Morgunblaðið - 08.09.1940, Page 3

Morgunblaðið - 08.09.1940, Page 3
Sunnudagur 8. sept. 1940. 3 MORGUNBLAÐIÐ London eítir dð stríðið hófst Frá götu í London. Hérfylking á ferð um götuna. Þinghöllin með ,.Bíg Ben“ í baksýn. Tvö innbrot I fyrrinótl T fyrrinótt brutust breskir her- menn inn í Kjötbúð Hjalta Lýðssonar á Qréttisgötu 64 og stálu þar einum kjötskrokk. Höfðu þeir farið inn um ókrækt- an glugga yfir búðardyrum, en við það brölt brutu þeir ríiðu og varð af svo mikill hávaði að fólk varð vart við. Var þegar hringt úr tveimur stöðum til lögreglu- varðstofunnar og henni skýrt frá þessu. Brugðu íslenskir og enskir lögregluþjónar þegar við og fóru á staðinn. Bar þá svo skjótt að, að innbrotsmennirnir voru ekki komnir lengra en suður á Baróns- stíginn á móts við Egilsgötu. Þar náðust þeir; voru 4 saman og hafði einn kjötskrokkinn á bak- inu. Bresku lögreglumennirnir hirtu mennina og fóru með þá í varðhald. 100 krónum í skiftimynt stolið. Þá var og í fyrri nótt brotist inn í mannlaust herbergi á Lauga- vegi 103. Býr þar Hannes Ágústs son pylsusali og átti hann geymd- ar um 100 krónur í smápeningum í kassa í herberginu. Þessa pen- inga hafði þjófurinn á braut með sjer, og hefir ekki náðst í hann enn. Meistarakepni hefir farið fram síðastliðna viku á golfvellinum. Úrslitakepni verður í dag kl. 2. Þá keppa í meistaraflokki kvenna Herdís Guðmundsdóttir og Ólafía Sigurbjörnsdóttir, í meistaraflokki karla Gísli Ólafsson og Þorvaldur Ásgeirsson og í 1. flokki karla Hallgrímur F. Hallgrímsson og Frímann Ólafsson. Sýningin fekk ekki eyri Tíminn gefur rangar upplýsingar ÍÐASTUÐINN föstudag birt- ist á fremstu síðu Tímans smáklausa, sem ritstjórnin ætl- ast sýnilega til, að ekki fari framhjá lesendum, því að hún er sett með feitu letri inn í ramma. Klausan er svohljóð- andi; „ÞJÓÐVILJINN ræðst á Vilhjálm Þór fyrir að hann hafi stungið í sinn vasa launum fyrir vinnu við síldarsölu í Ameríku. Til leiðbeiningar kommúnistum og íhaldi skal það tekið fram, að allar tekjur fyrir störf Vil- hjálms ganga til að standast kostnað við sýninguna og önn- ur störf, er hann vinnur fyrir þjóðina“. TIL ÞESS að lesendur Morgun- blaðsins geti betur áttað sig á, hvað hjer er átt við, skal þess getið, að það kom nýlega fram á aðalfundi síldarútvegsnefnd- ar, sem haldinn var á Siglu- firði, að Vilhjálmi Þór hafi s.l. ár verið greiddar tæpar 40 þús. krónur fyrir að annast sölu síldar í Ameríku. Það eru vafa- laust þessar 40 þús. krónur, sem Tíminn segir, að runnið hafi til sýningarinnar í New-York. MORGUNBLAÐIÐ sneri sjer til Haralds Árnasonar kaupmanns, sem hefir haft aðalframkvæmd- ir sýningarinnar með höndum FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. 