Morgunblaðið - 16.05.1940, Qupperneq 3
Fimtudagur 16. maí 1940.
MGRGUNBLAÐIÐ
3
„Artic“
konar
komin ettir margs-
hindranir osf tafir
Nýja skipið --
og skipshöfnin
Þórarinn Bjön sson
skipstjóri segi r frá
ARTIC“, skipið sem Fiskimí anefnd keypti
Svíþjóð fyrir síðustu ár£ 6t, kom hing '
í gær frá Danmörku. Heii. það verið i ^rr
á leiðinni, hrepti sjóskaða í hafi og varð að leita hafnar \
Færeyjum og fá viðgerð þar.
Ætlunin var, að „Artic“ kæmi hingað á miðjum vetri, en
brottför skipsins frá Kaupmannahöfn frestaðist vegna ísanna í
sundunum. Tíðindamaður frá Morgunblaðinu hitti í gær Þórarinn
Björnsson skipstjóra og fjekk hjá honum eftirfarandi frásögn af
ferðinni heim.
,,Artic“ lagði af stað frá Höfn
30. mars og var þá aðeins íshrafl
í sundunum. Var haldið til Ála-
borgar, því að þar skyldi tekin
farmur í skipið, rúgmjöl og se-
ment.
Frá Álaborg var haldið þ. 5.
apríl og siglt til Kristianssand í
Suður-Noregi. Var þar tekinn
hafnsögumaður. Síðan var siglt
til Kopervik og þangað komið 8.
apríl (daginn fyrir innrásina í
Noreg). Þar lágu þá nokkur stór,
þýsk ‘flutningaskip, sem vafa-
laust hafa verið herflutninga-
skip.
HINDRANIR
Að morgni 9. apríl (innrásar-
daginn) var „Artic“ stödd rjett
sunnan við Bergen. Kom þá fyr-
irskipun frá norsku varðskipi, að
nema staðar og bíða. Nokkru síð
ar kemur önnur fyrirskipun til
þeirra á „Artic“, að þeir skuli
sigla annaðhvort til Fanefjord
eða Larvik. Þeir völdu Fanefjord.
Engin ástæða var gefin og þeir
á „Artic“ vissu þá ekkert um,
hvað var að gerast. Er þeir komu
til Fanef jord, um kl. 8 að morgni,
frjettu þeir um innrásina í
Noreg.
Skipstjórinn fór nú í land, tij
þess að reyna að senda skeyti,
en þá var síminn lokaður. Þeir
lágu svo þama nokkra daga og
vissu ekkert, hvað við myndi
taka.
Einn daginn, þegar þeir lágu í
Fanefjord komu þrjár breskar
hernaðarflugvjelar og gerðu árás
á þýskt herskip, sem þar var.
Herskipið hóf ákafa skothríð á
flugvjelarnar, svo að þær urðu
að hörfa á brott.
Þórarinn fór einn daginn í bíl
tií Bergen, til þess að eiga tal
við miðlara Eimskipafjelagsins
og vita, hvort hann gæti ekki
greita fyrir ferð skipsins. Miðl-
arinn lofaði að gera alt sem hann
gæti, en taldi hyggilegast að
að hreyfa skipið ekki eins og
stæði.
Þessa dagana voru miklar hern
aðaraðgerðir í Bergen og tíðar
árásir breskra flugvjela. Ein
árásarflugvjelin kastaði sprengju
á þýskt herskip, er lá við bryggju
Sprengjan lenti ofan í reykháf-
inn og varð af ógurleg spreng-
ing, svo að innan fárra mínútna
sneri kjölurinn upp á skipinu.
BROTTFARAR-
LEYFI
Þann 12. apríl fer Þórarinn
skipstjóri til þýska yfirmannsins
í Fanefjord og bað um leyfi til
að sigla. Þjóðverjinn símaði tii
Bergen og fjekk þau svör, að
skipið mætti sigla. Var skip-
stjóra tjáð, að hann myndi hitta
þýskt herskip þar fyrir utan, er
myndi leiðbeina þeim út úr tund
urduflasvæðinu.
