Morgunblaðið - 07.09.1940, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 7. sept. 1940.
CB DAGLEGA
LÍFIND
Engilbert Hafberg
fimtugur 9. þ. m.
Englendingnr, sem dvaldi í Chile
skrifaði á þessa leið:
„Þegar jeg kom til Chile sannfærðist
jeg af eigin reynslu um, að stjómin,
sem samsett er af radikölum, sosialist-
um og kommúnistum, er gegnum rotin,
og þó að í gamla daga væri nokkuð um
mútur, gengur núverandi ástand fram
úr öllum mannlegum skilningi. Til dæm-
is eru veitt leyfi til innflutnings á á-
kveðnum vörutegundum, og þau ættu
vitanlega að veitást rjettlátlega, en nú
er svo komið, að menn sem nákomnir
eru hinum opinberu skrifstofum ganga
”m með leyfin í vösunum og selja
hæstbjóðanda".
Þið tókuð vafalaust eftir því, að
þessi lýsing er ekki frá íslandi — held-
ur frá Chile.
Pappírsvörur allskonar hafa stór-
hækkað í verði síðan stríðið braust út.
Ef til vill veita menn því ekki al-
ment eftirtekt, að einmitt þessar vör-
ur eiga sinn drjúga þátt í, að skapa
dýrtíS hjer hjá okknr. Verslanir hjer
nota mjög mikið af umbúðapappír. En
vitið þið það, að einn meter af umbúða-
pappír kostar 15—20 aura?
Almenningur gæti á ýmsan hátt
hjálpað kaupmanninum til að spara á
þessum lið, með því að vera ekki kröfu-
harður með umbúðir á þessum tímum.
Það fólk, sem fer sjálft í búðimar og
gerir innkaup, ætti að hafa meðferðis
körfu, því að á þann hátt er hægt að
komast af með minni umbúðir. En
folk er orðið vant því, að vörunum
sje pakkað inn í vandaðar umbúðir
og kann ekki við annað. En það gætir
þess bara ekki, að með því verðlagi
sem nú er á umbúðapappír, verður
þetta til að hækka verðið á þeirri nauð-
synjavöm, sem það er að kaupa.
Væri nú ekki reynandi fyrir fólk, að
verða samtaka í því, að spara sem
mest umbúðimar?
Vigfús Guðmundsson frá Engey hefir
sent blaðinu eftirfarandi sögukom sem
dæmi um það hvemig verðlaunaðar
jarðabætur geta verið úr garði gerðar.
Erásögn V. G. er svohljóðandi:
Nýlega sá jeg á einum bæ, í austur-
hJuta Bangárv.s., þar sem heita átti
að bygt væri úr steinsteypu: þró fyrir
súrhey, safngryfja fyrir áburðarlög og
hús, að nokkru leyti fyrir hey. Þetta
var bygt, eða mælt a. m. k. í fyrra. Nú
var súrheysþróin sundursprungin og ill-
nothæf, eigi síður var safngryfjan rifin
niður í botn og gjörsamlega ónothæf.
En um steypugaflinn, baka til á hey-
húsinu (hlaða getur það varla talist),
er það að segja, að efsti hlutinn, sem
var upp úr jörð, fcmk í veðrinu 27.
júní s. 1. undan þakinu, og alt sprakk
gaflhaðið og hálfhrundi niður að gólfi.
Sjeð hefi jeg margt — fyr og Síðar
— misjafnlega vandað, en varla ann-
að meira að endemum. Og svo var mjer
sagt að þessi fyrirmynd hefði verið
verSlaurmðJeg átti bágt með að trúa
því, og taldi því sjón sögu ríkari. Og
þá varð jeg að sannfærast, með því að
í jarðabótaskýrslunni 1939, sjest það
að fyrir þessi afreksverk hefir fráfar-
andi bóndi fengið í verðlaun kr. 291.04.
Gott væri ef þetta, eða annað þessu
líkt, væri einsdæmi. En hræddur er jeg
um það, að svo sje ekki. Og þá er
þetta og annað þvílíkt, alt í senn: hóf-
laus sóun af ríkisfje, kenslugrein í
hroðvikni og ásælni, hróplegt rang-
læti. gagnvart öllum f jölda bænda, sem
vanda allar endurbætur sínar eftir
fremsta megni, og alvarleg áminning til
jillra trúnaðarmanna Búnaðarfjelagsins.
'^T' æstkomandi mánudag, 9. þ.
4-' m., er Engilbert Einarssop
Hafberg fimtugur að aldri. Hann
er fæddur á Álftanesi 9. sept.
1890. Fór ungur í Flensborgar-
skólann í Hafnarfirði og síðan á
verslunarskólann í Reykjavík.
