Morgunblaðið - 10.05.1940, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 10.05.1940, Qupperneq 3
Föstudagur 10. maí 1940. 3 MORGUNBLABIÐ Tr íu frá Noregi Æfla að stunda lijer fiskveiðar amenn SÍÐASTLIÐIÐ þriðjudagskvöld kom norskur vjelbátur til Seyðisfjarðar og rendi þar upp að bryggju. Þótti Seyðfirðingum þetta litlum tíðindum sæta, því norskir fiskimenn eru vanir að koma þangað um þetta leyti árs. Hjeldu menn því, að eins stæði á þangaðkomu þeirra, eins og venja erum landa þeirra. En þegar þeir komu að máli við norska konsúlinn á staðnum, Jón -Jónsson í Firði, kom það í ljós, að íslandsferð þeirra hafði borið að með óvenjulegum hætti, eins og alt er öðruvísi en vant er þar í landi. Þó hjer sje um 10 röska sjó- menn að ræða, þá ætluðu þeir sjer aldrei til íslands. Þetta eru flótta- menn frá Sandey í Romsdalsfirði. Skipstjórinn, maður á ferugsaldri, heitir Sandoy, og báturinn sama nafni. En heimili hans var í Molde. Þar er nú ekkert hús, svo íbúðarhæft sje, eins og kunnugt er. Það var á laugardaginn var, að þessir 10 menn flýðu frá Molde. Þá voru Þjóðverjar um það bil að ná( yfirráðum á þeim slóðum. Bát þeirra höfðu þeir verið að búa út í flutningaferð. Til þess að sleppa frá innrásarhernum lögðu þeir á haf út. Þeir höfðu nokkrar vistir. Skipstjórinn hefir stundað fiskveiðar hjer við land. Er bát- urinn var kominn út fyrir skerja- garðinn ákváðu skipverjar að halda til íslands. Þeir fengu gott veður, og voru ekki nema 3—4 sólarhringa til Seyðisfjarðar. Fyrsta hugmynd þeirra var, er til Seyðisfjarðar kom, að fá bát sinn undir íslenskan fána og stunda fiskveiðar hjer. Báturinn er nýr. Hefir verið gerður út á eina síldárvertíð. En erfiðleikar munu á því. Og þá er hugmynd-, in að reyna að leigja bátinn upp á þær spýtur, að þessi áhöfn fái atvinnu á bátnum. Norðmaður einn á Akureyri hefir boðist til að hjálpa þessum löndum sínum og greiða götu þeirra. Fer báturinn til Akureyr- ar í dag. Mótaka I stór um stll Bœfarráð rannsabar málið Nýnng i skipasmíði Línuveiðarinn Jökull lengdur um 4 melra Lik Marels Einars- sonar rekur i V ðey . T ík Marels Einarssonar, sjó- manns, sem hvarf hjer í hænum síðast í janúar s.l. rak í Viðey í fyrradag. Líkið var nærri fatalaust og mikið skemt er það fanst, en á „tattoveringu" þektist það. Skipverjar á öðru sænsku skipanna, sem liggur á ytri höfninni sáu í fyrradag kl. 8,30 f. h. að lík rak meðfram skips- hliðinni. Sænski ræðismaðurinn gerði lögreglunni aðvart síðar um daginn um þetta og þegar séndur bátur til að leita líksins. $. L F. beðið að taka að sjer afurðasölu Græulendlnga Sölusamband íslenskra fisk- framleiðenda hefir fengið tilmæli rnn að taka að sjer sölu á sjávarafurðum Grænlendinga í Suður- og Norður-Grænlandi. Hefir S.I.F. ákveðið að leita sjer nánari upplýsinga um fram leiðslu Grænlendinga og sendi í þeim tilgangi fyrirspurnarskeyti til Grænlands í gær. Benda lík- ur til að S.Í.F. muni taka þessu tilboði. Ríkisstjórninni barst nýlega skeyti frá landfógetunum í Grænlandi, en þeir eru tveir, Svane í Godthaab, sem er land- fógeti í Suður-Grænlandi og Brun í Godthavn á Diskoseyju, sem er landfógeti fyrir Norður- Grænland. Fara landfógetarnir þess á leit við ríkisstjórnina að hún aðstoði Grænlendinga til að koma sjávarafurðum þeirra í verð. Ríkisstjórnin sneri sjer til S. I.F., sem eins og fyr segir, tók málinu vel. Kristján Einarsson framkv- stjóri skýrði blaðinu svo frá í gær, að Grænlendingar fram- leiddu allmikið af saltfiski, lýsi og öðrum sjávarafurðum. Hafa Danir annast sölu á þessum af- urðum, en nú segir það sig sjálft, að þeir eru ekki þess megnugir lengur, í bili að minsta kosti. Utaf fyrirspum, sem kom fram á bæj arstj ómarfund- inum í gær um það, hvað bæjar- ráð hygðist fyrir um mótak í sumar, varð Bjami Benediktsson fyrir svörum og skýrði nokkuð frá þeim athugunum, sera farið hafa fram í því máli. Hann sagði m. a., að tnótak hafi einkum komið til athugunar á þrem stöðum: Hjer i grend við bæinn, í SVonefndri Krossmýri f Árbæjariandi, í nánd við Akranes og vestur á Snæfellsnesi. Samanburður he!:’ir noklcur ver- ið gerður á því, hvað mór myndi kosta, sem tekinn yrði upp í Krossmýri og hjá Akranesi, og gætu orðið áhölá um það, hvaðan hann yrði ódýrari, þegar bæði er tekið tillit til gæða mósins, að- stöðu við flutningana