Var svo siglt af stað að
morgni 13. apríl. En er þeir
komu út í fjörðinn, voru þar
fyrir norskir fiskimenn, sem
töldu óráðlegt að sigla út, vegna
tundurdufla. Var þá snúið við og
haldið inn fjörðinn aftur. En um
kl. 11 þennan morgun voru þeir
stöðvaðir af þýsku varðskipi,
hermenn settir um borð og var
ætlunin að fara með „Artic“ til
Bergen. En þegar foringi varð-
skipsins heyrði, að þýsku yfir-
völdin í Fanefjord hefðu gefið
skipinu fararleyfi, slepti hann
því og vísaði léiðina út úr tund-
urduflasvæðinu. Fjekk varðskips
foringinn þeim á „Artic“ fána,
er hann ’ sagði að þeir skyldu
draga upp á framsigluna, ef þeir
mættn þýzku herskipi.
FLUGVEL —
KAFBÁTUR
Var nú haldið áfram og stefnt
til hafs. Um kvöldið þennan dag
sveimaði bresk flugvjel kringum
„Artic“, en ljet það síðan fara.
Seinna þetta kvöld, þegar
dimt var orðið, kom kafbátur
upp rjett við hlið skipsins (ca.
7—8 faðma frá því). Eftir stutta
stund hvarf svo kafbáturinn aft-
ur, án þess að gera þeim á
„Artic“ nokkurt mein. Ekki
vissu þeir á „Artic“ hverrar
þjóðar kafbáturiin var.
STÓRSJÓR —
SKIPIÐ LEKT
Var nú haldið áfram. Að
morgni 16. apríl gerði storm og
stórsjó. Þá voru þeir staddir
norður af Færeyjum. Tók þá
skipið að leka. Jókst lekinn all-
mjög, svo að dælur höfðu vart
við. Var nú haldið til Vestmanna
hafnar í Færeyjum og þangað
komið um kvöldið.
Farmurinh var nú tekinn upp
úr skipinu og það selt af honum
FRAMH. Á SJÖTTU SÖ>U.
Skipshöfnin á „Artic“. —
Fyrsti knatt-
spyrnukapp-
leikur á
sunnudaginn
K. R, og Víkingur
keppa
"C* yrsti knattspyrnukappleikur
ársins fer fram n.k. sunnu-
dag og hefst meistaraflokksmótið
með þeim leik. Var dregið í gær-
kvöldi um hverjir skyldu keppa
fyrst og kom upp hlutur K. R. og
Víkings.
Dómari á þessum leik verður
Ólafur K .Þorvarðársön sundhall-
arforstjóri.
Á mánudag fer fram næsti leik-
ur mótsins og keppa þá Frarn og
Valur.
Dómari á þeim leik verðúr Þor-
steihn Einarsson.
Að þessu sinni er kept í tveim-
ur umferður í fyrsta skifti og lýk-
ur fyfri umferð 4. júní.
I næstu viku hefst einnig I. fl.
mótið, þann 24. maí, og II. fl. mót-
ið 22. maí.
Sýning okkar
i New-York fær
ágæta dónia
Símskeyti, sem Thor Thors al-
þingismaður hefir fengið frá
New York hermir, að sýning okk-
ar á heimssýninguimi vekji milda
athygli ög fær sýningin hina bestu
dóira í blöðum.
Blöðin telja sýninguna enn betri
en í fyrra, og þau fagna mjög
málverkasýningunni, sem komið
hefir fyrir í skála við hliðina á
sýningarskála okkar. Þá þykir
það ágæt nýþreytni, að allskonar
jslenskur matur skuli vera á boð-
stólum í sambandi við sýninguna.
Mikil aðsókn var að sýningu
okkar tvo fyrstu dagana, eftir að
hún var opnuð.
