Morgunblaðið - 01.09.1940, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 1. sept. 1940.
í morgun kl. 15.is hafði striðið staðið i eitt ár
1000 llugvjelar yfir
Ermarsundi í gær
Loftárásarmerki
6 sinnum
í London
15 smálestum af
sprengjum varp-
að yfir Berlin
SÍÐASTA DAG hins fyrsta árs styrjaldarinnar
hófu Þjóðverjar loftárásir sínar á England kl.
7 að morgni, og síðan barst hver hrönnin af
annari af þýskum sprengjuflugvjelum og af orustuflug-
vjelum yfir Ermarsund allan daginn fram á kvöld. Það
er talið, að yfir 1000 þýskar flugvjelar hafi farið yfir
sundið í gær. ■
í hvert skifti sem flugvjeladeildir birtust yfir sund-
inu lögðu breskar orustuflugvjelar til atlögu við þær. Það
var tilkynt í Berlín í gærkvöldi, að 83 breskar flugvjelar
og 47 loftvarnabelgir hefðu verið skotnir niður; sjálfir
sögðust Þjóðverjar hafa mist 21 flugvjel.
Breska flugmálaráðuneytið skýrði frá því, að þar til klukk-
an 9,30 í gærkvöldi, hafi 63 þýskar flugvjelar verið skotnar
niður og 22 breskar. En 17 af flugmönnum Breta hefði verið
bjargað.
Tjekknesk flugdeild tók í fyrsta skifti þátt í loftorustum
yfir Englandi í gær. Þessi deild skaut niður sex flugvjelar, segir
flugmálaráðuneytið.
I fregn frá London segir, að markmiðið með árásum Þjóð-
veerja í gær virðist hafa verið að hæfa flugvell og flugskýli í
London og hjeruðunum umhverfis höfuðborgina.
Þjóðverjar segjast hvað eftir annað hafa brotist í gegnum
loftvarnir Breta á Suður- og suðausturströndinni og gert árásir á
flugvelli, flugskýli og verksmiðjur.
í London voru gefin loftvarnamerki sjö sinnum í gær, hið
síðasta laust fyrir miðnætti. Hafa aldrei verið gefin þar jafn-
mörg loftvarnamerki á einum degi.
Tvær árásir voru gerðar fyrir hádegi, ein um miðjan dag,
ein síðdegis og þrjár í gærkvöldi. Loftárásin um miðjan daginn
stóð í 50 minútur.
Flugvjelarnar gerðu þá steypiárásir á úthverfi borgarinnar,
hæfðu verksmiðju eina og löskuðu nokkur íbúðarhús.
Associated Press-freg nfrá London hermir, að nokkuð tjón
hafi orðið á húsum nálægt Croydon. En því er lýst yfir opin-
berlega, að ekkert tjón hafi orðið á sjálfum flugvellinum.
Engar opinberar tilkynningar höfðu verið birtar í gærkvöldi
uín tjón af loftárásunum í gær.
„Þjóðverjar
munu nú berjasl
með Rúmenum11
Ókyrð í Rúmenfu
Dióðverjar munu berjast
með Rúmenum, ef ráðist
verður á núverandi landamæri
þeirra“, sagði Manoilescu utan-
ríkismálaráðherra Rúmena í
útvarpsræðu, sem hann flutti í
gær.
Ráðherrann sagði um Vínar-
úrskurðinn, að hjá honum hefði
ekki verið komist. Hann talaði
um örlagaríkar stundir, sem
hann hefði upplifað í Vínar-
borg.
Fregnir sem borist hafa frá Klaus-
enburg (Cluj), stærstu borginni, sem
er á svæðinu í Transylvaníu, sem látið
hefir verið af hendi, berma, að í gær
hafi hópast þangað um 2000 bændur
úr öllum áttum til að mótmæla Vín-
arúrskurðinum. En engar fregnir hafa
borist um árekstra þarna.
Frá annari borg í Norður-Sieben-
biirgen, hafa borist fregnit um óeirðir
milli Ungverja og Rúmena búsettra
þar. Rúmenska stjórnin í Bukarest
hefir ekki, farið dult með? að hjer
væri um , alvarlegan árekstur að ræða.
