Morgunblaðið - 24.05.1940, Page 7
MORGUNBL A ÐIÐ
Föstudagur 24. maí 1940.
Herstjórnartilkynning
Þjóðverja
¥ tilkynningu þýsku herstjórn-
■■ arinnar í gær segir, að
framsókn Þjóðverja í Flandern
vestur af Scheldefljóti haldi
áfram hægt en örugt, þrátt fyr-
ir harðvítuga mótstöðu.
Valenciennes er einnig barist af
ákefð.
Tilraunir vjelbúinna her-
deilda andstæðinganna til að
brjótast í gegn hjá Cambrai eru
sagaðar hafa mistekist. f vestur
hluta fylkisins Artois í norðvest-
urhluta Frakklands sækja þýsk-
ar hersveitir fram til hafnar-
borgarinnar Calais, en andstæð-
ingarnir veita stöðugt viðnám.
Frá Norður-Noregi segir her-
stjórnin, að þýskar flugvjelar
hafi gert árásir á herskip, her-
sveitir og skotfærabirgðir banda
manna í Narvik. Flugvjela-
sprengja hæfði þar beitiskip,
flutningaskipi var sökt og ann-
að flutningaskip laskað mjög.
Ifalir
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
jundir sig land á Balkan, skyldu
ítalir fá skaðabætur. ítalir lögðu
þá undir sig hafnarhæinn Avalona
í Albaníu í desember 1914.
— Upplausnarástand var í Al-
baníu 1914. Bandamenn höfðu með
feynisamningi, sem gerður var í
London, lofað ítölum landvinning-
um: Suður-Týrol að Brennar-
skarði, Itríu, Norður-Dalmatíti,
Dodekanisku eyjunum, landi í Af-
ríku, Albaníu og Tyrklandi — auk
stríðsláns og stríðsskaðabóta —
gegn því að ítalir færu í stríðið
með Bandamönnum áður en 4 vik-
ur væru liðnar.
Daginn áður en þessar þrjár
vikur voru liðnar, 23. maí, sagði
Ítalía Austurríki stríð á hendur.
Þýskaland sleit stjórnmálasam-
bandi við Ítalíu, sem þó sagði
Þýskalandi ekki stríð á hendur
fyr en rúmu ári síðar, eða 26.
ágúst 1916.
ítalir náðu engum verulegum
árangri fyrstu árin, sem þeir tóku
þátt í stríðinu.
Knattspyrnumót I. fl. (B-liðs)
hefst í kvöld kl. 8.30 á íþróttavell-
inum. Fyrst keppa K. R. og Val-
ur og síðan Víkingar og Fram.
Haestirjettur:
Glvaður við
akstur
Hsstirjettur kvað nýl. upp
dóm í málinu: Valdstjórn-
in gegn Bjarna Einarssyni,
verkamanni, Laufásvegi 58, sem
kærður var fyrir brot á áfeng-
islöggjöfinni og bifreiðalögun-
um.
Málavextir eru þeir, að kvöld-
ið 6. mars síðastl., ók nefndur
Bjarni bílnum RE 368 um göt-
ur bæjarins og var þá undir
áhrifum áfengis. Var brot hans
ítrekað og dæmdi sakadómari
hann til að greiða 100 króna
sekt og svifti hann ökuleyfi í 3
mánuði.
Hæstirjettur hækkaði sektina
í 200 krónur og svifti ákærða
ökuleyfi í 6 mánuði. í forsend-
um dóms Hæstarjettar segir:
„Með tilvísun til forsenda hjeraðs-
dómsins þykir bera að staðfesta hann,
þó með þeim breytingum, að sektin
verði 200 krónur og afplánist með
12 daga einföldu fangelsi, ef hún
greiðist ekki innan 4 vikna frá birt-
ingu dóms þessa, og að kærði verði
sviftur rjetti til bifreiðarstjórnar 6
mánuði frá birtingu dóms þessa talið.
Kristján sá Þórðarson, er ljet það
viðgangast, að kærði ók bifreiðinni
RE 368, er Kristján virðist þá hafa
haft umráð yfir, virðist þar með hafa
gerst brotlegur við ákvæði 15. gr.
bifreiðarlaga nr. 70, 1931 og 40. gr.
áfengislaga nr. 33 1935, en eigi sjest,
að Kristján þessi hafi verið látinn
sæta ábyrgð fyrir þetta atferli sitt.
