Morgunblaðið - 30.11.1939, Side 6
6
MOEGUNBLAÐIÐ
Aðalfundur Skaíita-
fjelagsins
A ðalfundur Skautafjel. Reykja-
víkur var haldiiui í Oddfell-
owhúsinu í gærkvöldi. Öll stjórn
fjelagsins var endurkosin, en hana
skipa Kristján Einarsson fram-
kvæmdastjóri formaður, frú Katrín
Viðar varaformaður, Björn Þórð-
arson ritari og ísabella Isebarn
gjaldkeri.
Auk þess var kosinn einn svell-
vorður, svo að þeir eru nú tyeir:
Eyþór Ólafsson (sími 5426) og
Gúðmundur Guðmundsson (sími
2395). Er það ósk fjelagsstjórn-
arinnar að til þessara manna verði
leitað með öll málefni er varða
skautasvellið.
Auglýsing
um styrk úr Sængurkonusjóði Þórunnar Á. Björnsdóttur,
Ijósmóður.
í lok desembermánaðar næstkomandi verður í fyrsta
sinn úthlutað styrk úr Sængurkonusjóði Þórunnar Á.
Björnsdóttur, ljósmóður. Tilgangur sjóðsins er að ljetta
fátækum konum í Reykjavík sængurleguna á fæðinga-
deild Landsspítalans. Giftar konur og ógiftar geta fengið
styrkinn, en þó því aðeins, að þær standi ekki í skuld fyrir
þeginn sveitarstyrk, er veittur hefir verið á síðustu þrem-
ur árum, áður en leitað er styrks úr sjóðnum, og fylgi
vottorð borgarstjóra í Reykjavík um það.
Þær sængurkonur, er legið hafa á fæðingadeild Lands-
spítalans á árinu 1939 og uppfylla framangreind skilyrði,
sendi umsóknir sínar til skrifstofustjórans í dómsmála-
ráðuneytinu fyrir 20. desember næstkomandi.
SJ ÓÐST JÓRNIN.
Vfelsljórar,
sem lokið hafa hinu meira vjelstjóraprófi, og vilja gefa
kost á sjer í utanlandssiglingar, tilkynni það á skrif-
stofu Vjelstjórafjelagsins í Ingólfshvoli nú þegar.
VJELSTJÓRAFJELAG ÍSLANDS.
Herfang Breta
Breska siglin<íaeftirlitið stöðv-
aði eða lagði hald á 21.500
smálestir af vörum, sem áttu að
fara til Þýskalands s.l. viku. Þar
af voru 12.000 smálestir olíuvörur.
Fyrstu 12 vikur styrjaldarinnar
hafa Bretar stöðvað vörusending-
ar til Þýskalands, sem voru að
magni 463.000 smálestir, þar af
yfir 100.000 smálestir olíuafurðr.
(FÚ),
Þrettán menn fórust er skipið
Rubslow, 1000 smálestir, rakst á
tundurdufl í fyrradag við suð-
austurströnd Englands, og sökk á
2 mínútum. (FÚ.).
Til Hallgrímskirkju í Saurbæ.
Frá síra Þorst. B. Gíslasyni 10 kr.
Gold Medal
Hveiti
í ÍO Ibs.
sekbjum
er fyrflrliggfandi.
H. Benediktsson & Co.
Sími 1228.
0000000000000000<C>0000000000000000000<
Grámann
er besta barnabókfln.
Fæst hjá bóksölum.
0
0
0000000000000000000-0>000000000<C>000000<
Vaxtaskatlur
FRAMH. AF FIMTU SÍÐU
brjefanna er dregið frá tekjum
þeirra á næstu 5 árum eftir að
salan hefir farið fram, en þetta
er þó til tjóns og óþæginda fyrir
skattborgarann, og ejns og ríkið
gjörir kröfu til þess að fá skatt
sinn greiddan, eins hlýtur það að
vera krafa skattgreiðandans að
ríkið gangi ekki á rjett hans.
★
Með því fyrirkomulagi seir np
er á innheimtu skatts af. skuida-
brjefum sem trygð eru með veði
í fasteignum og gefin eru út af
einstaklingum, má geta þess eins
og í greinargerðinni stendur, að
skattheimtan byggir þar á nokkuð
öruggum grundvelli og stafar það
af ódugnaði skattheimtunnay ef
að þar koma ekki öll kurl til
grafar.
