Morgunblaðið - 06.02.1940, Blaðsíða 2
■1
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 6. febrúar 1940.
Lokaþálðurinn I hinni mishepnuðu
sókn Rússa fyrir norðan Ladogavatn
Nýr stórsisfur Finna
%J o ■>-
15-20 þús. manna herdeíld Rússa „þurktið út“
En Rússar hafa
hafið nýja sókn
á Kirjálaeiði
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
INNAR hafa ennþá einu sinni unnið stórsigur
á Rússum. Þeir hafa, að því er segir í Reut-
ersfregn frá Helsingfors, bókstaflega þurkað
út 18. rússnesku herdeildina, sem hafði verið króuð inni
hjá Kitelá fyrir norðan Ladogavatn, í meir en viku.
Það er talið að þarna hafi fallið eða verið teknir til
fanga 15—20 þús. Rússar. Sigur þessi er kórónan á hina
glæsilegu vörn Finna fyrir norðan Ladogavatn; hann
leiðir líka í ljós hversu gersamlega sókn Rússa á þessum
vígstöðvum hefir farið út um þúfur.
VÍGI TEKIÐ AF RÚSSUM
Fregnir um þenna sigur kemur ofan á aðra fregn sem barst
fyr í kvöld, um sigur Finna fyrir norðvestan Ladogavatn. Þar
hafa þeir tekið, að því er segir í hernaðartilkynningii finsku
herstjórnarinnar í kvöld, raiftgert vígi sem Rússar höfðu í sín-
um höndum. Flestir þeirra 500 rússnesku hermanna, sem til
varnar voru, fjellu, hinir voru teknir til fanga.
Finnar tóku 7 skriðdreka, 18 vjelknúin farartæki, 30 vjel-
byssur og annað herfang.
Oll sund að iok-
ast fyrir Dönum
— og þá vantar eldsneyti
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
önsku sundin eru öll að lokast vegna ísa.
Samgöngur um Stórabelti og um sundið milli
Kaupmannahafnar og Málmeyjar hafa fyrir löngu
stöðvast. En nú er óttast að Kattegat lokist af ís,
áður en, sólarhringur er liðinn.
ísbrjótar eru að reyna að brjóta sjer leið að 10
flutningaskipum, sem sitja föst í ís í Kattegat.
Isinn og kuldarnir hafa haft í för með sjer elds-
neytisskort, svo að stappar nærri, að til stórvandræða
horfi. Verð á koksi hefir undanfama máfnuði hækkað
þrefalt vegna stríðsins. En nú hefir koksverðið enn
hækkað um næstum 50 hundraðshluta, vegna ísalag-
anna.
Mörg íbúðarhús hafa ekkert eldsneyti lengur;
verður fólk þess vegna að hafast við í óupphituðum
íbúðum.
Margir eldsneytiskaupmenn hafa selt allar birgð-
ir sínar. Skortur á matvælum hefir líka gert vart við
sig (skv. F.Ú.), a. m. k. á sumum tegundum í hinum
stærri bæjum.
NÝ SÓKN
En eftir ósigurinn fyrir norðan Ladogavatn hafa
Rússar byrjað nýja sókn fyrir sunnatt vatnið á Kirjála-
eiðinu, aðallega hjá Sumaa um miðbik Mannerheimlín-
unnar. Er búist við að markmið Rússa sje að hefja nú
áhlaup á alla Mannerheimlínuna og reyna að brjótast
í gegn, hvað sem það kostar, til þess að rjetta við veg
og virðingu rauða hersins.
Sókn þessi hófst fyrir 4 sólarhringum og er undirbúin af
Vorosjiloff sjálfum, yfirhershöfðingja rauða hersins. Er litið
svo á, að þetta sje ákafasta sókn, sem Rússar hafa gert frá
því að stríðið hófst.
Að minsta kosti 3 þús. Rússar hafa fallið.
En Vorosjiloff virðist stöðugt fá liðsauka, svo að hann gefur
sent fram hverja herdeildina af annari af óþreyttu liði.
LÁTLAUS STÓRSKOTAHRÍÐ
Rússar halda uppi látlausri stórskotahríð á vígstöðvar
Finna. Til viðbótar við stórskotahríðina tefla þeir fram 500 flug-
vjelum, sem varpa niður sprengjum yfir vígstöðvarnar.
Aðstaða Rússa til sóknar er
góð, þar sem mýrar og fen, sem
Finnar hafa haft sjer til
varnar, eru nú frosin, svo að
jafnvel þungir skriðdrekar geta
farið yfir þau.
En Finnar hafa hvergi hörfað
undan.
LOFTÁRÁSIR
Rússar hafa haldið áfram loft
árásum sínum yfir helgina.
1 síðustu viku vörpuðu þeir
niður 5000 sprengjum á 150
staði. Sumstaðar voru loftárásir
gérðar oftar en einu sinni og á
einum stað 9 sinnum æ ofan í æ.
1 loftárásum þessum hafa 145
manns farist og 180 særst. 20
sjúkrahús hafa eyðilagst og
íjöldi lækna og hjúkrunar-
kvenna farist. En þrátt fyrjr
^ hið mikla tjón Finna, þykir
{ undravert hve þeir hafa getað
varist flugflota Rússa. í gær
skutu þeir niður 9 rússneskar
flugvjelar. Þeir hafa í raun og
veru borið hærra hlut í loftinu,
því þeir hafa skotið niður 240
rússneskar flugvjelar frá því að
stríðið hófst, en mist sjálfir að-
eins 15.
