Morgunblaðið - 10.09.1939, Blaðsíða 7
Sunnudagur 10. sept. 1939.
MORGUNBLAÐIÐ
7
Qagbófc
I. O. O. F. 3 = 1219118 =
Veðurútlit í Rvík í dag: NA-
gola. Bjartviðri.
Háflóð er í dag kl. 14.50.
Helgidagslæknir í dag er Krist-
ín Ólafsdóttir, Ingólfsstræti 14,
sími 2161.
Næturvörður verður þessa viku
í Ingólfs Apóteki og Laugavegs
Apóteki.
Næturlæknir verður í nótt Ey-
þór Gunnarsson, Laugaveg 98, sími
2111, og aðra nótt Gísli Pálsson,
Laugaveg 15, sími 2474.
Hallgrímsdeild, sem f eru þjón-
andi prestar Mýra-, Borgarfjarðar-
og Snæfellsnesssýslu, heldur aðal-
fund sinn á Hvanneyri um þessar
mundir. Fundurinn hófst x gær-
kvöldi og heldur áfram í dag og
á morgun. I dag messa prestarnir
í öllum kirkjum nágrennisins og
skifta sjer, tveir og tveir, á kirkj-
nrnár. Biskupinn mætir á fundin-
um og messar í dag að Lundi í
Lundareykjadal. *
Jarðarför frú Sigurlaugar Páls-
dóttur, konu Ásmundar Gestsson-
ar kenitara, fór fram í gær. Síra
Kristinn • Daníelsson ílutti hús-
kveðju, ef síra Árni Sigurðssoii
talaði í kirkjunni. M'eti.n xxr stjórn
Fríkirkjusafnaðarins báru kistuna
í kirkju, vinkonur hinnar látnu út
©g Skaftfellingar inn í kirkjugarð.
6. ferð
E.S. Nova
fellur niður. , V9, Sinith & Co.
Fyrlr börn
Sjálfblekungar 1.75
Pennastokkar 0.75
Teiknibækur 0.50
Litakassar 0.45
Blýantsyddarar 1.00
Greiður 0.50
Speglar 0.50
Skæri 0.50
Smíðatól 0.75
Dátamót 225
Hálsfestar 1.00
Töskur 1.00
Saumakassar 1.00
Svippubönd 0.75
K. Einarsson k Björnsson
Bankastræti 11.
Nýar gámmív5rur:
Baðhettur, margar teg.
Gúmmíbuxur, margar teg.
Gúmmíhanskar, margar teg.
Gúmmítúttur og
Gúmmísnuð.
Kolkrabhi í höfninni. í gær tóku
verkamenn í Slippnum eftir því,
að einhverjir fiskar óðu þar að
landi, og er betur var aðgætt, voru
þetta kolkrabbar og voru þeir
teknir með höndunum. Mun það
sjaldgæft, ef ekki eins dæmi, að
smokkfiskur kemur hjer inn í
höfn. Sennilega er þá eitthvað af
honum\ í Sundunum, og ætti menn
að reyna að ná í hann til beitú.
Golfklúbbur íslands. Kepni verð
ur í dag. Mætið; kl. 2 e. h: í Golf-
skálanum.
Glímufjelagið Ármann. Drengja-
mótið heldur áfram í dag kl. 10
f. h. Kept verður í langstökki,
kúluvarpi og 1500 m.\ hlaupi, fyr-
ir drengi innan 16 ára, og þrí-
stökki, spjótkasti og 400 m. hlaupi,-
fyrir drengi 16—19 ára.
Aðeins ein bifreiðastöð er nú
opin á næturnar eins og vitað er,
til þess að koma í veg fyrir óþarfa
bensíneyðslu. í nótt verður Bif-
reiðastöð Reykjavíkur opin, en
aðra nótt Biíreiðastöðin Geysir..
En brýnt skal fyrir fólki að nota
ekki bila til aksturs að nauð-
synjálausú.