Þar sem greinargerðin telur að
sá sem skiftir á ríkisverðbrjefum
fyrir ofannefnd skuldahrjef að
sjjettu telji sjaldan af sjálfsdáð-
fram afföll af slíkum brjefum, þá
her að vekja athygli á því, að í
mjög mörgum tilfellum er ekki
um nein afföll að ræða, þar sem
sumar tegundir ríkisverðþrjefa
hafa með sjerstökum lögum verið
gerðar að 100% greiðslumiðli og
hafa einstaklingar og stofnanir
verið skyldaðar til þess að taka
þessi verðbrjef með nafnverði
þeirra. Þó að þessum verðbrjefum
sje síðar breytt í önnur, þannig
að til hagshóta sje fyrir báða að-
ila, koma áfföll ekki til greina
fyrir þann aðilann, sem skulda-
brjefin kaupir.
í Noregi hafa verið gjörð lög
um vaxtaskatt, en gefist illa, þar
sem þau hafa valdið fjárflótta úr
peningastofnunum landsins og
orðið ástæða fyrir aukinni seðla-
útgáfu, þar sem' fólk hefir hall-
ast að því ráði, að geyma fje sitt
í heimahúsum og þannig gjört
það óarðbært fyrir þjóðfjelagið.
Virðist því ekki ástæða til þess að
taka það upp í íslenska löggjöf,
sem illa reynist hjá öðrum þjóð-
um, enda munu forráðamenn ís-
lenskra peningastofnana hafa kom-
ið auga á fjárflóttahættuna og
munu undantekningalítið vera
mótfallnir þessu frumvarpi.
Mjer þykir rjett að benda hjer
á það tjón sem peningaeigendur í
landinu hafa þegar orðið fyrir á
þessu ári. Síðan í byrjun apríl-
mánaðar hafa íslenskir peningar
fallið í verði miðað við erlenda
mynt, sem nemur yfir 30 aurum
af hverri 'krónu, að vísu hefir
þessa verðfalls ekki gætt eins mik-
ið innanlands og búast hefði mátt
við, en enginn vafi er á því að ef
að st.yrjöldin heldur áfram inun
kaupmáttur íslenskra peninga
minka til muna og þýðir það að-
eins aukið tjón fyrír þá sem pen-
ingana eiga.
Jeg vil að lokum taka það fram,
að hættan, sem yfir vofir verði
frumvarp þetta samþykt, er fólg-
in í minkandi sparsemdarviðleitni
almennings, fjárflótta úr hönkum
'Og sparisjóðum, en afleiðingin af
því yrði aftur minkandi rekstrar-
f.je til' framleiðslutækja þjóðarinn-
ar, aukin seðlaútgáfa, sem verka
jcyndi sem mínus og önnur ófyr-
irsjáanleg óþægindi.
Aron Guðbrandsson.
Fimtudagur 30. nóv. 1939.
Tveir möguleikar : Strlð - eða
Cajander segir af sjer
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
Snemma í gær höfðu fregn-
ir borist frá Finnlandi á þá leið,
að finska þjóðin biði með undra
verðri ró næsta skrefsins sem j
Rússar kynnu að stíga, vitandi
það, að ekkert væri líklegra en
að hið næsta skref yrði innrás
Rauða hersins.
Ymsir höfðu búist við að
næsta skrefið myndi verða úr-
slitakostir, þar sem settar væru
fram allar kröfurnar, sem Rúss-
ar hafa u,ndanfarið gert á hend-
ur Finnum.
Það var auðvitað gert ráð
fyrir, að Finnar myndu vísa þess
um úrslitakostum á bug. En eft-
ir það gerðu menn ráð fyrir, að
Rússar myndu herða til muna á
kröfum sínum.
■I.
RJETTUR HINS STERKA.
Sænska blaðið „Stokkholms-
tidningen", vekur athygli á því
að Rússar sögðu upp griðasátt-
málanum við Finna, einmitt þeg-
ar hann átti í fyrsta skiftið að
koma til framkvæmda.
í sáttmálanum er svo ákveð-
ið, að gerðardómur skuli skera
úr, ef ágreiningur rís um
framkvæmd hans.
Blaðið undirstrikar að Rúss-
ar haldi óhikað og grímulaust
uppi rjetti hins sterkara gagn-
vart þeim, sem minni máttar er.
