Morgunblaðið - 10.03.1939, Side 8

Morgunblaðið - 10.03.1939, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 10. mars 1939. Þýska ríkisv.íiðistjórnin liefir látið gera skýrsiu um erni þar í landi. Samkvæmt skýrslum þess- pm eru samtals dO ernir, sem hafa fast aðsetur innan landamæra Þýskalands. Nærri því allir ern- irnir eiga heima í fjöllum í suð- urhluta gamla Austurríkis. ★ Um þessar mundir eru 80 ár liðin síðan furstadæmin Moldau og Yalakia sameinuðust í eitt ríki, sem nú lieitir Rúmenía. ★ A tískusýningu í Khöfn var á dögunum m. a. sýndur kven- hattur, sem búinn var til úr 40 ’ metrum af slöri. Sagt er að hætta sje á, að tískan í ár verði með austurlensku sniði og fyrir áhrif- um íir kvennabúrum soldánanna gömlu. Ár Lengsta neðanjarðar símalína í heimi er frá Tokiö í Japan til Mukden. Lína þessi, sem er 2700 km. löng, var nýlega opnuð til afnota. ★ Irlendingar borða mest allra þjóða af kartöflum. Undir venju- legum kringumstæðum borðar ír- lendingur 1 kíló af kartöflum á dag. Næst kdma Þjóðverjar hvað kartöfluát snertir, þá Hollending- ar, Svíar, Danir og Norðmenn. ★ — Pabbi, hvar ætlar þvi að halda hrúðkaupsveisluna mína ? — Brúðþaup? Ætlar þú að fara að gifta þig, telpa mín? Það hafði jeg ekki hugmýnd um. — Hvað er þetta, pabbi, lestu ekki blöðin? ★ Danskur herragarðseigandi helt upp á sextugsafmæli sitt og frændi hans, sem vildi gleðja gamla manninn, sendi honum páfagauh, sem hafði kostað hann 225 krónur. Páfagaukurinn var sendur í lokaðri körfu. Nokkru síðar mættust frænd- urnir, og sá, sem gefið hafði páfa gaukinn skildi ekkert í því, að frændi hans skyldi ekki minnast á afmælisgjöfina. Loks tók hann í sig kjark og sagði: — Jæja, hvernig fanst þjer fuglinn, frændi? — Jæja, þakki þjer fyrir. Mjer fanst hann nokkuð seigur, en bragðgóður var hann. ★ Á alþjóða bílasýningunni í Ber- lín, sem nýlega var opnuð, sagði Göbbels útbreiðslumálaráðlierra, að ákveðið væri að fækka bíl- tegundum niður í 23. T. d. vérða eftirleiðis ekki til í Þýskalandi nema 14 vörubílategundir, á móti 110 áður, og 25 tegundir af' mót- orhjólum, á móti 150 áður. ★ MÁLSHÁTTUR: Kyrk Ijónshvolpinn áður en klærnar vaxa. ^Plor0uiiblat)ið Gagnið að auglýsingum fer auðvitað eftir því hvað marg- ir lesa þær. Munið að Morg- unblaðið er langsamlega át- breiddasta blaðið. Tugir þás- unda lesa það daglega. Það ber boð yðar til allra. Það selur fyrir yður. Það tryggir gamla viðskiftavini og átveg- ar nýa. Það er boðberi við- ikiftalífsins. ( érðbrefabankioi V < Aostorstr. 5 sími 3652.Opið kI.1t-12oq'l-3l annast allskonar verðbrjefaviðskifti. HÚSNÆÐI 2—3 herbergi og eldhús með nýtísku þsegindum óskast til leigu 14. maí. - Sími 4475. KENNI KONTRAKT-BRIDGE Kristín Norðmann, Mímisveg 2. Sími 4645. GRÍMUBÚNINGAR til leigu á Laugaveg 67 A. Uiw—aBMa——mw m — i n f STÚLKA óskast á Sjómannaheimili Hjálp ræðishersins. Sími 3203. ÞEIR, SEM EIGA FATAEFNI og þurfa að Iáta sauma úr þeim á næstunni, ættu að koma með þau nú. Klæðav. Guðm. B. Vik- ar, Laugaveg 17. Sími 3245. HÚSMÆÐUR! Nú er aðeins mánuður til páska. Athugið að panta í tíma hrein- gerningu hjá Jóni & Guðna — Sími 4967. FÓTA-AÐGERÐIR Geng í hús og veiti allskonar fótaaðgerðir. Unnur Óladóttir. Sími 4528. VJELRITUN OG FJÖLRITUN Fjölritunarstofa Friede Páls- dóttur Briem, Tjarnargötu 