Okeypis sund-
kensla fyrir al-
menningi6daga
Blaðamannafjelagið
gengst fyrir námskeiði
í Sundhöilinni
Blaðamaimafjelag íslands hefir
gengist fyrir því, að haldið
verðui' sundnámskeið í Sundhöll-
inni fyxir almeimihg í 6 daga, frá
20.—25. maí, að báðum dögum
nveðtöldum.
Sundkenslan. verður ókeypis og
þátttakendur fá aðgang áð Sund-
höllinni með lækkuðu verði, þann-
ig að fullorðnir fá 6 afsláttarmiða
fyrir kr. 3.25 og þörn. sama miða-
fjölda fyrir kr. 1.75.
Kenslan verður undir stjórn
hinna þektu sundkennara Sigríðar
Sigurjónsdóttur og Jóns Pálsson-
ar, og hafa þau hvort 2 inenti
,sjer til aðstoðár'við kenslnna. Til-
liögun kenslunnar verður eftir
amerískri hópkensluaðferð, sem
kend er við Jantzen-sundskólanu
og er mjög þekt um öll Banda-
ríkin.
Kend verða þessi sund: Bringu-
feúhd, ékriðsund og þyörgúU'arfennd.
Vafalaust verða fjölda margir
bæjarbúar sem vilja nota sjer
þetta einstaka tækifæri til að lær-i
að synda fyrir sumarið. —Sjó-
menn, sem eru í landi nuná' ættú
að auka öryggi sitt með því að
taka þátt í námskeiðinu, því hjer
gefst tækifæri bæði fvrir byrjend-
ur og ekki síst fyrir þá'sém kuuna
vel að synda en hafa ekki lært
björgúnarsUnd. •
SJÚKLINGA
VANTAR BÁT
Sjúklingar á Kópavogshæli hafa
hug á að eignast lítinn, opinn
seglbát til fiskiróðra o. þ. h. Hafa
sjúklingarnir ákveðið að efna til
samskota í þessu skyni og munu
þeir leita til manna með lista í
dag. Það væri vel gert að leggja
eitthvað af mörkum í þessu skyni.
Einn samskotalisti liggur á af-
greiðslu Morgunblaðsins í dag.
Faxtiiói fuliur
af síld
En markaðinn
vantar
Tveir Akranesbátar fóru á
síldveiði vestur í Jökul-
dj’úp í fyrradag. Bátarnir komu
aftur í gær og höfðu aflað 90
tn. síldar hvor.
Sagði tíðindamaður Morgun-
blaðsins á Akranesi i gær, að
Faxaflói væri fullur af síld og
myndu allir bátar fara á síld-
veiði, ef markaður væri fyrir
síldina.
En nú er alt í óvissu um mark
aðinn og vissu menn ekkert hvað
gera skyldi við þá síld, sem bát-
amir komu með í gær. Magnús
Andrjesson kaupmaður keypti
eitthvað af síldinni og ætlar að,
senda til Englands til prufu.
Síldarverksmiðjan á Akranesi
er tilbúin til starfa hvenær sem
er. Ilún getur brætt 7—800 mál
á sólarhring. En það er sama
að segja um verksmiðjuna og
fersksíldina, að alt er í óvissu
um verðlag afurðanna. Meðan
svo er, getur verksmiðjan ekki
keypt hráefni.
Tveir menn
drukna
að syiplega slys 'vildi til laust
eftir hádegi í gær, á leið-
inni milli Þorlákshafnar og Eyrar-
bakka, að bátur sökk er á voru
tveir menn og drúknuðu báðir.
Mennimir hjetu: Halldór Magn-
ússon frá Hrauni í Ölfusi og Ingv-
ar Þórarinsson frá Stigprýði á
Eyrarbakka.
Árdegis í gær lagði vjelbátur
af stað úr Þorlákshöfn áleiðis til
Eyrarbakka og liafði uppskipunar-
bát í eftirdragi, hlaðinn fiski, því
að í ráði er að verka á Eyrar-
bakka í snmar vertíðarfiskinn í
Þorlákshöfn. Laust eftir hádegi, er
bátarnir voru nm það bil miðja
vegu milli verstöðvanna, varð báts-
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.