Morgunblaðið - 12.04.1940, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Ræða Churchftlls
150 herskip Banda-
manna, gegn 100
skipum Þjóðverja
YFIRLl'T yfir viðureignina á hafinu meðfram
Noregsströndum hefir ekki enn fengist, og er
langt frá því.
Af fregnunum í gær er það Ijóst, að við vesturströnd
Noregs hefir ekki verið um neina sjóorustu að ræða, í þeim
skilningi, að þar hafi nokkursstaðar mæst mörg herskip
af öllum stærðum. Þar hafa skip hittst á stangli og slegið
í bardaga hjer og þar.
Samkvæmt ítalskri fregn í gærkvöldi eru 150 skip Band-
manna af ýmsum stærðarflokkum og gerðum meðfram strönd-
um Noregs, en 100 þýsk. Eitt þúsund þýskar flugvjelar taka
þáit í þessari dreifðu viðnreign, og 600 flugvjelar Bandamanna,
er liafa þar 4 flugvjelamóðurskip.
Rjett er 'að geta þess í upphafi, að menn urðu fyrir von-
brigðum með hana, vegna þess, að Churchill mintist lítið sem
ekkert á viðureignina í Skagerak.
En í sambandi við skip þau,
hin fjögur, er Þjóðverjar höfðu
mist í þessum þætti styrjaldar.
innar, sagði hann, að í ófriðar-
Jbyrjun hefðu Þjóðverjar átta
þeirra, en nú ættu þeir ekki
helmilig þessa skipafjölda eftir.
I byrjun ræðu sinnar lýsti
Churchill aðdragandanum að
Norðurlandastyrjöldinni.
UNDIRBÚNINGUR
I síðustu viku mars hófu
Þjóðverjar undirbúning þessara
aðfara. Þá byrjuðu þeir liðs-
safnað norður við Eystrasalt og
í Elbenmynni, að birgja skip af
hergögnum og öðrum flutningi
til hernaðar. En þá vissu engir
hverjum þessar sendingar voru
ætlaðar, hvort þær væru ætl-
aðar Svíum, Dönum, Norðmönn-
um eða Hollendingum.
Það urðu Danir og Norðmenn,
sagði hann, sem að þessu sinni
dróu óhappatöluna í „lotterí-
inu“. ;
Bretar, sagði hann, hafa yf-
irráðin á hafinu. En þar með er
ekki sagt, að breski flotinn geti
alstaðar haft yfirráðin samtímis.
Styrkur hans er nægilegur til
þess, að hann getur ráðið, þar
sem hann leggur megináherslu
á það.
HJÁLP TIL
HLUTLAUSRA
Um hjálpina til hlutlausra,
sagði hann. Það er ekki von,
að við getum í snöggu bili veitt
fulla aðstoð smáþjóðum, sem alt
fram að hættunnar stund hafa
haldið okkur í vissri fjarlægð
frá sjer. Það getum orðið smá-<
þjóðum lærdómsríkt, hve seint
Norðmenn leituðu til okkar, og
hve einskisvirði eru samningar
allir við Hitler.
LAGT ÚR HÖFN
í fimm vikur hefir breski
heimaflotinn verið í Scapa
Flow. Þar hafa allar varnir ver-
ið gerðar fullkomnari og örugg-
ari síðan Royal Oak var sökt
þar í haust.
Á sunnudagskvöld frjettist að
mikill skipafloti væri á norður-
leið frá Þýskalandi, beitiskip,
önnur heTskip og flutningaskip.
Lagði flotinn þá tafarlaust úr
höfn til þess að neyða hinn
þýska flota til að taka upp bar.
áttu á hafinu. ;
Áður höfðu bresk herskip ver-
ið send til Narvik, til þess að
Jeggja tundurduflum þar fram-
-n við. Er tundurduflalögnin var
gerð, sem til var ætlast, vildi
það óhapp til, að riiaður fjell út
af breska herskipinu Glow-
worm. Stöðvaðist skipið til þess
að bjarga þessum manni, og
drógst við það aftur úr fylgd
hinna skipanna, er þarna voru
á ferð. En þar bar þá að tvö
þýsk herskip og var annað. tund-
urspillir. Var honum sökt. —
Þriðja þýska skipið kom þar að.
En snögglega hætfu skeyta-
sendingar frá Glowworm, og
varð það ekki ráðið á annan
hátt, en skipið hafi sokkið.
En þessi atburður varð til
þess að benda á hvar þýski flot-
inn var á ferðinni, og hafði
hann því áhrif á framhald bar-
daganna.
ANNAR BARDAGI
Á þriðjudagsmorgun sló í bar-
daga milli þýska herskpisins
Scharnhorst (26,000 smál.) og
herflutningaskips, er með því
var, og breska herskipsins Ren-
own (31.000 tonn) og tundur-
spillis.
Þegar fyrst sást til hinna
þýsku skipa frá Renown, var
10 mílna fjarlægð milli þeirra,
haugasjór og versta veður.
Renown hæfði Scharnhorst
eftir stutta stund, en þegar hið
þýska skip laskaðist, þá kom
tundurspillir og huldi hið lask-
.ða skip reyksýi og sluppu bæði.