MISJÖFN AÐSTAÐA
Er þessi árangur, segir í
Reutersfrjett, þeim mun glæsi-
legri, sem þeir geta ekki teflt
fram gegn 5000 flugvjelum
Rússa, (sem talið var að þeir
hefðu haft á finsku vígstöðv-
unum í byrjun stríðsins), nema
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
Balkan-
ráðstefnan
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
áðstefna Balkanríkjanna í
Belgrad var slitið í gær.
I; skeyti frá London segir, að
hin opinbera tilkynning, sem
gefin var út, eftir að ráðstefnan
hafði staðið í 3 daga, gefi ekki
tilefni til mikillar bjartsýni. En
árangur hefir þó orðið nokkur.
Með ráðstefnunni hafi verið
lögð undirstaða að auknum
skilningi milli Balkanþjóðanna,
og að þessi skilningur geti orð-(
ið til þess að tryggja friðinn á
Balkanskaga, allan tíman á
meðan styrjöldin í Vestur-
Evrópu geysar.
Þýsk blöð halda því fram, að
Bretar og Frakkar hafi beðið
ósigur á Balkanráðstefnunni,
því að þeir hafi viljað draga
;Balkanþjóðirnar inn í stríðið.
MAÐUR FINST
ÖRENDUR
sunnudagSmorgun fanst lík
Steingríms Lýðssonar í f jör-
unni fyrir neðán Kassagerðina.
Hafði hann druknað.
Ekki er vitað með hvaða hætti
dauðaslys þetta hefir orðið. Stein-
grímur kom ekki heim til sín frá
vinnu á laugardag og spú’roist ekk-
ert 'til hans fyr en hann fanst
örendur.
Ung íslensk
stálka skylm-
íngameístarí
Ungfrú Lilla Magnúsdóttir
(Erlendssonar) frá
Réykjavík, hefir unnið meist-
aratitil í Skylmingaíþrótt í í-
þróttafjelaginu Trekanten í
Kaupmannahöfn. Frammistaða
hennar var talin með afbrigðum
góð og hefir hún þó aðeins ver-
ið meðlimur íþróttafjelagsins í
eitt ár. (F.Ú.).
Forníslensk og
fornnorræn orða-
bókarútgáfa
Otjórn Árna Magnússonar
^ nefndar kom í gær sam-
an á fund með fulltrúum norska
vísindafjelagsins til þess að á-
kveða endanlegar ráðstafanir
til undirbúnings útgáfu á hjer
um bil 4000 blaðsíðna orðabók
um forníslenskt og fornnorrænt
mál. Fundinn sækir meðal ann-<
ara rektor háskólans í Osló,
Seip prófessor.
Búist er við, að útgáfan muni
taka fimm til tíu ár.
Gert er ráð fyrir því, að
danska og norska ríkið leggi
hvort um sig 5000 krónur til
útgáfunnar á &ri.
90
þús. sinnum
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
O amkvæmt fregn frá
^ Berlín er nýlega Ipk-
ið með góðum árangri til-
raunum með nýja gerð af
snrásjá, sem getur stækkað
alt að 90 þús. sinnum.
Það er þýskur vísinda-
maður, sem hjer hefir gert
merka uppgötvun og hefir
hann haft samvinnu við
Koch-stofnunina í Berlín.
Æðsta herráð
Bandamanna
á fundl
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Æðsta herráð Bandamanna
kom saman á fund í
París í dag. Samkomulag náð-?
ist, að því er segir í opinberri
tilkynningu, sem gefin var út
að fundinum loknum, um aukna
samvinnu milli Breta og Frakka
Um birgðasöfnun.
Fulltrúar Breta á fundinum
voru: Mr. Chamberlain, Hali-
fax lávarður, Churchill, Kings-t
ley Wood (flugmálaráðherra),
Oliver Stanley hermálaráðherra,
og auk þess æðstu foringjar
hers og flota, auk embættis-
manna í breska utanríkismála-
ráðuneytinu.
Fulftrúar Frakka voru Dala-
dier og aðrii* helstu ráðherrar
Frakka.
Fundurinn í dag var fimti
fundur æðsta herráðs Banda-
manna.
Styrkveitingar
úr Sáttmálasjóði
Þeir, sem hafa hugsað sjer að
sækja um styrk úr Sáttmála-
sjóði (Dansk-Islandsk Forbunds-
fond), verða að senda umsóknir
sínar til stjórnar sjóðsins í Krist-
iansgade 12 í KaupmannahÖfn fyr-
ir 1. mars n.k.
Tilgangur sjóðsins 'er þessi:
1) Að styrkja andlegt samband
imilli Danmerkur og íslands.
2) Að efla íslenskar rannsóknir
og vísindi.
3) Að styrkja íslenskt náms-
fólk.
Styrk er hægt að veita nemend-
um við Háskólann í Kaupmanna-
höfn, .verkfræðingaskólann, lyfja-
fræðingaskólann, Landbúnaðarhá-
i skólann, kennaraháskóla, æðri
' verslunarskóla, alþýðuháskóla, hús
I mæðraskóla o. s. frv.
Einnig verða veittir styrkir til
vísinda; til ferðalaga milli Dan-
, merkur og íslands o. fl.
(Sam k væm t sendiheip-afrj ett).