Morgunblaðið - 07.09.1940, Blaðsíða 2
'Wmiifj!,,
M 0 R G UNBLAÐIÐ
Laugardagur 7. sept. 1940.
„Nýr þáltur hafinn í orustunni um EnglandM
Loftvarnasónn í London nær
óslitið allan sólarhringinn
Fleiri flugvjelar yfir Suður-
Englandi en nokkru sinni
frá því stríðið hófst
LOFTVARNAMERKI var gefið í London sex
sinnum í gær: Fyrir dögun, um dagmál, kl.
1 e. h., kl. 6 e. h. og tvisvar í gærkvöldi. í
hvert skifti stóð sónninn yfir í frá x/i klst. upp í IV2 og
2 klst. Reuterfrjettastofan segir í gær, að hinar auknu
loftárásir Þjóðverja tákni, „að nýr þáttur sje hafinn í
orustunni um England“.
Þegar fyrsta loftvarnamerkið var gefið í London í
gærmorgun, hafði fólkið ekki haft nema hálfrar klukku-
stundar frið, frá því að lengsta loftvarnamerkið var
hljóðnað, sem gefið hefir verið í London frá því að stríðið
hófst. Stóð það í 7*4 klst., eða frá því kl. hálf ellefu í
fyrrakvöld þar til kl. 6 í gærmorgun.
Tvisvar sinnum í gær bárust fregnir frá London um að fleiri
þýskar flugvjelar hefðu þá sjest yfir Suður-Englandi en nokkru
sinni frá því að stríðið hófst. í fyrra skiftið, í gærmorgun var
skýrt frá því, að 300 þýskar sprengju- og orustuflugvjelar hefðu
haft samflug yfir Thamesárósum, en dreift sjer þar og flogið 30
til 40 saman yfir Kent og Sussex.
MESTU ÁRÁSIRNAR í STRÍÐINU
Tókust þarna hinar hörðustu loftorustur og segja Bretar
að um eitt skeið hafi verið skotin niður ein þýsk flugvjel á
hverjum tveim mínútum í orustu, sem stóð í klst.
1 þessari morgunárás segjast Bretar hafa skotið niður 34
þýskar flugvjelar en mist 9.
Deutsches Nachrichtenbúro segir frá því, að þýsku flugvjel-
arnar, sem flugu yfir Thamesárósæ í morgun, hafi mætt harð-
vítugu viðnámi. 1 orustunum, sem tókust þarna, hafi 35 breskar
flugvjelar verið skotnar niður.
En eftir að þýsku flugvjelarnar höfðu sigrast á vörnum
Breta, hafi þeir varpað sprengjum yfir flugvelli og flugvjela-
skýli, samkvæmt áætlun, segir D. N. B.
Síðari árásin sem gerð var
síðdegis í gær, var enn meiri en
árásin um morguninn. Komu
þá um eða yfir 300 þýskar flug-
vjelar og flugu upp Themsár-
ósa.
Tókst þarna enn hörð loftor-
usta.
Bretar viðurkenna að sprengj
um hafi verið varpað niður á
nokkrum stöðum, en segja að
tjón hafi hvergi orðið veru-
lega mikið.
Þýsku flugvjelarnar komust
ekki inn yfir London í öll skift-
in, sem loftvarnamerki voru gef-
in þar. Barist var í úthverfunum,
en í gærkvöldi bárust fregnir um,
að flugvjelar hefðu komist yfir
miðborgina. Nokkrum sprengjum
var varpað niður og komu þær
niður á götur.
En Bretar segja að manntjón
hafi ekki orðið, en nokkur hús
eyðilagst.
Sumstaðar í Suður-Englandi
segja Bretar að nokkurt mann-
tjón hafi orði ðog á einum stað
í Thamesdalnum hafi orðið efnis-
legt tjón.
