Morgunblaðið - 24.05.1940, Side 3
Föstudagur 24. maí 1940.
MORGUN BLAÐIÐ
Samþykt Alþingis 10. apríl
talin sjálfsögð í Danmörku
Samtal vlð Svein Bjðrnsson
sendiherra
Vesturíslensk-
um gestum
fagnað
SVEINN BJÖRNSSON sendiherra talaði í út-
varp í gærkvöldi, fyrst og fremst til þess þar
að flytja almenningi kveðjur frá íslendingum
á Norðurlöndum og Þýskalandi og árjetta það, sem stóð
hjer í blaðinu í gær, að þeim liði yfirleitt vel.
Hafði blaðið tal af sendiherranum og spurði hann m. a. nána,r
um það, hvaða undirtektir aðgerðir Alþingis 10. apríl hefðu fengið
í Danmörku.
Fregnin um samþyktir Al-
þingis, þ. 10. apríl, segir sendi-
herrann, bárust ekki til Dan-
merkur fyr en á laugardags-
morgun þ. 13. Þá fyrst fekk jeg
símskeyti frá ríkisstjórninni
með tilkynningu um þær. Sam-
tímis barst frj ettaskeyt’i hjeðan
til frjettastofu Ritzau í Höfn.
Un'dir eins og tilkynningin
var komin í mínar hendur, gekk
jeg á konungsfund og skýrði
honum frá þessu. Konungur tók
þessu mjög vel, og sagði, að
afstaða Alþingis væri eðlileg
afleiðing af því ástandi, sem
komið væri.Síðan sneri jeg mjer
til utanríkisráðuneytisins og
skýrði þar frá málavöxtum. Ut-
anríkisráðuneytið lagði síðan
svo fyrir, að sendisveitir Dana
út um heiminn tilkyntu þessa
samþykt Alþingis öllum ríkis-
stjórnum heims. Með tilkynn-
ingu þessari, sem send var út,
fylgdu þau ummæli konungs og
ráðuneytisins, að það skref, sem
íslendingar hefðu hjer tekið,
væri eðlilegt. Heyrði jeg síðan
engan þar í landi vera á annari
skoðun um það mál.
Eitt af því, sem vakti mikla
athygli í útvarpsræðu Sveins
Björnssonar, voru ummæli hans
um framkvæmd hitaveitunnar.
Er blaðið mintist á þetta við
hann í gær. sagði hann m. a.
að áður en annað kæmi á dag-
inn, yrðum við að líta svo á,
að loforð þýsku herstjórnarinn-
ar í Danmörku um flutning á
efni í Hitaveituna yrði haldið.
Annað' iriál væri þáð, hve- næh
fært þætti yfirleitt að koma
Skipum frá .Danmörku út í gegn
um sundin, þar sem mikið hefir
verið um tundurdufl. En þegar
hann fór frá Danmörku bjugg-
ust menn fastlega við því, að
takast mætti að halda verkinu
áfram.
Um stjórnmálaástandíð í Dan-
mörku! sagði hann m. a.:
— Eins og kunnugt er hafa
Þjóðverjar gefið Dönum fyrirheit
nm það, að virða fullveldi Dan-
merkur. Tií þess að sem mest ein-
ing ríktí í ríkisstjórninni var efnt
til víðtækrar stjórnarsamvinnu á
þann hátt, að Hægrimenn og
Yinstrimenn fengu sex ráðherra í
stjórnina, hver flokkur sína þrjá.
Ráðherrarnir sem voru í stjórn
frá sósíalistnm og þeir radikölu
hjeldu sínum stjórnardeildum. En
hinir nýju ráðherrar eru skipaðir
þeim til aðstoðar og liefir hver
þeirra eina eða fleiri stjórnardeild
með þeim, sem fyrir voru, eru
einsköhar aðstoðarráðherrar. Frá
Hægrimömmm eru þeir í stjórn-
inni ChriStmas Möller, Hasle, for-
maður flokksins og Fibiger, eu
frá Vinstrimönnum dr. Kragh,
Brorson, flokksformaðurinn og
Hauch.
-— Hvar varst þú staddjir, er þú
frjettir uTn hernám Islands?
— Við komum til New York
fimtudagskvöldið 9. maí. Jeg hitti
Ólaf Johnson konsúl þá um kvöld-
ið. Morguninn eftir hringdi hann
til mín kl. 8 á gistihúsið og
spurði hvort jeg hefði sjeð morg-
unblöðin. Jeg kvað nei við því, og
spnrði hvort nokkuð væri sjerlegt
að frjetta. — Englendingar eru
biinir að hernema Island, segir
hánn þá. Og hvenær? spyr jeg.
I morgun, sagði liann. Það kom
mjer einkennilega fyrir í svip, að
það sem gerðist þann sama morg-
un hjer, skyldi vera komið í hlöð-
unum í New York um fótaferðar-
tíma.
íslendlngarnir
ð NorOurlöndum
Hvenær kornast
þeir heim?
' •
Þess var getið hjer í blaðinu
fyrir nokki’u, að ríkisstjórn-
in væri að reyna að koma heim
þeim fslendingum, sem dvelja á
Norðurlöndum, en þar er margt
námsmanna og einnig ferðafólk,
sem teptist, þegar siglingarnar
við Norðurlönd stöðvuðust.
Líkur bentu til, að takast
myndi að fá fólk þetta heim, með
því að senda skip hjeðan eftir því
til Petsamo á Norður-Finnlandi.
Stóð til að Esja yrði send í þessa
för. Bjuggust menn þá við, að
hægt yrði að (fara strax í förina,
þegar búið væri að ná saman
fólkinu ytra og' koma því land-
leiðina til Petsamo.
