Morgunblaðið - 01.09.1940, Blaðsíða 3
3
Sunnudagur 1. sept. 1940.
Garnaveikín verður erfið viðfangs
Niðurskurður
( V ' T' % 'f/ ’ •. ,/ • •• ';■ J
sennilega eina
úrræðið
Samtal við Niels Dungal prófessor
PRÓFESSOR NÍELS DUNGAL fór fyrir nokkru ]
norður í Skagafjörð, til þess að rannsaka
hina skæðu garnaveiki, sem þar er í sauðfje;
og breiðst hefir út frá Hólum.
Veikin er sjerstaklega útbreidd í Hjaltadal. Hafa margk
bændur þar mist margt fje. Einnig er veikin komin í Viðvíkur-;
hrepp og hefir reynst þar skæð á einum bæ.
Morgunblaðið sneri sjer til
prófessors Dungals og spurði
hann frjetta af veiki þessari og
hvort nókkur von myndi vera
til þess, að henni yrði útrýmt.
Prófessor Dungal gaf biaðínu
eftirfarandi upplýsingar;
Svo sem kunnugt er, eru
gerðar sjerstakar húðprófanir
fyrir veikinni, til þess að reyna
að þekkja úr hið sýkta fje. 1
þessari ferð athugaði jeg m. a.
árangur þessara prófana; bar
einnig saman mismunandi lyf
til húðprófunar. Það er ekki
enn hægt að gera sjer fyllilega
grein fyrir árangri húðprófan-
anna. En óhætt er að segja það,
að þær hafa reynst miklu ver,
en við gerðum okkur von í
fyrstu. Vafalaust er, að allmik-
ið af sýktu fje sleppur gegnum
prófunina.
Eftir því sem nú verður sjeð
eru allar líkur til, að ekki verði
unt að útrýma veikinni á ann--
an hátt en með niðurskurði f jár-
ins á ölium sýktum bæjum.
Jeg hefi í samráði við Hall-
dór Pálsson gert þá uppástungu,
að í tilraunaskyni verði skorið
niður alt fje á þeim bæjum í
Skagafirði, sem fullvíst er, að
eru sýktir. Halldór Pálsson fór
norður til þess að ræða við
bændur um þetta og er nýkom-
inn úr þeirri för. Virðast all-
miklir örðugleikar vera á fram-i
kvæmd niðurskurðarins, að svo
stöddu, vegna þess að bændur
eru tregir til að láta skera niður
fje sitt. Okkur þykir hinsvegar
ekki ráðlegt að leggja til, að
skorið verði niður með valdboði,
fyr en útsjeð er um, að bændur
geti ekki sannfærst um það
sjálfir, að slíkur niðurskurður
er bestur fyrir þá sjálfa.
Vegna framtíðarlausnar
þessa vandamáls væri mjög
æskilegt, að unt væri að gera
niðurskurð á takmörkuðu svæði,
eins og Skagafirði. og Árnes-
sýslu, þar sem veikin er minst
útbreidd, svo að reynsla fáist
um það, hvort nokkur hætta er
á, að fje geti sýkst í húsum eða
högum, þar sem veikin hefir
verið. Til þess að fá þetta atriði
upplýst, höfum við viljað skera
niður í Skagafirði. Ætlun okk-
ar .er, að þetta sje gert þannig
að bændur fái fullar bætur fyr-
ir, þar sem þetta er gert í til-
raunaskyni, en örðugleikar eru
sem sagt all-miklir. Meðal ann-
ars er erfitt að fá heilbrigt fje|
aftur inn á þetta svæði, því!
að nágrannarnir vilja ógjarnan
láta það af hendi, af ótta við
aftur og flytja þannig veikinaJ
Hinsvegar er ærið kostnaðar-
samt að flytja fjeð langt að.
En sem sagt, engin fullnað-
arákvörðun hefir enn verið tek-
in í málinu. Nefnd sú, sem Al-
þingi fól framkvæmdir þessara
mála allra, fær nú þetta atriði
til meðferðar. Hún kemur inn-
an skams saman.
Hitaveitudeilan.
Horfur á að
samkomulag
náist
Góðar horfur voru á því í
jær, að samkomulag myndi
nást í Hitaveitu-deilunni.
Viðræður fóru fram í gær
milli fulltrúa beggja aðila,
þeirra Eggerts Claessen og
Kjartans Thors af hálfu Vinnu-
veitendafjelags íslands, og Sig-
urðar Halldórssonar og Guð-
mundar R. Oddssonar af hálfu
Dagsbrúnar.
Fóru þessar viðræður fram x
fullri vinsemd og með góðum
vilja á, að leysa deiluna frið-
samlega. Eru eftir þær viðræður
miklar líkur til, að friðsamleg
lausn náist.
Kappleikttr
í dag
Kappleikur K. K. R. milli Vals
og Fram annarsvegar og
Víkings og K. R. hinsvegar, hefst
kl. 4.30 í dag.
Eins og áður hefir verið getið
hjer í blaðinu, er búist við afar
spennandi leik og þó umfram alt
skemtilegum og vel leiknum.
Það má búast við fjölmenni á
vellinum í dag, verði gott veður.
Ari Magnússon, Bragagötu 22A
verður fimtugur í dag.
