Morgunblaðið - 16.05.1940, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 16. maí 1940.
ORUSTAN UM
I París er viðurkent að
horfurnar hjá Sedan
sjeu alvarlegar
150 flugvfelar sföðv-
uðu sókn Þjóðverja
I fyrradag
SAMKVÆMT TILKYNNINGUM hernaðarað-
ilanna í gærkvöldi eru Þjóðverjar alstaðar
komnir að aðal varnarlínu Bandamanna í
Belgíu og í norðurhluta Frakklands. Víglína þessi nær
norðan frá Antwerpen suður og austur til Namur og
þaðan meðfram Maas-fljóti suður til Sedan.
í París var viðurkent í gærkvöldi, að horfurnar hjá
Sedan væru alvarlegar, en þó ekki svo, að nein yfirvof-
andi hætta væri á ferðum. Frakkar mótmæla því, að
Þjóðverjar hafi rofið Maginotlínuna á þessum slóðum,
eins og þýska herstjórnin tilkynti í gær.
SED AN-ORUSTAN
Flranskur herforingi í París skýrði frá því í gær, að Þjóð-
verjum hefði á þriðjudagsmorgun tekist að komast með her yfir
Meuse hjá Sedan og reka um 10 km. djúpan fleyg inn í varnar-
virki Frakka handan við fljótið. En þessi varnarvirki eru ekki hluti
af Maginot-línunni, því að til hennar er 35 km. leið frá Sedan.
1 tilkynningu breska flugmálaráðuneytisins í gær segir, að á
þriðjudagsmorgun, er þess varð vart að Þjóðverjar væru
að hefja sókn yfir Meusel, hafi ljettar sprengjuflugvjelar verið
sendar til þess að varpa sprengjum yfir flotholtabrýr þær,
sem lagðar höfðu verið yfir fljótið. Síðar um daginn, er horfur
þóttu hafa versnað, var sendur öflugri flugfloti bæði breskra og
franskra flugvjela til að gera árás á stöðvar Þjóðverja.
í þessari árás tóku þátt 150 flugvjelar og eyðilögðu þær 4
brýr, vörpuðu sprengjum yfir skriðdreka og fótgöngulið Þjóð-
verja og eyðilögðu samgönguleiðir. Fyrst fór öflugur floti
franskra sprengjuflugvjela, sem hafði orustuflugvjelar í fylgd með
sjer, en á eftir fór breskur flugfloti, sem var jafnvel stærri og
öflugri en sá franski.
Flugvjelunum tókst að stöðva sókn Þjóðverja og gefa her-
sveitum Frakka ráðrúm til að hefja gagnsókn. I þessari gagn-
sókn tókst að hrekja nokkuð af liði Þjóðverja í Maas-fljótið.
Árangurinn varð sá, að þýski fleygurinn varð mjórri, en hins-
vegar tókst ekki að gera hann styttri.
Til marks um, hve grimmilegar loftárásir þessar hafa verið,
er þess getið, að flugvjelamar hafi sumstaðar varpað niður
sprengjum úr 20—30 metra hæð. I þessum tilfellum voru not-
aðar sprengjur, sem ekki sprungu strax, svo að flugvélarnar kom-
ust undan, án þess að skaddast sjálfar.
1 París er bent á, að aðstaða þýska hersins sje örðug, því að
hann verði að verjast á þrjár hliðar, og verði að fara yfir Maas-
fljótið, ef hann neyðist til að hörfa undan.
Einn af frægustu hershöfðingjum Frakka stjórnar vörnunum
hjá Sedan.
Þjóðverjar tilkyntu í gær, að öllum gagnatlögum Frakka
hjá Sedan hefði verið hrundið,
ORUSTAN UM BRÚSSEL
Sedan er syðsti hluti víglínunnar, sem liggur meðfram
Maas-fljóti um borgina Mesiere, sem einnig er í Frakk-
landi, norður til belgiska virkisins Namur. Á allri þessari
víglínu halda Þjóðverjar uppi látlausum atlögum.
Á milli Namur og Meziere hefir Þjóðverjum tekist á nokkr-
um stöðum að brjótast yfir Maas-fljótið. Þetta er viðurkent í hem-
aðartilkynningum Frakka og Belga, en því er haldið fram, að
þeim hafi ekki tekist að koma nema litlu liði yfir fljótið.
I Namur segjast Þjóðverjar hafa náð tveimur virkjum á sitt
vald. í fyrradag höfðu þeir tilkynt að þeir væru búnir að borgun-
um Dinant og Givet, sem báðar eru við Maas á svæðinu milli
Namur og Mesiere, á sitt vald.
Takist þýska hernum hjá Maas að brjóta viðnám Banda-
100 þúsund
mannsfelluaf
Hnllendingum
Pótt Hollendingar hafi orðið að
leggja niðxu* vopn, eftir að
eins 5 daga styrjöld, þá mistu
þeir fjórða hlutann af her sínum,
eða 100 þús. manns. Herinn var
skipaður 400 þús. mönnum.
Frá þessu skýrði utanríkismála-
ráðherra Hollendinga, van Clef-
fens,/ í samtali við blaðamenn í
París í gær. Mannfallið varð sjer-
stakfega miþið í fótgönguliðinu,
einkum í viðui'eigninni við fall-
hlífáherdeildir. I sumum herdeild-
um (brigaden) vár mannfailið alt
að 80 af hverjum 100.
Hollendingar mistu allan
sprengjuflugvjelaflota sinn, 50
fiugvjelar.
ÞJsfcar har-
sveitir I Haag ag
Amsterdam
Pýskar hersveitir komu til
Haag í býtið í gærmorgun
og til Amsterdam síðdegis í gær.
