Versl. Grettisgötu 45 (Grettir).
Sækjum heim. Sími 3562.
Eftirlitsmenn kvikmyndaleikhús
anna í Danmörku hafa nýlega gef-
iS skýrslur um starfsemi sína síð-
asta ár. Samkvæmt skýrslum þess-
um voru síðasta ár sýndar kvik-
myndir, sem samtals voru 2000
km. á lengd.
€sz&l
Forstofuherbergi, með þæg-
indum óskast til leigu nú þeg-
ar. Þarf ekki að vera stórt.
Tilboð merkt „Góður staður",
leggist inn á afgreiðslu blaðs-
ins fyrir annað kvöld.
Silkinærföt 9.80 settið. Silki-
undirföt frá 5.30 settið. Stakar
silkibuxur frá 2,75.Silkibolir frá
2,35, undirkjólar á 6.75. Silki-
nærföt á litlar telpur 3.00 kjóll,
1.50 buxur. Versl. Dyngja.
MUNIÐ BREKKA.
Bestar vörur. Lægsta verðið.
Ásvallagötu 1. Sími 1678,
Bergstaðastræti 33. Sími 2118
og Njálsgötu 40.
Góðar dömubuxur og barna-
buxur nýkomnár. Telpubolir.
Versl. Dyngja.
Kaupum flöskur, flestar teg-
undir, soyuglös, dropaglös með
skrúfuðu loki, whiskypela og
bóndósir. Sækjum heim. Versl.
Hafnarstræti 23 (áður B. S. í.)
Sími 5333.
K.F.U.M. og K. í Hafnarfirði.
Þeir, sem vilja hjálpa til við að
selja happdrættismiða fjelag-
a,nna, geri svo vel að koma í
hús K.F.U.M. og K. kl. 7 y2—
8^4 á hverju kvöldi. Á sama
tíma er tekið á móti gjöfum til
markaðs og hlutaveltu fjelag-
anna. Einnig má tilkynna slíkt
í síma 9095 og verður það þá
sótt.
Rennilásar frá 8 cm. til 75
cm. Hnappar og tölur í fallegu
ódýru úrvali. Versl. Dyngja.
Fallegir tvistar 1 svuntur og
morgunkjóla. Rósuð silkiljereft.
Versl. Dyngja.
Fermingarkjóll (satin) til,.
sölu. Upplýsingar á Laugarnes
veg 53.
&u&ynititujuc
Brauðsölubúð verður opnuð í
dag á Baldursgötu 39 (útsala
jfrá Bakaríinu í Þingholtsstræti
23).
Friggbónið fína, er bæjarins
besta bón.
Ódýr tungumálakensla. ís-
lenska, enska, danska. Á sama.
stað einnig lesið með skóla-
börnum. Uppl. í síma 4129 frá
kl. 6—7 e. h.
Esperantokensla. — Uppl. L
síma 4129, kl. 6—7.
Gullfallegan veturgamlan
hrút get jeg selt. Eggert á
Hólmi.
Ódýrir frakkar fyrirliggj-
andi. Guðmundur Guðmundsson
dömuklæðskeri. Kirkjuhvoll.
Hjálpræðisherinn. í dag kl.
8 Yz Uppskeruhátíð. „Bræðra-
kvöld“.Majór Gregersen stjórn-
ar og flokksbræðurnir. Núm-
?raboð. Veitingar. Aðgangur
35 aur. Velkomin!
Filadelfía, Hverfisgötu 44.
Samkoma á fimtudagskvöld kl.
814. Kristín Sæmunds og Eric
Dömúhattar, nýjasta tíska. Ericsoín, ásamt fleirum. Allir
Kenni Kontrakt-Bridge. ----
Kristín Norðmann, Mímisveg 2.
Sími 4645.
Hafnarfjörður:
Tek að mjer tímakenslu. ---
Sigurður Pálsson, Brekkugötu 9,.
Hafnarfirði.
Góð stúlka, vön húsverkum
ósl ast nú þegar. Þrent í heim-
ili. Bræðraborgarstíg 47. Við-
talstími 6—8 síðd.
Einnig hattabreytingar og við-
gerðir. Hattastofa Svönu og
Lárettu Hagan, Austurstræti 3.
Sími 3890.
Kopar keyptur í Landssmiðj-
unni.
Til sölu vandaðir portérar,
portérastöng, pottar, kaffi-
kvörn o. fl. Þórsgötu 2.
velkomnir!
Fótaaðgerðir. Tek burt lík-
þorn og harða húð, laga inn-
grónar neglur. Nudd og raf-
magn við þreyttum fótum. Sig-
urbjörg Magnúsd. Hansen,
Kirkjustr. 8 B. Sími 1613.
Gott fæði fæst í Bankastrætii
12. Vistlegt og rólegt heimili..
Muið símanúmerið 3506. —
Fiskbúðin Leifsgötu 32.
Ja/viS-fuAuliÁ
Or og silfurnæla hafa tap-
ast í Miðbænum. Skilist á Skóla
vörðustíg 11 A.
MARGARET PEDLER:
DANSMÆRIN WIELITZSKA 64.
þjer“, bætti hún við og brosti ástúðlega til hennar, „að
þú stenst allar kröfur um fegurð. Þú ert aðeins ofur-
lítið þreytuleg og veikluleg“.
