Morgunblaðið - 29.11.1938, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 29.11.1938, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 29. nóv. 1958. VERKFALL í FRAKKLANDI Á MORGUN Úrslita átök milli hægri og vinstri flokkanna Hvorugur ætlar að gefa sig Með allsherjarverkfallinu í FRAKKLANDI Á MORGUN — MIÐ- VIKUDAG — KEMUR TIL GEIGVÆN- LEGRA ÁTAKA MILLI HÆGRI OG VINSTRI AFL- ANNA í LANDINU (SÍMAR FRJETTARITARI VOR í KHÖFN). Alt hið borgaralega Frakkland — þ. á. m. fyrverandi andstæðingar Daladiers úr hægri flokkunum — hefir sam- einast gegn hinni byltingarkendu verkfallsöldu kommún- ista, sem fengið hefir stuðning frá sósíalistum. Franska stóðblaðið „Le Temps“ segir að forustan í verkföllunum sje í höndum flugumanna frá Moskva. ÁTÖKIN UM JÁRNBRAUTIRNAR Hvort verkfallið nær tilgangi sínum veltur á því hvað járnbrautarverkamennirnir gera. Daladier hefir lýst yfir því, að hann sje staðráðinn í því að láta ekki stöðva járn- brautarsamgöngur, eða póst- og símastörf. Hann gaf í gærkvöldi út tilskipun þar sem starfsmenn járnbrautanna eru kvaddir í herþjónustu. Ef þeir leggja niður vinnu á morgun hafa þeir gerst brotlegir við herlögin og verða dæmdir af herrjetti. Ef Daladier tekst að láta járnbrautirnar ganga, er talið að með því sje verkfallið brotið á bak aftur og að hann muni þá fá einræðisvald um skeið. Daladier hefir af andstæðingum sínum verið sagður eiga sök á því, hvernig komið er og að markmið hans sje að reyna afl við verklýðsfjelagasambandið. — ÞÁ VERÐUR DALADIER AÐ SEGJA AF SJER En ef jórnbrautirnar stöðvast, er álitið að Daladier og stjórn hans verði að segja af sjer. Sósíalistar og kommúnistar hafa krafist þess, að Leon Blum verði falið að mynda stjórn. Meðal járnbrautarverkamannanna eru skoðanir skiftar. Sumir vilja gera verkfall, þrátt fyrir hótunina um herrjett, en aðrir vilja aftur á móti hlýða herþjónustuboðinu. Ráðherra op- inberra verka flutti útvarpsræðu á sunnudaginn, þar sem hann hvatti verkamennina til þess að leggja ekki niður vinnu og bjarga með því frönsku þjóðinni. PÓLITÍSKT VERKFALL Daladier flutti sjálfur útvarpsræðu á sunnudaginn. Hann sagði að allsherjarverkfallið væri uppreisn, sem franska stjórn- in myndi ekki þola. Það væri þingsins að gera út um örlög Reynaud-tilskipananna um fjármál og viðskiftamál. Hann sagði, að það væri yfirdrepsskapur einn að segja að verkföllunum væri fyrst og fremst stefnt gegn þessum tilskipunum, heldur væri þeim stefnt gegn utanríkismálastefnu stjórnarinnar. Hann benti á, að allsherjarverkfallið hafi verið boðað, þegar fregnin barst út um vináttusamning Frakka og Þjóðverja. Hann sagði, að ekkert í efnalegri eða fjelagsmálalegri af- komu verkamannanna rjettlætti það, að hefja verkfall. Mark- miðið með verkfallinu væri að neyða löglega stjórn til þess að láta að vilja fámennrar klíku. Ef verkfallið skellur á, sagði Daladier, mun koma til átaka milli lýðræðis og einræðis. Sjálfur neitaði Daladier því, að hann Ný viðhorf i Evrópu Chamberlain og Halifax fara til Rómaborgar FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. Daladier, hinn sterki maður Frakka. „Síðosta bsn“ von Mackensens (88 ðra) heishöfðingja Hitler beðinn að náða Niemuller Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. Von Mackensen, hershöfð- ingi er sagður hafa far- ið þess á leit við Hitler, að hann láti Niemöller, klerkinn, laus- ann. Von Mackensen er nú orð- inn 88 ára gamall og er sagður hafa sett fram þessa ósk sem síðustu bón sína. Margir nafntogaðir yfirfor- ingjar úr þýska hernum frá keisaratímunum hafa undir- skrifað bænarskjalið með von Mackensen. Segir í því, að Hitl- er muni vinna gott verk, sem allir Lútherstrúarmenn muni verða honum þakklátir fyrir, ef hann verði við þessari ósk. Niemöller hefir nú setið í fangelsi á annað ár, sakaður um mótþróa við þýska ríkið. Mál hans kom fyrir rjett og var hann sýknaður. Samt sem áður hefir hann verið hafður í varðhaldi. Von Mackensen gat sjer mik- inn orðstí í heimsstyrjöldinni. Hann stjórnaði þýska hernum í' suð-austurvígstöðvunum og var sigursæll. Hann hefir fylgt Hitler að málum. Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. að var tilkvnt í breska utanríkismálaráðuneytinu í kvöld, að Mr. Chamberlain og Halifax lávarður ætli að fara í heimsókn til Rómaborgar í byrjun janúar n. k. Er skýrt frá því, að Mussolini hafi látið í ljós þá ósk við Mr. Chamberlain í Múnchen að Chamberlain kæmi til Róma- borga til þess að halda áfram viðræðunum, sem hófust í Mún- chen. Síðan hafa farið fram brjefaskifti milli ítölsku og bresku stjórnanna um þetta efni. í ítölsku blöðunum er gert mikið úr þessari heimsókn og segja þau að hún sje bein af- kiðing af fundi bresku og frönsku ráðherranna í París. Daily Mail segir, að bresku ráðherrarnir ætli að ræða við Mussolini um Miðjarðarhafs- málin og viðhorfið í Evrópu yf- irleitt. Ýmsir hafi í sambandi við þessa för vakið athygli á því hve undarlegt hið pólitíska á- stand sje í Evrópu. Er bent á að sambúðin milli Breta og Itala sje orðin vingjarnleg, samtímis því, sem engin vinátta sje á milli Breta og Þjóðverja. Samn- ingar milli þessara þjóða liggja alveg niðri um sinn. Aftur á móti sje að skapast vinátta milli Frakka og Þjóð- verja, en á milli Frakka og ítala hefir sjaldan verið jafn kalt og einmitt nú. ítalska blaðið „Giornale d’Italia“ segir í dag, að það sje afar mikilvægt, að Chamberlain komi til Róma- borgar til fundar við Mussolini, ekki síst þar sem svo virðist, að þær vonir, sem menn gerðu sjer eftir Múnchenarsamkomu- lagið kunni að bregðast, m. a. vegna þess, sem er að gerast í Frakklandi. Samkomulag Pólverja og Rússa gegn Þjððverjum - Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. | rússneskum, frönskum og pólsk- um blöðum er látin í ljós mikil ánægja yfir samkomulagi Rússa og Pólverja, þar sem þeir staðfesta að allir samningar þeirra á milli skuli vera í gildi áfram, þ. á. m. samningurinn um að hvorug þjóðin skuli gera árás á aðra. Frönsk blöð segja að samkomu- lag þetta sje til orðið fyrir sam- eiginlegan ótta Pólverja og Rússa við fyrirætlanir Þjóðverja um TJkraine. Breska blaðið „Daily Telegraph“ segir að litið sje á þetta sam- komulag sem það hafi stórpóli- tíska þýðingu. Það sje svar Pól- verja til Þjóðverja við því að Þjóðverjar sjeu að reyna að koma í veg fyrir sameiningu Rutheniu og Ungverjalands, svo að Pólverj- ar og Ungverjar geti ekki fengið sámeiginleg landaniæri. Samningar við Lithaua. Khöfn í gær. FÚ. í Kaunas í Lithauen standa nú yfir verslunarsamningar milli Pól- jlands og Lithauen, og ganga þeir mjög greiðlega, samkvæmt opin- berum tilkynnirigum frá báðum aðilum. Skipafrjettir. Gullfoss var á Þingeyri í gær. Goðafoss er í Kaup mannahöfn. Brúarfoss er í Hull. Dettifoss er í Reykjavík. Lagar- foss var á Siglufirði í gærmorgun. Selfoss er á leið til útlanda frá Siglufirði. Á VIÐHAFNARBÖRUM Osló 28. nóv. Hákon konungur hefir í dag þakkað hluttekningu þjóðarinnar út af fráfalli Maud drottningar. Lík drottningar- innar hvílir nú á viðhafnarbör- um í Akerhus hallarkirkju og er almenningi veittur aðgang- ur að kirkjunni, til þess að ganga fram hjá líkbörunum. (NRP—FB). Engin loforð! í Frakklandi vekur það vafa- laust mikla athygli, að Mr. Cham- berlain bar á móti því í breska þinginu í dag (skv. FÚ.) að loforð hefði verið gefin á fundinum í París um að Bretar kæmu sjer upp auknum her til þess að senda til meginlandsins, Frökkum til að- stoðar í ófriði. Þetta hefir und- anfarna daga verið talinn einn aðal árangurinn af för bresku ráð- herranna til Frakklands. Mr. Chamberlain neitaði því (skv. FÚ.), að Bretar hefðu tekið á sig neinar skuldbindingar í París. Athygli skal vakin á auglýsingn landsbókavarðar í blaðinu í dag, um aðgöngu að lestrarsal Lands- bókasafnsins. Regla sú, sem þar er upptekin, var fyrrum haldin þar, enda tíðkast hún í slíkum söfnum erlendis, en nú er hún nauðsyn, sökum of mikillar að- sóknar að lestrarsalnum og örðug- leika við eftirlit par.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.