Morgunblaðið - 03.03.1940, Qupperneq 3
Sunnudagur 3. mars 1940.
MORGUN BLA Ð,I Ð
3
Málin sem valda erf ið-
leikum í samstarfinu
Hvað tefur
lausn þeirra?
HIN PÓLITÍSKA RÆÐA, sem forsætisráð-
herrann flutti á árshátíð blaðamanna á
fimtudaginn var, hefir vakið talsvert um-
tal manna á meðal.
Það er mjög eðlilegt, að dómar manna um ræðuna sjeu æði
skiftir. Ræðan var pólitísk, og flutt af manni, sem fremstur
stendur í flokki. Ræðan átti ekki að vera flokkspólitísk og var
það ekki. Hitt er annað mál, að aðrir flokkar hefðu í ýmsu kosið
aðra túlkun á sínum málstað, en ráðherrann gerði. En um það er
ekki að sakast.
Forsætisráðherrann mintist á
nokkur mál, sem valda örðug-
leikum fyrir stjórnarsamvinn-
una. Skal þeirra getið hjer að
nokkru og sjónarmiða ráðherr-
ans.
VERSLUNAR-
MÁLIN
Þau taldi ráðherrann erfið-
ust í samstarfinu.
Ráðherrann gat þess, að
nokkrir menn vildu afnema inn-
flutningshöftin algerlega. „En
aðrir álíta“, sagði ráðherrann,
„og þeir eru miklu fleiri, að
innflutningshöft.in sjeu óhjá-
kvæmileg eins og stendur, en
eigi að afnema stig af stigi,
eftir því, sem gjaldeyrisástandið
leyfi“.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir
fyrir sitt leyti altaf haldið l^í
fram, að stefna bæri að afnámi
haftanna, en slíkt yrði að ger-
ast stig af stigi. Áður en þjóð-
stjórnin var mynduð hjelt Fram
sóknarflokkurinn dauðahaldi í
höftin. En með komu þjóðstjórn-
arinnar var einmitt lýst yfir, að
stefna bæri að afnámi haft-
anna smám saman. Þá var og
farið að setja ýmsar nauðsynja-
vörur á frílista, sem gafst prýði
lega.
Annað mál er það, hvort fram
kvæmdin er heppileg á þessum
málum nú, eins og ástandið er.
Við vitum, að síðan stríðið
braust út fæst engin erlend vara
keypt inn, nema með greiðslu út
í hönd. Það sýnist því óþarfi
að vera að hafa áfram hið mikla
og rándýra bákn utan um inn-
flutningsverslunina. — Nægja
myndi að hafa nefnd, sem tæki
ákvörðun um til hvers gjaldeyr-
inum yrði varið. Þeir einir geta
keypt inn vörur, sem hafa trygt
sjer gjaldeyrir. Aðrir fá enga
vöru. Með því að hafa örugt eft-
irlit með gjaldeyrinum, skamt-
ast innflutningurinn af sjálfu
sjer.
★
Hinn ágreiningurinn í versl-
unarmálunum, sem forsætisráð-
herrann mintist einnig á, þ. e
framkvæmd innflutningshaft-
anna, er erfiðari viðfangs. Þar
hefir krafa Sjálfstæðismanna
frá upphafi verið sú, að eitt og
sama yrði látið ganga yfir alla
innflytjendur. Sú takmörkun á
innflutningi, sem nauðsynlegt
væri að gera, yrði látinn ganga
jafnt yfir. Þannig hefir fram-
kvæmdin verið í öllum löndum,
þar sem grípa hefir orðið til
ir.nflutningshafta. Hjer hef.ir
hinsvegar ný regla verið upp-
tekin, sem í framkvæmdinni
hefir orðið þannig, að höftin
hafa að heita má eingöngu
verið látin bitna á kaupmanni-
stjettinní.
Ef að þjóðarhagsmunir krefð-
ust þess, að svona væri fram-
kvæmdin, væri ekkert við þessu
að segja. En það er fjarri því
að svo sje. Hagsmunum þjóðar-
innar er best borgið með því,
að verslunin sje sem frjálsust og
að eðlileg samkepni fái notið
sín. Hjer er hinsvegar stefnt að
því, af sjálfu ríkisvaldinu, að
hneppa alla verslun í fjötra. —
Með þessu er beinlínis unnið
gegn þjóðarhagsmunum.
