Morgunblaðið - 19.05.1940, Síða 2
2
MdRGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 19. maí 1940.
ítrasta tilraun Frakkatil að
stöðva sókn Þjóðverja
Sóknin hægari í gær
en undanfarna daga
Loftárásir
á óvarðar
borgir
Itilkynningu þýsku hersjtórn.
arinnar í gær segir, að Banda
menn geri loftárásir á Þýskaland
af handahófi á staði, sem enga
hernaðarlega þýðingu hafa og
segist herstjórnin vilja vekja
sjerstaka athygli á þessu með
tilliti til þess, sem af þessu kann
að leiða.
Þjóðverjar halda því fram, að
sex árásir af 71, sem óvinaflug-
vjelar hafa gert á Þýskaland,
hafi verið gerðar á staði, sem
hernaðarþýðingu höfðu, og 14 á
staði, sem talist gætu hafa hern-
aðarlega þýðingu. En 51 ávás
hafi verið gerð á staði-, sem als
enga hernaðarlega þýðingu
höfðu.
í herstjómartilkynningu Þjóð-
verja í gær er getið um loftárás
á Hamborg og Bremen. Þjóðverj-
ar segja, að í loftárásinni á Ham-
borg liafi 29 óbreyttir borgarar
farist og 51 særst.
1 London er skýrt ft'á því, að
loftárásin á Ilamborg bafi verið
gerð á olíugeyma, sem þar voru.
Því er baldið fram í London, að
breskar flugvjelar h'afi jafnan
gætt þess, að gera ekki árás á
aðra staði en þá, sem hernaðar-
þýðingu höfðu, þótt aðfarir Þjóð-
verja í Póllandi. Noregi, Hollandi
og Belgíiz hafi í raun og veru gef-
ið tilefni til annars. Bretar segja,
að fullyrðingar Þjóðverja um, að
.breskar flugvjelar hafi gert árásir
á óvarðar borgir, sjeu fram komn-
ar í því augnamiði, að geta afsak-
að með þeim árásir, sem Þjóð-
verjar kunna að ætla að gera á
óvarðar borgir í Englandi.
í sambandi við tilkynningu
Breta, um að breskar flugvjelar
hafi eyðilagt olíugeyma í Bergen,
segja Þjóðverjar að breskar flug-
vjelar hafi aldrei hætt sjer nær
en svo, að allar sprengjur þeirra
fjellu í sjóinn.
Þýik skípaíest
í Norðursjóntím
Breskar flugvjelar gerðu meðal
annars árás 4 þýska skipa-
lest með berskipafylgd í Norður-
sjónum í gær, að bví er segir í
tilkynningu frá breska flugmála-
ráðuneytinu.
Bandamenn hafa
yfirgefið Anfwerpen
EFTIR að BrUssel fjell í fyrradag, reyndist
Bandamönnum ókleift að verja Antwerpen.
Hersveitir þeirra urðu að hörfa undan vest-
ur og suður á bóginn, því að þær áttu á hættu að öðr-
um kosti, að hersveitir Þjóðverja, sem sækja í vestur
írá Brussel, slitu sambandi þeirra við varnarlínuna sunn-
ar í landinu og króuðu þær þannig inni.
Hvar Bandamenn hafa tekið upp nýjar varnarstöðv-
ar í JBelgíu er ókunnugt, að öðru leyti en því, að í öllum
hernaðartilkynningum er talað um að þær sjeu fyrir vest-
an Brussel.
I Norður-Frakklandi gera Frakkar nú sitt ítrasta til að
stöðva sókn Þjóðverja. En Þjóðverjum varð enn nokkuð ágengt í
gær, þótt sóknin hafi ekki verið eins hröð og undanfarna daga.
HERNAÐARTILKYNNING FRAKKA
Eins og í fyrradag er'ákafast barist vestast á svæðinu í
varnarvirkjum Frakka, þar sem Þjóðverjumí tókst að skjóta
inn fleyg sínum. Markmið Þjóðverja er að breikka fleyginn á
báðar hendur, en þeim virðist lítið hafa orðið ágengt að austan-
verðu hjá Sedan og Montmedy; þótt Frakkar viðurkenni að or-
usturnar hjá Sedan hafi verið tvísýnar.
