Morgunblaðið - 22.11.1939, Blaðsíða 8
8
jíöorjgttttMaWO
Miðvikudagur 22. nóv. 1939L .
ITLl PÍSLARVOTTURINN
„Já, hann er klaufi — finst yð-
nr það ekki?“, spurði hún gletnis-
lega. „Jæja, Heron borgari“, bætti
iiún við í ákveðnum róm. „Þjer
drekkið nú kaffi með okkur.
María frænlía kemur á hverri
stundu með það. Hector“, sagði
5xún og sneri sjer að Armand.
„Komdu niður úr skýjunum og
biddu Maríu frænku að flýta sjer
ineð kaffið“.
etta var í fyrsta skifti sem
Heron var vinsamlega boðið
til kaffidrykkju, þar sem hann
ko:m| til þess að elta bráð sína. Og
hann furðaði sig nú enn meira á
elskulegu viðmóti Jeanne og ósk
hennar um það, að hann dveldist
lengur á heimili hennar. De Batz
hafði áreiðanlega átti við Englend-
ing, en þessi frændi hennar frá
Orleans var Frakki í húð og hár.
Ef það hefði verið einhver ann-
ar en de Batz, sem hafði komið
með ákæruna, hefð Heron án efa
verið varkárari. En formaður vel-
ferðarnefndarinnar tortrygði þann
mann meira en nokkurn annan í
Prakklandi, þ.ó þægi hann mútur
af honum. Og alt í einu datt hon-
am í hug, að de Batz hefði ef til
vill gabbað hann, til þess að fá
hann burt frá Temple á ákveðn-
nm tíma. Hann sá de Batz fyrir
sjer, vera að læðast. inn í bústað
hans og steía Íykíunum. Vörður-
inn var sljófur og kæruláus, og
þíræfinn æfintýramaður eins og de
Batz gat auðveldlega leikið á
hann! \
Öll tortrygni hans snerist um
de Batz og hann þóttist viss í sinni
sök. Hefði hann ekki verið hálf
blandaður af ótta um það, að prins-
inn myndi flýja úr Temple, myndi
hann áreiðanlega hafa gefð Arm-
and meiri gaum. En nú var hon-
nm það ávalt ríkast í huga og
Armand var fyrir honum ekki ann-
að en heimskingi — leikari! Og
hann var ekki Englendingur!
Heron spratt á fætur og af-
þakkaði boðið. Hann vildi komast
í burtu hið allra fyrsta. Leikarar
nutu sjerstakrar verndar yfir-
valdanna, þar sem þeir skemtu
fólkinu á milli hryðjuverkanna og
höfðu engin áfskifti af stjórnmál-
um.
n Jeanne ljek við hvern sinn
fingur eins og áður, meðan
hún reyndi að lesa úr grimdar-
legum svip fjandmannsins.
Hún vissi, að það var Armand,
sem Heron hafði ætlað að hitta.
De Batz hlaut að hafa svikið
hann í trygðum. En hún beitti
FramhaldssagH 17
iniiimiiiiiimiiuiiiiimiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiir
öllu því snarræði, dirfsku og sjálfs
stjórn, sem hún átti til vegna
hans. Og hún hjelt áfram að leika
hlutverk sitt, þó fyndist henni
sem hjarta sitt gæti á hverri
stundu brostið eins og strengur,
þaninn til hins ýtrasta.
Hún stríddi Heron með því hvað
hann ætti annríkt, bað hann þó
að bíða einar fimm mínútur eftir
kaffinu. Og til þess að gera hann
órólegan og fá hann til þess að
fara sem fyrst, stríddi hún honum
líka með prinsinum litla.
„Mjer fanst það mikill heiður,
að þjer skylduð meira að segja
gleyma Capet litla, til þess að
vera við frumsýningu mína í gær-
kvöldi“, sagði hún og brosti blíð-
lega.
„öleyma Capet'/', svaraði Her-
on og bölvaði í hljóði.
