Morgunblaðið - 29.11.1938, Page 4
r
4
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 29. nóv. 1938-
Aðalumboðið fyrir ísland.
H. Benediktssön & Co.
Útsvör. -- Dráttarvextir.
Hinii 1. desember falla
dráftarwextir á síðasta
blufa útsvara til bæj-
arsjóðs Reykjavíknr
árið 1038.
Er skorað á alla gjald-
endur að greiða útsvars-
skulóir sínar nú um
mánaðamótin.
Borgarritarinn.
Dráttarvextir
af tekju- 09 eignarskatti.
Dráftarvextir af tekfu- og
eignarskatti bækka um Vlo
um mánaðamófin. Þeir,
sem vilja losna við hækk-
unina, verfla afl greifla
skatf sinn fyrir f. desem-
ber næstkomandi.
Skrifstoía tollstjóra, Arnarhvoli.
— * **___________________
Sími 1380. LITLA BILSTOBIN Er nokknð stór.
Upphitaðir bílar. Opin allan sólarhringinn.
EF LOFTUR GETUR ÞAÐ EKKI----ÞÁ HVER?
Ráðstafanir
í sjúkrahúsum
gistihúsum
og skólum
til þess að
kæfa eld
Eldvarnavikan
hófst í gær
Frumleg
veggteppi
ísafirði, máimdag-.
Frú Þórdís Egilsdóttir hafðr
hjer á laugardag og suimu-
dag sýningu á tveimur veggtepp-
um, útsaumuðum úr íslenskri ull.
Sýnir annað teppið vinnu á túni
og sveitabæ í gömlum stíl, en hitt
kvöldvöku í baðstofu, þar sem
fram fer ullarvinna og lestur.
Yeggteppin eru að allra dómi lista-
verk. Þau verða bráðlega sýnd á
Akureyri. Frú Þórdís er tvímæla-
laust ein fremsta handavinnukona
hjerlendis. — Sýningin var vel
sótt.
Víðasthvar erlendis, er það
talið sjálfsagt, að starfs-
fólk sjúkrahúsa, skóla, gisti-
húsa og annara slíkra stofnana,
sje veitt tilsögn og látið æfa
notkun á slökkvitækjum, hand-
dælum, ábreiðum (úr asbest)
til þess að kæfa eld, og fleiri
tækjum, sem til eru í húsunum.
Myndin hjer að -ofan er frá
einni slíkri æfingu, sem haldin
var fyrir starfsfólk sjúkrahúss
nokkurs í Danmörku. Hjer á
landi munu vera til hand-
slökkvitæki í flestum sjúkra-
húsum, skólahúsum og gistihús-
um, en eftirlit með tækjunum
og æfingar fyrir starfsfólkið
hefir skort.
Oft má hindra bruna í upp-
hafi með þessum einföldú tækj-
um. Það hefir reynslan sýnt. En
reynslan hefir einnig sýnt, að
fólk hefir staðið ráðþrota, þeg-
ar hættuna bar að höndum,
vegna þess að það hefir ekki
kunnað að nota tækin. Að vísu
er leiðarvísir (oftast á erl.
máli) skráður utan á hand-
slökkvitækin, en í fáti því, sem
fiesta grípur, er þeir sjá hætt-
una yfirvofandi, fer alt í handa-
skolum, nema æfð hafi verið
áður hin rjettu handtök.
Hjer í Reykjavík og nágrenn-
inu eru fimm sjúkrahús bygð
úr timbri, ennfremur fjögur
stór gistihús og sex skólahús.
Forráðamenn þessara stofnana
ættu að láta athuga hvort ekki
þarf að endurnýja þau slökkvi-
tæki, sem fyrir eru (mörg tæki
skemmast með aldrinum, þótt
ekki sje eytt af þeim) eða bæta
fleirum við. Það eru ennfremur
tilmæli vor, að þeir láti fram
fara æfingar fyrir starfsfólkið
í notkun tækjanna, og mun
slökkviliðsstjóri eflaust. fús á
að láta slökkviliðsmenn aðstoða
við slíkar æfingar.
Þessar ráðstafanir kosta lítið
fje, en geta orðið til ómetan-
legs gagns.
Reykjaborg kom af veiðum í
gær n\eð 2400 körfur. Skipið fer
til Englands með aflann.
Jólatrje
tilbúin ,eru komin.
Guðm. Ásbjörnsson
Laugaveg 1. Sími 4700.
Stúikur í vist: Þær
vantar herbergi
Tilmæli til byggingameistara
bæjarins frá Húsmæðrafjelagi
Reykjavikur
(Eftirfarandi grein hefir hlað-
inu horist frá neí'nd í Húsmæðra-
fjelagi Reykjavíkur).
