Morgunblaðið - 25.06.1939, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 25. júní 1939,
tniiiuiiiiiiiiiiiHiiiiiiniiiiiiiiimmiiiiiiiiiiiimmumuiimmiiiiiiimiiHiiiiiiiHiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiimi iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
Japanar margfalda áróður
gegn Brefum í Norður-Kína
Loftmynd af franska forrjettinda svæðinu og nokkrum hluta af breska forrjettindasvæðinu í Tien-
tsin. Ofarlega til vinstri sje st alþjóðabrúin, sem Japanar lokuðu strax fyrsta daginn.
Japanar hafa nú leyft að bresk skip sigli til
Swatow, enda hafði breska stjómin mælt svo
fyrir að bann Japana skyldi haft að engu.
En samtímis hafa Japanar margfaldað áróð-
ur sinn gegn Bretum um alt Norður-Kína. Þeir
reyna líka að neyða Kínverja til að sýna Bret-
um andúð. En árangurinn verður stundum ekki
líkt því í rjettu hlutfalli við fyrirhöfnina.
Stjórnin í Peiping, sem situr fyrir náð Japana,
ætlaði í gær að efna til mótmælagöngu gegn
Bretum, og bjóst við að hundrað þúsund manns
tækju þátt í henni. En þátttakendur urðu að eins
fimm hundruð og voru það aðallega böm.
GREMJA í BRETLANDI
Japanski sendiherrann í London ræddi í gær
við Halifax lávarð samkvæmt ósk hans. Það
veldur vaxandi hneykslun í Englandi, að ekki
skuli vera komið í veg fyrir að breskir þegnar
í Tientsin sjeu afklæddir og hafðir að háði og
spotti vegfarenda. Enda lýsti Chamberlain yfir
því í gær, að slíkar aðfarir væri óþolandi.
Halifax lávarður mótmælti þessum aðförum
við japanska sendiherrnna. Hann skoraði einnig
Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær.
á japönsku stjórnina að gera ítarlega grein fyrir
því, hvað á milli bæri Bretum og Japönum, svo
að auðið væri að sjá, hvort ekki væri mögulegt
að semja.
KRÖFURJAPANA
London í gær. FU.
Japanska stjórnin hefir nú gert grein fyrir
kröfum sínum, að því er snertir Tientsin, og eru
þær í fimm liðum:
1) að kínverskir ofbeldisseggir og undirróð-
ursmenn gegn Japan, sem hafast við á breska
svæðinu, verði þegar framseldir, 2) að silfur-
forði kínversku stjómarinnar í bönkum á for-
rjettindasvæðinu verði afhentur Japönum, 3) að
Bretar styðji gjaldeyrisstefnu japönsku stjórn-
arinnar í Kína, 4) að Bretar bæli niður allar
hreyfingar og skoðanir andstæðar Japönum inn-
an forrjeítindasvæðisins og 5) að Bretar heimili
Japönum eftirlit með öllum kínverskum búðum,
bönkum og vöruhúsum á forrjettindasvæðinu.
Japanar lögðu í dag undir sig eyna Chu-san
í Hong-Kong-flóa, hjer um bil 150 kílómetra
súður af Shanghai.
Bretar ðttu stlk-
ina á heims-
strfðinu
— segja Þjóðverjar.
London í gær. FÚ.
rönsk og tyrknesk blöð
láta í ljós mikla ánægju
yfir sáttmála þeim, er Frakk-
ar og Tyrkir gerðu með sjer og
undirrituðu í París í gærkvöldi
um gagnkvæma aðstoð í ófriði.
Tyrkland tekur við yfirráðum í San-
jak í Alexandretta þann 23. júlí, og
segir í fregnum, að þeir hafi í hyggju
að gera þar sterka flotaköfn.
Þýsk blöð gera samninginn eúuiig að
anræðuefni í dag og láta mjög illa
yfir.
dr. Göbbels ritar grein í „Vöikischer
Beobaeþter1, og tekur hann svo djúpt í
árinni, að hann segir að Bretlandi hafi
eitt borið ábyrgð á ófriðnum mikla
og ráðist á Þýskaland algerlega óvið-
búið,,
Samvinna !
Breta og Frakka
í Austur-Asíu
Jxmdou í gær. FU.
herforingjafundinum í
Singapore, par sem sam-
an eru komnir um 50 hernaðar-
sjerfræðingar af hálfu Breta
og Frakka, hefir orðið sam-
komulag um það, að Bretar
skuli hafa æðstu herstjórn á sjó
fyrir bæði ríkin. að því-er tekur
til Austur-Asíu.
Ennfremur skuli enski og
franski landherinn vinna sam-
an undir breskri yfirstjórn, en
Bretar leggja til Singapore, sem
höfuðstað fyrir allar hernaðar
ráðstafanir.
SAMNINGAENIR í
MOSKVA.
amningar liggja niðri milli
Breta og Rússa í Moskva
yfir helgina.
Mr. Strang er að bíða eftir
nýjum fyrirmælum frá London.
Siúdentamótið
í Oslo
Jíhöfn í gær. FtJ.
•| þátttakendur mættu
*• A/vJv/ við setningu norræna
stúdentamótsins í Oslo, og eru
625 af þeim aðkomumenn.
Gengið var í skrúðgöngu frá
Akershus til háskólans, þar sem
fórmaður norska stúdentasam-
bandsins bauð alla þátttakend-
ur yelkomna. Háskólarektor
flutti ræðu og því næst kenslu-
máiaráðherrar Norðurlandanna.
