Morgunblaðið - 30.11.1939, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 30. nóv. 1939.
Molotoff biður rússneska herinn og flotann að vera viðbúinn
Rússar slíta stjórnmála-
Þýsk flugvjel
nauðlendir
I Færeyjum
-- eftir sjóorustu við
Noregsstrendur?
Frá frjettcuritara vorum.
Khöfn í gær.
f-1 ýsk ^hernaðarflugvjel nauð-
lenti í Færeyjum í dag.
Önnur þýsk sjóflugvjel nauð-
lenti við Noreg, skamt fyrir sunn-
an Haugasund í dag. Aður en
flugvjelin lenti sást ýmsum mun-
um kastað úr henni í sjóinn og
er talið að það hafi verið skjöl
flugmannanna o. fl.
Flugmennirnir hafa verið kyr-
settir.
Talið er að flugvjelar þess-
ar hafi e. t. v. verið að koma
frá sjóorustu, sem sagt er að
háð hafi verið undan Noregs-
ströndum í morgun.
Fregnir um þessa orustu hafa
borist frá Osló og er talið að hún
hafi verið háð milli allmargra her-
skipa óg flugvjela.
Norskir sjóliðsforingjar segja
að leiftur frá skothríðinni hafi
sjest greinilega (skv. FÚ.).
Við austurströnd Englands sló
í dag í bardaga milli þýskrar
Heinckel-flugvjelar og breskrar
flugvjelar, sem hóf sig á loft þeg-
ar óvinaflugvjelarinnar varð vart.
Tókst. breska flugmanninum að
bera hærra hlut yfir hinum þýska
andstæðing sínum.
Frá því loftárásin var gerð á
Firth of Forth 16. október síðast-
liðinn, hafa breskir flugmenn
skotið niður 23 þýskar flugvjelar,
sem gert hafa tilraunir til loft-
árása á Bretland (skv. Lundúna-
fregn FÚ.).
Göbbels aðmíráll
sökkvir bresku
beitiskipi
- segja Bretar
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Því er mótmælt í London í|
dag, aÖ nokkru bresku |
beitiskipi af hinni svonfendu
Lundúnagerð hafi verið sökt.
Þýska herstjórnin endurtekur
þó í dag fregnina um þetta sem
þýsku blöðin birtu í gær.
„Daily Express“ birtir fregn-
ina í dag og segir:
Dr. Göbbels aðmíráll sökkvir
bresku beitiskipi.
Með tundurskeyti? Nei, fjarri
því. Með öldum útvarpsins!
Kort af Finnlandi. Kyrjálanes er
á milli Ladogavatns og Finnlands-
flóa, þar sem landamærin liggja,
skamt norður af Leningrad.
sambandi við Finna
Tilkynt áður en Finnar
gátu afhent svar sitt
Bandaríkin býóðast til að
• i.
reyna að miðla málum
KLUKKAN 20.30 í gærkvöldi (eftir Mið-Evróputíma) fór aðstoðarutan-
ríkismálaráðherra Rússa, Potemkin, á fund finska sendiherrans í Moskva,
Yrjö-Koskinens baróns, og tilkynti honum, í nafni rússnesku stjórnar-
innar, að hún hefði ákveðið að slíta stjórnmálasambandinu við Rússland — þ. e. kalla
sendiherra sinn í Helsingfors heim. • ,
Klukkutíma síðar flutti Molotoff, utanríkismálaráðherra Rússa, ávarp til rúss-
nesku þjóðarinnar í útvarp og skýrði frá því að stjórnin hefði sjeð sig til neydda
að stíga þetta spor, vegna ögrana Finna í garð Rússa.
Hann sagði að rússneska hernum og rússneska flotanum hefði verið gefin fyrir-
mæli um að vera viðbúnir að mæta öllu því ,sem að höndum kynni að bera.
SÍÐASTA TILRAUNIN SEGJA ÞJÓÐVERJAR
Fregnir frá Helsingfors í gærkvöldi herma, að þar hafi þessum atburðum
verið tekið með dásamlegri ró.
Meðal stórveldanna í Evrópu hefir hvergi verið látin í ljós nein skoðun um þetta
síðasta skref Rússa — nema í Þýskalandi, Þar birtir hin opinbera þýska frjettastofa
(D. N. B.) fregnina með þeim ummælum, að hjer sje um síðustu tilraunina að ræða
til þess að leiða deilur Finna og Rússa friðsamlega til lykta.