Asíðari árum hafa orðið mikl-
ar framfarir í húsagerðar-
list, og mikið gert til að Ijetta
húsverkin bæði fyrir húsmæðrum
og vinnustúlkum. En eitt atriði
virðist fremur vera í afturför,
það er að aðstoðarstúlkum á heim-
ilum er víða í nýjum leiguíbúðum
ekki ætlað neitt sjerstakt herbergi,
eða þá svo stórt herbergi, að hús-
ráðendur hafa ekki efni á öðru
en að leigja það út.
Þetta er ákaflega óheppilegt, því
að heimilisverkum er nú þannig
hagað, að þægilegast er að stúlkan
geti verið á heimilinu. Sumstaðar
er það svo, að vinnustúlkan sefur
á legubekk í stofu þar sem heim-
ilisfólk og gestir sitja fram eftir
kvöldi, og hún getur ekki farið
að sofa fyr en fólkið er farið úr
stofunni, sem hæglegá getur dreg-
ist, en hún þarf að fara til verka
sinna jafnsnemma næsta morgun.
■— Sumar stúlkur leigja sjer her-
bergi úti í hæ, en þá fer talsvert
af kaupinu til þess, og ennfremur
mjög slæmt, ef húshændur eru
úti að kvöldi, að láta þá stúlkuna,
sem situr hjá börnunum, fara eina
heim til sín að næturlagi. Það
vita allir, að hættulegt getur ver-
ið fyrir unglingsstúlkiir að vera
einar úti á götu um nótt, vera
kannske eltar af drukknum mönn-
um, eða leiðast út í ýmsa óreglu.
Ef stúlka sem hýr þannig úti í hæ
verður veik, á húsmóðirin einnig
erfitt með að hlynna að henni.
Þetta stafar í flestum tilfellum
ekki af því, að húshændur vilji
ekki láta stúlkuna hafa herbérgi
á heimilinu, heldur af því, að í
mörgum leiguíhúðum er ekkert
herhergi til þess ætlað. Það er
varla hægt að kalla að stúlkna-
herbergi fylgi, ef það er svo stórt
að hægt er að leigja það fyrir t.
d. 30 kr. eða meira á mánuði-
Fjölskyldumenn hafa alment ekki
ráð á svo dýru herbergi fyrir
stúlkuna.
Við vildmn því gera þá fyrir-
spurn til hyggingarmeistara hæj-
arins og hyggingarnefndar, hvort
ekki væri hægt, strax þegar húsin
eru teiknnð, að ákveða lítið her-
bergi fyrir stúlku, það þyrfti ekki
að vera stærra en svo, að þar
rúmaðist legubekkur, stóll og borð.
Helst ætti það að vera við hliðina
á svefnherbergi harnanna, svo að
stúlkan þyrfti ekki að vaka, þó
að húsbændurnir sjeu úti. Ef þetta
litla stúlknaherbergi þyrfti ekki
að hækka leiguna á íbúðinni meira
en 10—12 kr. á mánuði, hugsum
við að flestir húsbændur, sem með
nokkru móti gætu það, myndu
vilja borga þessa upphæð til þess
að geta haft stúlkuna á heimilinu
Og þó að fólk hefði ekki ráð á að
hafa stúlku, þá væri það mikill
kostur að hafa slíkt herbergi með
íbúðinni og geta lánað stúlku það,
móti því að hún stöku sinnum að-
stoðaði húsmóðurina, eða liti eftir
börnum, ef svo stæði á.
Fyrir unga stúlku, sem er í vist,
er það ákaflega mikils virði að
geta, þegar hún hefir lokið^verk-
um sínum, sest inn í eigið her-
bergi, og haft í kringum sig það
sem hún á, en vera ekki á sífeld-
um hrakningi með dót sitt. Hús-
mæður missa áreiðanlega oft af
góðnm stúlknm vegna þess að ekk-
ert herbergi er til fyrir þær.
Stúlkur eru nú yfirleitt mjög treg-
ar að fara í vistir, og það veittl
sannarlega ekki af því, að heimil-
in gætu látið þær hafa vistlegt
herhergi, þótt lítið væri, eins og
stallsystur þeirra hafa, sem vinna
ýmsa aðra vinnu. Bæði vegna
stúlkna og húsmæðra væri þetta
mesta nauðsynjamál.
Yið vildum fyrst og fremst beina
þessu til hyggingameistara hæjar-
ins, en það væri einnig mjög æski-
legt, að konur og stúlkur, sem
mesta reynslu hafa í þessu efni,
vildu láta til sín heyra um þetta.