5500 tunn- ur síldar til Fyrsta salan Samningár hafa tekist um sölu á 5500 tunnum saltsíldar til Svíþjóðar og verður þessi síld send út nú næstu daga. Verðið er 70 ísl. kr. tunnan, komin í skip í höfn hjer. Þessi sala hefir farið fram fyrir milligöngu íslenska sendiráðsins í Stokkhólmi (Vilhjálmur Finsen), en Finnur Jónsson alþm. hefir verið sendiráðinu til aðstoðar. Sænska aðalkonsúlatið hjer í Reykjavík hefir einnig unnið dyggilega að þessari sölu. Það þótti rjett að skýra frá hvernig þessi sala hefir gengið til. vegna frásagna Alþýðublaðsins í gær, sem ekki er heil brú í að neinu leyti. Síldarútvegsnefnd hefir í alt sumar unnið að síldarsölu til Sví- þjóðar. Enn hefir ekki tekist að ganga frá meiri sölu en hjer að framan greinir. En unnið verður að þessu máli áfram og er von- andi, að úr rætist betur síðar. Svíar vilja gjarna kaupa af okk- ur talsvert af síld, en það hefir til þessa strandað á öðrum ófrið- araðilanum (Þjóðverjum). Þeir hafa enn ekki leyft nema þessar 5500 tunnur. En, sem sagt, síldarútvegsnefnd vinnur áfram að þessu máli. Nefndin nýtur þar dyggilegrar að- stoðar sænska aðalkonsúlatsins hjer og sendiráðsins íslenska í Stokkhólmi. Hefir nefndin vou um, að takast muni að koma í gegn meiri síldarsölu til Svíþjóð- ar á næstunni. Haokadalskirkja vfgð I dag Vígsla hinnar nýju, endurbygðu Haukadalskirkju fer fram í dag, og hefst athöfnin um kl. 1. Herra Sigurgeir Sigurðsson bisk- up vígir kirkjuna, en, viðstaddir verða sendiherra Dana, Jón Helga- son biskup og aðrir gestir. Ilin mikla friðunargirðing í Ilaukadal og hin nýbygða kirkja er reist fyrir gjafafje íslandsvin- arins Christians Kirk verkfræð- ings, sem nú er látinn. Hefir minn- ismerki hans verið reist innan við hlið friðunargirðingarinnar. Tjald, sem tekur 300 manns, hefir verið reist á staðnum og verða þar veitingar og ræðuhöld í sambandi við athöfnina. Að Jaðri, skemtistað Templara, fara fjelagar st. Einingin nr. 14, berja- og skemtiför í dag kl. 1 stundvíslega frá G. T.-húsinu. Reyk jnvíkurhöfn lokað á nóttnnni BRESKA SETULIÐIÐ hefir ákveðið að loka Reykja- víkurhöfn á nóttunni. Kemur þetta til framkvæmda í nótt. Lokunin er þannig, að duflgirðing er sett í mynni hafn- arinnar, og er höfninni lokað frá kl. 8 að kvöldi til kl. 6 að morgni. Geta skip því ekki komist inn í höfnina á þessum tíma. Lokun hafnarinnar verður á sama tíma framvegis, eða ,,þar til öðruvísi verður ákveðið' , eins og segir í tilkynningu hafnarstjóra. Brjefaviðskifti um verklegar fram- kvæmdir A.s. Nðjgaard & Schuitz Til atvinnumálaráðherra frá fjelögum múr- ara og trjesmiða, og skýrsla til bæjar- stjórnar frá Höjgaard & Schultz D5. sept sendu fjelög * Múrarameistara og trje- smiða brjef til atvinnumálaráð- herra og til bæjarstjórnar Reykjavíkur út af verktöku Höj gaard og Schultz, þar sem þess er vænst, að ráðherrann taki málið til athugunar. Brjefið til ráðherrans er svo- hljóðandi: Háttvirti atvinnumálaráðherra. Samkvæmt viðtali og brjefaskiftum er iðnfjelögin hafa haft við ráðuneyti yðar í sumar, er yðnr kunnugt, að at- vinnuleysi á meðal byggingarmanna hefir verið mjög mikið, síðari hluta síðasta árs og þetta ár, þar til nú að breska setuliðiö hóf byggingu her- mannaskálanna. Þessi vinna er þó þeim annmörkum háð, að hún er aðeins fyrir þá, sem vinna hjá öðrum. Við þessn vasri ekkert að segja ef ekki hefði bfugðið svo við, að útlent byggingar- fjelag (Höjgaard & Schultz), er hjer hefir með stórverk