Morgunblaðið - 30.11.1939, Síða 8
I
8
LITLI PISLARVOTTURINN
höfðu verkað eins og köld vatns-
gusa á Armand. Honum fanst hann
vera afvopnaður. Mótstaða hans
hvarf eins og dögg fyrir sólu og
hann fann aðeins til skömmustu-
tilfinningar og vanmáttarkendar.
Ilann settist niður í stól, studdi
olnbogunum á borðið og huldi and
Jitið í höndum sjer. Blakeney gekk
til hans og klappaði hojium vin-
gjarnlega á öxlina.
„Hið erfiða hlutverk, Armand“,
sagði hann blíðlega.
„Getur þú ekki leyst mig frá
því, Percy? Hún bjargaði lífi mínu
og jeg hefi enn ekki þakkað henni
fyrir það“.
„Þú munt síðar fá tíma til að
þakka henni. En núna eru villi-
dýrin að kvelja konungssoninn“.
„Það mun ekkert skaða þig þó
jeg verði eftir“.
„Forsjónin veit, að þú hefir þeg
ar skaðað okkur nægjanlega“.
„Með hverju?“
„Þú segir, að hún hafi bjargað
lífi þínu . . . Þú hefir þá verið í
hættu staddur . . . Heron og njósn
arar hans hafa verið á hælum
þjer . . . Þín spor liggja til mín og
jeg héfi svarið að frelsa litla kon-
unginn úr höndum þessara ræn-
ingja . • • Ástfanginn maður, Ar-
mand, getur gert okkur mikið
tjón. . . Þessvegna verður þú að
fara frá París við sólarupprás í
fylgd með Hastings og framkvæma
hið erfiða og hættulega hlutverk
þitt“.
„Og ef jeg neita?“ spurði Ar-
mand. \
„Kæri vinur“, sagði Blakeney
alvarlega, „í hinni ágætu orðabók
sem fjelagsskapur Rauðu akur-
liljunnar hefir búið til, er ekki til
sögnin að neita“.
' „En ef jeg skyldi 1 nú sa.ut
neita?“ sagði Armand.
,.Þá hefðir þú ekki annað að
bjóða þeirri konu, sem þú segist
elska, en ærulaust mannorð þitt“.
„Og þú heimtar af mjer hlýðni“.
„.Jeg heimta, að þú standir við
orð þín og eið“.
„En það er illmannlegt — hrotta
le gt“.
„Heiðurinn, kæri Armand, er
oft og tíðum hrottaJegur og sjald
an góðlegur. Iíann er guðdómleg
svipa, og við, sem viljum vera
karlmenn. erum allir þrælar henn-
ar“.
„Hrotíaskapurinn er aðeins frá
þjer. Þú gætir gefið mjer frí, ef
þú vildir“.
nHIHIIIUIIIIIIIUIUIIIIIHmmiiMtlMIMHIIHMlllHH****'
Framhaldssagn 23
MlllllltllllllllllllllttllllllltllllllllllllllllllllllllllllllMR
„Og til þess að uppfylla eigin-
gjarna ósk, vilt þú að jeg stofni
lífi þeirra manna, sem treysta
imjer^ í hættu“.
„Guð má vita, hvernig þú hefir
unnið traust þeirra. Gagnvart
mjer ertu harður og eigingjarn“.
„Nú hefir þú fengið hið erfiða
hlutverk, Armand, sem þú óskað-
ir þjer“, var alt, sem Blakeney
svaraði svívirðingunum, — „að
fara eftir skipunum foringja, sem
þú ekki treystir lengur“.
En þetta var of mikið fyrir Ar-
mand. Hann var reiður og sár, en
í hjarta sínu var hann trúr þeim
foringja, sem hann hafði virt og
haft mætur á lengi.
„Fyrirgefðu mjer, Percy“, sagði
hann auðmjúklega. „Jeg er alveg
frá mjer. Jeg held jeg hafi ekki
vitað, hvað jeg var að segja. Yit-
anlega treysti jeg þjer . . . full-
komlega . . . og þú þarf ekki að
vera hræddur um að jeg gangi á
loforð mín, þó mjer finnist fyrir-
skipanir þínar harðar og eigin-
gjarnar . . . jeg skal hlýða . . .
