Morgunblaðið - 24.05.1939, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 24. maí 1939..
KVEMDJOÐm oa MEIMILIM
-acwBesniu.
Langtum betri
og i)ó ekki dýrari.
Fæst aðeins í dósum og
pökkum, en ekki í lausri
vigt.
AUOAÐ hvíliat
meC gteraugum frá
hreinsunarkrem
er jafnnauðsynlegt á hverju
heimili og handklæði og sápa.
Óhreinindi í húðinni valda
hrukkum og bólum. Náið
þeim burt án þess að skaða
hina eðlilegu húðfitu með
LIDO hreins unarkremi. Dós-
in 0.50 og 1.00.
Rykfrakkarnir
með tækifærisverði, þó
nokkuð eftir óselt enn
Vesta
Laugaveg 40.
Squibbs-
tann krem og rakkrem.
Rósól tannkrem og rakrem
eru viðurkendustu vörurnar.
Hafið þjer reynt Rósól vara-
lit?
Lilia — dömubindi — Klee-
nex tissues eru heimsfræg
vörumerki. )
Lidó dagkrem og púður
kaupa allar vandlátar dömur
Laugaveg 19.
Sumartískan í Revkjavík.
sýningu versl Gullfoss
Frá
THIELE
Tvær tískusýningar voru að Hótel Borg í gær á
vegum verzl. Gullfoss.
Þar voru og sýndar nokkrar sumarkápur og
„dragtir“ frá Andrjesi Andrjessyni, náttkjólar og sloppar
frá versl. Smart, hattar frá Hattabúð Gunnl. Briem, en
snyrtingu og hárgreiðslu annaðist hárgreiðslustofan Edina.
Sýningin var mjög fjölbreytt.
‘milli 40—50 flíkur sýndar. En
auk þess liafði verzl. Gullfoss nú
tekið upp þá nýbreytni, að sýna
kjóla fyrir smátelpur. Voru þeir
mjög snotrir, og vöktu litlu sýn-
ingarstúlkurnar óskifta athygli
gestanna, sern höfðu fjölment á
sýninguna að vanda.
■¥
Náttkjólarnir frá Smart voru
mjög fínlegir, bieikir og
bláir, lagðir kniplinguin og bönd-
um. Smart sýndi l:1ka morgun-
slopp „kvilteraðan“, með rennilás
frá hálsmáli og niður úr.
Annars var lítið um rennilása
á sýningunni. Virðast þeir vera
nokkuð í afturför á tískusviðinu,
þó þægilegir sjeu.
¥■
Strandföt, sem fara nú að fær-
ast í tísku hjer, meir en
verið hefir, eftir því sem sund-
íþróttin fer vaxandi, voru þarna
sýnd með ýmiskonar tilbreytni, —
Verða þannig föt, sem frekar
mætti nefna sund- eða sólbaðsföt,
þar sem þau ern aðallega notuð
í sólbaði eftir sund, sjálfsagt
notuð bjer mikið í isumar við
baðströndina í Skerjafirði, þegar
vel viðrar.
Þessi sólbaðsföt voru ýmist með
síðum buxum eða stuttbuxum
„shorts", eða eins og kjólar, og
mátti þá hneppa pilsinu frá, en
stuttbuxur voru innaniundir. Við i
sum baðfötin voru líka síðir
sloppp.r, svonefndar „Lidokápur".
Skraddarasaumuð dragt er
klæðnaður, sem hver vel-
klædd kona vill eiga, enda er bíin
altaf í tísku og fer flestum vel.
Frá Andrjesi Andrjessyni • voru
sýiidar nokkrar slíkar, dökkar að
lit, einfaldar og smekklegar og
refur borinn með þeim. — Frá
Andrjesi voru einnig sýnd reiðföt,
sumarfrakkar og kápur.
*
Kjólarnir frá verzl. „Gullfoss“
voru þó það sem bar sýning-
nna uppi. Virtist alt handbragð á
þeim hið vandaðasta og hinir nýju
tískulitir óvenju fínlegir.
Efni voru líka sjerstaklega fal-
leg, en hefðu getað verið fleiri,
ef ekki hefði staðið á að fá inn
vörur, sem versl. Oullfoss átti Von
á tyrir sýninguna, eftir því sem
frú Helga Sigurðsson sagði frjetta
ritara Morgunblaðsins.
Sjerstakra áberandi nýjunga
varð ekki vart við kjólana. En
þeir voru allir hver á sína vísu
fallegir á að líta.
Pilsin virðast yfirleitt víðari eu
t. d. í fyrra og nokkuð styttri,
feld eða plíseruð, oft hringskorin
víð frá mitti og brydduð að neð-
an, og gefur það þeim fallegan
svip.