Samtals voru skotnar niður í
gær: að sögn Þjóðverja 75 bresk-
ar flugvjelar og T4 þýskar, en
að sögn Breta 45 þýskar flugvjel-
ar og 19 breskar.
Breskur kafbátur
bjargar breskri og
norskri skipshöfn
Breskur kafbátur hefir
bjargað áhöfninni af
tveim skipum, bresku og norsku
og höfðu Þjóðverjar sökt breska
skipinu, en hertekið norska
skipið, að því er segir í tilkynn-
ingu frá breska flotamálaráðu-
neytinu.
í tilkynningunni segir:
Kafbáturinn „Truant“ (1090 smál.,
fullgerður í fyrra), hitti skamt undan
Kap Finis Terre, skip, sem reyndist
vera norska 5 þús. smálesta skipið
TropMc Sea, sem Þjóðverjar höfðu
hertekið.
Um borð í þessu skipi var áhöfn a£
bresku skipi, Heotor, sem Þjóðverjar
höfðu sökt og auk þess þýsk áhiifn, sem
siglá átti hinu hertekna skipi til Nor-
egs.
Strax og vart varð við kafbátinn,
sökti þýska áhöfnin skipi sinn sjálf.
En áhafnirnar. Mnar bresku og norsku
og þýsku, fóru í bátana. Kafbáturinn
tók um borð bresku áhöfnina og skip-
stjórann og konu hans af hinu norska
skipi. Nokkru síðar kom breskur flug-
bátur og tók nm borð alla norsku skips-
höfnina.
Þrjár loftárásir
é höfnina
I Boulngnn
reskar flugvjelar gerðu í
gær einhverjar mestu
loftárásir á lönd óvinanna, sem
gerðar hafa verið frá því að
stríðið hófst. Flugvjelamar
flugu alla leið austur til Stettin
suður til landamæra Þýska-
lands og Bæheims og Mæris og
yfir Alpafjöllin til Turin í
ftalíu.
Hjá Stettin var gerð árás á
olíugeyma og olíuvinslustöð.
Hjá landamærum Bæheims og
Mæris var gerð árás á olíu-
gevma í Regensburg. 1 Turnen
voru gerðar árásir á Fiatverk-
smiðjur.
Einnig gerðu breskar flug-
vjelar árás á Kiel, Hamborg,
Emden, og Hamm, og á skóg-
ana í Harz og Schwarzwald.
I Frakklandi gerðu bresku
flugvjelamar þrjár árásir,
hverja á eftir annari á
höfnina í Boulogne. Telja
Bretar að tjón þar hafi
orðið gífurlegt.
Loftárás var einnig gerð á
höfnina í Calais og C. Gris Nez
við Doversund. Á milli Bou-
logne og Calais var gerð árás
á fallbyssustæði Þjóðverja.
-----♦ • ♦
Weygand hvsrfur úr
stjórn Petains
Breytingar hafa verið gerðar á
stjórn Petains, að því er
fregn frá Vichy hermir. Weygand,
sem verið hefir landvarnaráðherr'a,
hefir verið leystur frá því em-
bætti og sendur til Afríku „til
þess að samræma stjórn þeirra
nýlendna sem Frakkar hafa þar
á valdi sínu“.
Sendiför Weygands hershöfð-
ingja stendur í sambandi við upp-
reisn þá, sem gerð var í frönsku
Mið-Afríku og Kamerun, er ný-
lendur þessar gengu í lið með de
Gaulle.
Nokkrir aðrir ráðherrar hverfa
úr stjórn Petains, eða 6 alls, þ. á.
m. innanríkisráðherrann Marquet.
En í stjórninni stitja áfram m. a.
Laval, Darlan aðmíráll, Huntzing-
er hershöfðingi o. fl.