EKKI BEÐIÐ SVARS FINNA
Tilkynning Rússa um að slíta stjórnmálasambandinu við Finnland var birt áður en Finnar
gátu afhent svar sitt við orðsendingu Rússa 'frá því í gær um uppsögn þeirra á finsk-rúss-
neska griðasáttmálanum. Finska stjórnin hafði þessa orðsendingu til yfirvegunar í gærkvöldi
og aftur í dag og var svar stjórnarinnar símað til finska sendiherrans í Moskva í kvöld. Síð-
degis í dag hafði sendiherrann tilkynt Molotoff í klukkustundar samtali, sem sagt var opinber-
lega að hefði farið vinsamlega fram, að hann myndi afhenda svarið persónulega þegar í stað
og hann hefði fengið það.
En rás viðburðanna hefir nú gert þetta svar úrelt?
1 ávarpi sínu í rússneska útvarpið í kvöld sagði Molotoff, að Rússum hefði ekki tekist að
ná samkomulagi við finsku stjórnina, þrátt fyrir allar tilslakanir af þeirra (Rússa!) hálfu. En
Molotoff ljet þess að vísu ekki getið, hverjar þessar tilslakanir væru.
RÚSSAR HAFA ENGA LANDVINNINGA í HUGA
Molotoff lýsti yfir því, að markmið Rússa væri aðeins að tryggja lífsnauðsynlega hags-
muni sína, en að þeir hefðu enga landvinninga í huga og að þeir myndu að öllu leyti virða
hagsmuni annara þjóða í Finnlandi. Finska stjómin hefði neitað að skilja þessa hagsmuni Rússa.
Rússar neyddust því til þess að grípa til sinna eigin ráða til þess að sjá til þess að þeir yrðu
virtir, en að því búnu kvaðst hann sannfærður um að gott samkomulag til frambúðar myndi
takast milli finsku þjóðarinnar og Rússa.
Hjer reyndi Molotoff, eins og rússnesku blöðin hafa raunar gert undanfarna daga, að láta
líta svo út, sem ágreiningur sje á milli finsku stjórnarinnar og finsku þjóðarinnar, en þessu
hefir hvað eftir annað verið rækilega mótmælt af mönnum af öllum flokkum og stjettum í
Finnlandi.
BANDARÍKIN BJÓÐAST TIL AÐ MIÐLA MÁLUM
Nokkrum mínútum áður en kunnugt varð um ákvörðun Rússa um að slíta stjórn-
málasambandi við Finna, bárust fregnjr frá Bandaríkjunum um að stjórnin í Was-
hington hefði tjáð sig reiðubúna til að taka að sjer að reyna að miðla málum milli
Finna og Rússa. Er þetta í annað sinn á nokkrum vikum, sem Bandaríkin sýna vinar-
hug sinn í garð Finna.
Cordell Hull, utanríkismálaráðherra Bandaríkjanna, setti fram þessi boð, eftir að hafa
ráðgast við Roosevelt og finska sendiherrann í Washington. Hann sagði að Bandaríkin myndu
harma það mjög ef styrjöldin í Evrópu breiddist út.
Ekki er búist við, að Roosevelt muni reyna aftur persónulega að skakka leikinn, eins og
hann gerði fyrir nokkrum vikum. -
Þegar fregnin um boð Bandaríkjastjórnar kom til London, gaf breska utanríkismálaráðu-
neytið út tilkynningu, þar sem boðinu er fagnað, og lýst yfir því fyrir hönd bresku stjórnarinnar,
að hún hafi ávalt litið svo á, að ekkert í sambúð Finna og Rússa rjettlætti það, að þessar þjóð-
ir gripu til vopna hvor gegn anriari.
Á samkomu í London, þar sem finski sendiherrann var staddur í dag meðal annara, var
hann hyltur af þeim sem viðstaddir voru. Sir John Simon flutti ræðu á þessari samkomu og
notaði tækifærið til þess að víkja viðurkenningarorðum að hinni hugdjörfu finsku þjóð.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
— í stuttu máli —
Kaffl- og sykur-
skOmtun hætt
I Noregi?
Kaffi og sykurbirgðir eru nú
svo miklar fyrir hendi í
Noregi, að kaupsýslumaður
nokkur, er mest flytur inn af
þessum vörutegundum hefir
komist svo að orði, að þess
megi vænta, að skömtun á þess-
um vörutegundum verði afnum-
in áður langt líður. NRP—FB.
Fárviðri í Norðursjó
t/S Ragni kom til Hauga-
sunds í gær eftir að hafa
lent í hinu mesta fárviðri á
Norðursjó.
Skipstjórinn segist aldrei
hafa lent í öðrum eins sjógangi
á siglingaleiðum á Norðursjó og
hafi verið mikið rekald á sjón-
um.
Ekki hefir enn verið unt að
rannsaka þetta til neinnar hlít-
ar. NRP—FB.
Ástralía sendir
20 þús. manns
til Evrópu
Astralía ætlar að senda eitt
herfylki (20 þús. manns)
til Evrópu og er það væntanlegt
til Englands snemma á næsta
ári. Verður það sennilega sent
til Frakklands í apríl.