þú þarft ekkert að óttast“.
„Jeg geri það heldur ekki, kæri
vinur' ‘.
„Þú skilur vitanlega ekki . . .
þú getur ekki skilið ... Heiður
þinn, það hlutverk, sem þú hefir
tekið þjer fyrir hendur hefir ver-
ið einasta ástríða þín . . . Ást í
orðsins fylstu merkingu þekkir þú
ekki . . . það sje jeg núna . . . Þú
veist. ekki hvað það er að elska“.
Blakeney svaraði ekki strax.
Hann stóð grafkyr um stund og
hugsaði eins og hann væri að
hugsa um eitthvað, sem væri langt
í burtu.
Hann hugsaði heim til Englands
\r\
?p/nu
Rúmenar gæta mjög vel hlut
leysis síns og yfirvöldin
hafa eftrlit með blöðunum, að þau
birti ekbi neitt, sem vakið geti
misskilning um, að verið sje að
draga taum annars stríðsaðiljans
á kostnað hins.
Nýlega birtust í blaðinu „Sema-
lul“ í Bukarest 2 myndir af bros
andi börnum. Undir annari stóð
„Adolf Hitler“ og undir hinni
„Marie Gustave Gamelin“.
Blaðið hafði ætlað að birta
mynd af Gamelin, hershöfðingja
Frakka sem barni, en yfirvöldin
tóku í taumana og sögðu, að ekki
mætti birta myndina, nema birt
yrði mynd af „frægum þýskum
tnanni í sömu aðstöðu“.
★
—■- Þjer eruð ákærður fyrir að
hafa slegið járnsmiðinn í höfuðið
með stærstu sleggjunni, sem til er
í smiðjunni, og þjer segið sjálfur,
að hann hafi skipað yður að gera
það. Þetta er mjög ótrúlegt.
— Nei, herra dómari, hann
sagði sjálfur: Sjáðu, nú tek jeg
glóandi járn úr eldinum og þeg-
ar jeg hneigi höfuðið, þá slærðu
á það með stóru sleggjunni af
öllu afli.
★
Ung frú kom á dögunum út úr
fæðingardeild sjúkrahúss eins í
Árósum. Hún bar tvíbura sína
sitt á hvorum handlegg og um
leið og hún steig upp í bíl, sem
beið hennar, hjólaði sendisveinn
framhjá og kallaði til hennar:
— Iss, María, þú hefir hamstr-
að!
★
Joe Galento, hnefaleikamaður-
inn ameríski, sem kallaður he|ir
verið „boxandi öltunnan“, sýndi
á dögunum blaðamönnum, hve
hann væri högghaíður. Hann sló
sándpoka af króknum, sem pok-
inn hjekk á og barði fjóra blaða-
menn með einu höggi, svo þeir
fjelluj í öngvit.
-Ir
Samkvæmt hagskýrslum New
York borgar fæðist þar í borg-
inm eitt barn á hverjum 5 mínút-
um. 34 manns farast daglega í uim-
ferðaslysum.
og sá fyrir sjer lystigarð í Rich-
mond, þar sem undurfögur kona
sat og horfði fram fyrir sig stór-
mm, sorgbitnum augum. Hann and-
varpaði þunglega og sagði rólega:
„Ef til vill er þetta rjett hjá
þjer, Armand, jeg veit kanbske
ekki hvað það er að elska“.
Armand sneri sjer við og ætl-
aði að fara. Hann þekti Percy
það vel, að hann vissi, að hann
hafði sagt sitt síðasta orð. Ilonum
hafði aldrei dottið í hug að ganga
á orð sín, en hann hafði ætlað að
reyna að snúa Percy til að láta
hann hafa annað hlutverk.
Armand var sannfærð.ur um, að
með því að fara frá París mundi
hann missa Jeanne, en honum datt
ekkiÁ hug þessvegna að segja upp
hollustueiði við foringja sinn.
Hann þorði ekki að brjóta upp
á þessu máli á ný.
„Jeg býst við að hitta hina niðri
og tala við Hastings um, hvernig
við eigum að haga okkur í fyrra-
málið. Góða nótt, Percy“.
„Góða nótt, kæri vinur. En það
er alveg satt, þú hefir enn ekki
sagt mjer hvað hún heitir“.