Forsætisráðherrann taldi litl-
ar líkur til, áð takast mundi
að jáfna þenna ágreining. En
þá verður þjóðin áreiðanlega
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU
Hellisheiði
mokuð í dag
T T ellishejði, sem verið hefir
1 "*■ ófær bílum síðan að snjón-
um kyngdi niður á dögunum,
verður mokuð í dag.
Hefir eingöngu verið farið
yfir fjallið á snjóbílnum und-
anfarna daga, en mjólkurflutn-
ingar hafa farið um Þingvalla-
veginn.
Nú er kaflinn á Þingvallaveg-
inum orðinn ófær, svo mjólkur-
fiutnjngar hafa tepst að austan.
Tveir hópar verkamanna
moka Hellisheiðarveginn í dag.
Byrjar annar að austanverðu, en
hinn að vestanverðu. En búist
við við, að vegurinn verði orðinn
fær bílum í kvöld.
Borgfirðinga- og Mýramannamót
verður haldið að Hótel Borg n.k.
föstudag, 8. þ. m.
Geir Ttiorsteinsson
fimtugur á morgun
Geir Thorsteinsson útgerðar-
maður á fimtugsafmæli á
. morgun.
Hann er einn af þeim athafna-
mönnum, sem lielst kýs að vinna
störf sín í kyrþey. Bn rjett þenna
eina dag verður hann að láta sjer |
lynda að honum sje veitt sjerstök ,
athygli. En það er eitur í hans
beinum. Svo hljedrægur er hann
að eðlisfari.
Það sem hann gerir finst honum
jafnan smámunir samanborið við
verk annara. En sannleikurinn er,
að alt sem hann á annað borð
fæst við, það gerir hann allra
manna best. Þannig er honum
rjett lýst í fám orðum.
'Geir ólst upp í andrúmslofti
mikilla viðskifta á íslenskan mæli-
kvarða. Hann var sjálfkjörinn til
að taka þar við. Faðir hans rak
jöfnum höndum verslun og út-
gerð. En Geir fjekk alhliða hag-
nýta verslunarmentun, er hann
samlagaði þeirri menning hjart-
ans, sem er honum í blóð borin.
Af viðskiftagreinum föðursins
valdi hann sjer þá, sem honum
var næst skapi, útgerðina. Yöru-
dreifing var honum aukaatriði, er
hann festi ekki hugann við.
Nú er Geir meðal þeirra manna
hjer, sem lengst hefir starfað við
togaraútgerð, þó ekki sje hann
nema fimtugur. Svo vel lætur hon
um það starf, að á undanförnum
10 erfiðleikaárum útgerðarinnai’
hefir hann í almenningsaugum
vaxið við hverja raun.
Þegar öldurnar risn hjer sem
hæst gegn þessari stóriðju ís-
lenskrar framleiðslu, var viðkvæð-
ið í þeirri herferð, að fjárhags-
vandræði togaraútgerðarinnar
stöfuðu af slæmri stjórn, fálmi,
fyrirhyggjuleysi, óþarfa eyðslu í
stjórnarkostnað.
Þegar litið var inn á skrifstofu
Geirs Thorsteinssonar varð lítið
úr þeim áburði. Hann sat þar
einn. Hann var „einyrki“ á skrif-
stofu stóriðjunnar.
En þegar einhver vildi eitthvað
vita um rekstur togara, smátt eða
stórt, þá var ekki annað en snúa
sjer til hans. Og svo er það, enn.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU
----Skíðamót Reykjavíkur -—
K. R.-ingar unnu
allar kappgöngur
Gunnar Johnson fyrstur
í 18 km.
INGAR urðu fyrstir í skíðakapp-
göngunni á Skíðamóti Reykjavík-
ur, sem hófst við Kolviðarhól í gær.
Fyrstur í 18 km. göngunni varð Gunnar Johnson úr K. R.
á 1 klst. 4.24 mín.
Annar varð Björn Blöndal (K. R.) á 1 klst. 7.04 mín. Þriðji
Georg Ltiðvíksson (K. K.) 1:7.07 og fjórði varð Hjörtur Jónsson (K.
R.) á 1 klst. 7.54 mín. Fimti var Ármenningurinn Stefán Stefánsson
á 1 klst. 8.17 mín.
Bét bvolfir i
SandgerOishðfn
Um kl. 11 í gærmorgun
hvolfdi bát með fjórum
munnum á Sandgerðishöfn, og
mátti ekki tæpara standa að slys
hlytist að.