24, sími 2250. OTTO B. ARNÁR, löggiltur útvarpsvirki, Hafnar- stræti 19. Sími 2799. Uppsetn- ing og viðgerðir á útvarpstækj- um og loftnetum. SOKKAVIBGERÐIN, Hafnarstræti 19, gerir við kven- sokka. Fljót afgreiðsla. — Sími 2799. Sækjum, sendum. JCaup&fíafiLU? DRENGJA-AXLABÖND frá 1,25 — Herra-axlabönd frá 2,75. — Drengjaslaufur og klútar frá 2,25. — Herrabindi og klútar frá 3,75. — Versl. „Dyngja“. PIG.MENTANOLÍA Niveaolía — Nitaolía — Nivea- krem — Nita-krem — Amanti- krem — Rósól-krem — Púður, allar tegundir — Naglalakk — Varalitur — Parfyme — Köln- arvatn. — Versl. ,,Dyngja. SVUNTUR Svuntutvistar — Telpusvuntur. — Telpubolir. Versl. ,,Dyngja“. DÖMUFRAKKAR ávalt fyrirliggjandi. Guðm. Guð mundsson klæðskeri, Kirkju- hvoli. Sími 2796. GLÆNÝTT BÖGGLASMJÖR, Kjarnahveiti, malað og ómal- ■að. Versl. Guðjóns Jónssonar, Hverfisgötu 50. Sími 3414. — Bestu kaupin gera allir á Hverf- isgötu 50. NÝORPIN EGG, lækkað verð. Versl. Guðjóns Jónssonar, Hverfisgötu 50. — Sími 3414. RÚMSTÆÐI til sölu. Upplýsingar í síma 9082 NÝTÍSKU KVENFRAKKAR og vetrarkápur kvenna. Lágt verð. Verslun Kristínar Sigurð- ardóttur, Laugaveg 20 A. KVENPEYSUR, telpu- og drengjapeysur — mjög fallegt úrval. Vandaðir ullarsokkar á telpur og drengi. Lágt verð. Verslun Kristínar Sigurðardóttir, Laugaveg 20 A. MEÐALAGLÖS Fersólglös, Soyuglös, og Tom- atglös keypt daglega. Sparið milliliðina og komið beint til okkar ef þið viljið fá hæsta verð fyrir glösin. Laugavegs Apótek. KALDHREINSAÐ þorskalýsi sent um allan bæ. Björn Jónsson, Vesturg. 28. Sími 3594. ÞORSKALÝSI Laugavegs Apóteks viðurkenda. þorskalýsi í sterilum ílátum kostar aðeins 90 aura heilflask- an. Sent um allan bæ. Sím£ 1616. ÍSLENSK FRÍMF.RKI kaupir hæsta verði Gísli Sig— urbjörnsson, Austurstræti 12: (1. hæð). KAUPUM FLÖSKUR, flestar teg. Soyuglós, whisky- pela, meðalaglös og bóndósir^ Versl. Grettisgötu 45. Sækjum: heim. Sími 3562. KAUPUM FLÖSKUR, stórar og smáar, whiskypela*. glös og bóndósir. Flöskubúðin,. Bergstaðastræti 10. Sími 5395*. Sækjum heim. Opið 1—6. KAUPUM FLÖSKUR giö's og bóndósir af flestum teg^ undum. Hjá okkur fáið þjer á- \ alt hæsta verð. Sækjum til yð- ar að kostnaðarlausu.Sími 5333* Flöskuversl. Hafnarstræti 21* Notið Venus HÚSGAGNAGLJÁA, afbragðs góður. Aðeins kr. 1.50 glasið. NOTIÐ „PERO“, stór pakki aðeins 45 aura. BETANÍA. Föstuguðsþjónusta í kvöld kl'_ 8)4. Ræðumaður síra Sigurðuir Pálsson. Allir hjartanlega vel- komnir. BJÖRGUNARSKÁTAR Hjálpræðishersins halda opin- bera sýningu í kvöld kl. 8)4*- Úthlutun af árs-stjörnum o. fl. Adj. Kjæreng stjórnar. Aðg 50 og 25 aurar. Velkomin! FRIGGBÓNIÐ FÍNA, er bæjarins besta bón. n CHARLES G. BOOTH. ÚTLAGAR í AUSTRI. Conti slepti honum. „Auð\útað ekki“, sagði hann. „Það er skiljanlegt". Hann leit á Janice, sem hjekk í handleggnum á Mar- celles, og öll sú blíða, sem bjó í hans viðkvæma eðli, sliein út úr angum hans. „Ef Mademoiselle vill borða öndina", sagði liann og lækkaði róminn. Marcelles horfði glottandi á liann um stund og tók síðan undir handlegg Janice og leiddi hana að borð- inu, sem þau voru vön að sitja við. Conti hafði ekki augun af henni, fyr en hún var sest. „Conti“, sagði Irene hægt. „Eruo þjer ástfanginn af barninuf‘ Conti sperti upp augun. Hann reyndi að segja eitt- hvað, en kom ekki upp