Gerðist að námi loknu deildar-
stjóri bjá Brydesverslun hjer í
bænum og síðar deildarstjóri hjá
Zimsen. Yar um tíma stórkaup-
maður hjer í Reykjavík og fjekst
um eitt skeið við útgerð á Vest.-
fjörðum. En kunnastur mun hann
vera sem auglýsingastjóri Morg-
unblaðsins. Því starfi gegndi hann
árum saman með miklum dugnaði
Nú er Engilbert bóndi á hinu
forna höfuðbóli Viðey, en annast
jafnframt afgreiðslu vikublaðsins
„Vikunnar" og útvegun auglýs-
inga fyrir það blað. Konu sína,
Olgu Magnúsdóttur verslunar-
manns í Stykkishólmi misti hann
fyrir nokkrum árum frá 5 böm-
um.
Af því, sem hjer hefir sagt ver-
ið, sjest, að Engilbert Hafberg
hefir lifað tilbreytingaríku og
fjölþættu lífi, og hefir því aflað
sjer mikillar og margháttaðrar
lífsreynslu. — En Hafberg er
meira en umsvifamikill athafna-
maður. Hann er hugsandi maður
og andlega sinnaður, og hefir alla
jafna látið sig tilraunir mannanna
til skilnings á rökum tilverunnar
nokkru skifta. Hefir hann árum
saman verið meðlimur í fjelags-
skap Guðspekinema hjer á landi
og í Sam-Frímúrarareglunni, og
jafnan lagt þar gott eitt til mála,
enda er maðurinn góðviljaður og
hinn tillögubesti. Fjölbreytileg
lífsreynsla mun hafa keiit honum,
að jafnan hefir hvert mál margar
hliðar og að hefir hver til síns
ágætis nokkuð, og fyrir því s.je
viturlegast að fordæma aldrei
neitt, en að „fordæma“ þýðir að
dæma fyrirfram, eins og orðið
sjálft segir til um, áður en allir
málavextir hafa verið athugaðir
og krufðir til mergjar. Þrátt fyr-
ir ríkar tilfinningar er Hafberg
því vel til þess fallinn að vera
málamiðlari og mannasættir.
Hann er og hugkvæmur maður
og fær oft ljós yfir viðfangsefn-
in í snöggum leiftrum, líkt óg
skáld og listamenn.
Jeg, sem þessar línur rita, hefi
haft þá ánægju að kynnast Eng-
ilbert Hafberg allmikið, og vii
nota þetta tækifæri til að þakka
honum fyrir þá viðkynningu og
árna honum allra heilla í fram-
tíðinni. Hann hefir margs að
minnast, er hann lítur nú yfir veg
hálfrar aldar á þessum merkilegu
Kartðflur
ágætar, nýar.
Lækkað verð.
vmn
Laugaveg 1. Fjölnisveg 2.
□
30
Engilbert Hafberg.
tímamótum, og munu hvarfla um
hann hugir margra vina og kunn-
ingja. Því Hafberg er vinsæli
maður. Vil jeg að síðustu óska
honum þess fimtugum, að vætt-
irnir í Viðey, sem vera munu
hollvættir, veiti honum örugga
fvlgd það, sem eftir er æfinnar,
hvort sem það á að verða langt
eða skamt. Gretar Fells.
fslensk kona lýsir
ástandinu í Kína
FRAMH. AF. FIMTU SÍÐU.
í Hunan. Norska fjelagið, sem
styður þau, átti fje í Englandi,
svo að þau verða ekki í vandræð-
um í bráðina.
Við hjónin erum bæði við furð-
anlega góða heilsu, þegar litið er
á aldur okkar og allar aðstæður.
Það eru þó nokkrir, miklu yngn
en, við, sem hafa blátt áfram ekki
haft taugar til að vera sjónar-
vottar hörmUnganna, sem hjer eru
daglegir viðburðir.
En við erum afar þakklát
kristniboðsvinum á ættjörð minui,
sem biðja fyrir okkur. Við höf-
um verið að vona að geta komið
við á fslandi á heimleið til Ame-
ríku, þegar dagsverki okkar hjer
er lokið. En Norðurálfustríð og
tundurduflahætta breyta öllum
ferðaáætlunum. — Guð blessi alt
kristilegt starf á gamla landinu
mínu og varðveiti þjóð mína frá
hörmungum ófi'iðarins“.
Þetta var aðalefni brjefsins. En
vilji einhver gleðja frú Steinunni
með brjefi, þá má fá áritun þeirra
hjóna hjá mjer.
Sigurbjörn Á. Gíslason.
Rakarastofur
bæjarins verða framvegis opnar
til kl. 7 á laugardögum.
AUGAÐ hvílist
með gleraugum frá
Startskráin
kemur í blaðinu á morgun.
Sendið auglýsingar tíman-
lega í dag.
Nýtt jarðsíma-
kerfi í mið-
bænum
\T egfarendur hafa verið að
* spyrja um það, vegna
hvers Landssíminn sje nú sem
óðast að láta grafa upp götum-
ar í Miðbænum og steypa upp
allstór jarðhús á gatnamótum.
Hefir blaðið spurst fyrir um
þetta og fengið þá skýringu.
Hingað til hafa jarðsíma-
strengir bæjarsímans verið í
járnumbúðum og varðir með
sementssteypihéllum. En meðan
þessi útbúnaður er, þarf oft að
grafa upp göturnar.