og við að vinna hann. Til þess að vinna bæjarmanna notaðist sem best, væri þægilegast að taka upp mó- inn í grend við bæinn, einkum með tilliti til vinnunnar við þnrk- unina. Því ef móvinslumenn yrðu áð liggja við mótöknna fjarri heimilum sínum, þá mætti húast FRAMH. Á SJÖTTTJ SÍÐU „Jökull’ ‘ í Slippnum í heilu lagi. ÞAÐ er skemtilegt að koma vestur í Slipp. Þar bylja við hamarshögg og hávaði frá starfandi mönnum, sem beinir huganum til vinnu og verkefna. Þessa dagana er þar nýjung á ferðinni. Á einni dráttar- braut Slippsins er línuveiðarinn ,,Jökull“. Það er að segja, hann er þar í tveim pörtum. Ekki svo að skilja að skipið sje orðið flak úr sjávarháska. ,,Jökull“ er þar að ganga í endurnýjung lífdaganna, að verða stærri. ,,Kirkjuritið“, apríl-hefti, er komið út. í ritinu er fjöldi greina um andleg mál og kvæði trúar- legs eðlis. Þar etu meðal annars eftirtaldar greinar: „Kirkjan og stríðið“, eftir Ásmund Guðmunds son- „Merkileg nýjung í safnað- arstarfi“, eftir síra Sigurgeir Sig urðsson- biskup; „Kirkjumál á Al- þingi“, eftir Magnús Jónsson pró- fessor; „Niels Dael Lísulundur“, eftir síra Sigurjón Guðjónsson. Fyrstu badminton- meistarar á islanúi TA yrsta meistaramót í badmin- 4 tonknattleik hjer á landi hefir staðið yfir undanfarið hjá Tennis- og badmintonfjelagi Reykjavíkur og fóru úrslitaleikir fram í gærkvöldi í leikfimissal Austurbæjarbamaskólans. Meistarar nrðu þessi: I. flokkur. Einmenningskepni karla: Jón Jóbannesson. Einmenn- ingskepni kvenna: Unnur Briem. Mixed double (hjúakepni): Ásta Benjamínsson og Friðrik Sigur- björnsson. Tvíkepni kvenna: Ásta Benjamínsson og Unnur Briem. Tvíkepni karla: Kjartan Hjalte- sted og Ingólfur Ásmundsson. II. flokkur: Einmenningskepni kvenna: Kristín Pálsdóttir. tíin- menningskepni karla: Skúli Sig- nrz. Alls voru keppendur 18. í tví- kepni kvenna var kept um1 silfur- bikar, sem Sigurður Guðmuuds- son dömuklæðskeri hafði gefið, o’g í karlakepninni var kept um grip, sem ónafngreindur áhugamaðut* liafði gefið. Ekki voru fleiri verðlauna- gripir, en vonandi verða einhverj- ir til að gefa fjelaginu verðlauna- gripi fyrir næsta mót. Hann var dreginn á venjuleg- um skipasleða upp á brautina. En þegar þangað var komið var skipið sagað í sundur. Og sleð- inn, sem hann stóð á, var líka sagaður í sundur og síðan var sleðaparturinn með frampart- inum af skipinu dreginn 4 m. upp eftir brautinni. Lengja á skipið um 4 metra. Það er Stálsmiðjan S.f., sem tekið hefir að sjer þessa stækkun á ,,Jökli“, en milli Hamars, Slippsins og Stálsmiðj- unnar, svo og vjelsmiðjunnar Hjeðins, er mikil samvinna sem kunnugt er. Um aðgerð þessa á skipinu hefir blaðið fengið eftirfarandi upplýsingar hjá framkv.stjóra Hamars, Benedikt Gröndal. •— Hann skýrði svo frá: Línuveiðarinn Jökull er eign samnefnds fjelags í Hafnarfirði. líefir skipið verið gei't út á ís- fiskveiðar í vetur og siglt með aflann til Englands. Skipið var 159 brúttó tonn og var lestar- rými tiltölulega lítið, 53 tonn. En með því að lengja skipið um þessa 4 metra, lestar það um það það bil helmingi meira. Svo til mikils er að vinna, til þess að gera. Stálsmiðjan smíðar plöturnar í skipið, og annast alla járn- smíði, en Slippurinn annast trje- smíðina. Á verk þetta að taka 4 vikur, og vinna við það 20 —50 manns. Slík skipaaðgerð hefir ekki verið gerð hjer áður. Var skipið sagað í sundur um kolahólfið, en nýtt kolahólf verður gert í nýja partinum og lestin framan við það stækkuð. Jökull var bygður undir eft- irliti þýska Lloyds. Þegár skjþ- um er breytt, þá er það venja að uppdrættir af fyrirhuguðuip. breytingum sjeu lagðir fyrir við- komandi skipaeftirlit, til sam- þyktar. En nú voru ekki tök á því, og því fekk umboðsmað- ur Lloyds hjer leyfi fyrir okk- ar hönd til þess að stækka skip- ið með því skilyrði að breýting- in yrði lögð fyrir skipaeftirlitið ; til samþyktar, þegar færi gefst á því. — Dettur ykkur ekki í hug að ráðast í að byggja hjer skip ■af þessari stærð? j — Vissulega, segir Gröndal. Við höfum til þess öll tæki að byggja hjer svo senú 200 tonina FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU. Bilið á milli frám- og afturparts, eftir að skipið hafði verið sagað í sundur og framparturinn dreginn 4 metra npp eftir brautinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.