„En það er ekki aðeins það“, sagði Magda. „Það er
ýmislegt annað. Þegar jeg fór, hjelt jeg, að mjer yrðu
allar leiðir færar, er jeg kæmi aftur. En nú finst mjer
allar bjargir hannaðar. Jeg hjelt, að jeg hefði svo
mikið að gefa Miehael, en jeg hefi alls ekkert! Áður
fyr skildi jeg það ekki, að maður getur í raun og veru
aldrei hætt fyrir það illa, sem maður hefir gert. En í
klaustrinu hafði jeg tíma, til þess að hugsa betur um
það, og nú skil jeg það“.
„Og, ef þú ferð aftur í klaustrið verður þú að hugsa
um það, það sem eftir er æfinnar“.
„Nei, nei“, greip Magda fram í fyrir henni. „Jeg fer
ekki aftur í klaustrið sem iðrandi systir. í klaustrinu
ei-u nunnur, sem fara út á meðal sjúkra og fátækra í
fátækrahverfunum. Jeg ætla að vera ein þeirra“.
Gillian starði höggdofa á hana. Magda ætlaði að
fórna sjer og helga sig hjálparstarfsemi! Það var of-
vaxið hennar skilningi. Og eins og svo oft áður, leitaði
hún í vandræðum sínum til lafði Arabellu.
„Bara, að Michael væri kominn!“, sagði lafði Ara-
bella gremjulega. „Jeg verð að játa það, að hann hefir
valdið mjer vonbrigða. Jeg þóttist viss um, að liann
myndi koma til sjálfs sín, áður en hálft ár væri liðið“.
„Þetta er algerlega vonlaust“, sagði Gillian sorg-
majdd á svip.
í%mtal lafði Arabellu við Mögdu bar engan árangur.
„Iiefir þú skrifað Michaelf‘, spurði hún.
„Skrifað honum!“, sagði Magda og gamli þráinn
kom fram í svip hennar. „Það dytti mjer aldrei í hug
að gera“.
„Vertu ekki svoua barnaleg, Magda“, sagði gamla
konan. „Hann hefir án efa lært mikið síðustu mánuð-
ina, engu síður en ]>ú. Láttu ekki heimskulegt stolt
spilla hamingju ykkar beggja“.
„Það er ekki stolt, Marraine“, sagði Magda hæglát-
lega. „Mjer datt aldjei í hug — líttu á mig. Sjáðu,
hvernig jeg er orðin!“, hrópaði hún í geðshræringu.
„Ilvað hefi jeg að gefa Michael? Ilann er listamaður,
og fegurð er honum fyrir öllu“.
Lafði Arabella tók hinar þreyttu og vinnulúnu hend-
ur hennar.
„Jeg skil þig kannske betur en þig grunar“, sagði
hún blíðlega. „En þjer er óhætt að trúa mjer: Þú
hefir ekki mist anuað en hægt er að bæta upp með
nokkurra mánaða hvíhl og umönnun. Og hvað sem því
líður, þá veit jeg það, að Michael myndi ekki hirða
hót um það, hvernig þú lítur út. Hann er að vísu lista-
maður, en hann er fýrst og fremst karlmaður, sem
elskar þig---------Lofaðu mjer því, Magda“„ hjelt
hún áfram í bænarróm, „að taka enga endanlega á-
kvörðun fyrst um sinn. Að minsta kosti ekki, fyr en
þú hefir talað við mig aftur“.
Magda hikaði.
„Jæja“, sagði hún síðan. „Jeg lofa því“.
Og við þær málalyktir varð guðmóðir hennar að
sætta sig.
Sama dag sendi lafði Arabella svohljóðandi brjef
til Parísarborgar:
„Ef yður er ekki umhugað um að eyðileggja lífsliam-
ingju ykkar Mögdu, kæri Michael, verðið þjer að
stinga stolti yðar og barnalegum hugsunarhætti undir
stól, og hraða yður til London. Jeg á ekki því láni að
fagna að vera amma. Bhi jeg er gömul kona og vænti
þess, að þjer sýnið ráði mínu þá virðingu að fylgja
því“.
„Jeg var farinn að halda, að þjer væruð alveg búin
að snúa við mjer bakinu“, sagði Dan Storran, er þau
Gillian og hann hittust nokkrum dögum síðar, til þess
að snæða saman morgunverð. Þetta var í fyrsta sinm
sem. þau hittust, eftir að Magda kom heim.
„Nei, en þjer liafið skilið, að jeg ætti annríkt fyrst
eftir að Magda kom heimf1, svaraði hún.
„Er nokkuð að?“, spurði hann alt í einu. „Mjer
virðist þjer vera venju fremur áhyggjufull“.
Hún kinkaði kolli þegjandi.
„Og þjer látið mig sitja hjer og tala um mín eigin
málefni, meðan eitthvað amar stórkostlega að yður!
IJversvegna stöðvuðuð þjer mig ekkif ‘
„Þjer vitið, að jeg læt mig miklu skifta málefni
yðar“, sagði hún brosandi.
„Sama segi jeg um yðar málefni. Segið mjer, hvað
amar að yður, Gillian?“
„Það er Magda“, var það eina, sem hún sagði.
„Jeg sá hana um daginn í lystigarðinum. Hún ólc
framhjá mjer“.
Gillian fann, að hann ætlaði að segja meira og þagði.
„Hún liefir breyst mikið“, hjelt hann áfram. „Mig
tók sárt, að sjá hana“.
„Tók yður sárt að sjá hana?“, sagði Gillian, og and-
lit hennar ljómaði. „Það gleður mig að heyra. Mjer-
fjell altaf illa að vita, að þjer hötuðuð hana“.