Eftir þessum málalokum verður að
dæma kærða til að greiða allan á-
frýjunarkostnað sakarinnar, þar með
talin málflutningslaun skipaðs sækj-
anda og verjanda, 50 krónur til hvors“
Sækjandi málsins var Jón Ás-
björnsson hrm. og verjandi
Garðar Þorsteinsson hrm.
Kommúnistar hand-
teknir í Frakklandi
Víðtækar ráðstafanir hafa ver-
ið gerðar í Frakldandi til að
tryggja öryggi landsins. I gær var
gerð liúsleit víða í Montmarte-
hverfinu í París.
í Avignon voru 40 kommúnistar
handteknir, salcaðir um að hafa
unuið með hinni svokölluðu 5.
herdeild, þ. e. flugumönnum ó-
vinanna.
Lðgreglan í Eng-
landi vopnuð
FRAMH. AF ANNARI SÉÐU
(British Union of Fascists) í
London í gær. Fór hún í gegn
um skjöl sem þar voru, og var
talið að því verki myndi ekki
verða lokið á einum degi.
Sir John skýrði einnig frá
því, að lögreglan hefði
fengið fleiri vopn en hún
hefir haft fram til þessa.
Sagði hann að þetta hafi
verið nauðsynlegt þótt ekki
væri til annars, en að hún
gæti varið sig. '
Við
Dagbók
I. O. O. F. 1 = 1225248'/2 = 9'
B 3X3 — 203040245!!
Næturlæknir er í nótt Þórarinn
Sveinsson, Asvallagötu 5. Sími
2714.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki og Laugavegs Apóteki.
Sjötugur er í dag Vilhjálmur
Gunnarsson, Laugaveg 118.
Embættispróf í lögum. Nýlega
hefir lokið embættisprófi í lög-
fræði við Háskólann Benedikt
Sigurjónsson frá SkefUsstöðum
með hárri 1. einkunn, 138% stig.
Revýan 1940. Forðum ? Flosa-
porti verður sýnt í kvöld kl. 8%.
Eftir kl. 3 verða aðgöugumiða’'
seldir lægra verði. Er nú tækifæri
fyrir fólk að sjá þenna spreng-
hlægilega skrípaleik, sem oltaf er
að ganga í endurnýjun lífdaganna.
Altaf eitthvað nýtt.
„Óveður í Suðurhöfum“ heitir
ný skáldsaga, sem kemur á bóka-
markaðinn í dag. Sagan er eftir
Charles Nordtoft og James Nor-
man Hall. Saga þessi kemur út í
svonefndri „Stjörnuútgáfu“. Er
það ný útgáfa, sem er að koma
á markaðinn og mun ætlun útgef-
enda að gefa út eina skáldsögu á
mánuði eða svo.
Læknablaðið, 4. tbl., er nýkom-
ið út. Efni ritsins er: „Berklaveiki
fundin við krufningar 1932—39“,
eftir Níels Dungal próf.; „Ágrip
af sjúkrasögu og nokkrar hug-
leiðingar um C-vitamín“, eftir
Sigurjón Jónsson.
Til Strandarkirkju: S. J. 20 kr.
X. 5 kr. M. S. 6 kr. G. B. 1 kr.
R. G. 5 kr. Ónefndur 6 kr. Ónefnd
ur 10 kr. H. I. 10 kr. G'. H. J. 10
kr. R. C. 4 kr. Helga Magnúsdótt-
ir 2 kr. J. J. 10 kr. N. N. 10 kr.
V. O. K. 3 kr. í brjefi 5 kr. Á. H.
(gamalt áheit) 5 kr.
Kristj ánssamskotin (afh. Mbl.):
Ónefndur 2 kr. Guðlaug Andrjes-
dóttir, Kerlingadal 3 kr. I. M.,
Akranesi 10 kr.
Farsóttir og manndauði í Rvík
vikuna 21.—27. apríl (í svigum
tölur næstu vilcu á undan): Háls-
bólga 72 (68). Kvefsótt 115 (167).
Blóðsótt 22 (15). Gigtsótt 2 (0).
Iðrakvef 17 (34). Kveflungna-
bólga 7 (3). Taksótt 2 (1). Skar-
latssótt 0 (1). Munnangur 0 (2).
Hlaupabóía 5 (4). Ristill 0 (2).
Kossageit 0 (1). Stingsótt 2 (0).
Mannslát 9 (10). — Landlæknis-
skrifstofan. (FB)
Gengið í gær:
Sterlingspund 20.98
100 Dollarar 651.65
— Ríkismörk 260.76
— Fr. frankar 11.89
— Svissn. frankar 145.97
Útvarpið í dag:
19.30 Iiljómplötur: Orgellög.
20.00 Frjett.ir.
20.25 Spurningar og svör.
20.40 Erindi: Skordýr í matvæl-
um (Geir Gígja kennari).
