Morgunblaðið - 23.02.1940, Blaðsíða 3
Föstudagfú'r'%S. febrúar 1940.
MORaUMBLAÐIÐ
3
rpmu var
á Alþingi í gær
Heildarágóði
happdrættisins
930 þús. krðnur
Verulegur niður-
skurður á 16. grein
Rithöfundarnir og listamennirnir
Ungur Nnrðmað-
ur veiður ðti f
Biskupstungum
kotnnir aftur inn í fjárlögin
qi»T ~
Fjárlagafrumvarpinu fyrir árið 1941 var útbýtt
Ar.já’ Alþingi í gær. Heildarútgjöldin á rekstrar-
' yfirlitinu eru áætluð 16.9 milj. króna og er
það um einni miljón króna lægra en á f járlögum þessa árs.
Rekstráíáfgangur er áætlaður 825 þús. kr. á rekstraryfir-
litinu, en á sjóðsyfirlitinu er greiðsluhalli tæpar 170 þús. kr.,
þannig að þessa upphæð vantar til þess að rekstrartekjur árs-
ins standi undir greiðslu afborgana fastra lána, sem eru á sjóðs-
yfirlitinu. Á fjárlögum þessa árs er greiðsluhallinn áætlaður
572 þús. króná.
BÍt <>----------------------------------
Allmiklar n þreytingar hafa
verið gerðar á fjárlagafrum-
varpinu frá fjárlögum þessa árs,
sem Alþingi áámþykti rjett fyr-
ir áramótin síðustu .
Skattar og tollar eru áætlaðir
450 þús. kr. lægri, því að gert
er xáð fyrir, að aukatekjur,
vitagjald, bifreiðaskattur og
vörumagnstóllur minki. Styðst
sú áætlun við reynslu s. 1. árs.
Tekjur af ríkisstofnunum eru
og áætlaðar nokkru lægri og
'byggist það á sömu reynslu.
HÆKKANIRÍ
Ýms útg'jölfl hækka óumflýj-
anlega, vegna vaxandi dýrtíðar.
Þannig er í ifjárlagafrumvarp-
inu nýr útgjaldaliður, 500 þús.
kr., vegna dýctíðaruppbótar á
Jaun starfsmanna ríkisins. Síð-
asta Alþingi heimilaði ríkis-
stjórninni að greiða opinberum
starfsmönnum dýrtíð^ruppbót.
Hefir stjórnin iháft það mál til
undirbúnings, en framkvæmdir
ekki orðið éníiþá. Sennilega fær
Alþingi málið til meðferðar.
Kostnaður við stjórnarráðið
hækkar um 8400 kr.; er það
aðallega aukinn kostnaður við
endurskoðun, við framkvæmd
hinna nýju tolllaga. Kostnaður
við ríkisfjehiíslu og bókhald
hækkar um 7000 kr.; þá hækk-
ar kostnaður við útgáfu ríkis-
reiknings og stjórnartíðinda
um 8500 kr., vegna síhækkandi
verðlags á pappír og prentun.
Kostnaður við Hágstofuna hækk
ar um 8000 kr., vegna aukinn-
ra vinnu við skýrslur um mann-
talið.
Síðasta Alþirigi fjölgaði em-<
bættum hjer í Reykjavík (saka-
dómari) ; þetta hefir í för með
sjer aukinn skrlfstofukostnað,
sem áætlaður er rúmar 20 þús.
kr.
Ýmsir liðir aðrir hækka, svo
sem; Bifreiðaefiirlitið 2000 kr.,
til fjelagsdóms 66Q0 kr., vegna
launahækkunar áómenda ; sam-
eiginlegur kostnaáur við em-
FRAMH. A 8JÖTTU SÍÐU
Samgöngur eru að
kcmast i eðlilegt tiorf
Unnið hefir verið aS snjó-
mokstri á helstu þjóð-
veginum út frá Reykjavík und-
anfarna daga og eru nú sam-
göngur að færast í eðlilegt horf
aftur.
Fært er nú orðið í Mosfells-
sveit og á Kjalarnes. í gær var
unnið við að moka snjó af veg-
um milli Hafnarfjarðar og
Keflavíkur og Suðurlandsvegin-'
um austur að Sandskeiði og í
ölfusinu. Var búist við að bílar
að austan kæmust á Kambabrún
í gærkveldi.
SNJÓKOMA A
HELLISHEIÐI.
Morgunblaðið átti tal við Kol-
viðarhól í gærdag um 5 leytið.
Þá var snjókoma þar og hiti
við frostmark. Fyr um daginn
hafði rignt, eða verið bleytu.
slydda. 6 manns hafa verið veð-
urteptir á Kolviðarhól síðan
s. 1. mánudag.