að gera, tekur að sjer í ákvæðisvinnu að franikvsema verk fyrir breska setuliöið, sem að engu er frábugöið hliðstæöum verkum er innlendir byggingamenn, hafa áður leyst af hendi. Þó er engum innlendum byggingamönnum gefinn kostur á aö bjóÖa í þetta verk. Hafa þeir þó verk- færi og áhöld, sem þeir hafa keypt dýru veröi, og því fyllilega samkepn- isfærir að því leyti, til að framkvæma verkiö, en ekki gefinn kostur á að njóta samkepninnar. Aöur áminnst fjelag hefir flutt hing- að inn byggingarefni og áhöld til á- kveðins verks, tollfrjálst, sem ætla má, að notað sje til áðurgreinds verks, að einhverju leyti. Vjer vonum að þjer háttvirtur ráð- herra, takið þetta mál til athugunar- og á þann veg, aö íslenskir byggingamenn, hvort sem þeir eru æöri eða lægri, fái af njóta fylsta rjettar í sínu eigin landi, og þurfi ekki að eiga yfir höfði sjer þá hættu, að útlent byggingarfje- lag, er fær hjer fríðindi um stundar- sakir, til framkvæmda á ákveönu verki, fái aðstöðu til að keppa á móti íslensk- tm byggingarmönnum, meö þeirri sjer- stööu, að það hefir yfir að ráða toll- frjálsu efni og ef til vill undanskilið þeirri skattaálagningu til bæjar og rík- is, sem íslenskir menn verða að greiða Virðingarfylst. | F.h. Trjesmiðafjelags Reykjavíkur, | F.h. Múrarameistaraf jelagsReykjavíkur, rá K. Langvad yfirverkfræð- ing'i við firmað Höjgaard og Schultz hjer hefir bæjarstjórn borist brjef eða skýrsla út af á- lykttminni, sem gerð var á síðasta bæjarstjórnarfundi, um fram- kvæmdir firmans hjer í bænum. Er í niðurlagi brjefsins sagt svo, að þess sje vænst að bæjarstjórn geri almenningi kunnugt innihald þess. I brjefinu segir svo: - Við ályktun þá, sem samþykt vax einróma á síðasta bæjarstjómarfundi, leyfum vjer okkur hjer meö að gera eftirfarandi athugasemdir: Verk þau, sem við í ár höfum tekið að okkur til framkvæmda, höfum við tekist á kendur samkvæmt beinum til- mælum Gðkomandi verkbjóðanda, þar eð sjerstakar kringumstæður hafa gert það mjög eðlilegt að verkbjóðendur snúi sjer til okkar. 1 síðastliðnum nóvembermánuði sneri Landsíminn sjer til okkar viðvíkjandi fyrirætlun um að leggja símastrengja- pípnr með tilheyrandi jarðhúsum í Miðbæinn. Þaö er svo eðlilegt að vinna þetta verk I sambandi við gatnakerfi Hitaveitunnar, að það hefði verið 6- skynsamlegt af Landsímannm að sleppa því tækifæri. Því þeir geta best gert jarðsímakerfið, sem gera gatnakerfi Hitaveitunnar, þar eð vinna þarf bæði verkin samtímis í hverri götu. Mörg verkleg atriði koma þar til greinai, sem ekki er hægt að gera nema í mjög náinni samvinnu. Nokkrir fimdir vóru haldhir um þetta í nóvember milli landsímastjómarinnar FRAMH. Á SJÖTTU Sfi)U. Snfóar níðtir í bygð Frjettaritari Morgunblaðsins á Akureyri símar í gær: Hjer er nú norðan hvassviðri og mikill knldi. Snjóað hefir í fjöll hjer allsstaðar og jafnvel niður á láglendi. Tún ern víða alhvít hjer nm slóðir. Frjettaritarinn á Siglufirði sím- ar: Síðasta sólarhring hefir verið versta veður, norðanstormnr með snjókomu. Alhvítt niður í bygð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.