En vestast á svæðinu hafa Þjóðverjar sótt fram í vesturátt
um 12—20 km. frá Avesnes til Landrecies og frá Vervins til Guise.
Frá þessu er skýrt í hernaðartilkynningu Frakka í gær-.
kvöldi, sem er á þessa leið.
„Orustur hjeldu áfram í allan gærdag, einkum á svæðinu
hjá Guise og Landrecies, þar sem Þjóðverjar halda áfram á-
hlaupum þrátt fyrir ógurlegt manntjón Og sækja í vesturátt. Frá
öðrum vígstöðvum eru engin tíðindi".
TANGARHALD
Hersveitirnar, sem sækja fram hjá Guise og Landrecies
sæ-kj-a fram í vesturátt og norðvesturátt og virðist markmið
iþeirra vera að knýja hersveitir Bandamanna í Belgíu og norð-
vestur horní Frakklahds til að hörfa undan, til þess að komast
hjá því að verða króaður inni. Eru Þjóðverjar þannig að reyna að
ná tangarhaldi á hersveitum Bandamanna,, á milli hersveita
þeirra í Belgíu og hersveitanna í Norður-Frakklandi.
Vestur-álman á herlínu Þjóðverja í Norður-Frakklandi, hjá
Sedan og Rethel virðist aftur á móti stefna til París.
í Frakklandi er á það bent, að franska herstjórnin hafi með
því að taka upp hreyfistríð hindrað að Þjóðverjar gætu unnið
nokkurn úrslitasigur á hersveitum Bandamanna í Belgíu og
Frakklandi. Hersveitir þeirra hefðu hö’rfað undan úr stöðvum
sínum og tekið upp nýjar varnarstöðvar, og geti því ósigraðar
biðið eftir bendingu tækifæris til að gera gagnsókn.
Þjóðverjar hefðu hinsvegar gert sjer vonir um að geta brotið
varnir Bandamanna á bák aftur með því að brjótast í gegnum
herlínu þeirra.
NÝR HERSHÖFÐINGI
Nýjum hershöfðingja; Giraux, sem Frakkar hafa sett yfir her
sinn á Sedanvígstöðvunum er þakkað hve vel hefir tekist að koma
á þessari svokölluðu hreyfistyrjöld. Giraux nýtur mikils trausts
bæði í Frakklandi og Englandi.
Frakkar hafa og síðustu dagana dregið sáman mikinn liðs-
auka til Norður-Frakklands og er talið að nokkuð af þessum
liðsauka hafi komið frá Englandi.
Loks gera Frakkar sér nokkrar vonir um, að fallbyssur þær,
sem þeir eru nú farnir að nota, hinar svokölluðu 75 mm. fallbyss--
ur, muni geta stöðvað þýsku skriðdrekana. Hinsvegar gera menn
sjer Ijóst í París, að þótt dregið hafi verið úr sókn Þjóðverja í
gær, þá kunni það að stafa af því að þeir eru að endurskipuleggja
lið sitt og draga að sjer hergagnabirgðir og olíubirgðir.
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU,
Franska stfórnin
I>ýr sig undir
úrslitaátökin
Petain marskðlk
ur rððunautur
Reynands
Petain hershöfðingi.
Petain marskálkur, sem er
84 ára gamall, hefir ver-
j ið gerður að aðalráðunaut
Reynauds, forsætisráðherra
i Frakka í öllum málum, sem lúta
; að hernaði. Hann hefir verið
; gerður að ráðherra án stjórnar-
! deildar í franska ráðuneytinu og
varaforsætisráðherra.
| Þetta var tilkynt í París í gær,
samtímis því og skýrt var frá
í öðrum breytingum, sem gerðar
| hafa verjið á ráðuneyti Reyn-
auds/ Reynaud, sem gegnt hefir
embætti utanríkismálaráðherra
ásamt forsætisráðherrastörfum
sínum, fekur nú við hermálaráðu
neytinu af Daladier, en Daladier
verður utanríkismálaráðherra.
Innanríkismálaráðherra verð-
ur Mandel, en honum til lofs er
á það bent, að hann hafi verið
lærisveinn Clemenceus, „tígris-
dýrsins", sem var forsætisráð-
herra Frakka síðustu ár heims-
styrjaldarinnar.