Að lokum töluðu stúdentar
fyrij hönd hvers lands, Thorolf
Smith f. h. íslendinga.
Þjóðsöngvar allra Norður-
landanna voru leiknir.
1 kvöld verður .Jónsmessuhá-
tíð á háskólaleikvanginum.
Eimskip. GullfoSs er í Reykja-
vík. Goðafoss fór frá Hamborg í
gær. Brúarfoss er í Grimsby.
Dettifoss er. á Akureyri. Lagar-
foss er í Kaupmannahöfn. Selfoss
er í Autwerpen.
1350 kaupsýslumenn
frá 41 landi ræða við-
skiftaörðugleikana
10. þing Alþjóðaverslumrráðsins
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
TÍUNDA þing Alþjóðaverslunarráðsins verður
sett í Kaupmannahöfn á mánudaginn. Þátt-
takendur eru 1350 frá 41 landi.
Flestir eru fulltrúarnir frá Bretlandi, 183, Þýskalandi 155
og Bandaríkjunum 125. Við íslendingar eigum nú í fyrsta sinni
fulltrúa á þinginu, og mæta fyrir okkar hönd Magnús Kjaran
stórkaupmaður, Haraldur Árnason kaupmaður og dr. Oddur
Guðjónsson skrifstofustjóri Verslunarráðs.
Danzig
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Þýskir stjórnmálamenn
eru sannfæriðir um að
Hitler knýji fram lausn
Danzigmálsins og deilunn-
ar um pólsku göngin fyrir
haustið.
Þeir þykjast sjá, að örð-
ugleikar Breta í Kína og í
Palestínu fari stöðugt vax-
andi og að langt sje frá
því, að þessir örðugleikar
sjeu komnir á hámark.
Synodus hefst
i morgun
Prestastefnan hefst á morgun
með guðsþjónustu í Dóm-
kirkjunni kl. 1. e. h.
Síra Benjamín Kristjánsson
jjrjedikar, en síra Jakob Einars-
son prófastur á Hofi þjónar fyr-
ir altari.
KI. 4 verður svo prestastefn-
an sett í hátíðarsal Mentaskól-
ans. Þar flytur biskup ávarp
og gefur því næst skýrslu um
störf kirkjunnar. Strax á eftir
hefjast umræður um framtíðar-
starf kirkjunnar fyrir æskulýð-
inn; en það verður eitt aðalnuíl
Synodusar að þessu sinni.
Annað kvöld verða tvö erindi
í kirkjunum. Annað flytur síra
Gunnar Árnason frá Æsustöð-
um, í Dómkirkjunni kl. 8,15.
Nefnir hann erindið: Kristur og
daglega lífið. Hitt flytur síra
Sigurjón Guðjónsson í Saurbæ,
í Fríkirkjunni kl. 9,15; erindið
er: Finska kirkjan.
Almenningur hefir aðgang að
þessum erindum.
Bmdindismálafundur verður
haldiun í Hveragerði í dag kl. 4
að tilhlutun stúknanna „Sóley“
og „Hö£n“. Þeir, sem ætla á fund-
inn hjeðán úr bænum, geta feng-
ið ferð kl. 10 f. h. frá Góðtempl-
arahúsinu. Dagskrá fundarinS'
verður fjölbreytt og um kvöldið
verður dansskemtun.
Það eru stærstu og áhrifa-
mestu kaupsýslumenn hvaðan-
æfa úr heiminum, sem þiíig
þetta sitja. Til marks um hve
mikilvægt það er talið, má geta
þess, að 150 erlendir blaða-
menn eru viðstaddir þingfund-
ina.
VIÐFANGS-
EFNIN
Forseti verslunarráðsins, Vas-
•seur tók í dag á móti blaða-
mönnum og mælti m. a. á þessa
leið:
Helstu viðfangsefnin, sem
rædd verða á þinginu, verða
möguleikarnir til þess að gera
kaup á hráefnum, samræming
viðskiftalífsins við hið breytta
viðhorf í heiminum og sam-
bandið milli frjálsrar verslunar
og sjálfsbjargarkenningarinnar.
Við göngum þess ekki duldir,
að gerst hafa djúptækar breyt-
ingar á atvinnu- og viðskifta-
lífinu í heiminum hin síðustu
ár, hjelt Vasseur áfram. Mikl-
ar tálmanir eru settar í veg fyr-
ir samvinnu þjóðanna í fram-
leiðslu og verslunarmúlum,
Þessir örðugleikar setja leið-
logum í atvinnu og viðskiftalífi
þær skyldur á herðar, að bitt-
ast og vekja gagnkvæmán skiln
ing sín á milli.
600 ÞÚSUND
Utgjöld danska ríkisins vegna
þingsins, nema 100 þús. krón-
um á dag, eða samtals 600 þús.
krónum þá- sex daga sem þing-
ið stendur yfir.
NÝLENDUKRÖFUR
ÞJÓÐVER.JA.
London í gær. Fú
irow, laridvarnamálaráðh.
Suður-Afríku, ljet í dag í
Ijósi á!ít sitt á nýlendukröfum
Þjóðverja.
Hann sagði, að vegna þeirr-
ar þróunar, sem átt hefði sjer
stað í Suðvestur-Afriku og
Tanganyika síðan 1914, væri
ómögulegt að afhenda Þýska-
landi aftur þessar nýlendur-
En hinsvegar mynl; aldrei
verða varanlegur friður fyr en
fallist hefði verið á aðrar ný-
lendukröfur Þýskalands.
Dr. Aiexandiine kom til Kaup-
mannahafnar kl. rúmlega 8 í gær-
morgun.