Skipverjar af bátnum Erlingi
úr Garði voru að fara um borð í
bátinn, sem úti lá á bátalæginu, á
lítilli kænu. Fyrst fóru 5 um borð,
en síðan fór einn maður aftur í
land með bátinn, til þess að sækja
þrjá menn, sem eftir voru. Er þeir
voru komnir nm það miðja vegu
aftur út í bátinn, eða 200—300
metra undan landi, fylti bátinn
af sjó og hvolfdi honum um leið.
Tveir mannanna voru syndir, en
tveir ósyndir.
Um leið og bátnum hvolfdi sást
<til hans úr landi og frá vjelbátn-
um Erlingi og Gunnari Hámund-
arsyni, sem var nýlagstur að
bryggju í Sandgerði. Brugðu báð-
ir vjelbátarnir við og sömuleiðis
var í skyndi settur bátur frá
landi og róið á staðinn. Komu all-
ir á vettvang um líkt leyti og
tókst að bjarga öllum mönnunum,
þótt ekki mætti tæpara standa,
enda var einn þeirra, Sveinbjörn
Sigurðsson úr Garði, orðinn með-
vitundarlaus, en öðrum mannanna,
sem syndur var, Eggert Magnús-
syni úr Reykjavík, tókst að halda
honum \ippi þar til komið var til
hjálpar.
Var í skyndi róið með þá að
bryggjunni og lífgunartilraunir
gerðar á Sveinbirni og um leið
sent eftir lækni, sem staddur var
í sjúkrahúsi Rauða Krossins við
berklaskoðun. Kom hann að vörmu
spori og flutti Sveinbjöm í
sjúkraskýlið. Var lífgunartilraun-
mn haldið áfram.
Sveinbjörn fjekk meðvitund
eftir hálfa klukkustund og hrest-
ist hrátt. (FÚ)
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berað frúlofun sína ungfrú
Brynja Þórðardóttir frá Eskifirði
og Skúli Einarsson, Nýlendugötu
27.
Kept var í þrem aldursflokkum
í skíðagöngu, 18 km., 10 km. og
5 km. I öllum göngunum áttu K.
R.-ingar fyrstu menn.
í 10 km. göngu varð fyrstur
Guðbjörn Jónsson (K. R.) á 46.21
mín. Annar Ásgeir Guðjónsson (K.
R.) á 46.33 mín. og þriðji Guð-
björn Árnason (K. R.) á 46.45
mín.
í 5 km. göngunni varð fyrstur
Lárus Guðmundsson (K. R.) á
25.25 mín. Annar Haraldur Björns
son (K. R.) á 26.16 mín. og þriðji
Gunnar Bergsteinsson (Á) á 26.54
mín.
Göngukepnin fór fram fyrir of-
an Hellisskarð. Hófst hún hjá
skarðsbrúninni og gengið var upp
með „Ráðherrabrekku“ og áustur
með Skarðsmýrarfjalli. Færi var
nokkuð blautt (blautur korn-
snjór).
Rigning var í gærmorgun á
Hellisheiði og þoka um tíma, enda
fór svo, að einn þátttakendanna
í göngukepninni viltist! Hafði
hann mist af sjer skíðin og var
lengi að hisa við að setja það á
sig. Týndi hann þá brautinni og
viltist. Voru gerðir út menn að
leita hans.
Stökk og svig-
kepni í dag.
Snjór er nægnr á Hellisheiði og
er ákveðið að láta skíðamótið
halda áfram í dag.
Klukkan 11 f. h. hefst stökk-
kepni. Fer hún fram austan Hell-
isskarðs.
Þá verður og kept í svigi og
fer það fram í brekkunni hjá
dráttarbrautinni.
Áhorfendur voru ekki margir
að göngunni í gær, en búast má
við að fjöldi manns fari nppeftir
í dag.
Bridge-kepnin
• hefst í dag
Bridgekepnin hefst á Stúdenta-
garðinum kl. li/2 í dag,
og fer kepnin fram í lestrarsaln-
um og leikfimissalnum.
6 sveitir taka þátt í kepninni
og hafa allir þátttakendur áður
tekið þátt í bridgekepni.
Gott rúm er fyrir áhorfendur
og má búast við að fjöldi manns
horfi á bridgekepnina.