Morgunblaðið - 29.09.1940, Side 2
2
MÖRGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 29. sept. 1940.
136. loftvarnamerk-
Herskáar ræður
ið gefið í London
100 þús. smálestum af
sprengjum varpað yfir
England síðustu 36 klst.
LOFTVARNAMERKI var gefið í London í gær-
kvöldi 21. kvöldið í röð. Um kvöldmálaleytið
var loftvarnamerki gefið í 136. skiftið í þess-
ari stærstu borg heimsins.
Fyr í gær höfðu Þjóðverjar gert þrjár atrennur til að
komast yfir London. I tilkynningu Breta segir, að Þjóð-
yerjar hafi sent aðallega orustuflugvjelar, svo að loftbar-
dagarnir, sem háðir hafi verið, hafi nær eingöngu verið
milli orustuflugvjela. í loftbardögum þessum segjast Bret-
ar hafa skotið niður 6 þýskar flugvjelar, en mist sjálfir 7.
í loftbardögunum í fyrradag segjast Bretar hafa skotið
niður 133 flugvjelar, en mist sjálfir 34, en 17 flugmenn hafa
bjargast. Mr. Churchill hefir sent flugstjórninni brjef og óskað
henni til hamingju með þenna þriðja stóra sigur í orustunni um
Bretland. Þessi sigur er næstur á eftir loftsigrinum 15. sept. og
15. ágúst.
Þjóðverjar segjast hafa skotið niður 101, breska flugvjel
og mist 38 í fyrradag.
ÞaS var tilkynt í Þýska-
landi um miðjan dag í gær
aS síSustu 36 klst. hefSi
veriS varpaS á England 1
þús. smálestum af sprengj-
um af öllum gerSum.
Þjóðverjar skýra frá miklu
tjóni í London í loftárásunum
undanfarna sólarhringa.l bresk-
um fregnum er viðurkent að
efnislegt tjón hafi orðið nokk-
uð, og einnig manntjón.
Innrásarborgirnar.
Bretar gerðu í fyrsta sinn í
fyrakvöld loftárás á borgina
Lorient sunnanvert á Bretagne-
skaga, við Biscayaflóa, en þar
hafa Þjóðverjar skipaflota eins
og 1 Ermarsundsborgunum. —
Bæði í fyrrakvöld og í gær-
kvöldi hjeldu Bretar uppi á-
köfum loftárásum á Ermar-
sundsborgirnar og í London var
í gærkvöldi vitnað í Associated
Press fregn sem hermdi, að loft-
titringur frá sprengjunum
handan við sundið væri þá meiri
á suðausturströnd Englands en
nokkru sinni áður.
Auk loftárásanna á Ermar-
sundsborgirnar gerðu Bretar
árás á Manheim, Diisseldorf
og Hamm.
1 fregn frá London er skýrt
frá því, að þýsk flugvjel hafi
í gær flogið í 200 feta hæð
yfir borg einni á suðaustur-
strönd Englands og skotið á
fólk á götum af vjelbyssum.
Saiftskonar atvik er sagt hafa
!átt sjer stað í Wales.
— Churchill —
kemur til London
frá Banúaríkjunum
Fyrstu tundurspillarnir; sem
Bretar fengu frá Banda-
ríkjunum, í skiftum fyrir flota-
bækistöðvar í Vestur-Indlands-
eyjum, komu til Englands í
gær. í fararbroddi fór tundur-
spillirinn, sem skírður verður
innan skamms „Churchill".
Engin hátíðahöld fóru fram
þegar tundurspillarnir tóku
höfn í Englandi. En í breskum
fregnum er vakin athygli á því,
að tundurspillarnir sjeu tákn
þeirrar samvinnu, sem ríkjandi
sje á milli Bretlands og Banda-
ríkjanna og hinna sameiginlegu
hugsjóna þeirra.
Tundurspillarnir eru 1200
smálestir og geta farið 35 sjó-
mílur á klst.
Sýslustjórn
ILondon er vakin athygli á
að í hinni nýju norsku stjórn
Johannesens sje enginn utan-
ríkismálaráðherra. Hjer sje að
eins um að ræða sýslustjórn
Þjóðverja í Noregi.
í róðrarbát yfir
Norðursjó
að var upplýst í London í
gær að í byrjun júlí hefðu
tveir ungir Norðmenn farið á
opnum róðrarbát frá Stat í
Noregi (skamt fyrir norðan
Álasund) til Shetlandseyja. —
Þeir voru fimm daga á leiðinni.
Þeir keyptu bátinn af göml-
um sjómanni fyrir 23 krónur.
Bátinn skýrðu þeir „Fram“,
eftir skipi Fridtjofs Nansens.
Norska verslunarmálaráðu-
neytið í London hefir nú keypt
bátinn með það fyrir augum
að setja hann í sjómannasafnið
í Óslo, til minningar um þessa
ifrækilegu dáð ungu mannanna.
Konoye prins.
Spðnn: Við-
ræðum i
Berlfn Inkið
Opinber tilkynning var gefin
út í Berlín gær um heim-
sókn spánska innanríkismálaráð-
herrans Serranus Suner.
í tilkynningu þessari segir að-
eins að viðræður hafi íarið fram
milli hans, og þýskra stjórnmála-
manna, þar sem rætt hafi verið
hreinskilnislega og til hlítar um
öll mál, sem varða Þjóðverja og
Spánverja sameiginlega.
Suner fer nú heimleiðis t.il að
gefa Franco skýrslu.
Martha krónprinsessa
í útvarpi frð U, S. A.
í kvóld
Kl. 10 í kvöld, eftir Mið-
Evróputíma flytur Marta
krónprinsessa ávarp á norsku í
útvarp í New York, er „norskt
vináttuútvarp“ hefst frá Banda-
ríkjunum. Verður útvarpað á
norsku framvegis frá útvarps-
stöð í New York á 19,6 metrum
og 25.4 metrum kl. 10 til kl.