Til þess að komast hjá því
að róta nokkuð í götunum
vegna jarðsímastrengjanna, á
nú að setja pípur eftir aðalgöt-
unum, sem sjeu marghólfa og
hægt að renna símastrengjum
óvörðum inn í pípur þessar. En
á gatnamótum þurfa að vera
jarðhús til þess að komast að
pípunum.
Að þetta er gert nú, kemur
m. a. til af því, að þegar hita-
veitukerfið er komið í göturnar,
vérður örðugra en áður að róta
í þeim eins og gert hefir verið.
Sumardvöl
barnanna
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
sveitalífinu. Altaf þegar þau komu
auga á kýr eða hesta, þá töluðu
*
þau um það hvað gripa þessara
væri eins á litinn, eða mintu sig
á gripina á sumardvalarheimilum
þeirra. Þau töluðu um fólkið, sem
þau höfðu kynst, um búskapinn
og sveitalífið og voru meira og
minna hrifin af hinu nýja og ný-
stárlega umhverfi.
Sum þeirra barna, sem voru
veikluð og illa haldin er norður
kom, gerbreyttust bæði í útliti, og
í hugsun og framkomu allri.
Kirtlaveikur piltur, sem var allur
með kaunum, varð á skömmum
tíma algróinn sára sinna, var
fyrst daufur og sinnulítill, en
fjekk áhuga fyrir lestri og hvers-
konar fræðslu.
Foreldrarnir
þakklátir.
í gærkvöldi kom maður einn
inn á skrifstofu blaðsins, er átti
3 börn sín norður á Laugum.
Hann sagði,-
Mjer þykir leiðinlegt ef for-
eldrar barnanna, sem hafa átt
börn sín á vegum Rauða Kross-
ins, taka sig ekki fram um það,
að þakka það sem fyrir börnin
hefir verið gert. Jeg tel það á-
kaflega mikils virði.
Börnin eru hress og kát. Þau
hafa notið þessarar sumardvalar.
Þau eru ákaflega vel útlítandi í
alla staði. Og fötin, sem þau koma
með, eru svo snyrtileg og hrein.
Jeg fæ ekki nógsamlega þakk-
að hvað fvrir mig og börnin hefir
verið gert. Og viss er jeg um, að
foreldrar barnanna hugsa yfirleitt
eins og jeg. *
Indo-Kfna:
Samkomulag
Frakka og
Japana
Samkvæmt Reutersfregn frá
Hong Kong, hefir Decoux,
landstjóri Frakka í Indo-Kína
fallist á að leyfa Japönum að
setja 12 þús. manna lið á land
í Indo-Kína á þrem stöðum.
Hafa samningar tekist milli
Frakka og japönsku herstjórn-
arinnar á þessum grundvelli.
Þar sem fregn þessi hefir
ekki fengist staðfest, hefir eng-
in athugasemd verið gerð við
hana opinberlega, hvorki í
London nje Washington. Hins-
vegar er litið svo á, að reynist
það rjett, að Frakkar hafi leyft
Japönum að fá fótfestu í Indo-
Kína, jafnvel þótt liðið sem þeir
mega setja á land þar sje ekki
mikið, þá sje jafnvæginu í Aust-
ur-Asíu þar með raskað.
Cordell Hull, utanríkismálaráðherra
Bandaríkjanna skýrði frá því í gær,
að hann hefði nýlega sent japönsku
stjóminni nýjan boðskap, þar sem lögð
var áhersla á, að Bandaríkin teldu það
mikilvaígt að jafnvæginu yrði ekki
raskað hvorki í Indo-Kína nje í ný-
lendum Hollendinga í Austur-Indlands-
eyjum.
í London er vakin athygli á, að full-
komin samvinna sje á milli Breta og
Bandaríkjamanna í Austur-Asiu.
FRANCO HEIÐRAÐUR
Sendiherra Þjóðverja á Spáni
hefir sæmt Franco hershöfð-
ingja, í umboði Hitlers, stórkrossi
járnkrossorðunnar þýsku, úr gulli.
Sildin
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
leggja af stað heimleiðis, bíða
betra veðurs.
MIKIL SÍLD Á AUSTUR-
MIÐUM. — RAUFAR-
HAFNARVERKSMIÐJAN
HÆTTIR.
Frjettaritari blaðsins á Rauf-
arhöfn símar í gærkvöldi:
Fyrripart dags var hjer gott
veður og síld um allan sjó frá
Rauðanúp að Langanesi.
I dag tók verksmiðjan síð-
ustu síldina á þessu sumri. Þrær
allar fullar og plásslaust fyrir
mjöl og lýsi.
Síðustu skip er lönduðu á
þessari vertíð voru: Freyja frá
Súgandafirði 250 mál, Már 250,
Hermóður 400, Sæborg 500,
Barði 350, Bliki 300, Hrafnkell
goði 500, Reynir og Víðir 670,
Fylkir Akranesi 500, Huginn
III. 800, Garðar 700.
Húsnæðl
óskasl.
Stúlka í fastri stöðu óskar eftir
2—3 herbergja íbúð, méð nýtísku
þægindum. — Tilboð, merkt „20“,
leggist inn á afgr. Morgunblaðsins.