Morgunblaðið - 21.05.1939, Síða 3
Sunnudagur 21. maí 1939.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Aukakosning i
Austur-Skatta-
tellssýslu
Aukakosning á að fara fram
í Austur-Skaftafellssýslu
sunnudaginn 25. júní. Verður þá
kosinn einn þingmaður, í stað
Þorbergs heitins Þorleifssonar.
Framboðsfrestur er til 4. júní.
Kjorskrá skal lögð fram fjórum
vikum fyrir kjördag og skal
þetta auglýst viku áður.
Kærur þær og úrskurðir, sem
um getur í 20. og 21. gr. kosn-
ingalaganna hafa einnig verið
styttir, í tvær vikur (20. gr.) og
eina (21. gr.).
Kjör þess þingmanns, sem nú í af (Roosevelt er Iamaðuii)
verður valinn í Austur-Skafta-
fellssýslu nær yfir það sem eft
ir er þessa kjörtímabils.
Talið- frá. viustri: Frú Roósevelt, Ingrid krónprinsessa, Friðrik ríkis-
erfingi, Roosevelt -og l'iðsforinginn, sem forsetinn 'hefir jafnan stuðning
Mvndin var tekin þegar dönsku krón-
prinshjónin komú í opinbera heimsókn til Washington. Þau voru gestir
forsetáhjónanna í ,,Hvíta húsiuu".
Krónprinshjónin hjá Roosevelt
Valur og Víkingur keppa
fyrst á Reykjavíkurmótinu
Dómarar: Guðjðn Einarsson,
Lindemann og Divine
Reykjavíkurmótið svonefnda, þar sem knatt-
spyrnufjelögin hjer í bæ keppa um sæmclar-
heitið „besta knattspyrnufjelag Reykjavíkur“,
hefst næstkomandi fimtudag. Er þetta í fyrsta skifti, sem
Reykjavíkurmótið er haldið á undan íslandsmfttinu, og í
fyrsta skifti, sem A-liðsmenn f jelaganna keppa undir nafn-
inu Meistaraflokkur.
Á fundi Knattspyrnuráðs Reykjavíkur, sem haldinu var t gær-
kvöldi, var varpað hlutkesti um hvaða fjelög skyidu lteppa fyrst.
Einnig voru dómarar skipaðir á leiki Reykjavíkurmótsins og 1. fl.
mótsins, sem hefst á annan dag hvítasunnu n.k.
Flugvjel lendir í íyrsta
skifti á Fáskrúösfirði
og Seyðisfirði
Þorleifur á Hóluin
flýgur til Reykjavíkur
ORN JOHNSON flugmaður
lenti í fyrradag á TF-SUX
á Fáskrúðsfirði og Seyðisfirði.
| Er það í fyrsta skifti, sem flug'-
jVjel lendir á Fáskrúðsfirði og í
,fyrsta skifti, sem landflugvjel
lendir á Seyðisfirði.
Hlutkestið fór svo, að fyrst
keppa Valur og Víkingur. Dómari
verður Hermann Lindemann, hinn
þýski þjálfari Fram.
Næsti leikur verður n.k. föstu-
dag og keppa þá Fram og K. R.
Dómari verður Guðjón Einarsson.
Síðan verður röðin sú, að það fje-
lág, sem tapar fvrsta leik, keppir
við fjelagið sem viimur ■ seinni
leikinn. Leikirnir verða alls sex á
mótinu og dómarar á þeim, sem
hjer segir:
Valur — K. R., Lindemann.
Valur — Fram, Guðjön Einarsson.
K. R. — Víkingur, Mr. Divine
(þjálfari Vals). Fram — Víking-
ur, Mr. Divine.
Þeir, sem fylgst hafa með knatt-
spyrnu undanfarin ár, munu taka
eftir því, að nú, í fyrsta skifti í
mörg ár, dæmir Guðjón Einarsson
ekki leikinn miili Vals og K. R.,
en það liafa löngum verið úrslita-
leikir hinna-meiriháttar móta.
