Morgunblaðið - 08.03.1940, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 8. mars 1940.
iiiiiiiiiiiminiiiuiimiiiiiiiiiiiiniiiitiimiiiHiMiiiiiiiiiiiiiinr
Finski
Rússar setia Finnum
flltgherinn| nýja úrslitakosti
eflist
•nniMiimiiiiiiiiiiii
iiiiinmmmmmii
Það er að mestu leyti
þakkað finska flugflotan-
um hve Finnum hefir tek-
ist vel að hindra sókn
Rússa yfir ísinn í Viborg-
arfióa.
Hefir finski flugherinn
eflst mjög upp á síðkastið,
því miklar flugvjelasend.
ingar hafa borist erlend-
is frá.
Rússar komast
ekki f land vest-
an Viborgarflóe
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Ollum heimildum, nema rúss-
neskum, ber saman um, að
Rússar hafi hvergi náð fótfestu
á ströndinni vestan Viborgarfló-
ans ennþá.
Hafa Finnar hvarvetna hrakið
hinar rússnesku liSrsveitir, sem
rey-na að sækja yfír á ís, til baka.
,Rússar nota Ijetta skriðdreka
og brynvarða sleða í sókn sinni.
Hefir tveimur eða þremur smá-
sveitum tekist að komast upp á
ströndina, en Finnar hafa jafn-
óðum umkringt þær. Bru finskir
hermenn á ströndinni á skíðum
og hafa að voprti Ijettar vjel-
byssur.
Hættan.
Því er ekki leynt, að Finnum
stafar mikil hætta af sókn Rússa
á þessum slóðum ef þeim tekst,
að ná fótfestu á ströndinni, því I
þá er. hægra fylkingararmi Mann-
erheijnlínunnar mikill voði búinn.
Rússar virðast leggja megin-
áherslu á að brjótast þarna yfir
flóann og takist þeim, að setja
her á land, sem einhverju nemi,
er talið að finski herinn neyðist
til þess að yfirgefa stöðvar sínar
á Kirjálaeiði.
Sænska Fínníands-
söfntmín 30 mílj.
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
TT^ innlandssöfnunin sænska
safnaði í dag alls rúm-
lega 1 miljón krónum og er það
með bestu dögum síðan söfnun
hófst.
í flugvjelasjóðinn finska safn-
aðist í dag um 800 þús. krónur,
og er sá sjóður nú kominn upp í
3,8 miljón krónur.
AUs hafa því safnast í Sví-
þjóð til Finnlands um 30 miljón
krónur.
Kröfur þeirra miklu
víðtækari en í haust
Allar friðartillögur úr sög-
unni með nýju kröfunum?
í , •• 1
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
FINSKA STJÓRNIN tilkynti í kvöld, að stjórn
Sovjet-Rússlands hefði gert nýjar kröfur á
hendur Finnum. Eru þessar kröfur miklu
meiri en fyrri kröfur Rússa.
Talið er að þessar nýju kröfur sjeu einskonar svar
Rússa við þeim friðarumleitunum, sem sagt er að fram
hafi farið undanfarna daga fyrir milligöngu Svía.
Hinar nýju kröfur Rússa eru þessar:
Finnar láti af hendi við þá Kirjálaeiðið alt, ásamt • Vi-
borg. Einnig láti þeir af hendi Norður-Finnland (Lapp-
land) með hafnarborginni Petsamo. Þá krefjast Rússar
að fá allmikið landflæmi norðaustur af Ladogavatni
og loks allan Hangö-skaga.
Þetta eru úrslitakostir Rússa á hendur Finnum og er frest-
ur til að svara þeim útrunninn kl. 12 á miðnætti á föstudags-
kvöld.
Talið er full,víst,.að Finnar neiti með öllu þessum úrslita-
kröfum.
FRIÐARTILRAUNIR.
Blöð um allan heim ræða mál
ið um friðartilraunir, \em fram
hafa átt að fára undanfarna^
daga í ófriðnum milli Rússa ogj
Finna.
Yfirleitt er sú skoðun efst á
baugi, að Svíar hafi haft for-
göngu um þessar friðartilraunir.
Þannig telur t. d. stórblaðið
,,New York Times“, að Svíar
hafi afhent rússnesku stjórn-
inni friðarskilmála Finna.
FINNAR HAFNA.
Lundúnablaðið News Chron-
icle skýrir frá því, að Finnar
hafi hafnað öllum kröfum
Rússa um það, að Finnar láti af
hendi við þá borgirnar Viborg,
Sortavala og Hangö. En þær
ktöfur voru komnar fram á und
an úrslitakostunum.
ÞJÓÐVERJAR AÐ BAKI?
i
Þá hefir verið uppi sterkur j
orðrómur um það, að sænski
landkönnuðurinn frægi, Sven
Hedin hafi reynt að hafa áhrif
á Hitler til þess að Þjóðverjar
gengjust fyrir friði milli Rússa
og Finna.
