Morgunblaðið - 13.08.1939, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Simnudagur 13. ágúst 1939.
..........„„„.......................................................................................
1 Dönsk blaðamanna-heimsókn |
IiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiHiiiniiiiiiiininiiiiiiuuiiininnin ................
G. K. Burmölle.
Olf Bussir.ann. K. Bögholm.
H. Hansen.
Carl Th. Jensen.
Gunnar Nielsen.
Blaðamennirnir
koma í kvöld
Blaðamennirnir dönsku, sem
Blaðamannaf jelag íslands
hefir boðið hingað, koma með
Dr. Alexandrine núna um helg-
ina.
Þeir eru 10 alls. Þeir eru frá
aðalblöðum Hafnar og frá frjetta
stofum þeim, sem aðal stjórnmála-
flokkarnir starfrækja. Hefir mjög
verið til þess vandað, að í ferð
%
þessa veldust hinir færustu og
mikilhæfustu blaðamenn.
Þessir verða þátttakendur í
heimsókninni:
G. K. Burmölle. Hann er rit-
stjóri að verslunartíðindum í Na-
tionaltidende. Hann er 29 ára
gamall. Vann fyrst við „Skander-
borgs Amtsavis" á árunum 1927—
30. Var síðan ráðinn við „Jyl-
landsposten" í Árósum. Árið sem
leið varð hann frjettaritari „Jyl-
landsposten“ í Höfn og skrifaði
m. a. þingfrjettir, en var síðan
ráðinn í þessa stöðu við „Nation-
altidende".
Olf Bussmann er blaðamaður
við „Kristeiigt Dagblad“. Hann
hefir fengist við blaðamensku í
10 ár, fyrstu árin utan Hafnar,, en
síðustu árin við „Kristeligt Dag-
blad“. Hann hefir einkum afskifti
af samgöngumálum, landkvnn-
ingu, skemtiferðafólki og flug-
málum. Hann hefir ferðast víða,
bæði um Suður-Evrópu og Ame-
ríku.
Cand. mag. K. Bögholm er rúm-
lega fertugur að aldri. Átján ára
gámall stofnaði liann „Vestur-
Indiafjelag danskra háskóla-
manna“, er hafði forystuna í bar-
Attunni gegn söíu hinna dönsku
"V estur-India-ev j a.
Hann var í fremstu röð í bar-
Attunni fyrir Flensborg og Mið-
Sljesvík árið 1920. Hann hefir
■aim langt skeið staðið mjög fram-
■arlega í skipulagsmálum íhalds-
flokksins danska. Hann ritar aðal-
lega um utanríkismál, og birtast
greinar hans í mörgum blöðum
og tímaritum bæði í og utan Dan-
merkur. Hann er starfsmaður við
aðalfrjettastbfu íhaldsflokksins í
Höfn.
Alex. Christiansen er forstjóri
fyrir frjettastofu sósíalista í
Höfn, er annast um frjettir til
flokksblaðanna utan Hafnar. Hef-
ir hann haft þessa forstöðu á
hendi síðan árið 1930. En fram
til þess tíma var það Hans Niel-
sen fólksþingmaður, er hafði
stjórn frjettastofu þessarar.
En rjett um þessar mundir
hverfur hann um stundarsakir frá
því starfi til þess að veita for-
stöðu blaðamannadeild gjaldeyr-
isstöðvarinnar. Hann hefir starf-
að að blaðamensku fyrir sósíal-
ista í 20 ár, og síðustu 10 árin
hefir hann aðallega skrifað um
atvinnu- og stjórnmál.
Elin Hansen, ritstjóri „Skive
Folkeblad“, er fulltrúi fyrir
frjettamiðstöð róttækra Vinstri-
manna. Hann er rúmlega fertug-
ur. Ilefir verið blaðamaður í 20
ár. Faðir hans var rtistjóri í
Skive, en Elin Hansen byrjaða
blaðamensku sína í Silkeborg, kom
síðar til Skive og varð meðrit-
stjóri við „Skive Folkeblad" 1935
og aðalritstjóri í fyrra.
Um skeið var hann í stjórn
æskulýðsfjelaga rneðal róttækra
Vinstrimanna. Er í bæjarstjórn
Skive og fulltrúi í Sambandi kaup-
staðanna.