„Hún heitir Jeanne Lange“,
sagði Armand. Hann hafði ekki
ætlað að segja alt leyndarmál sitt.
„Unga leikkonan við Theatre
Francais?"
„Já. Þekkir þú hana?“
„Aðeins að nafni til“.
„Hún er falleg, Percy, og hrein-
asti engill . . . Hugsaðu um Mar-
guerite systur mína, . . . Ilún var
líka leikkona . . . Góða nótt,
Percy“.
„Góða nótt“.
Þeir tókust fast í hendur. Ar-
mand leit enn einu sinni bænar-
augum á foringja sinn, en Blak-
eney var jafn harður og ljet eng-
an bilbug á sjer finna. Armand
stundi þungan um leið og hann
gekk út.
Framh.
I. O. G. T.
ST. FRÓN NR. 227.
Fundur í kvöld kl. 8. Dagskrá:
1. Upptaka nýrra fjelaga. 2.
Ýms mál. — Að loknum fundi
hefst kynningarkvöld, með
skemtiatriðum, undir stjórn
hagnefndar. Fjelagar eru beðn-
ir að taka með sjer spil og tafl.
Fjelagar, fjölmennið og mætið
í kvöld kl. 8 stundvíslega.
STÚKAN FREYJA NR. 218.
heldur fund annað kvöld (föstu-
dag 1. des.) kl. 8V2 e. hád.
Venjuleg fundarstörf. Að fundi
loknum verður skemtun fyrir
stúkufjelaga og aðra Templara!
Skemtiatriði: 1. Skemtunin sett,
Árni Guðmundsson, 2. Erindi,
1. des. og sjálfstæðisbaráttan,
Helgi Sæmundsson, 3. Upplest-
ur, Guðjón Halldórsson, 4. Ein-
söngur,EinarSturluson, 5. Dans:
Fjelagar, fjölmennið og mætið
stundvíslega. Æ.t.
SajXClð-furulií
SJÁLFBLEKUNGUR
,,Pelikan“, hulsturslaus, tapað-
ist á miðvikudagsmorguninn 29.
þ. m. á leiðinni frá Tjarnar-
götu að Kennaraskóla. Skilist í
Tjarnargötu 3, uppi.
ÍUŒtfnninqav
VENUS SKÓGl.JÁf
mýkir leðrið og gljáir skóna aí
burða vel.
VENUS-GÓLFGLJÁI
afburðagóður og fljótvirkur. —
Ávalt í næstu búð.
HJÁLPRÆÐISHERINN.
í kvöld kl. 8V2 Hljómleika-
samkoma. Föstud. 1. des. kl.
8V2 Opinber hátíð. (Heimila-
samb. sjer um undirb.). Adj. S.
Gísladóttir stj. Veitingar. Lúðra-
flokkur og strengjasveit 0. fl
Aðg. 50 aur. Velkomin!
ZION, Bergstaðastr. 12 B.
Munið vakningasamkomurnar.
1 kvöld talar Jóhannes Sigurðs-
son. Allir velkomnir.
FRIGGBÓNIÐ FÍNA,
er bæjarins besta bón.
HJÁLPIÐ BLINDUM
Kaupið minningarkort Bóka-
sjóðs blindra, fást hjá frú Mar-
en Pjetursdóttur, Laugaveg 66,
Körfugerðinni og Blindraskól-
anum.
VANUR MIÐSTÖÐVAR-
KYNDARI
óskast til að taka að sjer kynd
ingu á miðstöð. Upplýsingar á
Hringbraut 67.
TEK AÐ MJER ALLSKONAR
VJELPRJÓN.
Jónína Halldórsdóttir, Oðins
götu 32 B.
SNlÐ OG MÁTA
Dömukápur, dragtir, dag-
kjóla, samkvæmiskjóla og alls
konar barnaföt. Saumastofan
Laugaveg 12, uppi (inng. frá
Bergstaðastræti). Símar 2264
og 5464.
ÓSKA EFTIR
litlu verslunarplássi við eða í
miðbænum. Tilboð sendist af-
greiðsul blaðsins fyrir laugar-
dagskvöld, merkt 1940.