21.05 Útvarpskvartettinn: Lag
með tilbrigðuni, eftir Beethoven.
21.25 Hljómplötur: Harmóníkulög.
21.45. Frjettir.
00OOOOOOOOOOÖOOOOO
Sólskinssápa,
Radion,
Rinso,
Vim-ræstiduft,
Lux sápuspænir.
ViMR
Laugaveg 1.
Útbú: Fjölnisveg 2.
<xxk>o<x><x><k>ö<><><x>oo
. 7
-------------------------------------------------|----
Veðrabrigði í Frakklandi
hjálpa Bandamönnum
FRAMH. AF ANNARI Sfi)U.
I sjálfu skarðinn eru Þjóðverjar að slíta allar símalínur, eyði-
ieggja vegi og járnbrautir, sem tengt gætu saman herina o. s. frv.
FYRIR SUNNAN SKARÐIÐ.
En fyrir sunnan skarðið halda Frakkar áfram að grafa sig niður við
Sommefljótið. í hernaðartilkynningn Frakka í gær segir, að Þjóð-
verjar hafi reynt að brjótast yfir Aisnefljót hjá Attimy, skamt fyrir
austan Rethel. Höfðu þeir undirbúið árás sína með fallbyssuskothríð,
en tókst þó ekki að ná marki sínu,
Loks segir í hernaðartilkynningu Frakka, að fallbyssueinvígi hafi
átt sjer stað á svæðinn milli Longvyon og Mosel, hjá landamærnm
Lnxemborgar.
Veðrabrigðí hafa nú orðið á ófriðarsvæðinu. Bjart veður hefir
ríkt þar til fyrir tveimur dögum, er fór að rigua. En Þjóðverjar eru
sagðir græða á bjartviðrinu, þar sem flugvjelarnar geti þá varpað
niður sprengjum úr mikilli hæð. í gær brá líká svo við, að Þjóðverjar
tilkyntn að þeip hefðn skotið niðnr aðeins 9 flugvjelar Bandamanna
(áður hafa þær verið á annað hundrað daglega) og mist 5 sjálfir.
Eins telja Bandamenn, að Þjóðverjar eigi öruðgra með að koma
að skriðdrekum sínum, þegar vegir eru blautir.
,n: Yfirlýiing.
Á§ marg gefnu tilefni leyfi jeg mjer hjer með að
mótmæla algerlega rógburði þeim, sem um mig hefir
gebgið, að jeg kærði og ljeti sekta þá viðskiftamenn, sem
í vinsemd við verslun mína koma með fataefni á karla
eða konur til sauma.
Jeg mælist fastlega til, að þeir, sem eru svo auðtrúa
að trúa slíkum sögum, leiti upplýsinga hjá lögreglu bæj-
arins um þetta.
Verða þeir hjer eftir látnir sæta ábyrgð, sem halda
uppi slíku níði.
Mun jeg hjer eftir, sem fyr, taka fataefni á k&rla og
konur til vinslu eftir því sem við getum annað.
Fyrir hönd Klæðaverslunar Andrjesar Andrjessonar h.f.
ANDRJES ANDRJESSON.
MorgunblaðiO með morgunkaffinu
Móðir mín
INGA SIGURBJARNARDÓTTIR
frá Hj alteyri, andaðist að heimili sínu Höfn við Kringlumýrar-
veg 22. þ. m.
Fyrir mína hönd og annara vandamanna
Sigurbjörn Valdemarsson.
Jarðarför konunnar minnar og móður okkar
ARNFRÍÐAR FINNBOGADÓTTUR
hefst að heimili hennar Þingholtsstræti 1 laugardaginn 25.
maí kl. 3 e. m. Jarðað verður í Fossvogsgarði.
Runólfur Pjetursson.
*
Pjetur Runólfsson. Richard Runólfsson.
Innilega þökk fyrir alla þá samúð og hluttekningu, sem
okkur hefir verið sýnd við missi
HÖSKULDS sonar okkar.
Þuríður Níelsdóttir. páll Halldórsson.
Hjartanlegar þakkir til allra fjelaga og einstaklinga, er
sýndu okkur samúð -og hjálpsemi við andlát og jarðarför
BJÖRNS ÞORSTEINSSONAR.
Pálína Þórðardóttir. Þorsteinn Björnsson.