Morgunblaðið - 22.11.1938, Side 3
Þriðjudagur 22. nóv. 1938
MORGUNBLAÐIÐ
3
Kirkjugarðurino
við Suðurgötu
100 ðra
KLUKKAN 1 e. h. á morgun
fer fram minningarathöfn
í líkhúsinu í kirkjugarðinum við
Suðurgötu í tilefni af því, að
garðurinn er þá 100 ára. Síra
Helgi Thordarson vígði garðinn
23. nóvember árið 1838.
Síra Bjarni Jónsson flytur
minning-arræðu og sálmar verða
sungnir á undan og á eftir. All-
mikil viðgerð hefir farið fram
á líkhúsinu undanfarið.
Ef mannmargt verður við at-
höfina verða ráðstafanir gerðar
til þess að þeir, sem ekki kom-
ast inn í líkhúsið geti heyrt það
sem fram fer. Hefir komið til
mála að síra Bjarni flytti ræðu
sína í dyrum líkhússins, svo að
þeir geti heyrt jafnt sem inni
eru og úti. Fer þetta nokkuð
eftir veðri.
Umferðin og
lögreglan
Samial við Erling
Pálsson yflrlög-
regluþjón
Lögreglan vinnur stöðugt að!
því að gera umferðina hjer
í bænum og á þjóðvegunum ör-
uggari. Eftir því sem bærinn
stækkar og umferðin eykst
verður þörfin fyrir aukið eftir-
lit meiri.
Jeg átti tal um þessi mál við
Erling Pálsson yfirlögregluþjón
í gær, og spurði hann hvernig
það hefði gefist að hafa sjer-
stakan bíl við eftirlitsstarf, eins
og gert hefir verið undanfarna
daga.
— Þetta er í sjálfu sjer ekk-
ert nýmæli, segir Erlingur, að
hafa bíl við eftirlitsstarf. Við
höfum altaf öðru hvoru undan-
farin ár haldið uppi þessháttar
eftirlitsstarfi. Bíiakostu? lög-
reglunnar, sem má heita góður,
leyfir samt ekki að hafður sje
sjerstakur bíll við þennan s'.arfa
og vantar okkur tilfinnanlega
bíl til eftirlitsstarfsins.
Eins og getið hefir verið um
í blöðunum fekk lögreglan
leigðan bíl og bílstjóra frá rík-
inu til þess að hafa eftirlit með
umferðinni. Var Björn Bl. Jóns-
son löggæslumaður fenginn í
þann starfa.
Til fróðleiks mætti geta þess,
segir Erlingur, hve marga við á-
mintum fyrsta daginn, sem við vor
um í þessari eftirlitsferð. Enginn
var að vísu kærður, en jeg skrif-
aði hjá mjer alt, sem fyrir kom
og hvers eðlis: Ljóslausir bílar eða
með ólögleg ljós voru 6, seiu við
ámintumi Keðjulausir 3. Reiðhjól
ljóstaus 5. Þá aðgættum við líka
sleðaferðir barna. Búið er að girða
FRAMH. Á SJÖTTU 8ÍÐU
í c\ a <1 J
Starfsvið verðlag§nefndar:
Vef naðarvörur,
byggi ngaref n i
og búsáhöld
Innlendar saumastofur
VERÐLAGSNEFNDIN er nú að taka til starfa
af fullum krafti, og birtist hjer í blaðinu í dag
tilkynning frá nefndinni um það, hvaða vörur
og vöruflokkar starfssvið nefndarinnar nær til, en það er
ríkisstjórnin sem þetta ákveður.
Samkvæmt þessari tilkynningu nær starfssvið nefndarinnar til
eftirtaldra þriggja vöruflokka: Vefnaðarvöru, byggingarefnis og
búsáhalda.
Ennfremur er í tilkynningu
nefndarinnar „lagt fyrir allar
saumastofur, þar með taldar
kjóla- og kápusaumastofur, klæð-
skerasaumastofur, skju’tugerðir,
húfu- og hattagerðir, hálsbinda-
gerðir, vinnufatagerðir og hvers-
konar aðrar fatagerðir, er sauma
og selja til verslana eða beint til
neytenda, að gera verðlagsnefnd
grein fyrir hvaða reglum nefndar
stofnanir nú fylgja um verslunar
álagningu á framleiðslu sína“.