Á sama hátt vekja öll blöð á
Norðurlöndum athygli á hirðu-
leysi Rússa um að halda gerða
samninga. Blöðin ljúka upp
einum munni um það, ^ð hrósa.
hinni virðulegu og festulegu
framkomu Finna, sem geri ekki
annað en að standa á augljós-
um rjetti sínum.
Blöðin í Ítalíu og Spáni
votta Finnum mikla sam-
úð. Þannig skrifar ítalska
blaðið „Corriere Padano“
(sem sagt er vera málgagn
Balbos) að ítalir dáist að
hinni virðulegu framkomu
Finna, er þeir bjóði byrg-
inn „risanum með leirfæt-
umar“.
TVEIR MÖGULEIKAR.
En frá Moskva voru allar
fregnir í dag eins og undan-
farna daga herskáar mjög.
Meðal almennings í Rússlandi
ríkir sú skoðun, að málinu verði
til lykta leitt á einn eða annan
hátt næstu daga, eða jafnvel
næstu klukkustundir.
í því sambandi hefir komið
fram sú tilgáta, að Rússar þori
ekki að bíða lengur fram á
veturinn, því að höfnina í her-
skipalagi þeirra í Kronstadt
geti þá og þegar lagt.
Yfirleitt telja Rússar að ekki
sje nema um tvo möguleika að
ræða: Annaðhvort að Finnar
láti undan eða stríð.
Engin friðsamleg lausn er
hugsanleg — þannig tala menn
í Moskva — nema að Cajander
biðjist lausnar.
„SIÐUÐ FRAMKOMA“.
Blöðin í Rússlandi krefjast
þess, að nú verði látið til skarar
skríða og segja að þolinmæðin
sje á þrotum. Og rússnesku h‘r
mennirnir, sem streymdu til
landamæranna í nótt hrópuðu:
Malið stríðsæsingamennina.
Moskva-útvarpið skýrir frá
því, að hermennirnir á landa-
mærunum hafi gert samþykt
um að „þeir biðu aðeins eftir
skipun til þess að troða finsku
bandittana undir fótum“.
„Hin bláu augu rauðu her-
mannanna gneista af rjettlátrj
reiði yfir ósvífni Finnlands (seg-
ir Moskvaútvarpið skv. E.Ú.) og
þeir kreppa stæltar hendur utan
um byssuskeftin og krefjast
þess að fá að verja land sitt og
kenna Finnum siðaða framkomu
í garð Sovjet-Rússlands“.
Stalin
§ strlðjð^
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
ranska Havas-frjettastofan
birtir fregn um það,
'að Stalin hafi Iátið orð falla á
fundi í miðstjórn kommúnista-
flokksins á þá leið, að bann
óskaði, að styrjöldin milli Þýska
lands og Vestur-Evrópu-þjóð-
anna stæði sem lengst, svo að
báðir stríðsaðilarnir örmögnuð-
ust í henni.
Stalin hefir nú sjálfur svar-
að þessari fregn í Pravda.
Hann telur frjettina „helber-
an uppspuna kaffihúsastjórn-
málamanna Havas-frjettastof-
unnar“.
Til stuðnings máli sínu segir
Stalin að það hafi ekki ve.ið
Þjóðverjar, sem byrjuðu stríðið;
heldur Bretar og Frakkar.
Nokkru eftir að stríðið byrjaði
hefðu Þjóðverjar komið fram
með friðarboð, sem haft hefði
fullan stuðning Sovjet-Rússa.
En þessum tillögum hefðu VeM-
ur-Evrópuþjóðirnar vísað á bug.
Þjóðverjar og Rússar hefðu
með endurteknum friðarboðum
sínum sýnt vilja sinn til þess, að
binda enda á stríðið hið fyrsta.
★
Aths. Já, Stalin hefir sannar-
lega óbeit á styrjöldum — eða
hvað segja Finnar?
STYRKTARSJÓÐUR
SÆNGURKVENNA
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
fórna öllu sínu mikla starfs-
þreki yfir langa ævi, nótt með
degi, til hjálpar og hjúkrunar;
oft án þess að þiggja endur->
gjald, og margoft færandi gjaf-
ir inn á fátæk heimili; heldui^
sparaði hún alt sem hún gat
sjálfri sjer til handa og safnaði
í sjóð til gjafa handa fátækum
fæðandi konum, eftir sinn dag.