Knattspyrnukeprii byrjar óvenju
snemma í ár og áhugi knattspyrnu
manna og almennings hefir enn
vaxið að mun.
Fjelögin niunu nú vera jafnari
í Meistaraflokki, en þau hafa ver-
ið í mörg ár og kepnin þar af leið-
andi ennþá meira spennandi.
Sú nýbreytni er nú tekin npp,
að kepni verður í B-liðum fjelag-
anna, eða I. fl. eins og það heitir
nú, hæði fvrri hluta sunmrs og
síðari. Kepnin, sem hefst á annan
í hvítasumiu er. inngnbæjarkepni
nni „Glæsisbikarinn",. sem Fata-
pressunin ,,Glæsir“ gaf. Síðai* í
sumar fer fram landskepni í I.
fl. utu leið og Islandsmótið verð-
ur liáð og þá verður kept um Vík-
ingsbikarinn.
T. fl. mótið íiefst á annan dag
hvítasmmu með því að Valur og
Víkingur kepjy, og verður Frið-
þjófur Thorsteinsson dómari. A
leik Frain — K. R dæmir Gunnar
Axelsson — Valur — Fram Bald-
ur Möller, og sami dómari á leik
Vals og K. R. — K. R. — Vík-
ingur dæmir Friðþjófur Thorsteins
son, og Fram — Víkingur Mr.
Divine. Vívax.
Hjúskapur, í gær voru gefiu
samaii af síra Friðrik Hallgríms-
syni ungfrú Ilalldóra Sigurðar-
dóttir og Þorgeir Arnórsson. Heim-
ili Jieirra vepður á Barónsstíg 14.
Áhugi Austfirðinga fyrir flug
samgöngum er afarmikill og á
Seyðisfirði hefir bæjarstjórnin
skipað þriggja manna nefnd til
þess að sjá um að flugvelli verði
komið upp í bænum.
Á Fáskrúðsfirði lenti flugvjel
in í fjöruborðinu, en flugvöllur
er fyrirhugaður þar á nýrækt.
Er þar simalína yfir miðjan
völlinn ennþá, en hún mun verða
lögð í jörð.
Á Seyðisfirði varð flugmaður
inn að lenda I nýrækt uppi í hlíð,
þar sem halli er mikill og erfitt
um lendingu.
Örn flugmaður fór austur í
sitt vikulega póstflug á föstu-
daginn og kastaði niður pósti á
Fagurhólsmýri og Iúálfafelli í
Suðursveit. Þaðán flaug hann til
Hornafjarðar og beið í tvo tíma
vegna þoku, en hjelt svo til
Djúpavogs og Fáskrúðsfjarðar.
Frá Fáskrúðsfirði flaug TF-SUX
fyrir Gerpi og lenti á Seyðisfirði
á 11. tímanum á föstudagskvöld.
J gærmorgun fór TF-SUX frá
Seyðisfirði til Egilsstaða og skil
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.
Tveir læknar
skrifa um gildi
skátahreyf-
ingarinnar
DREGIÐ verður í húshappdrætti skátanna 1.
júní næstkomandi. Fara nú að verða síðustu
forvöð að tryggja sjer happdrættismiða og
þar með e. t. v. húsið, og styrkja um leið skátahreyf-
inguna.
Tveir lækuar, Guðmundur Thoroddsen og dr. Gunnlaugur Claes-
sen, vekja í eftirfarandi greinum athygli á gildi skátahreyfingarinnar,.
hvor frá sínu sjónarmiði.
Mæðradagurinn
er i dag
Mæðradagurinn er í dag, sá
dagur ársins, sem helgað-
ur er mæðrunum. Þann dag eiga
allir að gera mæðrum sem gleði-
legastan, og það verður gert með
ýmsu móti.
Sumir kaupa blóm og færa
mseðrum sínum í tilefni dagsins,
en þau eru seld í blómabúðun-
um, sem láta 10% af ágóðanum
renna til Mæðrastyrksnef ndar,
sem hefir það þarfa verk með
höndum að lijálpa bágstöddum
mæðrum, útvega þeim sumar-
dvöl í sveit og Ijetta undir með
þeim á ýmsa vegu.