Starfssvið verðlagsnefndaf nær
yfir alt landið. Skýrslur um á-
lagningu og verðlag skulu koínnar
til nefndarinnar fyrir 6. des. úr
Reykjavík og nágrermi, 'en fyrir
22. des. annarsstaðar af landinu.
Er því lagt fyrir alla þá, sem
versla með framangreindár vörur
í umboðssölu, heilðsölu' eða- smá-
sölu, að gera verðlagáneínd grein
fyrir „hvaða reglum þeir nú
fylgja um verslunarálagniogá; |á|
vörur þessar“, eins og segir í til-;
kynningu nefnaarinnar.
Mikil þátttaka
í skíðaferðum
utn helgina
Skíðafólk fór allmargt úr bæn-
um um helgina, en veður var
óhagstætt og skíðafæri ekki gott,
vegna þess að snjóinn hefir skaf-
ið. Var talið að 500—600 manns
hefðu farið á skíði.
Með Skíðafjelagi Reykjavíkur
fóru um. 100 manns á sunnudags-
morguninn og fór í Instadal og
í Flengingarhrekku. Á þessnm
slóðum var einnig hópur skíða-
fólks úr Hafnarfirði, Mentaskól-
anum og margt í einkabílum.
I. R.-ingar fóru að Kolviðar-
hóli, um 80 í hóp. Flestir þeirra
gengu í Instadal, en aðrir voru
að vinna við stökkbrautina nýju.
K. R.-ingar fóru rúmlega 40 á
laugardag og gistu uni nóttina í
skálanum í Skálafelli. Álíka stór
hópur kom þangað á sunnudag.
Skíðafæri var ekki gott og snjó-
koma meiri hluta dags.
Rúmlega 20 Áfmenningar gistu
í skála sínum í Jósefsdal á sunnu
dagsnótt og um 70 komu þangað
á sunnudag. Lítill skíðasnjór er
ennþá í dalnum, en sæmilegt uppi
í Bláfjöllum. Gengu margir þang-
1 að.
Lottur Bjarnason
útgerðarmaður
sýknaður
Dómur var upp kveðinn
í Hæstarjetti í tfær í
málinu valdstjórnin gegn
Lofti Bjarnasyni , út^erðar-
manni í Hafnarfirði, sem
kærður var fyrir að hafa
gefið toffurum ui);olýsingar
um ferðir varðskipanna, en
sýknaður bæði í undirrjetti
og Hæstarjetti.
TVálavextir eru þessir:
Loftur Bjamason hefir um nokk
urfa ára skeið haft með höndum
fra^ikvæm.dastjórp togaranna
Júpíter úg Venus, sem gerðir eru
út frá Hafnarfirði. Þegar togara-
njósnamálin svonéfndu komust á
skrið hjer á áruojum var Loftur
meðal þeirra, stjaii ákærður var.
Tilefui þess, að Jiaun var ákærður,
var það, að- loftskeytamaðurinn á
b.v. Venus, Daníel Kristján Odds-
son, har það undir rannsókn máls-
ins, að Loftur hefði að staðaldri
sent togaranum dulskeyti með upp
lýsingar um ferðir varðskipanna.
En önnur vitni voru ekki til frá-
sagna, um þetta, og bæði skip-
stjórinn á Venusi og skipsfjóri og
loftskeytamaður á Jiipiter neituðu
að hafa fengið slík skeyti frá
Lofti. I fórum Landssímans var
fjöldi dulskeyta frá Lofti til tog-
aranna, en þau var ekki hægt að
þýða, þar eð búið var að eyði-
leggja lyklana.
Loftur neitaði jafnan mjög á-
kveðið við rannsókn málsins, að
hann hefði sent skipunum upp-
lýsingar um ferðir varðskjpaima.
Það þótti því vanta sannanir
fyrir því, að ákærði, Loftur Bjarna
son, hafi gefið togurunum upp-
flýsingar ijin varðskipin og var
hann því sýknaður í undirrjetti.
Hæstirjettur staðfesti að öllu
leyti dpm undirrjettar, og ákvað
að sakarkostnaður skyldi greidd-
ur úr ríkissjóði.
Sækjandi málsins var Theodór
Líndal hrm. og verjandi Stefán
Jóh. Stefánsson hrm.
--------------&
Sújðin var á Bíldudal í gær-
kvöldi.