Hedin fór í heimsókn til Hitl-
ers fyrir nokkrum dögum og
var látið í veðri vaka, að hann
hafi farið til að þakka fyrir að
hann var sæmdur einu æðsta
heiðursmerki Þýskalands.
En margir telja, að hann hafi
talið Hitler á að styðja friðar-1
tillögur Svía og hafi Hitler
gengið inn á það. ,
Paasikivi og Svinhufvud eru j
kqmnir til Stokkhólms og er tal- j
ið að för þeirra þangað standi
FRIÐARVIÐLEITNI
ÚR SÖGUNNI?
Með úrslitakostum Rússa er
talið að minni líkur sjeu fyrir
friði en áður, og að friðarvið-
leitni Svía með stuðningi Þjóð-
verja hafi raunverulega farið
út um þúfur.
Tilkynt hefir veriS í Helsing-
fors, að Mannerheim hershöfðingi
sje veikur um þessar mundir.
í sambandi við friðarumleitanir.
Ferð ,Queen Elisabeth*
vakti íurðu i Ameríku
Frá frjettaritara vorum.'
Khöfn í gær.
Hafskipið „Queen Elisabeth"
liggur nú við hlið systur-
skips síns „Queen Mary“ í höfn-
inni í New York.
Koma skipsins til New York
vakti hina mestu fúrðu og þiis-
undir New York-búa fóru á vett-
vang í dag til að skoða skipið.
Bresku blöðin eru full af frá-
sögnum, um ferð skipsins vestur
og telja þetta merkilegasta sjó-
mannaafrek, sem unnið hefir verið.
Skipið er talið stærsta og hrað-
skreiðasta skip heimsins.
Skipstjóri þess er sá sami sem
áður var á „Queen Mary“ og
„Mauretaníu".
„Queen Blisabeth" er grámáluð.
Kemst eitt ensku blaðanna svo
að orði, „að skipið hafi verið eins
og keisaradrotning, sero ferðast
undir dulnefni".
Bretar skoða ferð skipsins sem
stærsta sigur, sem unninn hefir
verið gegn kafbátum Þjóðverja.
Breskir hermenn í vjelbyssnhreiðri á vesturvígstöðvunum. Mynd-
in var tekin í vetúr er snjókoma var á vígstöðviumm.
Flugfloti Breta
heflr tvðfaldast
ð 12 mánuðum
Frá frjetiaritara voium.
Khöfn í gær.
i lugmálaráðherra Breta, Sir (
^ Kingsley Wood gerði
flugmál Breta að umtalsefni í
ræðu, sem hann flutti í dag.
Sir Kingsley sagði, að á 12
síðustu mánuðum hefðu Bretar
tvöfaldað flugflota sinn og
takmarkið væri að gera flug-
flotann að sterkasta flugflota í
heimi. Ráðherrann gat þess, að
í fyrra hefðí hann nefnt, að
í flugflota Breta væru 100
þúsund manns,. en nú væri hann
miklu imeiri og árlega bættustj
við frá flugskólum hersins 20 j
þúsund flugmenn og 30 þúsund
vjelamenn og skyttur.
AFREK BRESKA
FLUGFLOTANS.
Sir Kingsley fór mörgum
orðum um dugnað breskra flug-
manna í núverandi styrjöld;
sagði hann að flugvjelar Breta
hefðu flogið meira en 1000
könnunarflug yfir Þýskaland,
og 2000 sinnum hefðu breskar
flugvjelar hafiðisig til flugs af
flugvöllum í Frakklandi síðan
ófriðurinn hófst.
Þjóðverjar hyggja
ekki á landvinninga
á Balkan
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
E^regnir frá Belgrad herma, að
von Ribbentrop; utanríkis-
málaráðherra Þýskalands, hafi í
samtali við utanríkismálaráðherra
Júgóslafíu fullvissað ráðherrann
um, að Þjóðverjar hefðu ekki í
hyggju neina landvinhinga á Balk-
anskaga.
Landamæri Þýskalands gagn-
vart Suðaustur-Evrópu hafa þeg-
ar verið ákveðin um alla framtíð,
sagði von Ribbentrop.
Júgóslafía getur bagað utanrík-
ismálastefnu sinni í sambandi við
þetta. sagði von Ribbentrop enn-
fremur.
PRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU
Wenner-Gren
til Svíþjóðar
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
O ænski auðmaðurinn og iðjú-
^ ' höldurinn frægi, Wenn-
er-Gren, hefir tilkynt opinber-
lega, að hann muni hverfa
beim til Svíþjóðar.
Er þessi yfirlýsing fram
komin vegna þess að amerísk
PRABffH. Á SJÖTTU SÍÐU.