Meðan á þessari viðureign
stóð, voru skipin á mjög hraðri
ferð.
Schanhorst er annað af tveim
stærstu herskipum Þjóðverja.
Af reykjarmökk, sem upp úr
því gaus áður en það hvarf, er
ráðið að hafi laskast mikið.
FLUGÁRÁS
JR LANDI
Á miðvikudag gerðu þýskar
flugvjelar, sem komu frá Berg-
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.
Einar Þorvalds-
son skákmeist-
ari Islands
Níunda og síðasta umferð á
Skákþingi íslendinga hófst
í fyrrakvöld.
I meistaraflokki vann Ásmund-
ur Gilfer, Sæmundur vann Snæ-
varr og Jóhajin vann Hafstein.
Skák þeirra Sturlu og Áka er
enn ekki lokið. Einar átti frí.
Þar með eru kunn úrslit í
meistaraflokki, þ. e. a. s. hverjir
eru í efstu sætunum, en skák
þeirra Sturlu og Áka getur haft
áhrif á röð neðri mannanna.
Nr. 1 varð Einar Þorvaldssop
með 6% vinning, nr. 2 Ásiúund-
ur Ásgeirsson 6 vinninga, nr. 3
Eggert Gilfer 5J4 vinning og nr.
4 Árni Snævarr 4% vinnhig.
Sigurvegarinn á þessu þingi,
Einar Þorvaldsson, er. öllum ís-
lenskum skákmönnum löngu kunn
ur. Hann tefldi fyrir hönd íslend-
inga á alþjóðaskákþinginu í Ham-
borg 1930, í Folkestone 1933, í
Miinchen 1936 og Buenos Ayres
1939, í öll skiftin með svo góðum
árangri, að hann hefir hestu út-
komu þeirra íslenskra skákmeist-
ara, sem hafa farið jafn oft utan
og hann. Hann varð skákmeistari
Islendinga 1928 og skákmeistari
Reykvíkinga 1938.
Einar Þorvaldsson vann mjög
glæsilegan sigur á þessu þingi.
Af 8 skákum vann hann 5 og
gerði 3 jafntefli, eða 81.25%.
Hann.var eini maðurinn í meistara
flokki, sem engri skák tapaði.
Einar hefir ekki unnið fyrsta
sætið á skákþingum eins oft og
sumir aðrir íslenskir skákmeist-
arar, en hann er tvímælalaust
einhver okkar öruggasti skákmað
ur eins og áður hefir verið hent
á hjer í blaðinu.
Uppgripaafli
á Skagafirði
TA rjetaritari vor á Sauðárkrók
A símar í gær, að uppgripa-
afli sje þar hjá smábátum og
fiskur alveg upp í landsteina.
Algengt er að bátar tví- og
þríhlaði. Einn smábátur fekk í
gær 2500 kg. af ríga-þorski á
14 stokka.
Nokkrum erfiðleikum er það
bundið að koma fiskinum í verð,
þar sem saltlítið er á Sauðár-
króki og ekkert hraðfrystihús til
á staðnum.
Föstudagur 12. apríl 1940.
Herskipastyrkleiki
ófdðarþjóðanna
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
Fallbyssubátar 'til að nota á ám
og vötnum (River Gunboats): 19,
samtals 9.472 smál. 4 í smíðum.
Tundurskeytayjelbátar: 20 og
13 í smíðum. Vjelbátar til að
slæða tundurdufl: 3.
Hjálparskip allra tegunda, svo
,sem verkstæðisskip, olíubirgða-
skip og vistaskip, spítalaskip o.
þ. h. Alls um 70.
Skólaskip, stærri og smærri,
samtals um 60. Þar á meðal er
„Vindictive“, sem hingað kom í
fyrra.
Auk þess eiga nýlendur Breta,
svo sem Ástralía, Nýja-Sjáland,
Kanada og Indland all álitlegan
flota.
Frakkland.
Orustuskip: 7, samt. 163.945
smálestir. 4 í smíðum. Stærstu
skipin, sem fullsmíðuð voru 1939,
voru „Dunkerque" og „Strass-
bourg“, 26.500 smál. hvort, en í
smíðum voru 4 35 þús. smál. or-
ustuskip.
Flugvjelamóðmskip: 1, 22.146
smál., og 2 í smíðum. Flugvjela-
móðurskip fyrir sjóflugvjelar 1,
10.000 smálestir.
Stór beitiskip: 7, samtals 70.000
smálestir.
Minni beitiskip: 11, samt. 79.729
smál. 3 í smíðum.
Tundurduflabeitiskip: 1, 4773
smál. , :
Tundurskeytabeitiskip: 32, sam-
tals 77.846 smál.
Tundurspillar; 28, samt. 36.837
smál. 11 í smíðum.
Tundurskeytaskip: 12, samtals
.7320 smál. og 7 í smíðum.
Kafbátar: 1 „kafbeitiskip“
2880 smálestir. Er það stærsti
kafbátur í heimi. Stórir kafbát-
ar: 39, samtals 50.146 smál. og
5 í smíðum.
