Morgunblaðið - 18.10.1939, Síða 4

Morgunblaðið - 18.10.1939, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 18. okt. 1939. KVENÞJOÐIN OG HEIMILIN Aðal Hfsskilyrðið er: Holt mataræði: Heilbrigður líkami TVENT er það, sem fylgist að, segir í fróðlegri grein um mataræði í „Sundhetsbladet“. Það er rjett mataræði og heilbrigður líkami. Og eitt af höfuð skilyrðum lífsins er það, að fæðan sje rjett saman sett. Til þess að líkami vor geti þrifist og veitt viðnám, heil- inn starfað og við höfum krafta í kögglum, verðum við að fá næringu, og það rjetta næringu. Verið f jafnvægi afnvægi er hlutur, sem hefir mikla þýðingu á mörgum sviðum og hver og' einn getur öðl- ast með nokkurri umhugsun og viljastyrkleik. Ilvað fegurðina snertir, er það InjÖ8' þýðingarmikið. Fólk getur t. d. verið laglegt, án þess að vera -aðlaðandi, ef það vantar jafnvægi. Hafið þið ekki tekið eftir sumu fólki, hvernig það er sífelt á iði, veit ekki hvernig það á að hafa hendur eða fætur, þýtur með fing- urna upp í hár sjer eða afm.yndar andlit sitt í fettur og brettur, svo að öðrum líður illa af að horfa á það. Þetta fólk vantar jafnvægi. Það "þarf að temja sjer þá gáfu að hafa vald yfir hreyfingum sínum, Ihvort sem það situr eða stendur — vera í jafnvægi hið innra og ytra. Það verður best gert, með því að veita bæði sjálfum sjer og öðrum athygli og lagfæra með einbeitni það sem aflaga fer. Eðlileg ró og virðuleiki í fram- komu gerir manneskjuna aðlað- andi, þó að hún sje ekki lagleg. Þó ber fyrk- alla muni að forðast •stirðlega framkomu eða reiging. Það er óeðlilegt og því Ijótt. Það eðlilega verður ávalt það skemti- legasta. Og þegar á alt er litið, mun frjálsleg og eðlileg framkoma, sem ber vott um jafnvægi, sálar og líkama, vera það, sem mest- stuðlar að því að gera manneskjuna að- laðandi, öðrum til ánægju og sjálfri henni til styrks í lífsbar- áttunni. Nýar gúmmívörnr: Baðhettur, margar teg. Gúmmíbuxur, margar teg. Gúmmíhanskar, margar teg. Gúmanítúttur og Gúmmísnuð. Lanolin-púður á brúna og sólbrenda húð. Lanolin-skin f ood. Dagkrem í eðlilegum húðbt. Sex efni eru nauðsynleg líkam- anum, ef heilsan á að vera góð. Þau eru: Kolvetni (sykur, mjölvi, lín- sterkja), fita, eggjahvítuéfni, vita- mín, málmsöltin og vatn. Kolvetni er aðallega að finna ’ korni, mjöli, grjónum, sykri, á- vöxtum og grænmeti, og halda hita og orku í líkamanum. Sama gera fituefnin, sem m. a eru í feitum fæðutegundum, eins og t. d. rjóma, mjólk, smjöri og olíum. Eggjahvítuefnin eru nauðsynleg vefjum líkamans og eru einnig orkugjafi, Um tvennskonar egg'ja- hvítuefni; er að ræða: Ur dýrarík- inu og jurtaríkinu. Hin fyrnefndu eru í mjólk, osti, eggjum, fiski, kjöti og fuglakjöti. Hin síðar- nefndu í hrauði, grautum, kartöfl- um, grænmeti, belgjurtum og hnetum: Málmsöltin eru nauðsynleg efna- skiftingu iíkamans. T. d. verður að vera járn í blóðinu, en það fær það m. a. úr eggjum, kornvöru, grænmeti og ávöxtum, Beinagrind- in og tennurnar þurfa nauðsynlega kalk og fosfor. I mjólk og osti er mikið af kalki, en aftur á móti er fosfor í fiski, eggjum, osti, mjólk, rúgbrauði, grófn hveitibrauði, bygggrjóna- og hafragraut, hnet- um og ýmsu grænmeti. Og loks fáum við ýms málmefni með því að drekka vatn. Þegar sjeð er hvaða nauðsynleg efni eru í hinum ýmsu fæðuteg- ] undum, er augljóst, að mataræðið . má ekki vera of einhliða frá degi ] til dags. Það verður að vera kjarn- gott, en framreitt á mismunandi hátt til tilbreytingar og listarauka. Mjólk, segir ennfremur í „Sund- j hetsbladet", er ein af þeim bestu fæðutegundum, sem fáanlegar eru. Hún inniheldur eggjahvítuefni, kolvetni, málmsölt og ýms vita- míh. Ilún „bvggir upp“ líkam- ann og gefur honum, orltu. Ilún er holl fyrir beinin og tennurnar. Hún inniheldur allmikið af vatni, sem nauðsynlegt er líkamanum. Og hún meltist auðveldlega. Að vísu þarf ekki að drekka hinn ákveðna skaint af mjólk. Einnig er hægt að neyta hennar í súpum og graut- um. Nýjasta nýtt er a,ð hafa ullarslá yfir klæðnaði, eins og sjest á myndinni. Einkum eru sláin lúifð í staðinn fyrir frakka á ferða- lögum. Húsmæður! Svo sem skýrt var frá hjer í blaðimi 10. þ. m. hafa rannsóknir leitt það í ljós, að Gerilsneyðing (í Stassanovjel) rýrir ekkt finnanlega C-fjörvismagn mjólkurinnar. Sýnishorn af sömu mjólk á undan og eft- ir stassaniseringu sýndu sama C-fjörvis- magn eftir gerilsneyðinguna og fyrir hana. Tvenskonar prjónamunstur i Vitið þjer...? -----— að blekblettir, sem ekki fara úr með hráum sítrónusafa, hverfa oftast nær, ef sítrónusafinn er soðinn og blettinum síðan dyfið í hann eða tauið látið sjóða með. l Síðan er það þvegið úr volgu sápn vatni og skolað vandlega. --------1 að gott er að Strjúka vaskaskinnshanskana með band- klæði, sem undið er upp úr heitu vatni, ef þeir eru harðir og stirðir eftir þvott. Þá verða þeir mjúkir og auðvelt að færa sig í þá. --------að hægt er að ná hinni brúnu „húð“, sem myndast í te- pottnm og bollum, með því að láta sterkt sódavatn standa í þeim um hríð. Já eða nei? Kona, sem á ungar dætur, hef- ir beðið kvennasíðuna fyrir eftirfarandi spurningar til ungu stúlkunnar og biður hana að svara með sjálfri sjer samviskusamlega og vita hvort hún fái ekki sam- viskubit við einhverja spuming- una. — Er mömmu þinni óhætt að koma inn í herbergið þitt, án þess að eiga von á, að finna þar alt á ringurreið ? — ITefurðu hugsun á að hafa hreina sokka tilbúna að fara í, eða ferðu heldur í sltúffuna til mömmu þinnar ? — Finst þjer að beimilisfólkið eigi að finna útidyralykilinn þinn, þegar hann er „horfinn" og fara út úr stofunni meðan þú talar í síma.? — Skilur þú baðlierbergið eftir eins og þú vilt koma að því, eða er þar alt á floti eftir þig? — Veistu, að það er ótækt að skilja eftir ösku eða sígarettu- stubba í ösknbakkanum, ? — Dettur ]>jer í hug að spyrja annað heimilisfólk, hvað það vilji hlusta á í útvarpinu og að eitt- bvað sje annað til en „jazz“? — Ertu úrill, Jjegar mamma þín biður þig um að bjálpa sjer, þeg- ar stúlkan á frí? — Eyðir þú öllum mánaðarpen- ingunum þínumi fyrstu vikuna ? — Tekur þú fram í fyrir mömmu þinni, þegar hún er að tala, og segir „nei, mamma, það var ekki svona!“ ? — Hvað lestu? Ljettmeti í viku- þlöðunum eða góðar bækur? 1. Fljettað munstur. Þetta munstur á vel við ábreið- ur til þess að hafa ofan á í barna- vögnum, sportpeysur og annað* sem á að vera hlýtt. Fitjið upp 28 lykkjur í praf- una, sem er 7 em. breið: 1. prjónn : Brugðinn. 2. prjónn: Rjettur. 3. prjónn; Brugðinn. 4. prjónn: Prjónið 4 lykkjur rj., * færið næstu 4 1. á annan prjón og látið hann vera fyrir aftan bandið, meðan þjer prjónið næstu 4 1. rj.; prjónið síðan lykkjurnar af hinum prjóninum og endurtakið munstrið á milli * út prjóninn. 5., 6. og 7. prjónn: Eins og 1., 2. og 3. prjónn. 8. prjónn: Takið 4 lykkjur á annan prjón og látið hann vera fyrir framan bandið, meðan þjer prjónið næstu 4 1. rjett. Prjónið síðan lykkjurnar, sem voru geymd- ar, rjett, og haldið þannig áfram prjóninn á enda. Þessir 8 prjónar mynda munstr- ið. — II. Gisið munstur. Hjer er annað munstur, sem er ágætt í barnaföt og slíkt: Fitjið upp 17 lykkjur í sýnis- hornið. 1. prjónn: Prjónið 3 1. rj„ sláið bandinu um prjóninn, prjónið 2 1. rj. saman — og haldið þannig á- fram prjóninn á enda. 2. prjónn: Brugðinn . 3. prjónn: Prjónið 3 I. rj„ takið 2 1. rj. saman, sláið bandinu um prjóninn, og haldið þannig áfram prjóninn á enda. 4. prjónn: Brugðinn. Þessir 4 prjónar mynda munstr- ið. — MUNIÐ — — — að þegar saumuð eru hnappagöt í þunn efni, er gott að leggja litla ljerefts- eða bómullar- pjötlu undir og sauma hnappa- gatið í gegnum bæði efnin. A þenna hátt endast hnappagötin betur en ella. — -----að til þess að draga úr lykt, sem vill koma við suðu á káli, rófum, o. s. frv., er gott að hafa litla skál eða bolla með ediki á borðinu hjá suðupottinum. •------að gamlar regnkápur er hægt að nota í poka undir sund- föt og þvottapoka. Sje pokinn klæddur öðru efni, þannig að vatnshelda efnið sje aðeins notað í fóður, getur þetta orðið lagleg- ur hlntur, sem t. d. er hægt að nota til tækifærisgjafa.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.