Bændur eru sagðir sumstaðar hafa
tekið sjer stöðu við hlið hermannanna
í landamæravirkjunum gengt landamær-
um Ungverjalands. Margir liðsforingjar
eru sagðir haf,a lýst yfir því, að þeir
vilji berjast ríieð bætidunum.
Blað eitt í Clausenburg birtir þvert
yfir forsíðuna fyrirsögn: ,,Við viljum
stríð“.
Rúmenska stjórnin hefir reynt að
hindra að fregnimar af ókyrðinni
Transvlvaníu breiðist út, með því að
slíta. símasambandinu milli Bukarest
og Transylvaníu.
Algem samkomubanni hefir verið
ilýst yfir í Rúmeníu. Jafnvel íþrótta-
Sviar mistu
363sjómenn,
85 skip
Samkvæmt fregn frá Stokk-
hólmi hafa Svíar mist á ár-
inu, síðan stríðið hófst, 85 skip,
samtals 180 þús. smálestir.
363 sænskir sjómenn fórust með
þessum skipum.
Tðlur úr stríðinu
Q amkvæmt tölum, sem birta'r vora
^ í Berlín í gær, hafa óvinir
Þjóðverja mist um 7 þús. flugvjelar
frá því að stríðið hófst.. Auk þess hafa
155 loftvarnabelgir verið skotnir niður.
Sjálfir segjast Þjóðverjar hafa mist
1050 flugvjelar.
Þýskar flugvjelar hafa á 220 dög-
um gert 3500 árásir. Þær hafa varpað
niður fimm miljón sprengjum, samtals
um 750 þús. smálestir.
500 herskipum og kaupfömm óvin-
anna, samtals um 2 milj. smálestir hefir
verið sökt í loftárásum. 700 skip, sam-
tals 3.5 milj. smálestir, hafa verið
löskuð í árásum.
Loftvarnabyssur hafa auk þess að
skjóta niður 3100 flugvjelar, evðilagt
400 skriðdreka óvinanna, sökt 10 her-
skipum og kaupförum þein-a og laskað
þrjátíu.
Tvær orustuflugyj el asveitir (Jagdde
schwader) hafa skotið niður 300 flug-
vjelar sín á milli. Sjö bestu flugmenn
Þjóðverja hafa skotið niður yfir 20
flugvjelar hver.
10 flugmenn, sem tekið hafa þátt í
könnunarflugi, hafi flogið yfir milj. km.
SOguleg bylting
I Mið-Afríku
Það gerðist á sögulegan hátt,
er franska Mið-Afríka á-
kvað að ganga í lið með de
Gaulle og hinum frjálsu Frökk-
um hans, að því er símað er frá
Eftir
eins árs
styrjöld
MU N I Ð þjer þennan 1.
septembermorgun í
fyrra? Þjer lásuð þá í Morg-
unblaðinu að Hitler hefði
gert Pólverjum samkomu-
lagstilboð í 16 liðum, og að
Pólverjar hefðu neitað að
ræða þá (Pólverjar sögðust
þó aldrei hafa sjeð punktana
eða heyrt).
KL. 5.15 aðfaranótt 1. septem-
ber rjeðust þýskar flugvjelar
yfir landamæri Póllands og
nokkrum klukkustundum síð-
ar frjettist að loftárásir hefði
verið gerðar á Varsjá og
margar aðrar borgir í Pól-
landi. Stríðið var byrjað.
HVAÐ HEFIR gerst þessa 366
daga síðan stríðið hófst? 31.
ágúst fanst okkur íslending-
um við vera langt utan við
ófriðarsvæðið. En hvað nú'?