Síðdegiskjólarnir voru hver öðr-
nm fínlegri, úr tylli, blúnduefni,
ísaumaðir, eða skreyttir flaueli,
böndum, breiðum beRum o. s. frv.
Tiltölulega lítið var um svarta
kjóla, þó sást svarti liturinn með
mörgum öðrum. T. d. var einn
„Black & White“, kjóll, svartur,
nieð hvítu skrauti, eins og nafnið
bendir til, annar „Rouge et noir“,
sjerkennilegur,, svartur, Jagður
rauðum ullarblúndum.
Sumarballkjólarnir voru auðvit-
að skrautlegastir, úr fögrum sum-
arefnum og báru margir nafr. af
gerð efnanna og svip, eins og t.
d. „fiðrildi", ,suniarball“, „fem-
ina“ o. s. frv. Og yfirleitt voru
allir ballkjólarnir með svip kven-
legs yndisþokka, prýddir blómum
og flauelsböndum, þröngir í mitti,
en pilsin með mikilli vídd og feld
frá mitti. Sumir voru þó þrengri
lengra niður, en víðir neðst. Og
neðan undan pilsinu gægðist fín-
leg röð af pífum, sem minti á
gamla daga, þegar „fínt“ þótti að
láta „blúnduskálmarnar sjást nið-
ur undan pilsinu“. En hvað snið
snerti voru ballkjólarnir einna frá
brugðnastir kjólum fyrri ára að
því leyti, að þeir voru allir mjög
flegnir, ekki aðeins á baki, held-
ur alt, í kring- og þá stundum
haldið uppi með blómsturkransi
eða mittisstímum. En þetta snið
fer vel við „Dauphnegreiðsluna“,
er hárið er tekið í lokkum niður
á liáls og bundið saman með silki-
slaufu.
MYNDIRNAR:
Telpukápumar eru hvítar,
önnur einhnept, en hin tví-
hnept. — Dragtin og ref-
ur frá Andrjesi Andrjessyni.
— Femina, hlýralaus sumar-
baflkjóll, með blómsturkrans
í hálsmálinu. — Efnið er sjer
staklega fallegt í þessum kjól
svart „tyll“ með handofnum
rósum. Við hann er svartur
blúnduhattur (frá Gunnlaugu
Briem). *
Kunnið þjer að
klæða yður?
Að kunna að klæða sig er að
mikln leyti falið í því að
kunna að klæða sig eftir stund og
stað, Laga klæðaburði sírnun eftir
þeim lífsskilyrðnm, sem maður á
við að búa.
EF þjer sitjið á skrifstofu mest-
an hluta dags, þurfið þjer t. d.
einna helst að leggja áherslu á að
eiga snotra dagkjóla — t. d.
svarta kjóla, með hvítum krögum
— og klæðnað (,,dragt“) eða
frakka, til þess að ganga í til og
frá vinnu.
EF 1 ijer eruð húsmóðir og farið
belst í síðdegissamkvæmi — þurfið
})jer að eiga einn eða fleiri bridge-
kjóla, sem, fara vel við sömu káp-
una, góða hanska og fallega tösku.
EF þjer farið oft út að dansa
og þá með sömn kunningjunum,
ættuð þjer frekast að eiga fleiri
kjóla, ljetta og laglega, úr ódýr-
um efnum.
Ballkjóla borgar sig yfirleitt
betur að spara en dagkjóla. Ball-
kjólnum slítur maður aldrei upp
og verður leiður á að vera oft í
þeim sama. En hann getur verið
fallegur á að líta, þó mörgum tug-
um króna sje ekki kastað í efnið.
Og loks er hjer ein tillaga, sem
fellur ef til vill ekki öllum í geð:
Ef þjer eigið ballkjól, sem þjer
bafið lítið verið í, en eruð orðnar
leiðar á, væri þá ekki ráð, að
skifta um kjól við vinkonu, sem
eins ör ástatt fyrir og er lík á
stærð og vöxt og þ.jer, en um-
gengst annað fólk?
Þetta minnist þjer auðvitað ekki
á við neinn. En báðar eignast nýja
ekki verra en kaupa kjóla.
ITA Creme og
húðolía
er öruggasta vörnin gegn hverskonar skað-
legum áhrifum lofts og vatns.
Glejrmið ekki að taka Nita-creme og
húðolíu með í ferðalög.
Hafflð þfer reynt
ASTRA Citronfreknuvatn
ASTRA Freknukrem
Revkjavíkur Apótek
H|úkranardelldftn.