Karol kóngur
landflótta í
annað sinn
Járnvarðaliðastjórn í Rúmenlu
KAROL KONUNGUR ákvað í fyrrinótt að
leggja niður konungdóm, eftir að hafa set-
ið alla nóttina á ráðstefnu með foringjum
rúmenska hersins, þ. á. m. hinum nýja einræðisherra
Rúmena, Antonescu. Alla nóttina voru að berast fregnirx
um ókyrð og óeirðir víðsvegar í Rúmeníu, og í Búkarest
fóru járnvarðaliðar um borgina og hrópuðu: Niður með
Karol.
Antonescu og foringjar hersins, sem fyrir rjettum tíu
árum höfðu fagnað Karol, er hann kom úr útlegðinni, og
lyft honum í valdasess, beittu öllu áhrifavaldi sínu þessa
örlagaríku nótt til að leiða konungi fyrir sjónir, að friður
kæmist ekki á í landinu, nema að hann ljeti að vilja járn-
varðaliðsins.
Kl. 4 um nóttina var tilkynt frá konungshöllinni, að Karol
hefði lagt niður konungdóm, svo að sonur hans, Michael, tæpra
19 ára, gæti sest á konungsstól í hans stað.
KAROL FER í ÚTLEGÐ
Fyrir tíu árum hafði Karol svift Michael, þá tæpra 9
vetra konungsstjórn, til þess að geta sest sjálfur á valdastól. Nú
hafa örlögin hagað því þannig, að Michael er orðinn konungur
í annað sinn, að föður sínum lifandi í útlegð.
Síðdegis í gær lagði Karol af stað í útlegðina og var för
hans fyrst heitið til Belgrad, þar sem hann ætlaði að hitta syst-
ur sína. Sumar fregnir herma, að hann ætli síðar að setjast að
í Sviss.
En áður en hann fór af landi burtu flutti hann ávarp í út-
varp, þar sem hann hvatti rúmensku þjóðina til að sýna syni
sínum hollustu og kærleika.
,, Michael I, hinn nýi konungur, |
vann konungseiðinn kl. 91/2 í
gærmorgun. Strax á eftir vann
Antonescu hershöfðingi kon-
ungi hollustueið.
Síðdegis í gær vann rúm-
enski herinn Michael hollustu-
eiða. I
ANTONESCU RÍKISFORINGI.
Hið fyrsta verk Michaels var
að staðfesta með undirskrift
sinni, vald það, sem faðir hans
hafði veitt Antonescu daginn
áður. En Michael varð að ganga
lengra. Hann varð að «sleppa
hinum tveim rjettindum, sem
Karol hafði áskilið sjer: þ. 'e.
rjettinum til að gera utanríkis-
samninga og til að veita upp-
gjöf saka. 1
Antonescu, sem tekið hefir
sjer titilinn ríkisforingi, birti í
gær ávarp til þjóðarinnar, þar
■ em hann hvatti hana til að vera
rólega og ganga til vinnu sinn-
ar.
Strax og það spurðist, að
■ Michael hefði tekið við völdum,
söfnuðust hermenn úr lífvarð-
arliðinu fyrir utan konungshöll-
ina og hófu að syngja her-
söngva.
Síðar í gær safnaðist gífur-
legur mannfjöldi fyrir utan
höllina til að hylla konung, og
kom hann þá fram á svalirnar.
HELENA KÖLLUÐ HEIM.
Konungur undirskrifaði í
gær ávarpsskjal til Helenu
móður sinnar, sem dvalið
hefir í útlegð síðan 1930,
þar sem látin er í Ijós ósk
rúmensku þjóðarinnar um
að hún hverfi heim. Fær
hún titilinn konungsmóðir
Rúmeníu.
Ávarp þetta' var sent, sam-
kvæmt sjerstakri ósk Antones-
cus.
Helena hefir dvalið í Florenz
í Italíu. En fregnir í gærkvöldi
hermdu, að hún væri á leiðinni
til Bukarest með einkalest, sem
Þjóðverjar fengu henni til um-
ráða.
Einnig á leið til Bukarest með
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.