nokkru orði. Síðan þurkaði hann svitann framan úr sjer og settist. „Við vorum að tala um Gerald OTIare“, sagði Ir- ene vingjarnlega eftir nokkra þögn. * O’Hare gat ekki losnað við þessa mynd, sem hann sá stöðugt fyrir hugskotssjónum sínum. Hann hafði gengið fram og aftur niður á höfn frá breska sendi- herrabústaðnum að hverfi hinna innfæddu, og reynt að gleyma myndinni við alt það, sem fyrir augun bar. En hann hafði sjeð það svo oft áður, að það hafði engin áhrif á hann. Hann settist á bekk í litlum garði rjett við höfn- ina. Og enn stóð mýndin skært fyric hugskotssjónum hans. Það var mynd af skipi. Hann hafði sjeð það fyrir nokkrum dögum, er það hvarf sjónum á leið til Pootung. Reykjarmökkurinn stóð upp úr tveimur reykháfunum. Og skipsskrokk- urinn var eius og fílabein, með blóðrauðri rönd pfau til. Það var þoka þenna morgun, en sólin hafði þó gægst fram og glampað á fáguðum málminum nm borð. En síðan hafði þokan umlukt stefnið og sk<p- ið hQrfið eins og fögur kona, sem hverfur í slæðu- hjúp. * ■ OTIare hafði staðið með hattinn í hendinni og horft á eftir skipinu, meðan norðanvindurinn frá Wangpóo fjekk hárið til þess að rísa á liöfði hans. Hann var maður hár vexti, með augu sem glömp- uðu hvast og skært undir Ijósum brúnum í dökx- brúnu andliti, "sem lilaut að vekja eftirtekt allra, er það sáu. Hann var í víðum tweed-fötum og leit út eins og maður, sem ferðast um í veröldinni og hefir það upp úr lífinu, sem hafandi er. Enda gat sii lýsing vel komið heim við O’Hare. En hann horfði með sökn- uði á eftir skipinu. * O’Hare vissi' hvað skipið hjet. Það hjet „Prins Aust- urlanda“ og átti að fara á miðvikudagsmorgun um flóð til Evrópu via Suez. í tólf ár hafði liann ferðast um Asíu. Hann hafði sjeð margt og reynt margt. Ilann hafði barist við Wrangel. Hjálpað til við byggingu Síberíubrautar- innar. Leitað að fílabeiui, roðasteinum og olíu. Lent í erjum við Japani út af perlum. Hanu hafði ennfrem- ur unnið gull við Amur og upp á eig'in spýtur kúgao þræla sína, er þeir sátu á. svikráðum við liann, og: ætluðu að ræna hann lífi og 10 þús. únsum af gulli, sem hann átti. Seinna hafði hann selt Rússum nám- una fyrir miklu meira en hann hafði sjálfur feng® hana fyrir. Meira en miljón dollarar höfðu farið í gegnum hendur O’Hare. Og þó var hann nú staddur þarna í Shanghai-höfn, með beiskju í huga og einn einasta enskan skilding og Borneo-dollar í vasanum. Honum stóð á sama um peningana. Ilann hafði fyr verið allslaus. Það sem kvaldi hann var það, að hann hafði verið ofurliði borinn í heimshluta, sem hann, eins og margir aðrir a.f hans kynflokki, hafði talið) sig geta ríkt yfir. O’Hare hafði sjeð sjer meiri menn fara í hund- ana í hafnarborgum Austurlanda. Og sú hugsun hafði heltekið hann, að það væri sín glötun, ef hann ætti að vera stundinni lengur á þessum stað, sem var sjón-. arvottur að niðurlægingu lians. Hann varð að kom- ast á burt! Hinumegin á hnöttinn ! Ilann var gripinn óstöðvandi óþreyju, sem var annars fjarri eðli hans. En þá reis stoltið upp í honum eins og styrk örn. Hann ætlaði að fara eins og heiðursmaður af þess- um stað, með borgaðan hótelreikning og farmiða á 1. farrými í vasanum. Einmitt þessvegna var „Prins, Austurlanda“ ímynd beiskju hans.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.