Heimilisiðnaðarfjelagið byrjar
hin vinsælu handavinnunámskeið
;sín fyrst í næsta mánuði. Kent'
iVerður bæði í dag- og kvöldnám-
skeiðum, sem héntúg eru fyrir-
þngar stúlkur og Jþípnæðuj^
forstöðukonu ’námskeiðanna, ffú
Guðrúnu Pjétursd'óttur, Skola-
vörðustíg 11A, síöia 3345, er hægt
að fá al-lar'nánari upplýsingar frá
kl. 10—2 e. h. á daginn.
Grænlandsfarið Gustav Holm
fór frá ísafirði í gær, áleiðis til
Grænlands. Skipið fekk um 320
tonn af kolum á ísafirði, a'ð til-
hlutun ríkisstjóniarinnar.
Innanfjelagstennismót T. B. R.
hjeldu áfram í gær. f tvímennings-
kepni kvenna (meistarafl.) fóru
leikar þannig, að María Magnúsd.
og Júlíana Isebarn unnu Ástu
Benjamínsson og Unni Briem og
urðu þar með meistarar. Meistará-
mót karla (einmennings) hjelt
einnig áfram í gær og fara úrslit
fram í dag kl, 10 f, h.
Sogsvegurinn. Enn vantar nokk-
ur hundruð metra af undirbygg-
ingu á Sogsvegi til þess að hann
sje kominn í samband við akveg-
inn hjá Hrafnagjá. Er það í
Hrafnagjárhallanum sem þessi
spotti er ógerður. En nokkru meiri
ofaníburð vantar í veginn. 70
manns hafa unnið þar í sumar.
Til nýju kirkjunnar frá H. M.
25 kr., afhent síra F. Hallgríms-
syni.
Útvarpið í dag :
11.50 Hádegisútvarp.
17.00 Messa í Fríkirkjunni (sjera
Árni Sigurðsson).
19.45 Frjettir.
20.20 Hljómplötur; Yalsinn, eftir
Ravel.
20.35 Erindi; Bæjarrústirnar í
Stöng (Kristján Eldjárn stud-
ent).
21.00 Útvarpshljómsveitin leikur
(Einsöngur; Jakob Hafstein
cand. jur.).
21.35 Kvæði kvöldsins.
21.40 Danslög.
Útvarpið á morgun:
12.00 Hádegisútvai’p.
13.05 Sjöundi dráttur í happdrætti
Háskólans.
19.00 Síldveiðiskýrsla Fiskifjelags-
ins.
20.20 Hljómplötur: Ljett lög.
20.30 Sumarþættir (Guðbr. Magn-
ússon forstjóri).
20.50 Hljómplötur:
a) íslensk lög.
b) 21.20 Kvartett í Es-dixr, eftir
Schubert.
Unga íólkið, sem fer
til Reykjavfkur
Avarp til foreldra
Jeg sný máli mínu til þeirra
foreldra, sem nú fara að senda
syni sína og dætur til vetrardvalar
í Reykjavík.
Eruð þið ekki dálítið hugsjúk
út af því, hvaða áhrif borgarlífið
muni hafa á sálir barnanna, . á
framferði þeirra og framtíð alla?
Jeg er viss' um, að mörg móð-
irin kveður barnið sitt með kvíða,
biður fyrir því og biður það að
varast freistingar, glaum og soll
bæjárlífsins. Meira þyfeAt hún
ekki geta gert, og veit þó hvað
loforð unglinga geta verið hald-
lítil, þótt af heiluln hug sje gef-
in þegar heiman' er farið. Ungling
arnir vita ekki þegar þeir leggja
á stað hvað það er að vera rót-
laús í hinu margbreytta, iðandi
biejaríffi. l>ár er það oftast nær
jiending ein, hverjir það eru, sem
þeir komast í kynni við, og hafa
áferif á þá.
* Reykjavík er að mínum dómi
hvorfei verri nje betri fyrir þá,
sem hjer alast upp, heldur en, hxxn
hefir verið um mannsaldur. En
hún er drjúgum hættulegri núna
fyrir óreynda aðkomu unglinga,
heldur en hún var fyrir nokkrum
árum. Jeg skal ckki fara út í að
rekja það. Það yrði of langt mál.
En jeg vil spyrja foreldrana:
Hefir -yður aldrei komið til hug-
ar, að þjer getið trygt börnin yð-
ar fyrir vondum solli og óheppi-
legum ábrifum. borgarlífsins, án
|þess þð að leggja neinar hömlur
á frjálsræði'þeirra?