Mikill snjór er á Hellisheiði
og hefir lítið tekið upp í þíð-
viðrinu í fyrrinótt og gærmorg-
un, en nokkuð hafði fokið í
skafla.
Um 70 manns vinna að snjó-
mokstri á Suðurlandsveginum
og er búist við að bílfært verði
austur í Skíðaskála á laugar-
dag, þar er nú alt á kafi í snjó.
Framhaldsstofnfund hjelt báta-
fjelagið „Björg“ s. 1. sunnudag.
13 nýir bátaeigendur gengu í
fjelagið og eru þá alls 44 með-
limir fjelagsins. Stjórn var kosin
í fjelaginu og lög samþykt. Stjórn
iná skipa: Henrik Ottóson, förm.
Friðrik G. Jóhannsson, varaform.
Ingólfur Lárusson, gjaldkeri. Sig-
Valdi Sveinbjarnarson, fjármála-
ritari, Ágúst Jóhannesson, ritari
og meðstjórnendur Pjetur Hans-
son og Einar Erlendsson.
Ungur Norðmaður, Olav
Sanden, sem stundað
hefir garðyrkjustörf á Syðri-
Reykjum í Biskupstungum, varð
úti í ofveðrinu s. I. mánudag.
Sanden fór s. 1. laugardag,
áður en byrjaði að snjóa í
skemtiferð að Efsta-Dal, en
jþangað er um hálftíma gangur
frá Syðri-Reykjum. Dvaldi hann
• þar á sunnudag, en klukkan 8
á mánudagsmorgun lagði hann
af stað og ætlaði að Syðri-
Reykjum. Veður var þá slæmt,
hríðarveður og færðin afleit.
Hefir Sanden ekki komið
fram síðan hann fór frá Efsta-
Dal.
Menn úr Biskupstungum leit-
uðu allan mánudaginn og þriðju
dag og miðvikudag, en í gær er
blaðið átti tal austur, var Sand-
en ófundinn og engin von talin
að hann væri lifadi.
Olav Sanden, sem er um tví-
tugt, hefir dvalið á Syðri-
Reykjum í hálft annað ájr. Hann
var bróðir konu Stefáns Þor-
steinssonar garðyrkjufræðings í
Hveragerði.
Fjármaður
verður úti hjá
Galtalæk
að slys vildi til í óveðri því,
er geysað hefir um Suður-
land undanfama sólarhringa, að
Stefán Jónsson, yinnumaður á
Galtalæk varð úti, er hann var á
leið til kinda í fjárhúsi, um hálfr-
arklukkustundar gang frá bænum.
Fannst lík hans í fyrradag í
skafli. Stefán heitinn var um hálf
sextugt og ókvæntur. Hann var
gegn maður og vel látinn.
Aftakaveður hefir verið á Landi
— eins og annarsstaðar sunnan-
lands — síðan um síðustu helgi,
ofsarok á landnorðan, með fá-
dærna snjókyngi og öskubyljum.
Hafa menn suma daga ekki treyst
sjer til fjárhúsa, og á einum bæ
ljet ungur og fullhraustur maður
fyrirberast í fjárhúsi skamt frá
bænum í tvo sólarhringa.
Reyndi hann að komast til bæj-
ar, en varð að snúa aftur, þegar
í stað. Talið er, að fjenað hafi
fent frá sumum bæjum.
ftalskur kafbátur kafaði í
gær niður í 110 metra dýpi og
,er það meira en dæmi eru til að
kafbátur hafi kafað áður. Kaf-
bátur þessi var á æfingu í
Genúaflóa.
vjelbátar frá Sandgerði
leituði að vjelbátnum
„Kristjáni“ í gærdag, og aúk þess
, voru með í leitixmi, varðskipið
Ægir, Óðinn og Sæbjörg. Leitin
bar engan árangur í gær.
Það gerði léitina að „Kristjáni“
torveldari, að dimt var yfir og illt
í sjó. Sandgerðisbátarnir hættu
leitinni í gærkveldi, en Ægir, Óð-
inn og Sæbjörg, halda áfram að
leita.
Nefndarkosninyar
i bæjarstjúrn
Abæjarstjórnarfundi í gær fór
fram kosning í framfærslu-
nefnd og heilbrigðisnefnd.
Þrír listar komu fram við kosn-
ingu í framfærslunefnd, sameigin-
legur li§ti frá Sjálfstæðisflokkn-
um og Framsókn, er fjekk 10
atkvæði, og kom 4 mönnum að,
og listi frá Alþýðuflokknum, er
kom einum í nefndina.