Á ÞESSU eina ári hafa fimm
þjóðir verið undirokaðar —
a. m. k. ujn stundarsakir —
af Þjóðverjum, fjórar af
Rússum, ein af Itölum
og ein af Bretum. Þjóðverj-
ar hafa undirokað og sigrað
með vopnum Pólland, Noreg,
Holland, Belgíu og Frakk-
land. Þeir hafa undirokað án
vopnaviðskifta eina þjóð —
Danmörk. Rússar hafa sigr-
að með vopnum Finnland og
undirokað ^án vopnaviðskifta
og innlimað í ríki sitt, sem
sjerstök sovjetríki: Eistland,
Lettland og Lithauen. ítalir
hafa sigrað með vopnum
breska Somaliland. — Bretar
hafa tekið hernámi um stund
arsakir ísland — og Færeyj-
ar.
EN AUK ÞESS hafa Þjóðverj-
ar, Italir og Rússar átt þátt
í að skerða eða bæta við
önnur lönd og aðrar þjóðir;
Rússar hafa fengið Bessara-
bíu frá Rúmenum, Ungverj-
ar hafa fengið helming Tran-
sylvaníu frá Rúmenum og
Búlgarar hafa fengið suður-
Dobrudja frá Rúmenum.
Með Frakklandi gengu all-
ar nýlendur Frakka á vald
Þjóðverjum. En síðan hafa 2
nýlendur þeirra hlaupist und-
an merkjum og gengið í lið
með Bretum; Kamerun og
franska Mið-Afríka.
Alt á einu ári.
Danskt strand-
ferðaskip ferst
Stokkhólmi í gær — : Danska
strandferðaskipið Rieser, sem er i
ferðum til Ærö, hefir rekist á
tundurdufl og farist.
‘Fimm menn fórust og 8 særð-
ust. Margir særðust lítillega.
En í tilkynningu flugmála-
ráðuneytisins um loftárásirnar í
fyrradag (er 63 þýskar og 22
breskar flugvjelar voru skotn-
ar niður að sögn Breta, en 98
breskar og 34 þýskar að sögn
Þjóðverja) segir að ,,þær hafi
ekki valdið mjög miklu tjóni“.
Tjón varð víða á húsum. I
London urðu á einum stað fimm
manns undir rústunum af húsi,
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
Hjálparbeiti-
skipi sökt
Breska llotamálaráðuneytið tilkynn
ir að hjálparbeitiskipinu ,,Dun-
gan Castle“. 15 þús. smálestir, hafi
verið sökt í norðanverðu Atlantshafi.
250 manns af áhöfn skipsins hofir
verið b.jargað.
mót hafa verið bönnnð.
Her Rúmena hefir verið fullskip-
aður eins og á stríðstímum nú um
nokkurt skeið, en nú er húist við, að
hermennimir verði sendir heim. Er
búist við, að af því muni leiða, að
Þjóðverjar muni geta aukið olíukaup
sín í Rúmeníu, því að rúmenska stjóm-
in getur nú ekki lengur borið því við,
til að takmarka olíuflutninginn til
Þýskalands, að hún þurfi að nota olí-
una sjálf til landvama.
Fögnuður ríkir í Ungverjandi yfir
hinu aukna landrými. Með úrskurðinum
í Yín fengu Ungverjar (skv. Assoraated
Press) um 50 þúsund ferkílómetra með
þrem miljónum íbúa, (íbúar í Ung-
verjalandi vom eftir innlimun Ruthen-
íu um 9.600.000). —
Teleki greifi og Caky greifi gáfu
skýrslu um fundinn í Vín á ráðuneytis-
fundi í Budapest í gær.
Leopoldville í belgísku Kongo.
Nokkrir franskir liðsfor-
ingjar rjeðust inn til landsstjór-
ans í Brassaville, höfuðborg
Mið-Afríku, og kröfðust þess,
að nýlendan gengi í lið með de
Gaulle. En landsstjtórinn sagð-
ist mundu halda trúnað við
stjórnina í Vichy. Hann var þá
tekinn höndum eftir nokkra bar
áttu.
Liðsforingjarnir símuðu síðan
til erindreka de Gaulles í Leo-
poldville, de Lamuna hershöfð-
ingja, sem flogið hafði frá
London nokkrum dögum áður
„í sjerstökum erindagerðum“.
Hershöfðinginn fór þá yfir
Kongofljótið frá Leopoldville
til Brassaville og tók við lands-
stjórn í Mið-Afríku.