„Jeg gleymdi honum ekki eina
sekúndu! Jeg verð að flýta mjer!
Það er setið um hann eins og kett-
ir um :mýs. Verið þjer sælar, borg-
ari, jeg hefði átt að koma með
blóm — en jeg er svo bundinn,
þrælbundinn og kvalinn maður!“
„Jeg veit það“, svaraði hún og
kinkaði kolli alvarleg í bragði. „En
komið í leikhúsið í kvöld, Heron
borgari. „Jeg á að leika eitt af
allra bestu hlutverkum mínum“.
„Já, já, jeg kem, og þó, það er
ekki víst. En nú verð jeg að fara.
Það var gaman að sjá yður. Hvar
býr frændi yðar annars?“, spurði
hann alt í einu.
„Hann býr hjerna“, svaraði hún
hiklaust.
„Það er ágætt. Látið hann til-
kynna komu sína á morgun og fá
vegabrjef. Það eru ný lög, og það
er best, að þjer fáið vegabrjef
líka“.
„Þakka yður fyrir. Við Hector
komum þá á morgun, og María
frænka kannske líka. Þjer megið
ekki senda okkur undir fallexina
fyrst um sinn“, bætti hún við
gletnislega. „Þið fáið ekki fljót-
lega eins góða leikkonu og mig“.
Hún var stöðugt jafn fjörug og
eðlileg og fylgdi Heron sjálf til
dyra. Þegar hún sá mennina tvo,
sem biðu hans fyrir utan, þóttist
hún verða undrandi, en henti jafn-
framt gaman að því, að liann
skyldi liafa fylgdarlið.
„Þjer eruð eins og aðalsmaður“,
sagði hún. „Jeg er hreykinn að
sjá svo marga borgara í húsi mínu.
Jæja, þjer komið þá í leikhúsið
í kvöld og gleymið ekki, að dyrn-
ar inn í leikaraálmuna standa yð-
ur ávalt opnar“.
Hún hneigði sig fyrir honum og
hann gekk út, :með „blóðhundana“
tvo á hælunum. Síðan lokaði hún
hurðinni, og stóð kyr um stund
og hlustaði eftir fótataki þeirra.
Loks 'heyrði hún, að þeir voru
komnin út á götu og snerti aftur
inn í stofu.
10. kapítuli.
Syrtir að.
ftirkostin eftir hina miklu
taugaofraun og geðshrær-
ingu voru óhjákvæmileg. Jeanne
varð alt í einu svo máttvana, að
hún gat varla staðið á fótunum
og skjögraði.
Armand hljóp til móts við hana
og tók hana í faðm sinn.
„Jeg elska þig og á þjer líf
mitt að þakka. Ó, hvað þú ert
yndislega fögur og hugdjörf. Jeg
elska þig“, hvíslaði hann.
En hún gat nú ekki stilt sig
lengur. Hún hjúfraði sig upp að
honum og grjet:
„Þú verður að fara frá París
þegar í stað. Jeg veit, að hann
kemur aftur. Og þú ert ekki ör-
uggur, fyr en þú ert kominn á
enska grund“.
Maður nokkur stendur upp frá
borði í veitingahúsi, færir
sig í frakka og er í þann veginn
að fara út er maður gengur til
hans og spyr kurteislega:
— Afsakið, eruð þjer Jón Sig-
urðsson stórkaupmaður frá Akur-
eyri.
— Nei, svaraði maðurinn for-
viða.
— Þetta vissi jeg, en þjer eruð
nefnilega að fara í frakkami hans
°g Jeg er Jón Sigurðsson frá Ak-
ureyri.
★
Tohn Drydon var kvæntur Elisa-
beth Howard, en hann hugsaði
meira um bækur sínar heldur en
hina fögru konu sína. Þetta varð
til þess að konunni leiddist, dg
dag nokkurn gat hún ekki stilt
sig lengur heldur sagði gremju-
lega við bónda sinn :
— Jeg vildi að jeg væri bók,
þá myndir þú skifta þjer meira
af mjer heldur en þú gerir nú.
— Já, elskan mín, svaraði eigin-
maðurinn, og helst almanak.
— Almanak? Hvers vegna?
— Vegna þess að þá værir þú
ný á hverju ári.
★
Heyrnardaufur. herforingi, sem
stjórnaði virki einu, hafði lagt
sig ef-tir mat. Skotfærageymslan
sprakk í loft upp á meðan gamli
maðurinn svaf og hann vaknaði
við hvellinnj
— Kom inn! varð hermanninum
að orði.
★
— Þjónn! Það hefir einhver
stolið hattinum mínum.
—i Það gæti verið að maðurinn,
sem sat þarna í horninu hafi tekið
hattinn yðar.
— Það er mjög líklegt. Mjer
fanst hann svo kunnuglegur er
hann gekk út.
★
Ferðamaður kom á veitingahús
uppi í sveit og í smjörinu var
langt kvenmannshár. Ferðamaður-
inn sagði við húsmóðurina.
— Gjerið svo vel að bera smjör-
ið og hárið á borð hvort fyrir sig.
Jeg^ kann best við að blanda því
sjálfur.
★
íri einn var spurður hvers vegna
hann væri ávalt í svartri skyrtu.
— Yegna þess að hún er altaf
jafn hreinn.
★
Maður einn hrækti á gólfið í
strætisvagni. Bílstjórinn segir úr-
illur.
— Vitið þjer ekki að það er
bannað að hrækja hjer. Getið þjer
ekki lesið það sem stendur á skilt-
inu?
— Það er nú ekki hægt að fara
eftir öllu' á skiltunum hjer í þess-
um vagni, bílstjóri góður, svaraði
maðurinn ofur rólega. Þarna á
einn skiltinu stendur: „Notið
brjósthaldara“. Notið þjer kann-
ske brjósthaldara, bílstjóri?
★
— Heldur þú, að nokkurntíma
verði friður meðal mannanna
barna?
— Nei, konau mín gengur aldr-
ei inn á það.
En Armand hafði um alt annað
að tala. Hann kysti burtu tárin,
þakti andlit hennar og hendur með
kossum og hvíslaði yndislegum ást-
arorðum í eyra henni.
Þannig leið tíminn, án þess að
þau vissu af og brátt fór að
skyggja. Anmand var heillaður af
ást hennar og yndisþokka og eins
og í vímu og- blómailmi í stof-
unni. Uti fyrir var alt hljótt, en
hinum megin við götuna var nú
kveikt á li-tlu ljóskeri, svo að
birtuna lagði inn í stofuna.
Armand stóð á fætur.
„Þú elskar mig líka?“, hvíslaði
hann, og hann var ekki í vafa um
svarið, er hann sá augnaráð henn-
ar. —
Loks kom María frænka með
lampaljós inn, í stofuna, og
þá sátu þau þögul og hjeldust í
hendur eins og börn. En hin titr-
andi rödd gömlu konunnar vakti
þau upp til veruleikans, og ótti
Jeanne um manninn, sem hún elsk-
aði, var vakinn á ný.
„Líf þitt er í hæftu“, sagði hún.
„Jeg gleymdi því, að hið dýrmæta
líf þitt er í hættu — —“
Framh.
IO. G. T.
Afmælisfagnaður St. „Eining-
in“ er í kyöld. Fundur hefst
kl. 8. Að honum Íoknum verður
mjög fjölbreytt skemtun. Ein-
ingarfjelagar og aðrir templar-
ar geta fengið aðgöngumerki
frá kl. 6 síðd.
REYKHÚS
Harðfisksölunnar við Þvergötu,
tekur kjöt, fisk og aðrar vörur
til reykingar. Fyrsta flokks
vinna. Sími 2978.