Áður en hersveitirnar komu til
Haag, sveimuðu flugvjelar yfir
borginni.
1 hreskum fregnum segir, að
fyrsta verk Þjóðverja, er þeir
komu til Ilaag, liafi verið að fyrir-
skipa, að aflir fangar, sem hnept-
ir hafa verið í varðhafd síðustu
vikurnar, yrðu þegar í stað látnir
lausir. Er hjer um að ræða nazista
og aðra menn, sem hollenska
stjórnin hafði grunaða um að vera
í þjónustu Þjóðverja.
Ákvarðanir um myrkvun í
Amsterdain hafði verið numin úr
gildi í gærkvöldi er uppgjöf hol-
lenska hersins hafði verið tilkynt.
En Þjóðverjar kröfðust þess und-
ireins að ákvæðin um myrkvun
yrðu látin gilda áffam.
Hollendingar halda því fram, að
Moerdijkbrúin hafi verið svikin í
hendur Þjóðverjum.
Það var tilkynt í London i gær,
að þótt herinn hefði lagt niður
vopn, hjeldi áfram að vera ófriður
milli HoIIöndinga og Þjóðverja.
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.
FÍ3.AMH. Á SJÖTTU SÍBTJ
BRUSSEL
Liðssamdrátf-
ur Þjóðverja
við Swlss
Almennri hervæðingu í Sviss var lokið á hádegi í gær,
samkvæmt tilkynningu svissneska forsetans og
yfirhershöfðingja svissneska hersins.
Fregnir bárust í gær um liðssamdrátt Þjóðverja á
landamærum Sviss. Einnig bárust fregnir til Basel um
að þýskir hermenn væru á heræfingum á bátum á Con-
stanca-vatni.
Engir farþegaflutningar fara nú fram á járnbrautun-
um frá Basel til Þýskalands, nema um opinbera stjórnár-
erindreka sje að ræða, sem hiafa sjerstök vegabrjef.
Svissneska stjórnin er sögð hafa strangan vörð um
alla vegi, sem liggja inn í landið, einkum að næturlagi.
Hringurinn
m Narvik
þrengist
Bandamenn eru nú farnir að
nota skriðdreka í orustun-
um um Narvik, segir í tilkynn-
ingu norsku herstjómarixmar í
gær. Því er bætt við að hernaðar-
aðgerðir færist nú mjög í aukana.
Aðstaða þýska sétuliðsins í Nar-
vik er sögð mjög örðug, sjerstak-
lega vegna þess, að það vantar
fallbyssur. Einnig hafa aðdrættir
hergagna og skotfæra, sem því
háfa borist með flugvjelum, ekki
reynst nægjanlegir.
Bandamenn bættu hinsvegar
mjög sma aðstöðu, er þeim- tókst
að setja herlið á land í Bjergvík.
Með því tókst þeiin að komast á
bak við víglínu Þjóðverja.
Herlið þetta liefir nú tekið Elv-
ergárdsmoen og Oyfjord, skamt
fyrir norðan Narvik.
í tilkynningu þýsku herstjórn-
ariniiar í gæp segir, að varnar-
harátta þýska herliðsins í Narvik
haldi áfram.
Hálfrar klst. ftug
yfir tll Englands
f sambandi við hertöku Hol-
lands er óspart bent á það í
Þýskalandi, að nú sje ekki
nema hálfrar klukkustundar
flug fyrir þýskar flugvjelar
yfir til Englands.
Ýmsum getum er að því
leitt, hvort markmið Þjóðverja
með innrásinni í Holland og
Belgíu sje að komast inn í
Frakkland, eða hvort þeir vilji
aðeins komast nær Englandi.
k
Flotl Banda-
manna I Alex-
sndrfu sendur
til æfinga
Jjl loti Bandamanna, sem safnast
hafði saman í Alexandríu í
byrjun mánaðarins, fór í gær til
æfinga, samkvæmt áætlun, að því
er segir í Reuterskeyti frá Kairo.
Farið er að flytja fólk burtu úr
tveim borgum á landamærum Li-
byu og Egyptalands.
I ítölskum blöðum þótti ekki
kenna alveg eins mikillar andúð-
ar í garð Bandamanna í gær, og
undanfarna daga. En í ræðu sem
ítalski samgÖngumálaráðherrann
flutti í gær, fór hahn hörðum orð-
um um þau óþægindi, sem sigl-
ingar ítala hefðu orðið fyrir vegna
hafnbanns Breta.
Ráðherrann sagði, að þau til-
felli, er ítölsk skip hefðu yerið
stöðvuð og farmur þeirra skoðað-
ur, væri hátt á þriðja þúsund.
Ræðumaður vjek að því, að æf-
ing hefði verið látin fara fram,
sem sýna ætti, hve vel samgöngu-
tæki þjóðarinnar dygðu í styrjöld.
,,Foringinn veit“, sagði hann, „að
hann þarf ekki annað en skipa
fyrir, og við munum fi'amkvæma
vilja hans“.
Stúdentar söfnuðust saman á
torgum fyrir framan Feneyjahöli
í gærmorgun. En að þessu sinni
sýndi Mussolini sig ekki, heldur
var lögreglan látin dreifa hópn-
um.
Hervörður hefir nú verið settur
um bústað sendiherra Júgóslafa í
Rómaborg. Áður hafði hervörður
verið settur um sendiherrabústaði
Breta og Frakka.
í Svíþjóð hefir verið stofnaður
her landvarnasjálfboðaliða til að
verjast fallhlífahermönnum. — í
sænska hernum geta konur gersc
sjálfhoðaliðar.