MORGUNBLAÐIÐ
Sprengjtífltigvíelar yfir Reykfavík
Um hádegisbiiið í gær
komu átta breskar
sprengjuflugvjelar (Bomb-
ers) flúgandi yfir Reykjavík.
Flugu þær góða stund yfir
bænum og Umhverfi hans í
æfinga skyni. Steyptu sum-
ar sjer úr all-mikill hæð
alveg niður að húsþökun-
um og yfir höfnina. Aðrar
flugu saman í hópflugi, líkt
og sjest hjer á myndinni.
Flugvjelar þessar munu
hafa bækistöð hjer á iandi,
ekki langt frá Reykjavík.
Af hernaðarlegum ástæð-
um er ekki hægt að segja
frá af hvaða tegund þessar
flugvjelar eru, en bresku
hernaðaryfirvöldin leyfðu, að
fairt yrði þessi mynd, sem er
af flugvjelum sömu tegundar
og þeirra, sem flugu yfir bæ-
inn í gærdag.
Landhelgisbrot,
Skípstjórínn
á „Síndra“
dæmdttr í
29.500 kr.
sekt
rP ogarinn „Sindri“ var staðinn
að veiðum í landhelgi út af
Arnarfirði í fyrrakvöld. Var það
varðbáturinn „Faxi“, sem tók
„Sindra“.
Farið var með „Sindra“ til
Patreksfjarðar og í gærkvöldi
kvað sýslumaðurinn í Barða-
strandarsýslu upp dóm í máli
skipstjórans á „Sindra“.
Var hann dæmdur í kr. 29.500
sekt og til vara 7 mánaða einfalt
fangelsi. Afli og veiðarfæri gerð
upptæk og greiði skipstjóri allan
kostnað sakarinnar.
Skipstjóri á Sindra er Ársæll
Jóhannsson. Hann áfrýjaði dómn-
um.
Skothríð í
Vesturbænum
í fyrrinótt
Fólk, sem býr á Sólvöllum, varð vart við all-
mikla skothríð í fyrrinótt nálægt Hofsvalla-
götu og Sólvallagötu. Var lögreglan kvödd á
vettvang og kom þá í ljós, að drukkinn hermaður var
valdur að skothríð þessari. Skaut hann einu skoti á íslend-
ing, sem þarna kom að, en hitti ekki. Einnig skemdi hann
bíl með byssuskotum.
Bílstjóri frá Bifreiðastöð Islands og maður einn með honum var
í bílnum, komu þarna að er skothríðin stóð sem hæst. Bílstjórinn
stöðvaði hílinn og maðurinn, sem með honum var, fór út úr bílnum.
Sjóðþurðarmálið.
Yfirheyrslulr
halda áfram
Sakadómari var í allan gær-
dag í yfirheyrslu í sjóð-
þurðarmáli Dagsbrúnar.
Þegar Morgunblaðið átti í
gærkvöldi tal við sakadómai’a
og spurði hann frjetta af mál-
inu, sagðist hann ekkert vilja
láta uppi um prófih, á þessu
stigi málsins. Báðir hinir hand-
teknu menn eru áfram í gæslu-
varðhaldi.
★
„Alþýðublaðið“ gerir þessa
sjóðþurð í Dagsbrún að umtals-
efni í forystugrein í gær, og
á þann veg, að furðu gegnir.
Virðist helst eiga að skilja hug-
leiðingar blaðsins þannig, áð
slíkir verknaðir, sem sjóðþurð-
ir og fjárdrættir, sjeu óaðskilj-
anlegir fylgifiskar þess þjóð-
skipulags, „auðvaldsþjóðskipu-
Iagsins“, sem hjer ríki, en
þekkist ekki í ríki sósíalista!
Ætlar blaðið að fara að telja
fólki trú um, að þessir ógæfu-
sömu menn hafi ekki verið ald-
ir upp í Alþýðuflokknum?
Sá hann þá, hvar hermaður stóð
með riffil og miðaði á hann. Mað-
urinn rjetti upp hendurnar, sem
merki um að hann gæfist upp, eu
það dug/ði ekki til og skaut her-
maðurinn einu skoti úr rifli sínum.
Fann maðurinn, hvernig skotið
þaut framhjá honum.
Hann komst inn í bílinn og ók
bílstjórinn á lögreglustöðina og
tilkynti, hvað fvrir þá hefði bor-
ið.
Tveir íslenskir lögregluþjónar
og einn breskur fóru á vettvang.
Er þeir komu vestur á Sólvalla-
götuna, sáu þeir hermanninn.
Dimt v'ar jiarna á götunni,
og hinum enska lögregluþjóni
mun ekki hafa þótt skotmaður-
inn árennilegur, því hann ákvað
að fara aftur niður á stöð til að
sækja fleiri enska lögregluþjóna.
Varð að samkomulagi, að annar
lögregluþjónninn íslenski vrði
eftir á staðnum.
Eftir 15 mínútur eða svo komu
lögregluþjónarnir fjölmennir aft-
ur, en þá var enski hermaðurinn
allur á burt.' Hafði hann stokkið
út í myrkrið, og íslenski lögreglu
þjónninn mist sjónar á honum.
Bíll Hampiðjunnar stóð þarna
rjett hjá Sólvallagötunni og var
hann mannlaus. Er það yfirbygð-
ur vörubíll.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.