Þessir voru kosnir: Sjálfstæðis-
menn þrír, er þar voru áður, Guð-
mundur Ásbjörnsson, Bjarni Bene-
diktsson og Guðmunduj Eiríksson
og 4 maður á þeim lista Fram-
sóknarmaðurinn Kristjón Kristjóns
son, Alþýðuflokkurinn fjekk Arn-
grím Kristjánsson kosinn, en
kommúnistar komu engum að. Full
trúi þeirra í nefndinni var áður
Laufey Yaldimarsdóttir.
Varamenn í framfærslunefnd
voru þessir kosnir: Frú Guðrún
Jónasson, Pjetur Halldórsson,
Helgi H. Eiríksson frá Sjálfstæð-
ismönnum, Framsóknarmaðurinn
Tryggvi Guðmundsson bústjóri og
Jón Brynjólfsson skrifstofustjóri
frá Alþýðuflokknum.
í heilbrigðisnefnd var og kosið.
Lög mæla svo fyrir, að lögreglu-
stjóri og hjeraðslæknir sjeu sjálf-
kjörnir í nefndina. Ennfremur að
kjósa skuli mann úr bæjarráði,
og var Guðmundur Ásbjörnsson
kosinn sem bæjarráðsmaður. Þá
mæla lögin svo fyrir, að kjósa
skuli verkfræðing í nefndina, sem
sje í þjónustu bæjarins. Var Val-
geir Björnsson kosinn, og 5. mað-
ur í nefndina var kosin frú Guð-
rún Jónasson.
„Dýraverndarinn* ‘, febrúarhefti,
er kominn út. í ritinu eru meðal
annars greinar um Friðun Eld-
eyjar, um „Jón Bjarnason og tóf-
una“, „Þegar spori hvarf“, „Vits-
munir og vanafesta“, o. fl.
Hjálpræðisherinn. í kvöld kl.
8i/2 almenn samkoma. Ólafur ól-
alsson, kristinboði, talar.
Háskólínn þarf
framlengíngtf
eínkaleyfísíns
■— i ■
l? ram er komið stjómarfrum-
varp um heimild tilv að
framlengja um 3 ár (frá 1. jan.
1944) einkaleyfi Háskólans til
þess að reka happdraetti.
í greinargerð segir:
Þegar lögin um happdrætti
voru sett og einkaleyfistími há-
skólans ákveðinn 10 ár, var vit-
anlega rent alveg blint í sjóinn
um það, hvort þessi einkaleyf-
istími væri nægilegur til þess
að ljúka við hús handa háskól-
anum. Reynslan hefir nú sýní,
að langt er frá því, að allir hlpt.
ir happdrættisins hafi gengið út.
Þeir eru 25000, eða reiknað í
fjórðungum 100000, en salan
hefir verið þau 6 ár, sem happ-
drættið hefir starfað, eins og
hjer greinir (miðað við 10. fl.) ;
1934' 45080 fjórðungsmiðar
1935 64968 — ; í
1936 67779! —
1937 67437 —
1938 76064 —
1939 77200 —
Hefir happdrættið á þessum
árum gefið af sjer alls 930000
krónur, þegar frá er dreginn á-
góðahluti atvinnudeildar háskól
ans (10%, ágóðinn 1939 er á-
ætlaður). Má áætla, að það gefi
á þeim 4 árum, sem eftir eru af
einkaleyfistímanum, 650000 til
700000 krónur, og er þá ágóð-
inn alls á einkaleyfistímanum
um kr. 1580000 til 1630000
krónur.
Þessi fjárhæð hefði að sjálf-
sögðu nægt til verksins, ef ekk-
ert hefði breytst frá því sem
var, þegar lögin voru sett. En
nú er þess að gæta, að fyrst
voru lagðar 200000 kr. í þús
fyrir rannsóknarstofnun háskól-J
ans, og yvo hefir verðlag farið
mjög mikið hækkandi. Eftir
því sem næst verður komist mun
kostnaðurinn við hús og lóð
verða um 2 milj. kr. Hefir bygg-
ingarnefnd háskólans þó kom-
ist hjá stórkostlegri verðhækk-
un með því að herða á verkinu
langt umfram það, sem tekjur
hafa fengist til. Er nú komið
svo, að húsinu má ljúka á þess-i
'úm vetri og næsta sumri, ef
nægilegt fje er hægt að fá. Er
það fullkomin nauðsyn, því að
vænta má geysilegrar hækkun-
ar á öllum liðum.
Háskólaráð býst við að geta
aflað lánsfjár til þess að ljúka™
verkinu nú, ef full trygging er1
fyrir því, að tekjur happdrætt-*
isins gangi til greiðslu lánanna,
eða með Öðrum orðum, ef leyf-
istíminn er svo langur, að víst
megi telja, að hann nægi til
þess að greiða allan kostnað af
verkinu.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.