Frá árdegisveislu Eimsfeipafjelags ins í gær. Talið frá vinstri í fremri röð: Hallgr. Benediktsson
stórkaupm., frú Eggertsson, Árn i Eggertsson fasteignasali, Sveinn Björnsson sendiherra, frú Jó-
hannsson, Ásmundur P. Jóhannsson fasteignasali, frú Soffía Claessen, Eggert Claessen hæstarjettar-
hiálaf 1 utnings:eaður. — í aftari röð : Jón Árnason förstjóri og frú hans Sigríður Björnsdóttir, Hall
dór Þorsteinsson útgerðarmaður í Wáteigi og frú hans Ragnhildur Pjetursdóttir, frú Áslaug Bene
diktsson, Guðmundur ÁsbjörnSsoi! forseti bæjarstjórnar, frú Kristín og Guðmundur Vilhjálmsson
framkvæmdastjóri, Jón Ásbjörnsson hæstarjettarmálaflutningsmaður, frú Jóna og Richard Thors
framkvæmdastjóri.
C t jórn Eimskipaf jel. Islandá
^ ’ hjelt í gær gestum sín-
um frá Ameríku árdegis-
veislu að Hótel Borg; einnig
sat boðið Sveinn Björnsson,
sendiherra, sem um mörg ár
var formaður stjórnar Eim-
skipaf jelagsins.
Formaður E. I., Eggert
Claessen hrm. bauð gesti vel-
komna fyrir hönd stjórnar-
innar og einnig mintist hann
konu Sveins Björnssonar og
barna hans.
Guðm. Vilhjálmsson fram-
kvæmdastjóri mintist Jóns
Bíldfells og konu hans, sem
Eimskipafjelagið hafði boðið
hingað í sumar, en þau hjón-
in gátu ekki komið því við að
þiggja boðið að þessu sinni.
Gestirnir, Ásm. P. Jóhanns-
son, Árni Eggertsson og
Sveinn Björnsson hjeldustutt-
ar ræður og þökkuðu fyrir
boðið.
Islendin^nr segir frái her-
námi Danmerkur:
Katípmannahafnarbttar
ktínntí ííla víð síg
í myrkrinti
í> ”
'á
AÐ var liðið langt fram á dag 9. apríl, er
Kaupmárinahafnarbúar gerðu sjer alment
ljóst, að Þjóðverjar höfðu hernumið alt land-
ið og að danska stjórnin hafði ákveðið að ganga að skil-
málum þeim, sem Þjóðverjar settu, nauðug viljug Þó.
Hei.rik Sveinsson, sonur Sveins Björnssonar, sendiherra,
sem kom með föður sínum frá Kaupmannahöfn, hefir sagt Morg
unblaðinu undan og ofan af því, sem gerðist fyrstu dagana eftir
að Þjóðverjar tóku Danmörku, en hann fór ekki frá Höfn fyrri
en 24. apríl, eða 15 dögum eftir hernámið. Henrik segir svo frá :
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
Dómkirkfan
v i ‘ J
Framhalds-
safnaðarfundur
d sunnudaq
Dómkirkjusöfnuðurinn á nú
að taka mikilsverða á-
kvörðun í kirkjumálum bæjar-
ins, samkvæmt lögum frá síð-
asta þingi.
Þetta mál var rætt á aðal-
safnaðarfundinum á sunnudag-
inn var, en ekki útrætt þá.Fram-
haldsfundur verður á sunnu-
daginn kemur, kl. s.d. Á
Kaupmannahafnarbúar vökn-
uðu kl. 4—^5 morguninn 9. apríl
I við mikinn flugvjelagný í lofti.
Engin merki voru gefin um að
loftárás væri í aðsigi og þusti
fólk því út á göturnar til að sjá
hverju þetta sætti. Margir, sem
jeg talaði við, hjeldu að flug-
vjelarnar væru á leið norður til
Noregs, því mönnum varð.ljóst
að ástandið var alvarlegt, eftir
að Bretar höfðu lagt tundur-
duflum í landhelgi Noregs. Fá-
um datt í hug að verið væri að
taka Danmörku hernámi, þó
einstaka maður hefði getið þess
til. Alt va,r í óvissu. í morgun-
blöðunum var ekkert, sem gæti
gefið skýringu á því ,sem var
raunverulega að gerast.
LITLAR FRJETTIR
Um klukkan 9 um morguninn
var jeg staddur á Ráðhústorg-
inu og fylktist mikið af fólki
þangað í þeirri von að á frjetta-
spjöldum blaðanna, Politiken og
Berl. Tidende væri eitthvað að
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. græða. En frjettaspjöldin voru
auð þennan morgun. Allskonar
sögusagnir gengu þarna á torg-
inu, en það var ekki fyr en llðið
var á daginn, að síðdegisblöðin
Ekstrabladet og B. T. komu út",
að fólkfekk ábyggilegar fregnir
um hernámið. Blöðin birtu til-
kynningar ríkisstjórnarinnar um
að Þjóðverjar hefðu hernumið
landið og að stjórnin hefði fáll-
ist nauðug á kröfur Þjóðverja.
Ekki sögðu blöðin sitt álit á
þessum atburðum með einu orði.
Yfirleitt var ekki greiður að-
gangur að ábyggilegum frjett-
um um hernámið.
Við, sem bjuggum rjett við
höfnina tókum eftir því, að dag-
ana fyrir innrásina kom fjöldi
þýskra kolaskipa á höfnina. —
Síðar var sagt, að þessi kolaskip
hafi verið full af hermönnum
og hergögnum í stað kola. Eitt
gríðarstórt Kraft durch Freude
skip lagðist upp að Löngulínu
FRAMH. Á SJÖTTU SÉÐU.