Nokkrar aðrar breytingar
hafa verið gerðar á ráðuneytinu.
Petain var árið 1939 falið að
vandasaTUa hlutverk, þótt hann
væri kominn á níræðisaldur, að
vei'a sendiherra Frakka í Madrid,
eftir að Franco hafði horið sigur
úr býtum á Spáni. En Frakkar
áttu þá alt annað en vinsældum að
fagna á Spáni.
Hið óbilandi traust, sem franska
þjóðin ber til Petains, er bygt á
því, að það var hann sem stjórn-
aði vörn Verdun-virkisins í heims-
styrjöldinni. Kjörorð hans var þá:
„Þeir skulu ekki komast í gegn“.
Hann á nú að þrýna þetta kjör-
orð að nýju fyrir frönsku her-
mönnunum og frönsku þjóðinni.
I ræðu, sem Reynaud flutti í
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.
Herstjórnar-
tilkynning
Þjóðverja
Landhreinsunin á hollensku
eyjunum í Zeeland geng-
ur nú greiðlega. Hvergi var bar-
ist í gær nema austur af Vliss-
ingen á eynni Walcheren. Yfir-
foringi Hollendinga þarna hefir
nú boðist til' að gefast upp.
Á eynni Schouwen og Suður-
Beverlandi voru 2000 Hollending
ar og Frakkar teknir höndum.
Nokkur hluti af hollenska her
skipaflotanum hefir þegar verið
tekinn, þar sem hann lá í höfn.
Einnig hafa hollensku strandvíg-
in verið tekin.
í norður hluta Belgíu hafa
Þjóðverjar komist á tveimur stöð
um inn í útvígi Antwerpen-borg
ar. Og eins og skýrt var frá í
gær, voru vígin Micheln og
Löwen tekin eftir harða orustu.
En yfirherstjórnin í Brússel gaf
borgina upp orustulaust- Frá
Dyle-vígstöðvunum er rekinn
flótti óvinanna, sem hörfað hafa
þaðan.
Suður af Maubeuge brutust
þýskar brynvagnasveitir í g-egn
um landamæravígi Frakka, unnu
sigur á tveimur herdeildum ó-
vinanna (Divisions) og eltu hin-
ar hörfandí hersveitir yfir Efri-
Sombre og alla leið suður að
Efri-Oise. Ógrynni fótgönguliðs
fylgir brynvagnahersveitunum
fast eftir. Þarna var tekinn fjöldi
fanga af hinum sigruðu frönsku
hersveitunum, og geisimikið
herfang.
Fyrir sunnan Sedan sóttum
vjer einnig fram.
Flugliðið hefir aðallega ráðist
á samgönguleiðir að baki óvina-
hernum, og á þjettar fylkingar
hopandi óvina í Frakklandi og
Belgíu. Til þess að komast undan
þessum árásum, lögðu óvinirnir
víðsvegar á flótta.
Á könnunarflugferðum yfir
hollensku og belgisku ströndinni
tókst að sökkva einum tundur-
spilli óvinanna.
Hjá Narvik í Noregi var ráðist
á óvinina, þar sem þeir voru að
setja lið á land. Hitti þung
sprengja þar stórt beitiskip.
í gær mistu óvinirnir 108 flug
vjelar, þar af 53 í loftorustum,
; 11 voru skotnar niður með fall-
j byssum, en hinar voru eyði-
lagðar á flugvöllum. Sjálfir
mistum vjer 26 flugvjelar.
Óvinirnir gerðu loftárásir -á
ýmsar borgir á norðurströnd
Þýskalands, einkum á Hamborg
og Bremen og á vesturhluta
Þýskalands. Eins og altaf áður,
voru árásir þessar gerðar af
handahófi, og hvergi á þá staði
er hemaðarlega þýðingu hafa,
nema á einn hermannaskála.
Yfirstjórn þýska hersins vek-
ur sjerstaka athygli á þessu með
tilliti til þess, sem af þessu kann
að leiða.
Þýsk herskip hafa lagt tund-
urduflum fram undan höfnum í
Suður-Afríku, þar sem óvinirnir
hafa hernaðarbækistöð.