Minni kafbáta^: 30, samtals
17.048 smál., og 15 í smíðum.
Tundurduflabátar: 6, samt. 4014
smáþ 2 í smíðum.
Tundurduflaskip (bæði til að
hggja og slæla tundurdufl): 22,
og 22 í smíðum.
Fallbyssubátar: 32, samt. 29.-
744 smál. og 2 í smíðum og 10
svonefnda „Canonniéres fluviales“,
samtals 1943 smál. og 1 í smíð-
um. Auk þess eiga Frakkar
fjölda varðbáta, skip til árása á
kafbáta, litla tundurskeytabáta o.
s. fvr.
Hjálparskip allskonar eiga
Frakkar hinn mesta sæg af, eða
alls um 50.
Noregur.
Norðmenn áttu árið 1939:
4 brynskip, hvert um, sig 3400—
3650 smál. (Eidsvold, Norge, Tor-
denskjöld; og Harald Haarfagre).
2 tundurduflaskip: „Olav
Tryggvason“ (1596 smál.) og
„Fröya“ (595 smál.).
5 tundurspilla (og 6 í smíðum) :
„Ægir“ (590 smál.), „Sleipner“
(590 smál.), „Garin“, „Troll“ og
„Drang“ (468 smál. hver).
3 tundurskeytabáta I. fl.:
„Snögg“, „Stegg“, „Trygg“ (hver
198 smál.).
9 kafbáta, 3270 smál. samanl.
9 tundurduflabáta (230—350
smál. hver): „Glommen", „Lang-
en“, „Tyr“, „Gor“, „Vidar“,.
„Brage“, „Uller“, „Vale“.
2 tundurduflaveiðara í smíðum
(45—90 smál.).
22 tundurskeytabáta II. flokks
(45—90 smál.): Kjell, Skarv,
Teist, Laks, Sild, Sæl, Skrei,
Brand, Storm, Ilval, Grie, Jo,
Lom, Örn, Ravn, Hauk, Falk,
Hvas, Kjæk, Kvik, Blink, Lyn.
3 eftirlitsskip: Fridtjof Nansen
(1275 smál.), Nordkapp (779
smál.), Senja (266 smál.), Miehael
Sars (300 smál.), Ileimdal (640
smál.).
Þýskaland.
Orustuskip: 2, livort 26.000
smálestir. Þrjú skip eru í smíðum
eða fyrirhugað að smíða, og á
hvert þeirra að verða 35.000 smá-
lestir að stærð. Skipin eru
„Gneisenau“ og „Scharnhorst“
(systurskip).
Brynvarin herskip (vasaorustu-
skip): 3, samtals 30 þús. smál.
í þessum! flokki er a. m. k. eitt
skip sokkið, „Admiral Graf Spee“.
Flugvjelamóðurskip: Tvö í smíð
um. Öðru þessara skipa var
hleypt af stokkunum í vor sem
leið.
Stór beitiskip: 3 í smíðum
(hvert 10.000 smál.). í þessum
flokki er beitiskipið „Blúcher“,
sem búið var að taka í notkun og
sem Þjóðverjar hafa viðurkent að
sökt hafi verið.
Minni beitiskip:-6, samt. 35.400
smálestir, og 6 í smíðum eða ráð-
gerð smíði, þar af fjögur 7000
ismál. og tvö 10.000 smál,
Tundurspillar: 17, samtals 28.-
183 smálestir. 13 í smíðum' eða
fyrirhugaðir.
Tundurskeytabátar: 12, samtals.
9.600 smálestir. 30 í smíðum eða
fyrirhugaðir. Þá eiga Þjóðverjar
8 svonefnda „Geleitboote“, sem
hver er 600 smálestir, eða sam-
tals 4.800 smálestir.
Kafbáta eiga. Þjóðverjar 43,
samtals 16.445 smálestir (samkv.
skýrslum 1939) og 28 í smíðum.
Þess ber þó að gæta, að mörgum
kafbátum hefir verið sökt síðan
ófriðurinn hófst, og byggingu kaf-
báta hefir verið hraðað mjög.
Eru þessar tölur því ekki ábyggi-
legar.
Minni herskip. Þjóðverjar eiga
26 skip, sem notuð eru til að
leggja tundurduflum, samtals
14.100 smál., og 30 í smíðum. 12
skip til að slæða tundurdufl eiga
Þjóðverjar. Þá eiga Þjóðverjar
fjöldann allan af smáherskipum,
frá 45 upp í 90 smálestir, bæði
tundurskeytabáta o. fl. Þá eiga
þeir fjölda skólaskipa, bæði stór
og lítil. Ennfremur mikinn sæg
af hjálparskipum, þar m eð eru tal
in „Aviso Grille“ og ,.Meteor'“,
sem bæði hafa verið hjer í Rvík.
OOOOOOOOOOOOOOOOOO
Sunlftglil %
Stangasápa £
Vim Ræstiduft
Colmans Stivelsi
L&ngavegi 1.
Útbú: Fjölnisveg 2.
BOOOOOOOOOOOOOOOOÖ