Eða er yður elrki kunnugt að
þetta er hægt?
Þjer getið trygt börnin yðar
með því móti að láta þau ganga
í stúku þegar hingað kemur. Góð-
templarareglan mun gera alt, sem
í hennar valdi stendur til þess að
forða börnum yðar frá vondum
solli, án þess að þau missi nokk-
urs í. Reglan setur ekki nein höft
á frjálsræði þeirra, heldur kennir
hún þeim að velja og hafna, eftir
því sem þjer munduð frekast
óska fyrir þeirra hönd. Hún er
þeim skóli í fjelagslegum störf-
um, þar sem þau læra margt, seín
komið getur að gagni síðar á lífs-
leiðinni, í hvaða stjétt eða stöðu
sem þau lenda. Og hún er þeim
vörn gegn hættulegasta óvininum,
áfengisnautninni, sem býður öll-
um yfirsjónum og hrakföllum
heim.
Hver stúka í Reykjavík' telcur
opnum örmum við öllum, og eigi
síst æslrufólkinu úr sveitunum,
sem hingað kemur öllum ókunn-
úgt. Hugleiðið það með yður, for-
eldrar, hvort þjer munduð ekki
vera ókvíðnari um hag barnanna
yðar, ef þau væri í Reglunni. Og
ef þjer komist að þeirri niður-
stöðu, þá blessuð sjáið þið um
að börnin yðar gangi í Regluna
undir eins og þau koma til Reykja
víkur. Þeirrar ákvörðunar mun
hvorkí yður nje þau nokkuru
sinni iðra á lífsleiðinni. Á. Ó.
ITG A Ð hvíllít Tíj
meC (rlerangnm fri *
K voldikóli
• okkar byrjar 15. sept. — Kent verður:
; íslenska, reikningur, handavinna, danska, enska
• og þýska.
j St. Jósefssystnr.
• HAFNARFIRÐI.
Námskeið í kjólasaum
hefst 15. þ. m. Þátttakendur gefi sig fram strax.
Ilenny OHósson,
Kirkjuhvoli, sími 5250.
Hinar vínsælu hraðferðir Steindórs
til Akureyrar um Akranes eru:
FRÁ REYKJAVÍK: Alla mánud., miðvikud., föstud, og sunnud.
FRÁ AKUREYRI: Alla mánud., fimtud., laugard. og sunnud.
Afgreiðsla okkar á Akureyri er á Bifreiðastöð Oddeyrar.
M.s. Fagranes annast sjóleiðina.
Nýjar upphitaðar bifreiðar með útvarpi.
Allar okkar hraðferðir eru um Akranes.
■ Á ,tff» tta isktoj x\,'r'
ޣРER EINS MEÐ
Hraðferðir B. S. A.
OG MORGUNBLAÐH).
Alla daga nema mánudaga
Afgreiðsla í Reykjavík á
BIFREIÐASTÖÐ ÍSLANDS. — SÍMI 1540.
Bifreiðastöff Akureyrar.
Hið íslenska Fomritaf jelag.
Nýtt bindi er komið út:
Vatnsdælasaga
Hallfreðar saga, Kormáks saga, Hrómundar
þáttr halta, Hrafns þáttr Guðrúnarsonar.
EINAR ÖL. SVEINSSON gaf út.
Verð kr. 9,00 heft og kr. 16,00 í skinnbandi. Fæst
hjá bóksölum.
Aðalútsala:
Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar
Morgunblaðið með morgunkailinu
Steindór
Sími 1580
Hjartanlega þakka jeg öllum, sem á einn aður annan hátt
veittu mjer aðstoð og samúð yið fráfall og greftrun konu
minnar,
SIGURLAUGAR PÁLSDÓTTUR.
Um leið vil jeg sjerstaklega votta þakkir þeim, er ljettu
henni sjúkdómsbyrðina með stöðugri hjúkrun eður annari
hjálp, sem jeg fæ ekki að verðleikum iretið.
í eigin nafni, barna, föður og annara aðstandenda.
Ásmundur Gestsson.