HERBERGI
til leigu fyrir einhleypan mann
Freyjugötu 4, niðri.
SMURT BRAUÐ
fyrir stærri og minni veislur.
Matstofan Brytinn, Hafnar-
stræti 17.
Silrónur
nýkomnar. Þorsteinsbúð, Grund-
arstíg 12, sími 3247. Hringbraut
61, sími 2803.
ÍSLENSKT BÖGLASMJÖR
Hnoðaður mör. Harðfiskur,
vel barinn. Þorsteinsbúð, Hring-
braut 61, sími 2803, Grundar-
stíg 12, sími 3247.
ATHUGIÐ
Kvenhanskar frá kl. 10,00,
herra-hanskar frá frá 11,00. —
Lúffur á börn og ^ullorðna með
bæjarins lægsta verði. Einnig
ínikið úrval af fallegum kjóla-
spennum. Hanskinn, Lækjar-
,'götu 4.
Blóm & Kransar h.f.
Hverfisgötu 37. Sími 5284. —
Bæj.;rins lægsta verð.
SALTVÍKUR gulrófur
góðar og óskemdar af flugu og:;
maðki. Seldar í 1/1 og pok-
um. Sendar heim. Hringið í
síma 1619.
REYKJAVÍKUR
APÓTEK
kaupir daglega meðalaglös,.
smyrslkrukkur (með loki), hálf1
flöskur og heilflöskur.
KÁPUR OG FRAKKAR
fyrirliggjandi. Einnig sauma®
með stuttum fyrirvara. Gott
snið! Kápubúðin, Laugaveg 35»
MEÐALAGLÖS, FLÖSKUR
Fersólglös, Soyuglös og Tómat-
flöskur keypt daglega. Spariíí
milliliðina og komið beint til
okkar ef þið viljið fá hæst»
verð fyrir glösin. Við sækjunr
heim. Hringið í síma 1616. —
Laugavegs Apótek.
ÞORSKALÝSI
Laugavegs Apóteks viðurkenda.
meðalalýsi, fyrir börn og full-
orðna, kostar að eins 90 aur»
heilflaskan. Lýsið er svo gott*
að það inniheldur meira af A-
og D-fjörefnum en lyfjaskrái®-
ákveður. Aðeis notaðar ster«í
ilar (dauðhreinsaðar) flöskur,
Hringið í síma 1616. Yi& sendt-
um um allan bæinn.
DÖMUFRAKKAR
ávalt fyrirliggjandi. Guðin.
Guðmundsson, klæðskeri. —
Kirkjuhvoli.
KALDHREINSAÐ
þorskalýsi sent um allan bæ. —
Björn Jónsson, Vesturgötu 28-.
Sítni 3594.
Kaupum allskonar
FLÖSKUR
hæsta verði. Sækjum að kostrp-
aðarlausu. Flöskubúðin, Hafnar-
stræti 21, sími 5333.
KAUPUM FLÖSKUR
stórár og smáar, whiskypelai.
glös og bóndósir. Flöskubúðin*
Bergstaðastræti 10. Sími 5395*.
Sækjum. Opið allan daginn.
VENUS SKÓGLJÁI
mýkir leðrið og gljáir skóna af-
burða vel.
VENUS-GÓLFGLJÁI
afburðagóður og fljótvirkur. —-
Ávalt í næstu búð.
FRIGGBÓNIÐ FlNA,
er bæjarins besta bón.
SLYSAVARNAJELAGIÐ,
skrifstofa Hafnarhúsinu við’
Geirsgötu. Seld minningarkort,
tekið móti gjöfum, áheitum, árs-
tillögum o. fl.
VANTI YÐUR KENNARA
tjl að lesa með barni yðar, eða.
til þess að koma því í lestur, þá
hringið í síma 1799, milli kl.
1—2 og 8—9 e. h.
KENNI ENSKU
Albert Goodman, GarðastrætL
33. Sími 4360.