Aðrir gera þetta að liátíðisdegi
mæðranna á þann hátt, að gefa
þeim frí við allar búsáhyggjur
og hverskonar umstang þann
dag. Dæturnar taka að sjer
,ráðsmenskuna á heimilinu, heim-
ilisfeðurnir bera konumar venju
fremur á höndum sjer og börnin
reyna að vera sem allra þægust
þennan dag.
Enn aðrir gefa mæðrunum
tækifæri til þess að lyfta sjer
upp, með því að bjóða þeim á
skemtanir Mæðrastyrksnefnd-
arinnar og styðja þá um leið
starfsemi hennar — og þannig
mætti lengi telja.
Uátíðahöld dagsins hefjast
með því að Lúðrasveit Reykja-
víkur leikur í skemtigarðinum
við Lækjargötu. Þar er gott tæki
færi til þess að kaupa „mæðra-
blómið", merki dagsins.
í kvöld verða síðan fjölbreytt-
ar skemtanir að Hótel Borg og
í Oddfellowhöllinni. 1
Allir verða að muna Mæðradag
inn í dag, styðja starfsemi
Mæðrastyrksnefndar og bera
merkið, sem er Mæðradags-
blómið.
Vormót II. fl. helt áfram í gær-
kvöldi og fóru leikar svo að Valur
vann K. R. rneð 2 mörkum gegn 1.
Fram vann Víking með 5:0. l:r
slitakappleiknr IIT. fl. mótsins fer
fram í dag kl. 10f. li. og keppa
Valur og K. R. til úrslita.
BLÖÐGJAFI SKÁTA
seinni árum hefir það færst,
meir og meir í vöxt, a$
sjúklingum væri gefið blóð. Ekki
svo að skilja, að þeir fái blóð
sem inntöku eða í mat, heldur
beint inn í blóðrásina, og þegar
talað er um blóðgjafir, þá er eirt
göngu átt við blóðflutning úr
einum manni í annan. Blóðgjafir
eru nú orðnar nauðsynlegur lið-
Ur í lækningum margra sjúk-
dóma en sjerstaklega áberandf
sem reglulegur lífgjafi verða þær
eftir alvarleg slys og blæðingar,
þar sem segja má að oft liggi
lífið á að bætt verði með nýju
blóði og engu öðru en blóði.
Blóðgjafir eru ekki eins ein-
faldar lækninga-aðgerðir og
margur skyldi ætla. Fyrst og
fremst þarf blóðgjafinn að vera,
hraustur og heilbrigður, svo að'
ekki flytjist nýr sjúkdómur með
blóði því, sem gefið er, í þann
sem veikur er fyrir. En þar að
auki er ekki sama milli hverra
manna blóðið er flutt. Öllum
mönnum má skifta í blóðflokka
og blóð úr einum getur bjargað
Iífi sjúklings, en blóð úr öðrum
jafnvel drepið fílliraustan mann,
sem er ekki í viðeigandi blóð-
flokki.
Það getur orðið tafsamt að
leita að blóðgjafa, sem við á, og
ef til vill fengist enginn í tæka
tíð, ef ekki væri reynt að sjá
fyrir því með því að vera íyrir-
fram búinn að blóðflokka marga
hrausta og lieilbrigða menn, serh
hægt er að ná í með stuttum
yrirvara eða fyrirvaralaust.
Þegar Landsspítalinn tók til
starfa sáum við strax, að mikils.-
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐUt
Sviplegt slys
á Seyðisfirði
að sviplega og sorglega slys
vildi til á Seyðisfirði í
fyrrakvöld, að tveggja ára gam-
all drengur, sonur hjónanna
Soffíu Guðmundsdóttur og .Júlí-
usar Brynjólfssonar á Hánefs-
staðaeyrum datt í þvottapott með
sjóðandi vatni.
Drengurinn brendist svo mik-
ið, að hann beið bana skömmu
síðar.