Morgunblaðið - 31.10.1939, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 31. okt. 1939.
MGRGUNBLAÐIÐ
7
Sfötugur:
Eyjótfur Jónsson
fyrv. bankastjóri
Eyjólfur Jónsson konsúll,
fyrverandi bankastjóri á
■Seyðisfirði er sjötugur í dag.
Hann er Austfirðingur að
ætt, og hefir alið mestan hluta
aldurs síns á Seyðisfirði. Hann
fór ungur utan og nam skradd-
araiðn í Noregi og síðar ljós-
myndagerð í Kaupmannahöfn.
Settist svo að á Seyðisfirði að
námi loknu, rjett eftir 1890, og
stundaði báðar þessar starfs-
greinar af miklum dugnaði og
smekkvísi. Það bar brátt mikið
á hinum unga manni í opinberu
lífi á Seyðisfirði og í viðskipt-
um austanlands. En um þessar
mundir var Seyðisfjörður hels'ta
samgöngumiðstöð landsins og
þaðan voru rekin víðskipti víðs-
veg-ar um landið. Voru þeir
bræður, Stefán Th. og Eyjólf-
air forustumenn um þau við-
skjpti.
Þegar stofnað var útibú frá
íslandsbanka á Seyðisfirði 1906,
varð Eyjólfur útibússtjóri. Var
það almannarómur að honum
færist stjórn þess prýðilega og
að hann sýndi í því starfi sjer-
staka hyggni, röggsemi og ár-
vekni. En þegar hinar pólitísku
öldur risu hæðst, hjer á árun-
um og grönduðu íslandsbanka,
skildi Eyjólfur við útibúið, en
hann hafði þá stýrt því í 24 ár.
Eyjólfur hefir verið mikið við
opinber mál riðinn og gegnt
fjölda trúnaðarstarfa. Engum
manni mundi, um Iangt skeið,
hafa orðið auðveldara að ná í
Seyðisfjarðarkjördæmi en hon-
um, en hann gaf þess aldrei
kost. En hann hefir setið
þar í bæjarstjórn í 36 ár og er
það ef til vill mest hjer á landi.
Meðan hann og þeir er fylgdu
honum að málum rjeðu mestu
um málefni bæjarnis, famaðist
honum vel. En önnur öfl hafa
nú borið hærri hlut um skeið,
og minni gifta fylgt. Eyjólfur er
mælskur vel, rökviss og allóvæg
inn andstæðingum sínum.
Hann er glæsilegur maður og
hressilegur í framkomu, enda
fjörmaður mikill, hnyttinn og
glaðvær í kunningjahóp. Hann
hefir þó, eins og flestir, orðið
að ,,sigla hann nokkuð brattan
stundum“, en ekki sjer það, eða
hin 70 ár, á honum. Hann er
stæltur og hréyfur enn þá. S.
Knattspyrnufjel. Víkingur held-
nr framhaldsaðalfund sinn í kvöld
kl. 8 í Oddfellowhúsinu.
330 þús.
dilkum
slálrað
OOfj þúsund dilkum er búið
að slátra á þessu hausti
og er það um 20 þús. færra en í
fyrra.
Slátrun er þó ekki að fullu lok-
ið ennþá. Dilkar hafa yfirleitt ver-
ið vænni nú, en í fyrra. Meðal
kjötþungi þeirra er 14.42 kg., en
var 14.21 kg. í fyrra.
Mestur meðalþungi dilka var á
Hvammstanga, 17.34 kg., þá á
Borðeyri. 17.31 kg., Hólmavík,
17.21 kg. í Búðardal var meðal-
þunginn 16.41 kg., en þar er nýr-
mör allur burtu tekinn, en ann-
arsstaðar ekki. Eru þyngstu dilk-
arnir því sennilega í Búðardal.
Á suðurf jörðunum á Austurlandi
hafa dilkar reynst Ijettari nu én
í fyrra. Allstaðar. annarsstaðar
hafa þeir revnst þyngri.
FINNAR OG RUSSAR
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
Nohkuð meiri hj a rtsýti i gætir' í
Helsingfors. Þar hefir verið tekíð
með miklum fögnuði ummælum,
sem höfð eru eftir ^Stalin á þá leið,
að Rússar hafi engan hug á að
skerða sjálfstæði Finnlands.
í gær komu 200 finskír söng-
menn saman í Helsingfors og
gengu til bústaðar ameríska sendi-
herrans. Hyltu þéir hann með söng
og safnaðist þarna múgur og
margmenni.
Frá anteríska sendiherrahústaðn-
um var haldið til þústaða Norð-
úrlandasendiherrauna þriggja og
þeir hyltir.
Herbergi
með húsgögnum, sem næst Mið-
bænum, óskast yfir þingtímann.
STEFÁN STEFÁNSSON,
alþingismaður,
Hótel Skjaldbreið.
MUNIÐ; Altaf er það best
KALDHREINSAÐA
ÞORSKALÝSIÐ nr. 1
með A og D fjörefnum, hjá
SIG. Þ. JÓNSSYNI
Laugaveg 62. Sími 3868.
Dagbót?
íxj Helgafell 593910317—IV-V
—2.
Veðurútlit í Ryík í dag: Stinn-
ingskaldi á SV. Skúrir.
Næturlæknir er í nótt Eyþór
Gunnársson, Laugaveg 98. Sími
2111.
Næturvörður er í Reykjavkíur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.
Bifröst, sími 1508, annast næt-
akstur næstu nótt.
40 ára er í dag Jakob Magnús-
son húsgagnasmiður frá Vopna-
firði ,nú til heimilis á Bústaða-
bletti 16.
Hjúskapur. Síðastl. laugardag
voru gefin saman í hjónaband af
síra Árna Sigurðssyni Sigrún Júlí-
usdóttír og Þóroddur Jónsson stór-
kaupmaður. Heimili þeirra er á
Hávallagötu 1.
Frk. Helga Thorlacius hefir í
dag, eftir kl. 5, til sýnis í sýn-
ingargluggum Hressingarskálans
smurt brauð með allskonar íslensk-
um jurtum, grænmeti og osti," er
hún hefir útbúið og er á boðstól-
nm í skálanum í dag og kvöld.
Lúðvík Guðmundsson, Grettis-
götu 58, hefir verið veitt löggild-
ing til rafvirkjunar við lágSpennu-
kerfi í Reykjavík, með vehjuleg-
um skilmálum.
M, A.-kvartettinn söng í Gamla
Bíó á sunnudaginn við húsfylli og
bestu viðtökur. Nýju lögin, sem
kvartettinn söng, vöktu sjerstaka
hrifningu og urðu fjórmennmgarn-
ir að endurtaka þau öll. Næsta
Söngskemtun M. A.-kvartettsins
verður næstkomandi fimtudag kl.
7 í Gamla Bíó.
„Litli píslarvotturinn^. Aldrei
hefir „Rauða akurliljan“, hin
fræga söguhetja Orezy barónessu,
Sir Percy Blakeney, verið jafn
hætt kominn ög í þessari sögu, er
hann freistar að bjarga „Litla písl-
arvættinum“, hinum ókrýnda leon-
ungi Frakka Lúðvík XVII., úr
fangelsinu í Temple. Einn fjelaga
hans svíkur hann og gleymir skyld
unni, blindaður af ást--en
um það fjallar ságan. Hún byrjar
í dag og ættu lesendur að fylgjast
með frá upphafi, til þess að missa
ekkert. úr af hinum spennandi æf-
intýrum „Rauðu akurliljunnar",
sem allir hljóta að dást að.
Alliance Francaise byrjar vetr-
arstarfsemi sína í kvöld með fundi
í Oddfellow. Ræður flytja þar ræð-
ismaður Frakka Voillery, og frk.
Thora Friðriksson. Frú Annie C.
Þórðarson syngur og síðan verður
dansað.
Farfuglafundur verður haldinn
í Kaupþingssalnum í kvöld kl.
Ma.rgt til skemtunar. Ungmenna-
fjelagar fjölmennið og takið með
vkkur gesti.
Skömtunarseðlarnir. í dag eru
síðustu forvöð fyrir bæjarbúa, að
fá skömtunarseðla fvrir nóvember.
I gær var búið að úthluta um 30
þiis. seðlum, af um 37 þúsundum.
Skömtunarskrifstofa bæjarins,
Trvggvagötu 28, er opin til kl. 7
í kvöld.
OOOOOO0000000-0000-«
| HarBfiskur 1
| Riklingur |
i Vi5in |
Y Laugavey i Sími 3566. A
X Útbú Fjölnisvog 2. Sími 2555. 0
óoooooooooooooo <x>o
Nýja Bíó sýnir þessi kvöldin
ameríska kvikmvnd frá Warner
Bros, sem látið er mjög vel yfir,
enda á hún það fyllilega skilið.
Myndin á erindi til margra, bæði
fullorðiima og barna, og þó eink-
um foreldra, er vanrækja börn sín.
Bonita Granville, sem er 15 ára
gömul, leikur „vandræðabarnið“
og gerir það prýðilega.
Útvarpið í dag-:
19.20 Erindi Fiiskifjelagsins: Hag-
nýting fiskiafurða í stórum ver-
stöðvum (Ólafur Björusson
kaupm.).
20.30 Einar Benediktsson skáld 75
ára,:
a) Kvæði (Þorst- Ö. Stephen-
son).
b) Erindi (Sigurður Nordal
próf.),
c) Útvarpshljómsveitin leikur.
d) Kvæði (Þorst. Ö. Stephen-
sen).
e) Útvarpskórinn syngur.
Atvinnuleysisskýrslur.
Samkvæmt lögum um atvinnuleysisskýrslur fer fram
skráning atvinnulausra sjómanna, verkamanna, verka-
kvenna, iðnaðarmanna- og kvenna í Goodtemplarahúsmu
við Templarasund 1., 2. og 3. nóv. n.k. kl. 10—8 að kvöldi.
Þeir, sem láta skrásetja sig, eru beðnir að vera við-
búnir að gefa nákvæmar upplýsingar um heimilisástæður
sínar, eignir og skuldir, atvinnudaga og tekjur á síðasta
ársf jórðungi, hve marga daga þeir hafi verið atvinnulausir
á síðasta ársfjórðungi vegna sjúkdóms, hvar þeir hafi haft
vinnu, hvenær þeir hafi hætt vinnu og af hvaða ástæðum,
hvenær þeir hafi flutt til bæjarins og hvaðan.
Ennfremur verður spurt um aldur, hjúskaparstjett,
ómagafjölda, styrki, opinber gjöld, húsaleigu og um það í
hvaða verkalýðsfjelagi menn sjeu. Loks verður spurt um
tekjur manna af eignum mánaðarlega og tekjur konu og
barna.
Borgarstjórinn í Reykjavík, 30. okt. 1939.
; , " j
Pgetur Halldórsson.
Vegna jarðarfarar
verður skrifstofa mín
lokuð frá hódegi í dag.
Ólafur Þorgrímsson, iögfræðingur.
Hjer með tilkynnist vinnm og vandamönnnm að
ekkjan ÞORBJÖRG JÓNSDÓTTIR,
frá Hvammi í Kjós, andaðist þann 29. okt. á Landakotsspítala.
Aðstandendur.
Það tilkynnist að hjarkær eig-inkona mín og móðir,
GUÐRÍÐUR GRÍMSDÓTTIR,
andaðist að heimili sínu, Leifsgötu 6, 29. þ. m.
Sveinn Hallgrímsson. Halldór Sveinsson.
I