H. Hansen ritstjóri, hefir for-
stöðu á hendi fyrir frjettamiðstöð
. Vinstrimanna í Höfn. Hann er
fæddur 1892, og hefir verið blaða-
maður síðan 1. janúar 1914. Fyrstu
árin var hann ritstjórnarritari við
„Kolding Folkeblad“ og síðar við
„Næstved Tidende“. En síðustu
12 árin, frá 1927 hefir hann veitt
frjettastofu Vinstrimanna for-
stöðu. Árin 1923—27 var hann í
miðstjórn landssambands æsku-
lýðsfjelaga meðal Vinstrimanna.
Carl Th. Jensen, ritstjóri við
„Berlingske Tidende“. Hann er 48
ára gamall. Byrjaði hann blaða-
mensku sína árið 1913 við „Vort
Land“, eii fór skömmu síðar til
Berlingske Tidende og varð aðal-
ritstjóri við miðdagsblaðið B. T.
árið 1926. Hafði það starf á hendi
í 11 ár. En áður en hann tók það
að sjer var hann um skeið rit-
stjórnarritari við Berlingske Tid-
ende og hefir nú það starf á hendi
við kvöldútgáfu blaðsins.
Carl Th. Jensen kom hingað í
apríl í vor, ásamt frú sinni, og
voru þau hjer í nokkrar vikur.
Hefir hann skrifað margar grein-
ar í blað sitt síðan um ísland og
íslenska menn.
Hann er formaður í „Journal-
istforeningen" í Höfn, og hefir
haft þá formensku á hendi í 9 ár.
Gunnar Nielsen stjórnmálarit-
stjóri „Politiken" er maður um
fimtugt. Hann varð frjettaritari
fyrir „Fyns Venstreblad“ í Höfn
1920, og aðalritstjóri sama blaðs
1927—29. En þá tók hann að sjer
stjórnmálaritstjórn við „Politik-
en“.
Árin 1922—27 var hann í stjórn
blaðamannaf j elagsins „ J ournalist-
forbundet“ og hefir verið það síð-
an árið 1930.1 En í fyrra var hann
ltosinn formaður fjelagsins, og
varaformaður í „Danske Journal-
isters Fællesrepræsentation".
Marten Nielsen fólksþingmað-
Ur fyrir kommúnista og stjórn-
málastjóri við „Arbejderbladet“.
Var verkamður bæði við sveita-
vinnu og í iðnaði. Varð gjaldkeri
við „Arbejderbladet“ 1930, en
stjórnmálaritstjóri 1934. Kosinn á
þing í ár.
Peter Tabor ritstjóri við „So-
cial-Demokraten“. Ilann er fædd-
ur 1891, en hefir verig blaðamað-
ur síðan 1907. Á unga, aldri teikn-
aði hann í vikublöð jafnframt því
sem hann skrifaði. Var frjettarit-
ari í London haustið 1914 og
frjettaritari í Berlín 1919. Árin
1923—30 var hann ritstjóri við
blöð sósíalista á Jótlandi, en síð-
an varð hann ritstjóri að sunnu-
dagsblaði „SociaI-Demokraten“ í
Höfn og meðritstjóri þess blaðs
1934. Hefir síðan 1933 skrifað yf-
■irlitsgreinar blaðsins um innan-
landsst j ór nm álin,
Peter Tabor hefir skrifað marg-
ar smásögur og hefir komið nt
eitt bindi af „aforismum“ eftir
hann. Ennfremur hefir hann skrif
að bók um jóska málaralist.
Árið 1924 stofnaði hann „Fje-
lag jóskra nýtískumálara“. Meðan
hann var í Silkeborg átti hann
sæti þar í bæjarstjórn.
Er þá stuttlega gerð grein fyrir
stöðum og starfi þessara gesta
Blaðamannafjelagsins.
Hið íslenska Fornritafjelag.
Nýtt bindi er komið út:
Vatnsdælasaga
Hallfreðar saga, Kormáks saga, Hrómundar
þáttr halta, Hrafns þáttr Guðrúnarsonar.
EINAR ÖL. SVEINSSON gaf út.
Verð kr. 9,00 heft og kr. 16,00 í skinnbandi. Fæst
hjá bóksölum.
Aðalútsala:
Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar