Morgunblaðið - 18.10.1939, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 18. okt. 1939.
MORGUNBLAÐIÐ
Hitler „vildi
reyna hvað hann
gæti sem æðsti
hershðlðingi'*
Frd frjettwritara vorum.
Khöfn í gær.
Iskýrslu, sem Sir Neville
Henderson, sem var sendi
herra Breta í Berlín þegar stríð-
ið hófst, hefir samið um síð-
Ustu atburðina, sem leiddu til
friðslita, segir hann frá fundin-
um sem hann átti með Hitler,
er Hitler sagði að hann vildi
heldur heyja styrjöld fimtug-
ur, heldur en 55 ára eða sextug-
ur.
„Mjer kom Hitler þá fyrir
sjónir“, segir Sir Neville, „eins
og hann langaði til að sýna
heiminum hvað liðþjálfinn (kor-
pórallinn) úr síðustu styrjöld
gæti gert í þeirri næstu, sem
æðsti hershöfðingi, er legði
undir sig lönd“.
Sir Neville segir, að frá því
febrúar í fyrra hafi Hitler gerst
Btöðugt fráhverfari því, að hlíta
ráðum hógværari manna í naz
istaflokknum og treyst meir og
meir á sjálfan sig. Jafnframt
hefðu þó ofstækismennirnir
flokknum von Ribbentrop, dr
Göbbels, Himmler o. fl. fært sig
upp á skaftið og með ráðstöf
unum sínum oft neytt hann ti
að taka ákvarðanir samkvæmt
þeirra yilja.
Sir. Neville skýrir frá því, að
Hitler taki úrslita-ákvörðun \
öllum málum. Einhvemtíma ljet
Göring svo um mælt að Sir
Neville, að hann og aðrir hans
nótar hefðu ekki meira að segja
þegar ákvarðanir væru teknar,
en steinarnir sem þeir stæðu á.
24. ÁGOST!
Sir Neville heldur því fram
að fyrirskipunin til hersins um
að hefja innrás í Pólland hafi
verið gefin, nokkru eftir að von
Ribbentrop kom frá Moskva 24
ágúst.
Næstu dagana hefði Hitler
beint öllum kröftum sínum ti
þess að rjúfa tengslin mil
Englands og Póllands. Hjer
skjátlaðist Hitler hraparlega
segir Sir Neville, því að hann
gerði sjer ekki grein fyrir hve
rík siðferðishneigð Breta er.
Enn dróst í þrjá daga að
styrjöldin byrjaði, vegna ti
rauna ítalskra stjórnmálamanna
til þess að fá Þjóðverja ofan af
ákvörðunum þeirra um stríð
Lýkur Sir Neville miklu lofs
orði á Ciano greifa og Signor
Attolico, sendiherra Itala í Ber-
lín, fyrir viðleitni þeirra til að
varðveita friðinn.
1 skýrslu sinni lýkur Sir Ne-
ville lofsorði á fjelagsiegar um-
bætur Hitlers í Þýskalandi.
Hann segir, að jafnvel þótt
sameiningarstarf Hitlers í Þýska
landi hafi oft verið framkvæmt
af miklum ruddaskap, þá hafi
þó verið hægt að hafa samúð
með því, á meðan rjettindi ann-
ara þjóða voru virt.
Finnar og
Rússar
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
Hefir Paasikivi látið svo uiii
mælt ,að 'Stalin hafi haft örðið á
fundinum í Moskva. Hann bætti
3vi við, að tónninn hefði verið
vingjarnlegur.
ÓTVÍRÆÐ
HLUTLEYSISPÓLITÍK.
í Helsingfors er leitast við að
finna einhvern málamiðlunargrund
v.öll, sem sje samrýmanlegur við
ótvíi’æða hiutleysispólitík.
I blöðum á Norðurlöndum er
lögð áhersla á, að það fari í bág
við sameiginlega hagsmuni Norð-
urlanda, ef Rússar halda fast við
hinar víðtæku kröfur sínar, en í
>eim sje ráðist á Finna til hlut,-
levsis.
Á morgun og fimtudag hefir það
verið boðið í öllum höfuðborgum
Norðurlanda, að flagga með öllum
fánum Norðurlandaríkjánna á op-
inberum byggingum .Kl. 18.15 síð-
degis á morgun fer fram guðs-
þjónusta í Frúarkirkju í Kaup-
maniiahöfn og flytur Sjálandsbisk-
up messu. Þessari guðsþjónustu
verður útvarpað.
Fer fram guðsþjónusta í öllum
fjórum höfuðborgum Norðurland-
anna, og verður útvarpað frá
hverjum stað.
Arásin á Royal Oak
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU
því margir druknað áður en hægt I skrá
Dagbók
Veðurútlit í Rvík í dag: Hvaas
SA. Rigning.
Næturlæknir er í nótt Daníel
Fjeldsted, Hverfisgötu 46. Sími
3272.
Bifreiðastöð íslands annast næt-
urakstur næstu nótt.
Silfurbrúðkaup eiga í dag Amia
Jakobsdóttir og Árni Magnússon,
Laugaveg 132.
Hjúskapur. Nýlega voru gefin
saman í hjónaband Elín Sigurjóns-
dóttir (Jónssonar læknis) og Þór-
arinn Sveinsson læknir. Heimili
þeirra er á Ásvallagötu 5.
Hjúskapur. S.l. laugardag voru
gefin saman í hjónaband ungfrú
Ingveldur Stefánsdóttir frá Kleyf-
um í Gilsfirði og Guðbergur Guð-
jónsson frá Ásgarði í Grímsnesi.
Heimili ungu hjónanna er á Berg-
staðastræti 34 B. Sama dag voru
gefin saman í hjónaband ungfrú
Margrjet Stefánsdóttir frá Kleyf-
um í Gilsfirði og Kári Ingvarsson
frá Markaskarði í Hvolhreppi
Heimili ungu hjónanna er á Hverf-
isgötu 59.
Trúlofun sína opinberuðu síðast
liðinn laugardag ungfrú Hulda
Elíasdóttir frá Ytra-Lágafelli, Snæ
fellsnessýslu, og Jón Bjarnason frá
Skarði, Strandasýslu.
Hjónaefni. Á laugardaginn op-
inberuðu trúlofun sína ungfrú
Magnea Magnúsd., Eyrarbakka,
og Ólafur Guðmundsson veggfóðr-
ari, Bergþórugötu 57.
Háskólafyririlestur á sænsku.
Fil. mag. Anna Z. Ostermann held-
ur fvrsta fyrirlestur sinn í kvöld
kl. 8.
Á bæjarstjómarfundi, sem hald-
inn.verður á morgun kl. 5 í Kaup-
þingssalnum, eru 10 mál á dag-
að vilja sinna þessu, geta gert að-
vart á afgreiðslu Morgunblaðsins.
Óvenjulega mikil kolkrabbaveiði
er á Akureyri þessa dagana. Frysti
húsin á Oddeyri hafa tekið á móti
til geymslu og frystingar um 1000
tunnum. (FÚ.). t
Olympíukvikmyndin. Síðari hluta
myndarinnar er nú farið að sýna
í Gamla Bíó. Fyrri hlutinn hlaut,
sem kunnugt er, hinar bestu við-
tökur. Á fyrstu sýningu síðari
hluta myndarinnar var húsfyllir
og margir urðu frá að hverfa. I
þessum kafla er mikið af skemti
legum atriðum, eins og t. d. knatt
spyrnan og „Military“-kepnin,
sundsýningamar o. fl.
Gengið í gær:
Sterlingspund 26.19
100 dollarar 651.65
— Ríkismörk 262.43
— Fr. frankar 14.97
— Belg. 109.11
— Sv. frankar 146.53
— Finsk mörk 13.14
— Gyllini 346.78
— Sænskar krónur 155.40
— Norskar krónur 148.23
— Danskar krónur 125.78
TJtvarplð í dag:
12.00 Hádegisútvarp.
19.45 Frjettir.
20.30 Útvarpssagan: „Ljósið, se
hvarf“, eftir Kipling.
ORUSTUR Á VESTUR-
VÍGSTÖÐVUNUM
21.00 Útvarpskórinn syngur. Lög
úr Requiem eftir Brahms:
a) Því gjörvalt hold það er sem
gras. b) Hve fagrir eru þínir
bústaðir. c) Því vjer eigum hjer
eiigan varandi stað.
21.20 Hljómplötur; Forleikir eftir
Chopin.
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
)essum vígstöðvum í byrjun stríðn-
ins, til baka og hafa skilið eftir
aðeins dreifðar framvarðasveitir.
Hlutverk þessara framvarðasveita
hafi verið að tilkynna sveitunum
að baki hvað Þjóðverjar hefðust
að. Þær hefðu hörfað undan, eins
og fyrir þær hafi verið lagt, þegar
Þjóðverajr sóttu fram í gær.
En árás Þjóðverja heföi
strandað á vörnum Frakka a8
baki.
Þessar vamir segja Frakkar að sje*
alllangt fyrir framan Maginotlínnna .
Þjóðverjar hafa haldið því fram, að
Frakkar hafi verið hraktir af þýekn
grund næstum á allri víglínunni. Þessw
er eindregið mótmælt í Frakklandi og
því haldið fram, að franskar heraveitir
sjeu í öruggum skotgröfum Þýskalands-
raegin við landamærin,
1 Rauðu stjörnunni, hinu op-
inbera málgagni rauða hersins
birtist grein í dag sem þykri
bera þess vott, að Rússland geri
ráð fyrir að lenda í frekari
styrjöldum. í greininni segir
m. a.: Það kom í ljós í herför-
inni til Póllands, að hand-
sprengjur eru eitt hið nytsam-
asta vopn þegar um það er að
ræða að taka með áhlaupi borg-
ir eða þorp, en það kom einn-'
ig í Ijós, að hermenn rauða
hersins þurfa að æfa sig betur í
því að kasta hátt og hæfa þök
og glugga, því að svo getur far-
,ið. að þeir þurfi mjög á þeirrí
kunnáttu að halda.
yar að koma við hjálp frá öðrum
skipum. Tölu þeirra, sem fómst,
kvað Mr. Churchill vera um 800.
SÆMDIR HEIÐIJRS-
MERKJUM.
í Þýskalandi var tilkynt í
dag, að kafbáturinn, sem sökti
,,R.oyal-Oak‘ (og hæfði „Re-
pulse“ með tundurskeyti, að
því er Þjóðverjar halda fram
þrátt fyrir mótmæli Breta),
hafi komið til heimahafnar í
morgun klukkan níu.
í hinni þýsku fregu segir, að
yfirflotaforingi Þjóðverja, von
Raeder, hafi þegar, er hann frjetti
að kafbáturinn væri kominn, farið
til þess að óska kafbátsmönnum
til hamingju með afrek þeirra.
Voru þeir allir sæmdir járnkross-
inum af fyrstu og annari gráðu.
Kafbátsforinginn var hækkaður
í tigu.
í Þýskalandi er þess minst í sam-
bandi við þetta afrek, að það var
í Scapa Flow, sem þýski flotafor-
inginn sökti þýska flotanum eftir
stríðið fyrir augunum á flotafor-
ingjum Bandamanna.
Mr. Churchill sagði í breska
þinginu í dag, að árásin á „Royal-
Oak“ gæfi ekkert tilefni til að ef-
ast um Örvggi orustuskipa. Þetta
öryggi yrð i að álíta mjög mikið
enn sem fyr.
KOLASALAN S.f.
Ingólfshvoli, 2. hæð.
Símar 4514 og 1845
Ágætar guirófur
til sölu. Verð 7 kr. pokinn.
Framnesveg 25. — Ólafur.
Forfalla- og stundakennarar.
Skólanefnd Austurbæjarskólans
hefir samþykt að ráða eftirtalda
kennara til forfalla- og stunda-
kepslu: Bergljótu Guttormsdóttur;
í handavinnu Elísabetu Helgadótt-
ur og Rannveigu Jónasdóttur; í
íþróttum Fríðu Stefánsdóttur og
Þórunni í. Claessen.
íþróttafjelag kvenna byrjar vetr
arstarfsemi sína úæstu daga. Hefir
fjelagið ráðið ungfrú Sonju
Björgu Carlson kennara í leikfimi
í vetur.
Sjálfstæðiskvennafjelagið Hvöt
heldur fyrsta fund sinn á þessum
vetri í kvöld kl. 8% í Oddfellow-
húsinu. Koma Sjálfstæðiskonur nú
enn saman, fullar af áhuga á að
efla fjelag sitt og flokk. í kvöld
er búist við f jörugum og fjölmenn-
um fundi. Thor Thors alþm. mun
flytja erindi: Frá Vesturheimi. Auk
þess verður kaffidrvkkja o. fl.
Fátækur sjúklingur hefir beðið
Morgunblaðið að spyrja lesendur
blaðsins, hvort nokkur þeirra sje
svo stæður, að hann geti sjeð af
notuðum vetrarfrakka og notaðri
regnkápu fyrir hann. Stærðin á
að vera nr. 52, og þeir, sem kynnu
oooooooooooooooooo
/
Charlotten-
laukur
og Sítrónurl
vmu
Laúgaveg 1. Sími 3555.
Útbú Fjölnisveg 2. Sími 2555.
oooooooooooooooooó
I 1 tltíi)!!(!
Timburvex’Sluit
?. \JJ. lacobsen & 5ön R.s. I
Stofnuð 18 2 4.
Sínmefni: Granfuru — 40 Uplandsgade, Köbenhavn S.
Selur timbur í stærri og smærri sendingum frá Kaup-
mannahöfn. - Eik til skipasmíða. - Einnig heila
skipsfarma frá Sviþjóð og Finnlandi
Hefi verslað við ísland í cirka 100 ár.
I
Rúðugler
Getum við útvegað frá Belgín.
Eggert Rrtst|áiissoo & Co.h.f.
Sími 1380.
LITLA BILSTOÐIN Er nokkuð stór
UPPHITAÐIR BÍLAR.
Hjer með tilkynnist að unnusti minn og sonur okkar,
JÓN VIKAR SIGVALDASON,
pípulagninganemi, verður jarðsunginn fimtudaginn 19. október
frá Fríkirkjunni. Húskveðja hefst kl. iy2 á Lindargötu 27.
Kristbjörg Ólafsdóttir.
Bmrítas Jónsdóttir. Sigvaldi J. Sveinbjörnsson.