11 á hverju kvöldi.
í kvöld er útvarpssendingar
þessar hefjast, stendur útvarpið
yfir í heila klukkustund.
beggja megin
Kyrrahafs
Þríveldasáttmálinn tákn
baráttunnar milli „gamla
skipulagsins“ og hins nýja
KONOYE prins, forsætisráðherra Japana, sagði
í gær í ræðu, sem útvarpað var um allan heim,
að þríveldabandalag Japana, Þjóðverja og It-
ala leiddi í ljós baráttuna, sem háð væri milli hins gamla
skipulags og nýja skipulagsins í heiminum. Hann sagði,
að öll þrjú ríkin væri við því búin að fylgja fram hinu
hernaðarlega ákvæði sáttmálans.
En ráðherrann dró enga dul á það, að Japanar litu á
sáttmálann sem besta tækið, sem þeir hefðu yfir að ráða,
til að koma fram stefnumálum sínum, þ. e. nýju skipulagi
í Austur-Asíu.
YIÐ ÖLLU BtJNIR.
1j ræðu, sem aðstoðarutanríkismálaráðherra Bandaríkjanna,
Sunner Wells, flutti í gær, sagði hann að Bandríkjunum mis-
líkaði aðfarir Japana í Indo-Kína. Hann sagði að Japanar hefðu
sýnt það ótal sinnum, að þeir vildu skipa málum Austur-Asíu
upp á ejgin spýtur. En stefna Bandaríkjanna væri að fylgja því
fram að alþjóðasamningar um Austur-Asíumálin væri haldnir í
heiðri og að viðurkendur væri jafn rjettur allra til viðskifta við
þjóðirnar í Austur-Asíu.
En ráðherran kvaðst ekki sjá neitt ágreiningsmál, sem
ekki væri hægt að leysa friðsamlega. Samt sem áður yrðu
Bandaríkin að véra við öllu búin.
NÝ ÓFRIÐARHÆTTA í INDO-KÍNA,
Ókyrðin í Indo-Kína heldur áfram. Fregnir frá
Tschungking, höfuðborg Chiang Kai Sheks herma, að
kínverska stjórnin hafi ákveðið að senda her inn í Indo-
Kína, til að gæta hagsmuna sinna.
Önnur fregn hermir, að skotið hafi verið af vjelbyssum
(úr flugvjel frá Thailand (Síam) á þorp eitt 45 kílómetra innan
Indo-Kína. Thailendingar hafa eins og kunnugt er gert landa-
kröfur á hendur Indo-Kína.
Roosevelt forseti hjelt ræðu við
vígslu nýrrar flugstöðvar í Was-
liington í gær, og sagði að flug-
vjelarnar, sem sveimuðu yfir vell-
inum í tilefni af vígslunni, væn
tákn þess, að Bandaríkin væri við-
búin á landi, sjó og í lofti til að
lirinda öllum árásum. En hann
sagði, að þeim mun fleiri flug-
vjelar sem þeir ættu, þeim mun
minni líkur væri til þess að þeir
þyrftu að nota þær í ófriði.
Roosevelt sagði, að 50 þús.
manns hefðu nú flugleyfi í Ame-
ríku. En 2000 manns bættust
mánaðarlega við þenna hóp, sem
viðbúnir væru að fara í hernað
fyrirvaralaust.
Eins væru bændurnir, sem nú
plægðu akrana í Bandaríkjunum,
viðbúnir að taka upp byssur.
í STRÍÐIÐ.
Tvö Bandaríkjablöð skrifuðu í
gær á þá leið, að eftir að þrí-
veldabandalagið hefði verið gert,
væri fullvíst að Bandaríkin væru
orðin þátttakandi í stríðinu fyr
en varði.
Annað blað spáir því, að Banda-
ríkin muni fara í stríðið fyrir
næsta vor, en hitt blaðið, „New
York Sun“ spáir því, að Banda-
ríkin fari í stríðið fyrir forseta-
kosningarnar 6. nóv.
Það var búist við að Willkie,
forsetaefni republikana myndi
gera þríveldabandalagið að um-
ræðuefni í ræðu, sem hann ætlaði
að flytja í gærkvöldi.
HJÁLP TIL BRETA.
Sumnei’ Wells sagði í ræðu sinni í
gær að Randaríkin myndu halda áfram
þeirri stefnu, að veita Bretum alla þá
efnishjálp, sem þeir gætu í tje látið.
I fregnum frá New York er gert ráö
fyrir að svar Breta við þríveldabanda-
laginu verði að þeir opni Burmaveginn
fyrir hergagnaflutningum til Kína og
geri samninga við Bandaríkin og Ástra-
líu um nýjar flotabækistöðvar í Kyrra-
hafi.
Þrfveldasáttmálinn var ekki birtur í
jVIoskva fyr en í gær. En engin atbuga-
semd var gerð við hann önnur en sú
að skýrt frá dómum, sem hann hafði
lilotið í Bandaríkjunum.
I breskum blööum er því haldið
fram, að þríveldabandalagið sje aðeins
and-kommúnista-sáttmálinn endurvak-
inn, aukinn og endurbættur og að hon-
um sje ekki síður stefnt gegn Rússum
en Bandaríkjum.
MIKLAR LOFTÁRÁSIR.
T tilkynningu þýsku herstjómarinnar
segir, að mikið fluglið hafi í fyrra
dag verið sent til árása á London og
aðra staði í landinu.
Tjón varð víða mikið, til dæmis
komu sprengjur þyngstu tegundar á
hergagnasmiðju eina í Mið-Englandi-