JCaujis&apuc
KARTÖFLUR OG GULRÓFUR
í pokum og lausri vigt. Góðar
0g ódýrar. Þorsteinsbúð, Grund
arstíg 12, sími 3247. Hringbraut
61, sími 2803.
ISLENSKT BÖGLASMJÖR
Hnoðaður mör. Harðfiskur.
vel barinn. Þorsteinsbúð, Hring-
braut 61, sími 2803, Grundar-
stíg 12, sími 3247.
MÚSIKHEFTI
í ódýru og fjölbreyttu úrvali.
Bókabúð Vesturbæjar, Vestur-
götu 21.
• BLÓM
mikið úrval.
Kaktusbúðin,
B Laugaveg 23. Sími 1295.
SPARTA- DRENGJAFÖT
Laugaveg 10 — við allra hæfi.
Fimtudagur 30. nóv. 1939.
JÓLAGJÖF
Lítið persneskt gólfteppi til
sölu. Ásvallagötu 17 I.
DÖMUKÁPUR
og vetrarfrakkar kvenna. Fall- -
egt úrval. Ágætt snið. VersL.
Kristínar Sigurðardóttur.
SILKIUNDIRFATNAÐUR
kvenna. Fallegt úrval. Verð frá.
9,85 settið. Versl. Kristínár Sig-
urðardóttur, Laugaveg 20 A.
TELPU- og DENGJASOKKAR
Vandaðir ullarsokkar fyrir telp-
ur og drengi. Margar stærðir.
Versl. Kristínar Sigurðardóttur.
KVENTREYJUR
margar tegundir, vönduð vinna.
Versl. Kristínar Sigurðardóttur.
REYKJAVlKUR
APÓTEK
kaupir daglega meðalaglös,
smyrslkrukkur (með loki), hálf
flöskur og heilflöskur.
Blóm & Kransar h.f.
Hverfisgötu 37. Sími 5284. —
Bæjarins lægsta verð.
KÁPUR OG FRAKKAR
fyrirliggjandi. Einnig saumað
með stuttum fyrirvara. Gott
snið! Kápubúðin, Laugaveg 35.
MEÐALAGLÖS, FLÖSKUR
Fersólglös, Soyuglös og Tómat-
flöskur keypt daglega. Spariíf
milliliðina og komið beint tilí
okkar ef þið viljið fá hæsta
verð fyrir glösin. Við sækjúm i
heim. Hringið í síma 1616.-
Laugavegs Apótek.
ÞORSKALÝSI
Laugavegs Apóteks viðurkenda .
meðalalýsi, fyrir börn og full-
orðna, kostar að eins 90 aura
heilflaskan. Lýsið er svo gott,
að það inniheldur meira af A-
og D-fjörefnum en lyfjaskráin:
ákveður. Aðeis notaðar ster+
ilar (dauðhreinsaðar) flöskur.
Hringið í síma 1616. Við send>
um um allan bæinn.
DÖMUFRAKKAR
ávalt fyrirliggjandi. Guðm.
Guðmundsson, klæðskeri. ---
Kirkjuhvoli.
KALDHREINSAÐ
þorskalýsi sent um allan bæ. —
Björn Jónsson, Vesturgötu 28.
Simi 3594.
Kaupum allskonar
FLÖSKUR
hæsta verði. Sækjum að kostn-
aðarlausu. Flöskubúðin, Hafnar-
stræti 21, sími 5333.
KAUPUM FLÖSKUR
stórar og smáar, whiskypela^
glös og bóndósir. Flöskubúðin,.
Bergstaðastræti 10. Sími 5395.
Sækjum. Opið allan daginn.
KOPAR KEYPTUR
í Landsmiðjunni.
FORNSALAN, Hverfisgötu 49
sélur húsgögn o. fl. með tæki-
færisverði. Kaupir lítið notaða-
muni 0g fatnað. Sími 3309:
HARÐFISKSALAN,
Þvergötu, selur saltfisk nr. 1,
2 og 3. Verð frá 0,40 au. pr..
kg. Sími 3448.
SALTVlKUR GULRÓFUR
góðar og óskemdar af flugu oar
maðki. Seldar í 1/1 og V2 pok-
tira. Séndar heim. Hringið f
síma 1619.