Matad Noregs-
drotning Ijest
i svefni
Þjóðariorg í Noregi
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
AUD NOREGSDROTNING andaðist í Lon-
don um miðnættið síðastliðinn laugar-
dag. —
Hún var skorin upp við alvarlegum magasjúkdóm síðastlið-
inn miðvikudag. Læknisaðgerðin gekk vel og næstu daga var
hún talin á batavegi. En dauðan bar að með þeim hætti, að
hjartað bilaði. Hún var þá í svefni. ' U
Enginn var viðstaddur andlát hennar nema hjúkrunarkona.
Hákon konungur hefir verið í London síðan á fimtudag.
Brá hann strax við, er hann frjetti um veikindi drotningar og
hraðaði sjer til London. Þegar hann var á leið yfir Ermarsund
lá Maud drotning á skurðarborði.
Maud drotning.
StórhríQ Norðanlands
um heigina
Siglufirði mánudagskvöld.
jer hefir verið látlaus fann-
koma síðan á laugardag, og
komin mikil fönn. Brim hefir ver-
ið hjer mikið, enda þótt veðurhæð
hafi verið tiltölulega lítil, og hefir
flytt talsvert upp í hæinn, það
mikið, að fólk flúði á sunnudags-
morgun úr tveim htisum, sem
standa nyrst á kaupstaðareyrinni.
Hefir vatn hlaupið í kjallara á
allmörgum húsum.
Um verulegt tjón á mannvirkj-
um hefir ekki frjest.
Hjer var auð jörð í sveitum er
laugardagshríðin skall á, og fje
víða úti. Hefir verið erfitt um
smalamensku og mun talsvert af
fje vera úti á mörgum hæjum,
hvernig svo sem því reiðir af.
„Nordiske samling“ heitir nýtt
mánaðarrit, sem hefir norræna
samvinnu mentamanna að mark-
rniði. Gert er ráð fyrir þátttöku
mentamanna í öllum Norðurlönd-
unurn fimrn, en aðalritstjórn verð-
ur í Stokkhólmi. Sven Jansson
lektor, meðlimur ritstjórnarnefnd
arinnar, skrifar í fyrsta heftið,
sem er nýútkomið, um norrænar
tungur. KFB)
Á VIÐHAFNAR-
BÖRUM
Khöfn í gær. FÚ.
Lík Maud drotningar hefir nú
verið flutt til kapellunnar í
Marlborughhouse, en í Marl-
borughhousé var hún fædd. —
Hefir það verið lagt á viðhafn-
ar börur í kapellunni og mun
norskum þegnum og öðrum er
þess kunna að óska, gefinn
kostur á að koma þangað í
kveðju skyni við hina látnu
drotningu.
Á miðvikudaginn verður lík-
ið flutt með aukalest til Ports-
mouth og verður þaðan flutt
með breska herskipinu Royp.1
Oake til Noregs og jarðað þar.
Með herskipinu fara þeir einn-,
ig Hákon konungur, Ólafur rík-
iserfingi og sennilega hertog-
inn af Kent sem verður opinber
fulltrúi Bretakonungs við jarð-
arförina.
Talið er að drotningin muni
fyrst um sinn verða jörðuð við
höllina í Akerhus. En síðar er
búist við að lík hennar verði
flutt í dómkirkjuna í Niðarósi.
í þeirri kirkju voru í fornöld
jarðaðir margir af konungum
Noregs og drotningum.
ÞJÓÐARSORG
Þegar tíðindin um lát drotn-
ingar spurðust til Noregs hjelt
Ólafur ríkiserfingi undir eins
ríkisráðsfund og fól Nygaards-
vold forsætisráðherra ríkis-
stjórn. Sjálfur lagði hann af
stað til London í gærkvöldi.
Norsk blöð komu út í gær í
aukaútgáfum með minningar-
greinum og myndum af Maud
drotningu. Þjóðarsorg ríkir í
Noregi og við hirðina hefir ver-
ið skipuð sex mánaða sorg. Er
þetta í fyrsta skiftið í sex
hundruð ár, sem Norðmenn
syrgja lát manns eða konu úr
eigin konungsfjölskyldu.
★ » ■ i!
Maud var fyrsta drotning Norö-
manna frá þvi á ofanveröri 14. öld. Þá
rjeð ríkjum í Noregi Hákon VI. Magn-
úsarson, sem kvæntur var Margrjeti,
dóttur Valdemars Atterdag. Eftir hans
dag sameinuðust Danmörk, Norgur og
Svíþjóð í eitt ríki undir stjórn Mar-
grjetar ðrotningar. Svíar brutust úr
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.